Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 47 • Gunnlaugur Jónasson nófti frábœrum órangri í siglingakeppni ó Spóni ósamt félaga sínum. Þessi mynd var tekin af Gunnlaugi skömmu óður en hann hélt utan í haust. Frábær árangur íslenskra siglingamanna á Spáni: Lentu í 16. sæti af 59 keppendum Magnús verður löglegur með Santander 20. jan. GUNNLAUGUR Jónasson sigl- ingamaöur sem dvalift hefur síft- an í nóvember í haust viö æfingar í Englandi tók þótt í stóru siglingamóti ó Spóni yfir jólahót- íöirnar. Gunnlaugur sem er 21 árs gam- all náöi þeim frábæra árangri ásamt félaga sínum Jóni Péturs- syni sem aöeins er 16 ára aö ná 19 sæti í keppninni af 54 keppendum. Árangur þeirra félaga er mjög at- hyglisveröur sökum þess aö keppt var í svokölluðum ólympíuflokki. Þaö er aö segja bátum sem keppt veröur í á Ólympíuleikunum i Los Angeles. Tegundin er kölluö 470, en þaö er jafnframt lengd bátsins. Gunnlaugur var stýrimaöur en Jón háseti. Mótiö fór fram á Barcelona og voru keppendur frá mörgum þjóölöndum allt þekktir siglinga- menn sem taka munu þátt í næstu Ólympíuleikum. Sigurvegararnir voru úrvals- keppnismenn á heimsmælikvaröa, og allt atvinnumenn í íþróttagrein sinni. Þaö sýnir vel hversu efnilegir íslensku siglingamennirnir eru. Þaö var samanlagður stigafjöldi eftir fimm keppnir sem réöi úrslit- um. Sem dæmi um góöan árangur þeirra félaga þá náöu þeir 10. sæti í fimmtu og síðustu keppninni, en voru lengi vel í fjóröa sæti þar til alveg undir lokin aö sex bátum tókst aö komast fram fyrir þá. Alls tóku 54 bátar þátt í hverri keppni. Þaö voru V-Þjóðverjar sem báru sigur úr býtum á þessu stóra sigl- ingamóti, en Hollendingar hrepptu annaö sætiö. Spánverjar voru svo í þriöja sæti. Þeir Gunnlaugur og Jón fóru frá Spáni í fyrrakvöld áleiöis til London en munu koma heim til islands í næstu viku. — ÞR. MAGNÚS Bergs verftur fyrsti ís- lenski knattspyrnumafturinn sem kemur til meö aö leika sem at- vinnuknattspyrnumaöur ó Spóni. Eins og skýrt var fró skömmu fyrir jól þó fór Magnús til 2. deildar-liðsins Santander ó Norftur-Spóni. Magnús verður löglegur með liftinu 20. janúar næstkomandi og mun þó strax væntanlega fó tækifæri til að leika meö liftinu. Magnús Bergs hefur veriö mjög óheppinn á yfirstandandi keppnis- tímabili þar sem hann hefur átt viö þrálát meiðsl aö stríöa. Magnús er þó búinn aö ná sér núna og æfir af fullum krafti. Magnús meiddist illa á læri er hann lenti í samstuði viö markmann í leik. Blæddi inn á lær- vöövann og var Magnús því frá keppni í heilar sex vikur. Hann hóf síðan aö spila of snemma meö liöi sínu, Tongeren, og meiðslin tóku sig upp. Þaö varð til þess aö hann varö aö taka sér hvíld frá æfingum og keppni aftur. Eftir aö hann náöi sér á nýjan leik hóf hann æfingar og lék meö varaliöi Tongeren. Þar sáu forráöamenn Santander hann og sýndu strax mikinn áhuga á að fá hann til liös viö sig. Þeir buöu Magnúsi aö koma til Spánar og þangaö fór hann, lék þrjá æfinga- leiki með Santander og stóö sig meö miklum ágætum. Fram- kvæmdastjóri Santander gekk frá samningum við Tongeren og Magnús hefur nú dvaliö viö æf- ingar á Spáni síöan rétt fyrir jól. Magnús mun hafa náö mjög góö- um samningi viö spánska liöiö en óviöa eru meiri peningar í knatt- spyrnunni en á Spáni og ítalíu. Allt bendir til þess á þessu stigi aö Magnús geri tveggja ára samning viö spánska félagiö en hann er núna meö leigusamning viö félag- iö. • Magnús Bergs æfir nú af full- um krafti ó N-Spóni með hinu nýja lifti sínu, Santander. Magnús verftur fyrsti íslendingurinn sem kemur til meö að leika knatt- spyrnu meö spönsku lifti. FH-ingar leika snemma á sunnudagsmorgun ytra Gianni Agndli: Neitar skrifum um Maradona og Juve ÍTALSKI bílakóngurinn Gianni Agnelli, einn forróftamanna Juventus, neitaöi þv( (gær aö sannleikur fæiist í blaöaskrif- um ítalskra blafta þess efnis aft hann væri aft reyna aft fé Diego Maradona til Juventus og aö hann heffti hitt Mara- dona aö móli af þessu tilefni. .Ég hef einu sinni hitt Mara- dona aö máli, áriö 1980. Hvaö varðar framtíð hans þá er hann samningsbundinn Barcelona og Spánverjarnir eru örugglega ekki tilbúnir til aö láta hann fara,“ sagöi Agnelli i samtali viö Tuttosport, íþróttadagblaö sem gefið er út i Tórínó, í gær. itölsk fróttastofa sagöi frá því á þriöjudag aö Maradona og umboösmaöur hans heföu fariö til Tórínó um helgina til viöræöna viö Agnelli um hugs- anlega sölu á Maradona til Ju- ventus. Agnelli og aörir for- ráöamenn Juventus hafa neitað aö þessi fundur hafi nokkurn tíma átt sér stað. Maradona, sem ökklabrotn- aöi illa i haust, er nú aö veröa góður af meiöslunum, og viö því er búist aö hann geti fariö aö leika meö Barcelona innan skamms. • Kristjón Arason hefur ótt vift meiöslí aö stríöa undanfarift en verftur meö gegn Tatabanya. „ÞAÐ ER samdóma álit okkar aft FH-liöið sé mun sterkara ó heimavelli sínum í íþróttahúsinu i Hafnarfirfti en í Laugardalshöll- inni. Því höfum vift tekift þá ókvöröun aö leika síöari leikinn gegn Tatabanja í Hafnarfirfti 14. janúar en ekki í Laugardalshöll- inni. Vift munum hefja forsölu aft- FH-INGAR munu leika fyrri leik sinn í IHF-keppninni í hand- knattleík ó sunnudaginn. Mót- herjar FH eru ungverska liöift Tatabanja. Leikur liöanna fer fram í Tatabanja ó sunnudags- morgun kl. 10 aft ungverskum tíma, efta kl. 8 aft ísl. tíma. Aft sögn Geirs Hallsteinssonar hafa Ungverjarnir verift mjög erfiðir við aft eiga í öllum samningum og ekki vildu þeir að leikift yröi ó öftrum tíma en þessum, en hann er mjög slæmur fyrir líft FH, sem hefur þó enn minni tíma til aft jafna sig eftir langt og strangt feröalag austur fyrir jórntjaldið. FH-ingar dvelja allan sunnudag- inn í Tatabanja sem er kolaborg göngumiða á morgun, föstudag, kl. 15.00,“ sagfti Egill Bjarnason, formaður handknattieiksdeildar FH, í spjalli vift Mbl. í gærdag. Egill sagöi aö nú yröi lagt meira upp úr því aö FH-liöið næöi góöum árangri heldur en aö horfa ein- göngu í peningana. Leikmenn FH ættu ekki aö vera í vandræðum skammt frá Búdapest þannig aö þeir óskuöu eftir því aö leikurinn færi ekki fram fyrr en um eftir- miðdaginn eöa kvöldiö, en ekki var komiö neitt til móts viö þá í þeim efnum. Þaö er þvi sýnilegt, aö leikmenn og forráðamenn Tatabanja eru mjög smeykir viö mótherja sína. Þeir munua greinilega vel eftir óförum sínum gegn íslandsmeist- urum Víkings á sínum tíma, en Vík- ingar slógu þá út úr Evrópukeppn- inni á mjög svo eftirminnilegan hátt. Að sögn Geirs Hallsteinssonar, þjálfara FH, ætla þeir aö leggja allt í sölurnar til þess aö sigra mót- herja sína og hafa því ákveðiö að meö aö sigra iiö Tatabanja á heimavelli sinum meö öflugum stuðningshrópum frá áhorfendum. Þaö er hins vegar stóra spurningin hvernig fyrri leikur liöanna endar. Strákarnir hafa alla buröi til þess aö standa sig vel ytra ef þeir berj- ast af krafti og láta engan bilbug á sér finna, sagöi Egill. — ÞR leika siöari leik sinn sem fram fer hér heima í Hafnarfiröi. Sá leikur fer fram laugardaginn 14. janúar. — ÞR Nýárssund fatlaðra barna og unglinga NÝÁRSSUND fatlaftra barna og unglinga verftur haldið í Sundhöll Reykjavíkur á laug- ardaginn og við þaft tækifæri veröur einnig verðlaunaaf- hending fyrir Norrænu trimm- landskeppnina sem fram fór i fyrra. Siguröur Magnússon, for- maöur I.F., setur mótiö, en þar keppa börn og unglingar úr rööum hreyfihamlaöra, blindra og sjónskertra, þroskaheftra og heyrnarlausra. Vigdís Finn- bogadóttir, forseti islands, af- hendir sigurvegurum verðlaun aö móti loknu. Sven-Erik Carlsson, varafor- maöur Norræna iþróttasam- bandsins, og Siguröur Magn- ússon sjá síðan um verölauna- afhendingu Norrænu trimm- landskeppninnar. I mótstjórn Nýárssundsins eru Erlingur Jó- hannsson, Markús Einarsson og Jón Haukur Daníelsson. „Sterkara að leika á heimavelli sínum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.