Morgunblaðið - 05.01.1984, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
46
• Cornelíusson er sterkur skallamaður; það hefur hann margsinnis sannað. Skallatæknina verður hann þó
að taka fyrir á æfingum eins og aðrir. Hér er hann (t.v.) á æfingu hjá Stuttgart.
Hann er markahæsti
leikmaður Stuttgart
Dan Cornelíusson, Svíinn ungi í liöi Stuttgart, var ekki marga daga að átta sig á því til hvers
var ætlast af honum, nefnilega aö skora mörk og aftur mörk. Hann verður að læra að lifa með
þeim væntingum sem aörir hafa um hann. Hann var beinlínis keyptur til að skora mörk og
forráðamenn urðu að grípa djúpt í peningabudduna til aö fá Svíann til sín. Meö mörkum sínum
á hann að koma Stuttgart í efsta sætiö í vestur-þýsku bundesligunni í knattspyrnu. Fram til
þessa hefur dæmið gengið upp því Vfb Stuttgart er í efsta sæti deildarinnar eftir fyrri umferðina
og mörk Dans talin vega þar þungt á metunum.
Dan veit að atvinnuknattspyrnan er enginn dans á rósum og í hvert skipti sem hann skorar
ekki úr upplögöu marktækifæri vantar ekki að gagnrýnendur láta vel í sér heyra.
Eins gott að nýta
marktækifærin
i hvert skipti sem hann skorar
ekki úr upplögöu marktækifæri er
hann talinn vera syndaselurinn og
þar af leiðandi helsta orsök þess
að sigur vannst ekki. Auövitað er
þaö eðlilegt aö forráöamenn Vfþ
Stuttgart geri miklar kröfur til
Dans því aö hann kostaði félagiö
enga smáaura, nefnilega 1,2 millj-
ónir þýskra marka. I hvert skipti
sem hann aftur á móti skorar, er
jafnan sagt að hann sé farinn að
skila hluta af þvi sem hann kost-
aði. Skori hann ekki, er sagt aö
hann vinni ekki fyrir kaupi sínu.
Þessu til stuðnings skrifaöi dag-
þlaö í Stuttgart 8. júlí 1983 eftirfar-
andi um Dan Corneliusson: „Ein-
hvern tíma á einhver eftir aö láta
sér detta þaö í hug hversu mikið
hvert mark kostar Stuttgart sem
Svíinn skorar. Þeirri hugsun er
ekki hægt aö vísa á bug að Stutt-
gart hafi flutt inn „vél“ sem látnar
eru 1,2 milljónir marka inn í og út
úr þessari vél er áætlaö aö koma
eigi 20 mörk á keppnistímabilinu."
23. júlí skrifaöi annað virt blaö í
Stuttgart um Dan Corneliusson:
„Viö komuna til flugvallarins í
Stuttgart var tekið á móti Dan
Corneliusson sem um þjóöhöfö-
ingja væri aö ræða, 14 dögum
seinna, aö loknum nokkrum æf-
ingaleikjum, var honum tjáð aö
hann heföi skorað jafnmörg mörk í
þessum æfingjaleikjum og mark-
vöröur liðsins Helmut Roleder.“
Þeir sem búa við
sjávarsíöuna eru
alltaf á ferð og flugi
Nokkrum vikum áöur en Dan
Corneliusson kom til Stuttgart var
hann inntur eftir því hvort hann
myndi ekki fá heimþrá og hvort
hann myndi ekki sakna þess að
búa ekki lengur viö sjó. Mörg
dæmi eru þess aö frægir íþrótta-
menn hafi brotnað þegar að
kveðjustundinni kom. Gott dæmi
er þegar Erhard Wunderlich,
skærasta stjarna Vestur-Þjóöverja
í handknattleik hin síöan ár,
kvaddi félaga sína hjá Gummers-
bach og hélt suöur á bóginn til
móts viö Barcelona. „Tilfinninga-
næmi, hvaö er nú það?“ Dan hlær
aöeins viö tilhugsunina, hristir síö-
an höfuöið og veröur alvarlegur og
bætir viö, aö þeir sem búi viö sjó i
þekki ekki annaö en aö vera alltaf
á ferö og flugi. Dan kemur frá lítilli
eyju, Hönö, sem liggur rétt utan viö
Gautaborg. Ekki er hægt aö segja
að sjómennska sé honum í blóð
borin, knattspyrnan hefur alltaf átt
hug hans allan.
Eftir aöeins nokkurra daga dvöl
í Stuttgart fann Dan hjá sér aö
eitthvaö vantaöi sem hann var
vanur að hafa í Svíþjóö. í Stuttgart
leikur ekki vindur og sjávarselta
um vit Dans.
Tungumálaerfiöleikar hafa verið
Dan fjötur um fót og takmarkað
samskiptamöguleika hans viö aðra
leikmenn liösins að undanskildum
Ásgeiri nokkrum Sigurvinssyni.
í upphafi reyndist nefnilega Dan
enginn betur en Ásgeir Sigurvins-
son, sem einnig kemur frá lítilli
eyju og því „fiskistrákur" eins og
Dan. Fyrstu dagana á undirbún-
ingstímabilinu var Ásgeir fjarri
góöu gamni þar sem hann gekk þá
undir skurðaögerð. í æfingabúöum
nokkru áöur en deildarkeppnin
hófst, var Ásgeir mættur í slaginn
og uröu þeir herbergisfélagar og
gátu talaö saman á „skandinav-
ísku“. Rétt er einnig aö benda á,
aö það var Ásgeir sem benti for-
ráöamönnum Stuttgart á marka-
skorarann mikla frá Svíþjóö. Ekki
er víst aö Dan hefði gerst atvinnu-
maöur hjá Stuttgart nema komið
heföi til næmt auga Ásgeirs fyrir
góöum sóknarknattspyrnumanni.
Sérfræöingar á knattspyrnu-
sviðinu voru þess fullvissir aö ekki
liöi á löngu þar til Dan Cornelius-
son myndi gegna jafnmikilvægu
hlutverki í sóknarleik Stuttgart-
liösins og Ásgeir á miðjunni.
Spurningin var fremur hversu lang-
an tíma Dan þyrfti til aö aölagast
nýjum aöstæöum. Flestir sem til
þekkja eru einnig þeirrar skoöunar
aö Dan sé eins og fæddur til þess
aö leika í bundesligunni. Honum er
lýst sem náttúrubarni, alls
óhræddum í návígí, markagráðug-
um, leikmanni meö mikla yfirsýn
og hæfileika til þess aö nýta þau
færi sem hann fái út í ystu æsar.
„Þegar ég verö 28 ára, get ég
fariö til Frakklands, en þegar maö-
ur er ekki nema 21 árs gamall
kemur ekkert annaö tll greina hjá
mér en aö spreyta mig í vestur-
þýsku bundesligunni, sem er sú
harðasta og besta í heimi.“
Þetta voru’þau rök sem hann
færöi fram þegar hann hafnaði
samningi frá 1. deildarliðinu AS
Monaco frá Frakklandi, tilboöi sem
var töluvert mikið hærra en hann
gekk aö hjá Stuttgart.
Eitt er þó alveg víst aö Dan
Corneliusson þarf ekki aö nærast
á plokkfiski á hverju degi, þó hann
hafi tekiö tilboöi Stuttgart. Hjá
Stuttgart er taliö að hann komi
næstur aö launum á eftir Karli
Förster, vestur-þýska landsliös-
manninum. Hluta þeirra launa sem
Stuttgart greiöir Dan fjármagnar
félagiö i gegnum íþróttavöruversl-
un félagsins. Dan aftur á móti
þakkar fyrir sig með því að skora
mörk.
Framkvæmdastjórn og þjálfari
Stuttgart-liðsins, Helmut Bent-
haus, voru einnig sannfærðir um
eiginleika Svíans að skora mörk
og vildu fremur kaupa hann en
Wolfram Wuttke (Hamburger
Sportverein) eða Bum-kun-Cha
(Leverkusen).
Mörg stórfélög Ítalíu gerðu
einnig hosurnar grænar fyrir Dan
en forráðamenn Stuttgart voru
fljótari til og gengu frá samningi
við Dan. Margir hafa leitt að því
getum að 14 dögum seinna hefði
Svíinn ljóshærði kostað helmingi
meira samkvæmt lögmálum um
framboð og eftirspurn. Það liggur
einnig ljóst fyrir að þá hefði
Stuttgart aldrei haft möguleika á
að fá Svíann til sín.
Sönnun þess hversu
góöurhann er
Þáttaskil uröu á knattspyrnuferli
Dans Corneliussonar þegar Kais-
erslautern keypti Thorbjörn Nilson.
Dan greip tækifæriö og geröi
góöa hluti í Evrópukeppninni meö
Gautaborgarliöinu og meö sænska
landsliðinu fékk hann einnig lof-
samlega dóma. Sem dæmi af-
greiddi hann nær einn hollenska
landsliöiö í Hollandi meö stórgóö-
um leik sínum meö sænska lands-
liöinu. Hann var einnig markahæsti
leikmaöurinn í sænsku deildar-
keppninni á tímabili. Margir sem
fylgjast meö knattspyrnu þekkja
varnarmann ítölsku heimsmeistar-
anna í knattspyrnu, Claudio Gent-
ile. Margir telja hann einn besta en
jafnframt grófasta varnarmann
heims. Stjarna eins og Maradonna
náöi sér aldrei á strik í leik Argent-
ínumanna og ítala í HM vegna þess
aö hann var lafhræddur viö Gent-
ile. j sögulegum landsleik Svia og
ítala lék Dan Gentile þaö grátt aö
menn töluðu um aö Dan heföi gert
Gentile aö hálfgerðum apa á vellin-
um. I hvert skipti sem Gentile ætl-
aöi aö brjóta á Svíanum, lék hann
laglega á hann eöa lék boltanum
fimlega til samherja og lék sig síö-
an aftur frían.
í landsleik gegn Brasilíu-
mönnum sem lyktaði 3:3 voru tveir
leikmenn sem báru sem gull af eir
af öörum leikmönnum á vellinum,
snillingurinn Sokrates hjá Brasilíu-
mönnum og Dan Corneiiusson hjá
Svíum. Aö leik loknum var úr
vöndu aö ráöa hjá nefnd þeirri sem
skyldi velja besta leikmann leiks-
ins. Báöir höföu leikið stórkost-
lega. Dan hafði betur og var kjör-
inn maður leiksins og hlaut gullúr
aö launum. Daginn eftir leikinn
gegn Brasilíumönnum mátti lesa í
sænsku dagblööunum: „Fyrir um
þaö bil 25 árum á Ullevi-leikvang-
inum tókst knattspyrnustjörnunni
Pele aö slá í gegn. í gær var þaö
Dan Corneliusson. Enginn fram-
línumanna brasilíska landsliösins
komst meö tærnar þar sem Dan
haföi hælana. „Made in Hönö“ er
betra en „made in Rio“.
Aö loknum þessum leikjum var
forráöamönnum Stuttgart Ijóst, aö
þeir höföu fengiö ansi vænan fisk í
netið. Dan Corneliusson haföi sýnt
og sannaö í leik gegn sterkustu
þjóöum heims aö hann var leik-
maöur í fremstu röö.
Gömul knattspyrnukempa Svía,
Jan Olsson, lýsir Dan á eftirfarandi
hátt: „Dan er eins og manndrápari.
Hann skorar mörk sín af stuttu
færi gjörsamlega kvalalaust og á
einfaldasta máta."
Hvernig lítur Dan sjálfur á þessa
eiginleika sína aö geta skoraö
mörk? „Þegar maöur er kominn
inn í vítateiginn má maöur ekki
hugsa sig lengi um heldur hleypa
af.“ Þennan eiginleika haföi Gerd
Múller, Bayern Múnchen og vest-
ur-þýska landsliösins. Eölishvöt!
Dan er ekki aöeins fljótur, snöggur
að snúa sér, sterkur í skallaeinvíg-
um og getur haldiö bolta lengi og
vel. Hann getur einnig beöiö eftir
sínu tækifæri og er alltaf tilbúinn
aö taka á móti boltanum og af-
greiða hann stystu leið í netiö.
í Svíþjóð ert þú
einfaldega þú sjálfur
í Svíþjóö var það þannig aö Dan
skrifaöi nokkrar eiginhandarárit-
anir á viku þegar vel gekk, en þess
á milli haföi hann einkalíf sitt í friöi.
Áöur en hann hélt til Stuttgart var
honum bent á aö alls staöar þar
sem hann kæmi yröi hann um-
kringdur aödáendum sínum og
flestir myndu vilja ræöa viö hann
um knattspyrnu. Þaö er engin
launung, aö skærustu stjörnurnar í
íþróttum tapa hluta af frelsi sínu
þegar þeir gerast atvinnumenn i
iþróttum. Þetta hljómaöi skringi-
lega í eyrum Dans. Hann haföi á
sínum tíma lesið um Kevin Keegan
þegar hann kom til Hamborgar og
hvernig tekiö var á móti honum.
Hann er ekkert sérlega hrifinn af
því aö litiö sé á knattspyrnumenn
sem einhverja guöi. j Svíþjóö ertu
einfaldlega þú sjálfur.
Þegar Dan kom til Stuttgart gaf
hann brosandi öllum sem vildu eig-
inhandaráritanir. Dan lærir þessa
dagana þýsku af miklu kappi því
þjálfari liðsins, Benhaus, var
óhress meö hversu Dan gekk erf-
iölega aö ná sambandi viö aöra
leikmenn liösins, aö Ásgeiri Sigur-
vinssyni undanskildum.
Þýtt og endursagt úr v-þýaka
íþróttablaöinu Sport lllustrierte.