Morgunblaðið - 05.01.1984, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
Ótrúleg viðkvæmni
lagadoktors
eftir Kristin Jón
Guðmundsson
í Þorláksmessuútgáfu Morgun-
blaðsins sýnir hinn hálærði laga-
doktor Gunnlaugur Þórðarson
mér þann heiður að virða mig
svars. Veit ég að í hjarta sínu hef-
ur hann lofað mig fyrir að gefa sér
enn eitt tækifæri til að opinbera
sína djúpu öguðu hugsun. Sér-
staklega þar sem fyrri deilufélag-
ar virðast vera að missa móðinn í
viðureigninni við prúðmennið
mælska. I einlægni sagt átti ég
annarra viðbragða von frá hinum
„kúltíveraða" heimsmanni. Bjóst
jafnvel við að hann brygðist við „á
þann hátt, sem hefur verið siðaðra
manna fyrr og síðar" og byði mér
heim til síðdegisdrykkju og reyndi
að nálgast mig i sínum létta og
viðkunnanlega rabbstíl og mæla
af visku meistarans til hins
óharðnaða ungmennis. — En dr.
Gunnlaugur Þórðarson hlýtur að
hafa haft hinar hrikalegustu
draumfarir aðfaranótt hins 20.
des., dreymt bæði Halldór Krist-
jánsson og Guðstein Þengilsson,
og lesið svo grein mína með morg-
unkaffinu, þrútinn sem ólgusjór.
Þykir mér, ungmenninu, þó nokk-
ur vegsauki af að vera stungið í
bás með margsjóuðum vara-
þingmanni Framsóknarflokksins
og sprenglærðum lækni og við svo
slegnir af sameiginlega við hátíð-
lega athöfn á síðum Morgunblaðs-
ins. Er ég þó of ungur að árum til
að hafa drýgt svo stórar syndir
sem þeir félagarnir. En dr. Gunn-
laugur telur mig greinilega kjör-
inn fulltrúa fyrir fórnarlömb
mesta böls nútimans — þ.e. bind-
indishreyfinguna, eins og ég leyfi
mér að leggja honum í munn. Þar
segir hann „trúbræður" mína
halda sig. Mætti ég benda mínum
góða „leiðbeinanda" á að í Stór-
stúku íslands hef ég aldrei stigið
fæti, og á vonandi eigi eftir að
gera. Að vísu fékk ég forsmekkinn
í barnastúku í Kópavogi fyrir
sosum áratug, en leist ekki á blik-
una þegar mikið embættastríð
hófst og dyravörslustarf með til-
heyrandi borðamerkingu var orðið
fyrsta skref til metorða í hreyf-
ingunni. Fannst mér fyrirbærið
frekar hæfa fólki í embættaleik en
áhugamönnum um hamingjuríkt,
vínsnautt líf. Þarna sér doktorinn
að mér er ekki alls varnað.
í upphafi Þorláksmessuboð-
skapar síns átelur dr. Gunnlaugur,
mildilega, ritstjórn Morgunblaðs-
ins fyrir að hafa ekki hamið „belg-
ing“ minn áður en hann birtist á
prenti. Þarna er eina auðsæilega
dæmið um ellifordóma hjá hinum
annars frjálslynda lögmanni. Ekki
„bar“ ritstjórninni að „leiðbeina"
Halldóri Kristjánssyni, þó hann
léti mun beiskari orð falla um af-
drif dýrlingsins látna — Jónasar
Hallgrímssonar, en ég nokkurn-
tíma. Doktorinn, sem yfirlýstur
Kristinn Jón Guðmundsson
„Þykir mér, ungmenninu, þó
nokkur vegsauki af að vera
stungið í bás með margsjóuð-
um varaþingmanni Fram-
sóknarflokksins og spreng-
lærðum lækni, og við svo
slegnir af sameiginlega við
hátíðlega athöfn á síöum
Morgunblaðsins.“
jafnréttissinni, má ekki láta sig
henda það að láta mann gjalda
sinna fáu ára. Er svo langt síðan
doktorinn sjálfur sprangaði um
götur Reykjavíkur með nýstúd-
entshúfuna á kolli, ölvaður af
gleði lífsins og tækifærum æsk-
unnar? Hvað varðar hitt ámælis-
efnið, þ.e. hin „upplognu" orð og
hugsanir doktorsins, vil ég aðeins
segja að ég dró saman hin ýmsu
spekimál hans í greininni góðu og
komst að þeirri niðurstöðu sem
þar var að hafa. Ef ég skildi ekki
rétt, væri það þá ekki lögmannsins
að upplýsa hvað hann eiginlega
meinti með sinni hjartnæmu hug-
leiðingu um „aflvaka vestrænnar
menningar og lista"?
Varðandi Jónas heitinn Hall-
grímsson: Fyrir flesta íslendinga
er hann skær stjarna í listasögu
þjóðarinnar. Þó sérstaklega fyrir
dr. Gunnlaug Þórðarson, sem virð-
ist hafa tekið hann í dýrlingatölu,
sem hann svo tilbiður í katólskum
anda. Hvað geri ég svo, mennta-
skólaneminn óvitri, til að „sví-
virða“ á „óþverralegan" hátt þetta
góðskáld vort? Jú, ég blanda mér í
mánaðalangar þrætur doktorsins
og Kirkjubóls-Halldórs, sem sá
fyrrnefndi espaði hinn út í með
ögrandi ljóðatilvitnunum. Þar
reyni ég aðeins að velta fyrir mér
örlögum þjóðskáldsins míns hefði
hann ekki seilst í flöskuna og legg
í leiðinni út af kenningu doktors-
ins um „aflvakann" margfræga.
Ég hélt að ég hefði gert það á
jákvæðan og smekkvísan hátt.
Hitt grunar mig að í eldglæring-
um reiði sinnar hafi doktorinn séð
menntaskólanemann fyrir sér með
höfuð Halldórs á Kirkjubóli, og
beint því spjótum sínum í þá átt,
til uppáhaldsfjanda síns.
Svo er það Frelsarinn. Ég per-
sónulega vænti einskis af Jesú
Kristi á efsta degi og rétt hangi í
Þjóðkirkjunni, þannig að ég hef
litla ástæðu til áð „nugga mér
utan í“ hann, eins og doktorinn
orðar svo fallega. Hinsvegar
finnst mér að Jesús Kristur eigi að
njóta sannmælis sem einn helsti
hugsjónaberi sögunnar. En heldur
er það byltingarkenndur jóla-
boðskapur að kalla það kjarna í
siðrænni breytni Krists þó hann
væri sæmilega fagmannlegur
veisluhaldari. Það gæti vel hugs-
ast að í framtíðarríkidæmi mínu
komi ég til með að veita vín, þó að
ég óskaði að sem fæstir þægju það
boð mitt. En hver verður víst að fá
að grafa sína gröf í friði.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
sveipar flest það þagnarhjúpi sem
ég fullyrði um í „níðgrein" minni
— og má ég telja þá þögn sem
samþykki. Að vísu telur hann
„samsetning" minn „ekki svara-
verðan", en frá upphafi þessarar
ritdeilu hefur nær hverri grein
lokið með slíkri yfirlýsingu og þó
stendur deilan enn. Ég verð því að
líta á þessa staðhæfingu sem
ávana — fast stílbragð — og tek
því sem slíku.
En það er merkilegt að í hirt-
ingarræðu sinni endurtekur dokt-
orinn ekki sína fyrri speki um
„aflvaka vestrænnar menningar
og lista“ og er hann þó vanur að
tví- eða þrítaka gömul meistara-
stykki sín í hvert sinn er penni
hans opinberar hug hans. Eins
þykir mér eftirtektarvert að hann
minnist ekkert á vinsamlega
ábendingu mína um vínneyslu við
sáttargjörð, og freistar mín sú
ætlan að hann sé í kyrrþey að
prófa raunverulegt gildi alkóhóls
sem mannasættis, með því að
bjóða í glas áður en lagt er í mála-
þras. Vel er ef hann hefur eitthvað
af mér numið.
Leitt þykir mér að dr. Gunn-
laugur skuli vera mér svona reið-
ur, sérstaklega þar sem ég held að
við séum heilmikið andlega skyld-
ir, og gætum án efa orðið góðir
vinir. Én svona er það þegar með-
fæddur skaphiti verður lögmanns-
legri ró og íhygli yfirsterkari.
Hinsvegar er ég hvar sem er, hve-
nær sem er, tilbúinn í fjörugar
umræður um áfengismál. Dr.
Gunnlaugur er ávallt svaraverður,
það væri hroki að segja annað.
í lokin gerist lögmaður bók-
menntalegur í betra lagi og klykk-
ir út með snjallri tilvitnun sem á
að setja mig hljóðan. Nú er ég ekki
eins vel lesinn og dr. Gunnlaugur,
enda gera menntaskólanemar
flest annað en að lesa bókmenntir
nútildags. En leyfist mér samt að
vitna í lærdómsríkt viðtal Æsk-
unnar við skemmtikraftinn dáða,
Ómar Ragnarsson, lesendum til
fróðleiks, sem sýnir glöggt hví
ekki treysta sér allir til að vera
jafn ölkærir og gáfumennið dr.
Gunnlaugur Þórðarson.
„Ómar: ... Við getum sagt að rallið
komi í staðinn fyrir brennivínið.
Menn detta í það við og við. Ég tók
snemma ákvörðun um það að verða
bindindismaður og mun aldrei geta
þakkað það nógsamlega eða undir-
strikað hvað ég held að það hafi fært
mér mikið lán í lífinu. Eg þóttist sjá
að ég væri þannig manngerð að ég
gæti ekki ráðið við vínið. Ég á t.d.
óskaplega erfitt með að neita mér
um kók og prins póló. Þarna sérðu
hvernig ég er ... “
Æskan, 5.-6. tbl. 1983, bls. 23.
Gleðilegt ár.
Gjört á Selfossi 23. desember
1983.
Kristinn Jón Guðmundsson
er nemandi í Menntaskóla
Kóparogs og sölumaður hji
Sölusamtökunum hf.
Koivisto reiðist
bókarhöfundi
Osló, 3. janúar. Frá Jan Krik Laure, fréttaritara Mbl.
MAUNO Koivisto Finnlandsfor-
seti hefur látið í Ijós reiði sína
vegna skrifa ritstjórans Jahn Otto
Johanscn í bók um Finnland.
Heldur Koivisto því fram að Jo-
hansen sé að blanda sér í finnsk
innanríkismál.
Þó svo Johansen hafi sýnt að
hann hafi mikinn áhuga fyrir
landi voru og þjóð er hann utan-
aðkomandi og getur ekki bland-
að sér í okkar innri mál með
þeim hætti sem hann gerir í bók-
inni „Finland — det muliges
kunst“,“ segir Koivisto.
Það sem fyrst og fremst angr-
ar forsetann er sú fullyrðing Jo-
hansen að finnska utanríkis-
ráðuneytið hafi neyðst til að út-
skýra ummæli Koivisto vegna
ferða ókunnra kafbáta í sænskri
landhelgi þar sem ummæli hans
voru svo tvíræð.
Johansen hefur vísað gagn-
rýninni á bug og segir finnska
forleggjara sinn kampakátan
vegna þeirrar söluaukningar
sem gremja forsetans olli.
f kvöld kl. S3°.
19. umferðir 6horn.
Aðalvinningur að verðmæti:
kr. 7000.-
Heildarverðmæti vinninga
kr. 21.400.-
TEMPLARAHÖLLIN - EIRÍKSGÖTU 5 - -ST 20010
Tískusýning
í kvöld kl. 21.30 sák
Jm
Modelsamtökin sýna
vetrarfatnaö frá
Rammagerdinni
HÓTEL ESJll
IéN75í * CS7/4
DKro&uuu
Opið í kvöld frá kl. 18.00.
Guðni Þ. Guðmundsson og
Hrönn Geirlaugsdóttir
leika á píanó og fiðlu ljúfa tónlist fyrir
matargesti. Hér fer saman mikil snilli í hljóð-
færaslætti og smekkvísi í lagavali.
Opið fd.studag.s-, laugardags- og sunnudagskvöld frá kl. 18.00.
Borðapantanir í síma 11340 eftir kl. 16.00.
m
ATHUGIÐ!
Skúlatúni 4
Ný námskeið hefjast mánudaginn 9. janúar
Frúarleikfimi
Morgun-, dag- og kvöldtímar
Jazzballet fyrir stráka og stelpur frá 12 ára aldri.
Innritun og upplýsingar í síma 25620 kl. 16—18.
Afhending skírteina laugardaginn 7. ianúar kl.
14—18.
Likamwþjál lu n
Hal lcítskála
llddii vSdicviiii*'
SKÚLATÚNI 4 — SÍMAR 25620 og 76350