Morgunblaðið - 26.01.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1984
39
fclk í
fréttum
„Skiptir öllu máJi
aö vera með“
+ Ted Kennedy, 23 ára gamall sonur Edward
Kennedys öldungardeildaþingmanns, var meö-
al þeirra, sem á dögunum tóku þátt í Vetraról-
ympíuleikum fatlaðra í Innsbruck í Austurríki.
Ted kemur ekki til álita sem verðlaunahafí á
leikunum vegna þess, að hann missti af fyrstu
dögum kcppninnar, en fyrir því voru tvær góðar
og gildar ástæður. í fyrsta lagi vildi svo illa til,
að Ted fór til Austurríkis eins og til stóð en
farangurinn hans hafnaði í Svíþjóð.
„Það kemur ekki að sök. Það, sem máli
skiptir, er að vera með,“ sagði Ted, sem hefur
systur sína, Cöru, 21 árs gamla, með í förinni.
Ted fékk á sínum tíma krabbamein í annan
fótinn og var hann þá tekinn af honum.
+ Mick Jagger og Jerry Hall vissu það fyrir all-
nokkru hvort það er drengur eða stúlka, sem mun
sjá foreldra sína í fyrsta sinn í næsta mánuði, en
þau gæta hins vegar leyndarmálsins vel. Vinir
þeirra, sem vilja færa móðurinni eitthvað fallegt á
sængina, hafa þess vegna augun opin og fylgjast
vel með hvort það er bleikur eða Ijósblár litur,
sem kemur til með að einkenna barnaherbergið.
É
Vill að dóttirin
taki viö af sér
í Dallas
+ Priscilla Presley, sem að undanförnu hefur komið
fram í Dalias-þáttunum vestra og þegið 600.000 ísl. kr.
fyrir þáttinn, hefur nú í hyggju að hætta því. Hún vill
hins vegar ólm að 15 ára gömul dóttir hennar og Elvis
heitins fái að spreyta sig í þessum vinsælu þáttum.
Priscilla hefur síðustu fjögur ár verið í nánu sam-
bandi við leikara að nafni Michael Edwards og er
talið, að þau muni brátt gifta sig. Fyrir nokkrum
dögum sagði Priscilia, að ef af því yrði myndi hún
hætta að leika í Dallas-seríunni. Að sjálfsögðu þarf
hún ekki á því að halda fjárhagsins vegna að dýfa
hendi í kalt vatn þar sem hún erfði of fjár eftir Elvis,
en hún vildi hins vegar sanna það fyrir sjálfri sér og
öðrum, að hún væri frambærileg leikkona.
Lisa Marie, dóttir Priscillu og Elvis, hefur einnig
áhuga á leiklistinni og þess vegna leggur móðir henn-
ar nú hart að Dallas-framleiðendunum að fá henni
hlutverk til að spreyta sig á.
skíði
Toppskíði í öllum verðflokkum fyrir alla,
konur og karla. Hér á eftir eru nokkur
verö og tegundasýnishorn.
Fyrir unglinga og byrjendur:
Racer 90—130 cm. Verö 1.795,-
Racer 140—165 cm. Verð 2.289,-
Racing Star 140—175 cm. Verö 3.608,-
Red Star 160—165 cm. Verð 2.481,-
Cup Star Mid og RS 170—190 cm. Verö 3.218,-
Fyrir þá sem eru lengra
komnir í kunnáttu:
Cup Star Team 170—190 cm. Verö 3.985,-
Cup Star Mid, nýtt, 170—190 cm. Verð 3.672,-
Blue Star Mid 170—190 cm. Verö 4.514,-
Blue Star Sportive 175—195 cm. Verö 4,925,-
Blue Star Pro. 170—190 cm. Verö 4.712,-
Keppnisskíði:
White Star Pro SL 180—200 cm. Verð 7.772,-
White Star Pro Junior 140—175 cm. Verö 5.228,-
Gönguskíði:
Touring HC þarf ekki áburö 180—215 cm. Verö
2.397,-
Touring fyrir áburö 180—215 cm. Verö 2.247,-
Red Star HC þarf ekki áburö 180—215 cm. Verö
2.856,-
Okkar tilboö fyrir gönguskíöafólk. Viö vit-
um hvaö ganga er holl hreyfing. Því er
okkar tilboð skíði, skór, bindingar, stafir
og ásetning fyrir aöeins 4.000,- Geri aðrir
betur.
Jafnframt eigum viö alltaf nóg af skíöa-
skóm, göngufatnaöi, stretsbuxum, skíöa-
gleraugum, skíöabindingum, skíöaúlpum,
o.fl., o.fl., o.fl.
Ásetning á meöan beöiö er. Eurocard,
Visa.
Nýtt!
Opið til kl. 4
á laugardögum
á meðan snjór er.
PÓSTSENDUM
« hummel
SPORTBUÐIN íe'
Ieus*ocab
VRA
Armúla 38 — sími 83555