Morgunblaðið - 29.01.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984
19
Búnaðarbankaskákmótið:
Pia fékk
óskabyrjun
Skák
Margeir Pétursson
Búnaðarbankaskákmótið hófst
á föstudagskvöldið og urðu flestar
skákirnar athyglisverðar og
spennandi. Úrslit í fyrstu umferð
urðu þessi:
Pia Cramling — Jón L. 1-0
deFirmian — Helgi '/2 - '/2
Shamkovich — Margeir 'A-'A
Knezevic — Jón Kristinss. biðsk.
Jóhann — Guðmundur biðsk.
Sævar — Alburt biðsk.
Sú skák, sem mesta athygli
vakti, var eina vinningsskákin, á
milli þeirra Piu og Jóns L. Jón,
sem lauk við miðsvetrarpróf sín á
þriðjudaginn, fékk á sig hættulega
sókn eftir að hafa valið hæpið
byrjanaafbrigði. Honum tókst
ekki að finna nægjanlegt mótspil
og Pia þekkti stöðuna greinilega
mjög vel og vann á mátsókn.
Hvítt: Pia Crapling
Svart: Jón L. Árnason
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6.
f4
Margir Svíar tefla þetta af-
brigði sem gefur hvítum mögu-
leika á hættulegri kóngssókn. Ör-
uggast þykir að svara þessu með 6.
— g6 eða 6. — Dc7, en Jón teflir
gömlu leiðina, sem ekki þykir
traustvekjandi nú.
6. — e5, 7. Rf3 — Rbd7, 8. a4 —
Dc7, 9. Bd3 — g6, 10. 0-0 — Bg7, 11.
Del - b6, 12. Dh4 - Bb7,13. Khl
— 00, 14. f5 — Hae8, 15. Bg5!
Endurbót á skákinni Christi-
ansen-Rogoff, Bandaríska meist-
aramótinu 1978, en þá fékk svart-
ur betra eftir 15. Bh6? — Rh5!
15. — Dc5?!
Til greina kom 15. — gxf5 eða
15. — Kh8, því þessi og næsti leik-
ur svarts koma engu til leiðar.
16. Rd2 — Db4, 17. Habl — Hc8,
18. Hf3
Sígild kóngssóknaráætlun gegn
Sikileyjarvörn. Allir menn hvíts
eru tilbúnir í sóknina.
18. — d5, 19. Hbfl! — fxe4, 20.
Rcxe4 — Bxe4, 21. Rxe4 — Rxe4,
22. Bxe4 — Rc5.
Tapar, en 22. — Rf6, 23. Bxf6 —
Bxf6, 24. Dxf6 — Dxe4, 25. fxg6,
var einnig vonlaust.
23. fxg6! - h6.
23. - fxg6, 24. Bd5+ og 23. -
hxg6, 24. Hh3 stoðaði ekki heldur.
24. gxf7+ — Kh8, 25. Bxh6
Hér var einnig hægt að máta í
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
þremur með drottningarfórninni
25. Dxh6+!
25. — Dxe4, 26. Bxg7+ og svartur
gafst upp. Eftir drottningarflanið
í 15. og 16. leik átti Jón enga
möguleika.
Helgi tefldi Najdorf-afbrigðið
öllu nákvæmar en Jón og skák
hans við deFirmian lyktaði því
fljótlega með jafntefli. „Ég lét
Shamkovich loka inni fyrir mér
hrók, en fékk mótspil og um síðir
leysti hugprúður riddari hrókinn
úr prísundinni."
Jóhann Hjartarson fékk óska-
byrjun á mótinu, því hann náði
strax yfirburðastöðu gegn Guð-
mundi eftir byrjunina. í biðstöð-
unni virðist Jóhann eiga auðunnið
hróksendatafl. Hann hefur hvítt í
þessari stöðu, en Guðmundur lék
biðleik.
Sævar Bjarnason hafði hvítt
gegn Alburt, en lenti samt í
nokkrum kröggum. Sævar varðist
síðan vel að venju og virðist
standa beftur í biðstöðunni sem er
þessi:
Sævar hefur hvítt og lék biðleik.
peðsvinning eftir miklar flækjur.
Biðstaðan er þessi. Jón hafði svart
og lék biðleik.
• b e 4
Knezevic tefldi djarft í byrjuninni
gegn Jóni Kristinssyni og uppskar
Önnur umferð Búnaðarbanka-
mótsins var tefld í gær, en sú
þriðja fer fram í dag kl. 14 að Hót-
el Hofi. Biðskákir verða síðan
tefldar í kvöld.
DICfTAi ElNKATðlVA
TEKURTILUTTIL
SÉRÞARFAHVERSOGEINS
Við teljum að það sé liðin tíð að
fólk sætti sig við takmarkanir
einkatölvu (personal computer),
sem hönnuð er til að henta sem
flestum, án þess að taka tillit til sér-
þarfa hvers og eins. Þess vegna
býður DIGITAL 3 tegundir af
einkatölvum; Rainbow 100 og
Professional 325 og 350.
DIGITAL einkatölvur er mjög
auðvelt að tengja saman í net eða
nota sem útstöðvar við stærri tölv-
ur.
DIGITAL býður fullkomið kerfi
fyrir einkatölvun (personal com-
puting), kerfi sem sameinar vélbún-
að af hæsta gæðaflokki og hugbún-
að af bestu gerð. DIGITAL einka-
tölva er afkastameiri, einfaldari í
notkun og betur búin að flestu leiti
en nokkur önnur einkatölva á
markaðnum.
DIGITAL einkatölva hefur
fengið hin eftirsóttu verðlaun fyrir
hönnun, rekstraröryggi og þægi-
lega notkun, frá Die Gute Industrie-
form í Hannover.
Hún er auð-
veld í notkun.
Lítill skermur
ogléttlykla- .....................
borð eru fyrir-
ferðalítil á skrifborðinu og kalla
hvorki á viðbótarrými, né kaup á
aukahlutum sem margar aðrar tölv-
ur krefjast.
Þú getur fengið 132 stafi í línu í
stað 40 eða 80 eins og á öðrum
tölvum. Petta gerir þér kleift, t.d.
þegar þú notar MULTIPLAN áætl-
unarforritið, að sjá allt árið á
skerminum.
DIGITAL einkatölvan hefur
forrit sem kennir þér á nokkrum
mínútum, hvernig nota á tölvuna.
Þú þarft því ekki lengur að fletta
mörg hundruð blaðsíðna bækling-
um til þess að læra á tölvu.
T - KOS (Tölvudeild Kristján Ó.
Skagfjörð h.f.)leggur áherslu á að
öll þjónusta við vél-og hugbúnað
DIGITAL tölva, uppfylli til fulls
þær kröfur sem gerðar eru á íslensk-
um tölvumarkaði.
H
KRISTJÁN Ó
SKAGFJÖRÐ HF
Tölvudeild, Hólmaslóð4.101 Reykjavíks 24120