Morgunblaðið - 29.01.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.01.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984 II RITHOND OG PERSONULEIKI Um það hvernig rithöndin getur hugsanlega endurspeglað hið innra eöli mannsins / ,,, ö (?yv\ /v^a^a. rv\ ÍLVCa^Vv CA/ n Frá fyrstu tíö hefur maöurinn brotiö heilann um tilveru sína og sjálfan sig og reynt aö svara hinni áleitnu spurningu: Hver er ég? — Þeirri spurningu veröur auövitaö aldrei svaraö til hlítar enda svörin sjálfsagt eins mörg og mennirnir eru margir. Þær eru líka orönar margar leiöirnar, sem maðurinn hefur farið til aö leita svara og andans menn á öllum timum hafa leitast viö aö kpmast aö sannleik- anum og myndaö heimspekikenn- ingar um rannsóknir sínar. Þegar sú list aö skrifa náöi almennri út- breiöslu vaknaöi fljótlega sú spurning, hvort rithöndin gæti hugsanlega endurspeglaö innra eöli mannsins á óbrigöulan hátt, og þá auövitað án tillits til þess sem skrifaö var, heldur fyrst og fremst af stafagerö og áferö skrift- arinnar. Fáar heimildir eru til um fast- mótaöar kenningar í rithandar- fræöi fyrir siöaskipti, en eftir þaö fara aö birtast ritgeröir þar sem fjallaö er um þessi efni. Áriö 1622 var birt ritgerö eftir ítalskan lækni, Camillo Baldo aö nafni, sem hann kallaöi „Hvernig er hægt aö þekkja eöli og lundarfar manns af rithönd hans, sérstaklega þó af bréfi frá honum?“ j ritgeröinni rakti Baldo kenningar sínar um samsvörun rit- handar og lundarfars og geröi sér- staklega greinarmun á eölilegri og þvingaöri rithönd. Svisslendingur- inn Lavater rannsakaöi eöli rit- handarinnar á árunum 1775 til 1778 og birti niöurstöður sínar í Engar tvær manneskjur eru nákvæmlega eins, hvort heldur um er að ræða persónuleika eða útlit. Á sama hátt er því haldið fram að engar tvær manneskj- ur skrifi nákvæmlega eins og því hefur undirskrift nafns undir bréf og hvers konar skjöl þótt næg trygging til aðgreiningar frá öðrum. Gildir þá einu hvort nafn þess, er undirritar skjaliö, er læsilegt eða ekki. Þetta veiga- mikla hlutverk undirskriftarinnar, sem viðskipti manna byggjast aö miklu leyti á, rennir stoöum undir þá skoðun, að meðal allra þeirra milljóna manna, sem búa á jörðinni, séu varla til tvær verur, sem hafa sömu rithönd, eða skrifa sama nafnið á alveg sama hátt. Og allt frá því aö maöurinn fór fyrst aö draga til stafs hafa verið uppi kenningar um að rithöndin sé óskeikul tjáning persónu- leikans eins og vikið verður að í eftirfarandi grein. > p; -V ' oSjtLx (ujtkJ \uslA ciLv <yó S ( W\A q^- Mörg einkenni geta fléttast saman í einni og sömu skriftinni (Ljósm. Mbl. RAX) einum kafla bókarinnar „Ritkorn um útlit manna“, þar sem hann greinir einkenni rithandarinnar og einnig margar ólíkar geröir bók- stafa og ritlína. Skáldiö Goethe var þeirrar skoöunar aö rithöndin segöi til um eöli manna og sjálfur háföi hann dálæti á aö ráöa rit- handarsýnishorn. Slíkt hiö sama geröu ýmsir aörir andans menn, svo sem Alexander von Humboldt, George Sand og heimspekingurinn Leibniz og munu von Humboldt og Sand hafa iökaö rithandartúlkun sem nokkurs konar samkvæmis- leik. Rannsóknir í rit- handarfræði Skömmu eftir aldamótin 1800 birtu nokkrir franskir rannsókn- armenn ritgeröir um túlkun rit- handar og um fimmtíu árum síöar var fariö aö reka skóla í rithandar- fræöi í nágrenni Parisar undir stjórn ábótans Flandrin. En þaö var ekki fyrr en 1875, sem út kom ítarlegt verk, sem telja má stofnrit rithandarfræðinnar. Höfundur þess var Michon ábóti, en hann var lærisveinn Flandrin ábóta. Michon ábóti er því talinn faöir „grafologiunnar", sem rithandar- fræöin nefnist á fagmálinu. Michon haföi um árabil safnaö fjölda rit- handa og rithandareinkenna og í niöurstööum sínum lýsir hann þeim glögglega. Hann studdist mjög viö „fastákveðin einkenni", þ.e. aö sérhvert einkenni átti aö tákna aöeins eitt ákveöiö lundar- einkenni. Þannig átti mjúkleg rit- hönd aö segja til um viökvæma sál, hörkuleg rithönd um harön- eskjulega skapgerö og þar fram eftir götunum. Rithandarfræöinni hefur aö sönnu fleygt mjög fram síöan um daga Michon, en engu aö síöur njóta margar túlkana hans viðurkenningar enn í dag. Eftir- maöur hans, Crépieux-Jamin, varö heimskunnur fyrir rannsóknir sínar á þessu sviöi, en hann takmarkaöi starf sitt viö rannsóknir á ráöningu rithandar eftir merkiseinkennum. Franska rithandarfræöin barst brátt til Þýskalands þar sem fræöi- menn tóku hana upp á arma sína og leituöust viö aö þróa vísinda- legar aöferöir viö lestur og ráön- ingu rithandar. Þar á meöal var hinn kunni lífeölisfræöingur og barnasálfræöingur William Preyer prófessor, en áriö 1895 kom út bók hans „Hiö sálfræöilega í rit- höndinni", sem af mörgum er talið ítarlegt og djúphugsaö verk. Þetta var í fyrsta skipti sem viöurkennd- ur fræöimaöur tók upp merki rit- handarfræöinnar og höfðu skoö- anir hans aö sjálfsögðu mikil áhrif til framdráttar hinni ungu fræöi- grein. Til gamans má geta þess aö Preyer var íslendingum ekki með öllu ókunnur, því hann haföi komiö hingaö til lands sem þáttakandi í vísindaleiöangri áriö 1860, þá ungur stúdent og feröaöist hann meö rannsóknarleiðangri þessum þvert yfir island. Landfræðilegar og náttúruvísindalegar niöurstööur þessa leiöangurs voru birtar í bók sem ber vott um fjölhæfni Preyers, sem tók miklu ástfóstri viö land og þjóö eftir ferö þessa. Meö rannsóknum Preyers hefst hiö vísindalega tímabil ríthandar- fræöinnar. Hann fór nýjar leiöir í rannsóknum sínum og í staö þess aö túlka einstök merki skriftarinn- ar kannaöi hann eftir hvaða leiöum rithöndin veröur til, hvernig fariö er aö því aö rita, og hreyfingar ein- staklinga viö aö skrifa. Preyer komst m.a. aö þeirri niöurstööu, aö eöli rithandar sérhvers manns helst alveg óbreytt, jafnvel þótt hann hafi æft sig aö skrifa meö vinstri í staö hægri handar, og meira aö segja þótt hann noti fót eöa munn til aö stýra pennanum. Af þessu dró hann þá ályktun aö þaö væri ekki höndin, sem mótaöi skriftina, heldur hugurinn, eöa heilinn öllu heldur. Þessi kenning olli byltingu á sviöi rithandarfræð- innar og meö henni opnuöust leiöir til aö kanna skapgeröareinkennin hleypidómalaust og meö nákvæm- ari og betri aöferöum. Geölæknar og sálfræöingar fóru nú aö sýna rithandarfræöinni auk- inn áhuga og um aldamótin 1900 kannaöi geölæknirinn George Meyer rithreyfingar, sem fastmóta rithöndina, í tengslum viö tjáningu sálarlífsins og leiddi aö því rök, aö vissar breytingar sálarástands leiddu til samsvarandi breytinga á rithöndinni. Studdist hann þar einkum viö skrif sjúklinga sinna og tengdi þannig rithandarfræöina al- mennum sálvísindum. Rithönd og per- sónuleiki Þýski náttúrufræöingurinn og sálfræöingurinn Ludwig Klages stundaöi gagnmerkar rannsóknir á þessu sviöi skömmu eftir aldamót- in og tók hann miö af kenningum Schopenhausers, Darwins, Pider- its og fleiri, en Klages lagöi m.a. grundvöll aö svokallaöri „nútíma- látbragösfræöi", en hún byggist á þeirri kenningu, aö hreyfingar lík- amans veröi til vegna umróts í sál- arlífinu, aö hreyfingar manns Ijóstri upp um leyndir hugans. Þaö þarf aö vísu engann vísindamann til aö segja okkur aö óvæntar gleöi- fregnir fá okkur til aö hlæja, hoppa eöa klappa lófunum, en sorg- artíöindi til aö gráta eöa drúpa höföi. Hins vegar eru geöbrigöin æriö mörg, og séu þau varanleg, mynda þau og móta allt lundarfar manns, sem einnig kemur fram í hreyfingum hans og þar meö einn- ig í rithöndinni. Staöfesting á því síöastnefnda fékkst m.a. í tilraun- um meö dáleidda. En lítum á nokkur dæmi úr niöurstöðum þessara rannsókna. Sterkar líkur eru á því aö rithönd þess, sem venjulega er glaðlyndur, muni í ritlínum sínum leita upp á viö. Hins vegar lýsir döpur lund sér oft í því, aö stafirnir síga niður fyrir ritlínu. Samkvæmt rannsóknum þessum á lin og grönn rithönd aö bera vott um veikan vilja og stefnuleysi, en aftur á móti kann þróttmikil rithönd aö segja til um sterkan vilja. Á sama hátt getur hádregin skrift vitnaö um stolt og sterka sjálfsvitund, en smágeröir stafir um lítillæti. Þessar túlkanir eru þó ekki einhlítar því hádregna stafi getur einnig sá ritaö, sem ekki býr yfir skýrri sjálfsvitund, heldur aðeins yfir drambi og stærilæti og smágeröir stafir geta ekki aðeins auökennt þann lítilláta, heldur einnig þann, sem er hræddur og hikandi. Þetta sama fær einnig staöfestingu í framkomu manna í daglega lífinu: Sá, sem lætur lítiö yfir sér, getur gert slikt af lítillæti eöa ef til vill fremur af kjarkleysi. Margir menn inna verk sín fljótt af hendi og ber þaö vott um iöni og leikni hjá sumum, en táknar fljót- færni og kæruleysi hjá öörum. Báöar þessar manngeröir munu skrifa jafn greiölega, og rithönd þeirra ber sömu einkenni. Að þekkja sjálfan sig af rithöndinni Áriö 1974 kom út í London bók sem ber heitiö „How to really know yourself through your handwriting" eftir Shirl Solomon. Hér skal ekki lagöur dómur á vísindalegt gildi þessarar bókar, en eins og nafniö bendir til á hún aö vera mönnum til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.