Morgunblaðið - 29.01.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984
47
Þriðja plata Egó
tekin upp í mars
Egó-vinir fj»r og nær geta tekið gleði sína á ný. Egó-flokkurinn er ekki
hættur og því fer fjarri.
Þriðja plata sveitarinnar er í deiglunni. Eftir því sem Járnsiðan kemst næst
fer Bubbi Morthens út til Bretlands um mánaðamótin febrúar/mars og
hljómsveitin fer síðan út upp úr miðjum mars og veröur platan tekin upp ytra.
Egó hefur til þessa gefið út tvær breiöskífur, Breyttir tímar og I mynd, og
seldust þær báöar geysilega vel — fóru vel yfir 5000 eintaka markið.
Smávegis um Residents, eina af
kyndugri sveitum heims:
Búa til áhugaverö-
ar raðir af hljóð-
rituðum hávaða
The Residents er fjögurra manna hljómsveit, sem vakið hefur nokkra
athygli fyrir kyndug uppátæki og þá ekki síöur kynduga tónlist. Þar ræður
ekki sjónarmið fagurkerans ríkjum, heldur reyna meðlimir sveitarinnar að
búa til áhugaverðustu raðir af hljóðrituðum hávaöa, sem nokkurn tíma hafa
heyrst.
Járnsíðunni barst fyrir nokkru stuttur pistill um sveitina og af skiljanleg-
um ástæðum treystir umsjónarmaður Járnsíöunnar sér ekki til aö stytta
hann eöa umsegja á nokkurn hátt, þar sem hann hefur aldrei heyrt neitt af
högum þessara fjórmenninga. Pistillinn fer hér á eftir:
The Residents búa til frumlega
tónlist. Ég meina það. Þeir hafa
hljóðritað fjölmargar LP-plötur og
margar litlar. Þeir eru ekki gefnir fyrir
viötöl eða aö láta taka af sér myndir.
Gömlu fólki finnst Residents
kjánalegir. Gömlu fólki leiöist tónlist
Residents. Gamalt fólk heldur upp á
Mick Jagger. Muniöi þegar Mick var
ekki gamall og hvernig hann skrýdd-
ist öryggisnælum og vafði sig í þlast
og sagði dónaleg orð? Við sjáum
aldrei þá daga aftur. Sem betur fer.
Þeir líta betur út á litljósmyndum en
þeir voru nokkurn tíma. The Resi-
dents líta eins út í lit og í svart/hvítu.
Ósýnilegir.
Ungu fólki finnst Residents skrýtn-
ir. Ungu fólki leiöist líka tónlist Resi-
dents. Hverjir halda upp á Resi-
Residents semja tónlist með eins
mörgum eöa fáum nótum í áttund og
þeim sýnist. Stundum verða þeir aö
smíöa hljóðfæri til að geta leikiö tón-
list sína. The Residents finnst bókin
með tónlistareglunum fyndin. Þeir
lesa hana stundum á klósettinu.
The Residents búa til hljómplötur
fyrst og fremst. Þeir sitja ekki og
berja á gitara til að reyna að finna
eitthvað flott til að flytja í tónleikasal
eða listasafni. Þeir reyna aö búa til
áhugaveröustu raðir af hljóðrituðum
hávaöa sem nokkurn tíma hafa
heyrst. Þessi hávaði hljómar stund-
um hérumbil eins og tónlist þar sem
tónlist er oft mjög áhugaverðar raðir
af hávaöa sem leikinn er í ákveðnum
tilgangi. Hljómþlötur Residents eru
dents? Það skal ég segja ykkur. Þaö
er tvenns konar fólk sem heldur upp
á Residents: í 1. lagi fólk sem leiðist
Residents en þorir ekki að viöur-
kenna það. í 2. lagi fólk sem hefur
aldrei fundið sig í neinu. Fyrri hópur-
inn er lítill, en það eru gilljónir í þeim
síðari. The Residents kunna vel viö
síðari hópinn, enda af sama sauöa-
húsi og þeir sjálfir.
Til er bók með reglum tónlistarinn-
ar. Hún skýrir vandlega og vísinda-
lega út hvernig tónlist vestrænnar
siðmenningar eigi að hljóma. Án
hennar gæti ekki einu sinni rokkari
stillt gítarinn sinn. I bókinni er að
finna heimskulegar staðhæfingar
eins og „í áttund eru átta nótur". The
upprunalegu listaverkin. Þær eru
ekki fjöldaframleiddar heimildir um
upphaflegan flutning á lögum.
Margir tónlistarmenn hafa veriö
neyddir til að koma fram samkvæmt
kröfum áheyrenda þeirra, en The
Residents einangra sig frá áheyrend-
um sínum til að tryggja að verk
þeirra séu samkvæmt þeirra eigin
óskum. Þegar hljóðritun er lokið er
hún kannski aldrei gefin út eða í
mjög litlu upplagi. Þess vegna er
tónlist þeirra og hljómplötur svo
óviöjafnanlega áhugaverðar. Þess
vegna heyrir þú ekki mikiö um þá og
þess vegna er þessi grein ekki skrif-
uö til aö senda hópa af öskrandi að-
dáendum inn í plötubúðirnar til að
biðja um nýjustu Residents-plötuna.
HLJOMPLOTUR - KASSETTUR
STÓRKOSTLEG RÝMINGARSALA
Leggjum niöur hljómplötuverslun okkar og höfum um leiö
innkallaö allar okkar plötur og kassettur frá öörum verslun-
um og seljum nú á rýmingarsölunni nokkra tugi titla af plöt-
um og kassettum meö 80% afslætti. Eftirleiöis veröur ekkert
af þessum titlum á sölumarkaöi.
Eitt verð á öllu:
Plata eöa kassetta á adeins kr. 70.-
Um leið bjóðum við nýjar plötur frá öllum öðrum útgefend
um á 25% afsláttar-kynningarverði.
Opið alla daga 9—18
SG-Hljómplötur Ármúla 38. Sími 84549.
Nú er rétti tíminn til þess að tölvuvæða fyrirtækið.
Viö bjóðum ómótstæðilegan fyrirtækjapakka sem
inniheldur eftirfarandi:
1) Apple 3 tölvu (256K)
2) Haröur diskur 5 milljón stafa
geymsla
3) Prentari
4) Ritvinnsluforrit
Verð á pakkanum:
5) Visicalc
6) Fjárhagsbókhald
7) Lager- og viðskiptamanna-
bókhald
Eftirstöðvar: Allt að 10 mán.
Skipholti 19,
sími29800
kr. 240.000
Útborgun:
frá 30.000 kr.
APPLE3