Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 45 Allar í einni stétt Björn Dúason, Ólafsfirði, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Geta lesendur Velvak- anda liðsinnt mér við að hafa upp á kvæði því frá síldarárun- um svonefndu á Siglufirði, sem í Þau lög gilda jafnt fyrir einn og alla Þröstur skrifar: „Kæri Velvakandi! Mig langar mikið til að vekja athygli á ágætu kvæði, sem ég rakst á í bókinni „Dagamunur", sem Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga gaf út á 70 ára afmæli sínu 1975. Kvæðið er eftir Signýju Hjálmarsdóttur frá Bergi á Tjörnesi og er svona: * I gær og dag í gær varstu stoltur af stærð þinni, maður, og stóðst í öruggri trú, að hraustur værir og hærra en fjöldinn höfuðið bærir þú. í dag ertu lítill, lostinn til jarðar, og lögmálið hefur þér náð. — Þau lög gilda jafnt fyrir einn og alla, en eru þó hvergi skráð. í þjáning og dauða við erum allir svo örlítil, vesöl börn, þar sem hinn beizka kaleik við kennum, en kunnum þó enga vörn. Og þess vegna skaltu ekki af stærð þinni státa, — því stærð þín hjaðnar og dvín. Við megum allir því lögmáli lúta, og líka — persóna þín. þessi vísa eða vísubrot og þá 1 ] 1 Í'J \T W* CJ O TJ H Q er höfundur þess er: T JJ T V J O JJJClJJJJlO vanda leysa Kaupmannsfrúr og aðrar fleiri í æðstu metunum atast hérna kófsveittar á síldarplönunum. Hér eru allar í einni stétt, eldabuskan með sama rétt, og vera má að hún sé þarna hærrasett. Þetta er svona nokkurs konar jafnréttiskvæði síldarverkunar- kvennanna á Siglufirði, þegar síldarsöltunin var að byrja hjá þeim Norðmönnunum. Oftlega var öl borið ótæpilega og það er sterkast var til af átti að ginna menn, svo sem Þóri þömb og kumpána í Hamarsey. Þóttust menn og stundum hafa orðið ósvinnir að ölmálum er af þeim rann drykkurinn. En þó hlaust oft illt af, því menn vildu halda heit- strengingar sínar. í jólaboði Hítar segir í Bárðar sögu Snæfellsáss, að drykkur hafi verið óskaplegur og urðu allir ginntir. Þórólfur bægifótur gerði þræla sína drukkna og eggjaði þá síðan til þess að brenna inni nábúa sinn. Snorri Sturluson segir í Yngl- ingasögu, að Fjölnir sonur Yngvi- freys var að heimboði á Selund hjá Fróða konungi, og týndist þar um nótt dauðadrukkinn í mjaðarkeri. En Svegðir hans sonur og næsti konungur að Uppsölum gekk í berg drukkinn og villtur af dag- styggum dverg, sem Þjóðólfur hinn hvinverski segir: „En dag- skjarr durnismiðja salvörðuður Svegði vélti." Margir hafa síðan farið í steininn ölvaðir eða orðið bergnumdir af þeim sökum. Ég ætla ekki að telja það sem Hávamál segja um ofdrykkju öls, því ég veit að læknirinn og margir kannast við það, en í móðurmálinu okkar eru orðin: ölvaður, ofurölvi og ölóður gamlar óhrundar vörð- ur, sem þarf ekki að hressa við með einokunarbrennivíni eða 4% öli.“ Höfundur greinarinnar nefnist Korni. Mér finnst að vel megi vitnast að sá sem þetta skrifaði var Hallgrímur Jónsson skóla- stjóri, gagnmerkur maður og brautryðjandi á ýmsum sviðum menningarmála." J. Þorbj. skrifar: „Velvakandi! Það er svo margt talað um það sem miður fer á meðal okkar, að mig langar til að það komi fram í þessum dálkum sem fyrst, að til er gott fólk hér. Ég slasaðist fyrir um fjórum ár- um og hef mikið þurft að hafa samband við Slysadeild Borgar- spítalans. í hópi starfsfólks þar er kona sem gegnir starfi læknarit- ara. Mættu margar stofnanir prísa sig sælar yfir að hafa á að skipa slíkum starfsmanni. Oft og mörgum sinnum hef ég þurft að hringja til hennar og alltaf mætir manni sama þolinmæðin og elsku- semin. Á eftir er maður ævinlega léttari í lund en áður, enda finnur maður, að þessi kona vill hvers manns vanda leysa. Ég óska Slysadeildinni til hamingju með þennan starfsmann sinn og vildi óska að fleiri væru eins. Með kæru þakklæti." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þetta er eitt af erfiðustu verkum sem samið hefur verið. Rétt væri: ... eitt af erfiðustu verkum sem samin hafa verið. Eða:... eitt hið erfiðasta verk sem samið hefur verið. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaöeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. 83? SIGGA V/öGA £ AiLVEÍWU HVER5- 'KONHR ^ vdjöflhgrngur er PETTR EI6IN- LíGM SVENNI ER VEIKUR JÓfl i FRÍL ÞÚ ERT F MIG EINR i PRItó VERKIÍ Lærið vélritun Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný námskeið hefjast mánudaginn 9. janúar. Engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 36112 og 76728. Vélritunarskólinn Suðurlandsbraut 20, sími 85580 Alltaf á fóstudögum I regnbogans litum — Á húsgagnasýningu í Mílanó Hvernig er hægt að bæta minni og auka afköst? — Heilanum kenndar nýjar kúnstir Marlene Dietrich og áhrif hennar í tískuna í vetur Föstudagsblaðið er gott forskot á helgina AUGIYSINGASTOFA KRISTfNAR HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.