Morgunblaðið - 29.01.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984
Matthías Á. Mathiesen um gjaldeyris-
viðskipti sparisjóða:
Fyrsti áfanginn
í átt til alhiiða
gjaldeyrisþjónustu
„MEÐ ÞVÍ AÐ veita sparisjódunum heimild til gjaldeyrisviðskipta er verið
að stíga skref í átt til aukins frjálsræðis,“ sagði Matthías Á. Mathiesen
viöskipta- og bankamálaráðherra í tilefni af því að sparisjóöir hófu
gjaldeyrisviðskipti nú í vikunni.
Matthías sagði ennfremur:
„Kostirnir eru einkum tveir. í
fyrsta lagi stuðlar þetta að auk-
inni og bættri bankaþjónustu við
almenning í landinu. íbúar ein-
stakra staða, til dæmis úti á
landsbyggðinni, þurfa þá ekki að
Eyrarbakki:
Fólk kallað
til vinnu
Eyrarhakki, 27. janúar.
í GÆRMORGUN kallaöi Hrað-
frystistöð Eyrarbakka út allt fastráð-
ið starfsfólk, en þá hafði það flest
verið á atvinnuleysisskrá frá því 15.
desember á fyrra ári. Það er góð
ufsaveiði í net sem veldur.
Á meðan á stöðvuninni hefur
staðið hefur tíminn verið notaður
til þess að skipta um gólf í
vinnslustöðinni.
Óskar.
sækja þessa þjónustu um langan
veg frá sinni heimabyggð. Gera
má ráð fyrir að ef þessi þjónusta
hefði verið fyrir hendi fyrr, hefði
þróunin orðið með öðrum og hag-
kvæmari hætti en verið hefur í
útibúamálum bankanna.
1 öðru lagi felur þetta í sér aukið
jafnræði milli peningastofnana.
Það hefur takmarkað starfsemi
sparisjóðanna að geta ekki gegnt
alhliða hlutverki peningastofnun-
ar í sínum byggðarlögum og heim-
ild til gjaldeyrisviðskipta mun því
efla stöðu sparisjóðanna sem
sjálfstæðra þjónustustofnana í
höndum heimamanna sjálfra. Þá
munu sparisjóðirnir auk þess geta
betur staðið að æskilegri sam-
keppni á þessu sviði."
Matthías Á. Mathiesen banka-
málaráðherra sagði að lokum:
„Hafa verður hugfast að einungis
er um að ræða fyrsta áfangann í
átt til alhliða gjaldeyrisþjónustu
og verða frekari áfangar ákveðnir
og framkvæmdir í samráði við við-
skiptaráðuneytið og Seðlabank-
Þyrla sömu gerðar og Landhelgisgæslan skoðar á Italíu.
Gæslan skoðar
ítalska þyrlu
TVEIR menn frá Landhelgisgæsl-
unni, flugmaður og tæknimaöur,
fara á sunnudag til Italíu í boði ít-
alskra þyrluframleiðenda að skoða
þyrlutegund fyrir Landhelgisgæsl-
una. Þyrlan er af tegundinni Agusta
Bell.
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, sagði að
eðlilegt væri að sem flestar teg-
undir þyrlna væru skoðaðar, áður
en tillögur yrðu gerðar um kaup á
annarri þyriu fyrir Gæsluna. Um
svo dýran hlut væri að ræða að
ekki mætti flasa að neinu.
Mennirnir eru væntanlegir til
landsins aftur nú í vikunni.
Sundkappar í Álftamýrarskóla
Alftamýrarskóli hefur í vetur leigt bfl til þess að aka nemendum sínum í sundkennslu í Sundhöll Reykjavíkur.
Þessa mynd tók Ijósmyndari Mbl. nú í vikunni af frískum strákum, sem voru að fara á sundnámskeið.
Utanríkisráðuneytið:
Strangar reglur um með-
ferð trúnaðarskjala
„VIÐ höfum ákveðnar reglur um
trúnaðarskjöl, sem byggðar eru á
reglum Atlantshafsbandalagsins
um meðferð á slíkum skjölum,"
sagði Ingvi Ingvason, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu, í sam-
tali við Mbl., er hann var spurður
um hvernig háttað væri meðferð
trúnaðarskjala NATO sem bærust
utanríkisráðuneytinu.
Ingvi vildi ekki ræða reglur
þessar frekar, taldi það ekki
heppilegt. Varðandi spurningu
um hverjir fengju að sjá trúnað-
arskjöl sem þessi, sagði Ingvi, að
það væru ráðherra, ráðuneytis-
stjóri og skrifstofustjóri. Enn-
fremur sæju skjölin þeir sem á
móti þeim tækju, en um móttöku
skeyta og skjala giltu sérstakar
og mjög strangar reglur, og að
notkun skjalanna lokinni væri
þeim eytt.
Um skjöl Atlantshafsbanda-
lagsins, sagði Ingvi, að þar giltu
sérstakar reglur frá bandalaginu
um meðferð þeirra, en aðrar
reglur giltu um annars konar
skjöl og um meðferð þeirra færi
eftir því á hvaða trúnaðarstigi
þau væru, en reglurnar væru al-
mennt mjög strangar.
Heba Geirsdótt-
ir er látin
LÁTIN er í Reykjavík frú Heba
Geirsdóttir, ekkja Alexanders Jó-
hannessonar, fyrrum rektors Há-
skóla íslands. Heba var fædd hinn
20. aprfl árið 1901, dóttir hjónanna
Sigríðar Jónsdóttur, Péturssonar há-
yfirdómara í Reykjavík og Geirs
vígslubiskups Sæmundssonar, pró-
fasts í Hraungerði, Jónssonar.
Þau Heba og Alexander gengu í
hjónaband hinn 22. desember
1934, en Alexander er látinn fyrir
allmörgum árum.
0
INNLENT
Keflavíkurflugvöllur:
Maður tekinn
fyrir að stela
kjöti og benzíni
Kristján Jóhannsson óperusöngvari:
Hefur samið við fjórar
óperur f Bandaríkjunum
— Er þegar farinn að semja um tónleika á árinu 1987
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari hefur gert samninga við fjórar
óperur í Randaríkjunum um söng þar næstu tvö árin. Um er að ræða
óperur á Palm Beach og Miami í Florida, Columbus-óperuna í Ohio og
Oklahoma-óperuna í Oklahoma. Þá hefur Kristján einnig ráðið sér um-
boðsmann í Bandaríkjunum og sungið prufusöng fyrir Carnegie Hall
tónlistarhúsið í New York.
„Já, það er rétt að ég skrapp
til Bandaríkjanna fyrir nokkrum
dögum vegna þessa," sagði
Kristján, er blaðamaður sló á
þráðinn til hans í gær, þar sem
hann var á heimili sínu í Verona
á Ítalíu. „Ég hef þegar gert
samninga við þessar fjórar óper-
ur, og mun verða við söng sam-
tals í fimm mánuði í Bandaríkj-
unum á næstu tveimur árum. í
Bandaríkjunum eru enn tiltölu-
lega fáar óperur, en þetta er á
uppleið vestra og ég vænti mikiis
af þessum samningum og af
samstarfi við nýráðinn um-
boðsmann minn þar. Þá er einn-
ig ljóst að ég mun syngja í New
York síðar, svo Bandaríkin verða
talsvert ofarlega á blaði hjá mér
næstu árin, og er ég mjög
ánægður með það, bæði út frá
listrænu sjónarmiði og fjár-
hagslegu."
Kristján sagðist vera búinn að
gera samninga langt fram í tím-
ann, væri hann nær fullbókaður
allt fram til 1986 og þegar búinn
að gera samninga fyrir hluta
ársins 1987. „Nú er ég hér í Ver-
ona að byrja að syngja aftur eft-
ir það áfall sem ég varð fyrir, en
ég feildi niður allan söng í des-
ember og janúar. Ég er að byrja
að ná mér á strik á ný, og byrja
fljótlega í Englandi, þar sem ég
verð næstu mánuði."
STARFSMAÐUR íslenzkra aðal-
verktaka á Keflavíkurflugvelli var
handtekinn fyrir skömmu þegar
hann var ad koma frá vinnu sinni og
hafði hann í fórum sínum poka af
matvælum, sem hann haföi tekið
ófrjálsri hendi úr matvælageymsl-
um. Óeðlileg rýrnun hafði verið á
matvælum og hafði maöurinn legið
undir grun, en hann starfaði sem
næturvörður.
Á heimili mannsins í Njarðvík-
um fundust um 20 kíló af kjötmeti,
sem hann hafði tekið, og 220 lítrar
af benzíni auk 20 lítra af white-
spirit, sem notað er til þess að ná
tjöru af bifreiðum.
Maðurinn hefur viðurkennt að
hafa komist yfir lykia að mat-
vælageymslum í október síðast-
liðnum og tekið kjötmeti ófrjálsri
hendi síðan. Þá hefur hann viður-
kennt að hafa tappað benzíni af
verktakabifreiðum en segir það
tekið fyrir tveimur árum. Þegar
óeðlileg rýrnun varð á benzíni,
voru lásar settir í benzíntanka, og
kveðst maðurinn þá hafa hætt
þeirri iðju sinni að tappa benzíni
af bifreiðum. Manninum hefur
verið sagt upp störfum.
Grindavík:
Minnkandi atvinnuleysi
FJÖRUTÍU OG ÞRÍR Grindvíkingar fengu í gær greiddar atvinnuleysisbæt-
ur, samkvæmt upplýsingum er blaðamaður Morgunblaðsins fékk hjá for-
manni Verkalýðsfélags Grindavíkur í gær, Helgu Jónsdóttur.
Helga sagði þetta vera mun næstu viku,“ sagði Helga, „og ég á
því von á að fljótlega verði at-
vinnuleysið hér úr sögunni."
Helga sagði að sem stæði vantaði
ekki fólk í frystihúsin, en hinir at-
vinnulausu færu þegar til vinnu er
hún byðist, en einnig væru nú
tvær danskar stúlkur í fiski í
Grindavík og einn Færeyingur.
færri en voru á skrá í síðustu viku,
því þá fengu 72 greiddan atvinnu-
leysisstyrk. Ástæðuna fyrir fækk-
uninni sagði hún vera þá, að
frystihúsin Hraðfrystihús
Grindavíkur og Hraðfrystihús
Þórkötlustaða hefðu nú farið í
gang á ný. „Síðan er von á því að
starfsemi hefjist hjá Arnarvík í