Morgunblaðið - 29.01.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANtJAR 1984
43
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
þjóðarframleiðslu, nú 60%.
Greiðslubyrðin er fjórðungur út-
flutningstekna og rýrir ráðstöfun-
artekjur.
• 2) Gera þarf sparifé, sem hætt
er í atvinnurekstri, jafnrétthátt
öðrum sparnaði skattalega séð.
• 3) Tryggja þarf samkeppnis-
stöðu innlendrar framleiðslu,
heima og heiman, fyrst og fremst
með „jafnvægisástandi í efna-
hagsmálum", eins og formaður
Sjálfstæðisflokksins komst að
orði, en þar vegur hvað þyngst að
framleiðslan búi við hliðstætt
verðbólgu- og tilkostnaðarstig og
hjá samkeppnisþjóðum. Að því
miðuðu efnahagsaðgerðir stjórn-
valda á liðnu ári.
• 4) Nýta þarf öli tiltæk og arð-
bær tækifæri til að koma nýjum
stoðum undir atvinnu, afkomu og
lífskjör landsmanna. Tvennt er
þar efst í huga: stóraukin fiski-
rækt og orkuiðnaður, en án hans
verður orku fallvatna okkar ekki
breytt, að ráði, í atvinnu, verð-
mæti, gjaldeyri og aukinn skipta-
hlut á þjóðarskútunni.
Allir þessir vegvísar vóru snið-
gengnir á stjórnarárum Alþýðu-
bandalagsins, auk þess sem
stjórnsýslustefnan í sjávarút-
vegsmálum leiddi þangað sem við
nú stöndum, því miður.
Það þarf engan að undra þótt
formaður VMSI vilji skáka sér til
hliðar við þingflokk Alþýðubanda-
lagsins þá rætt er um atvinnuleysi
á líðandi stund á löggjafar-
samkomunni.
Atvinnuhorfur fyrri
hluta árs 1984
Með hvaða augum sér forsætis-
ráðherra næstu framtíð, þá horft
er til atvinnu fólks í landinu? Hér
verða raktir nokkrir þættir úr
máli hans, efnislega, en aðeins í
grófum dráttum:
• — Reykjavík, Akranes, Akur-
eyri og Selfoss skáru sig úr, hvað
atvinnuleysi snertir 1983, þar var
mun meira atvinnuleysi skráð í
öllum mánuðum ársins en venja er
til.
• — Atvinnustig verður lægra á
fyrsta ársfjórðungi 1984 en sama
tíma 1983. Upplýsingar frá at-
vinnumáladeild benda til að þrjú
til fjögur þúsund manns verði at-
vinnulausir á þessum tíma.
• — Þetta ræðst þó fyrst og
fremst af því, hvenær veiðar hefj-
ast, einkum togara, svo og af gæft-
um, en sókn og veðurfar hafa verið
með lakara móti frá áramótum.
Veðrátta í janúar hefur og dregið
úr útivinnu, s.s. í byggingariðnaði.
• — Ríkisstjórnin hefur sam-
þykkt að setja á fót sérstaka at-
vinnumálanefnd, sem gera á til-
lögur um aðgerðir í atvinnumál-
um, ekki sízt þar sem staðbundnir
erfiðleikar bera að garði vegna
áfalla í sjávarútvegi. Áherzla
verði lögð á arðsemi slíkra að-
gerða og hliðsjón höfð af ályktun-
um ASI og BSRS frá 10. maí 1983
og VSÍ frá 20. september 1983.
• — Loks sagði forsætisráðherra
að ríkisstjórnin muni að sjálf-
sögðu standa við þær skuldbind-
ingar sem á henni hvíla varðandi
atvinnuleysistryggingasjóð. Ekki
hafi enn verið tekin ákvörðun um
fjáröflun, utan þeirrar sem í gildi
er, „en það mun verða gert ef fjár-
magn skortir".
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur loka-
orðið, en hann sagði orðrétt í þess-
ari umræðu:
„Við stöndum frammi fyrir
ákveðnum vanda í atvinnumálum,
fyrst og fremst vegna breyttra að-
stæðna í sjávarútvegi. Það er eðli-
legt og sjálfsagt við þessar að-
stæður að freista þess að ná sem
víðtækastri samstöðu um aðgerð-
ir. Við erum sem þjóð í harðri bar-
áttu við sjálfa okkur til þess að
vinna byg á mestu meinsemd, sem
grafið hefur um sig í efnahagslífi
okkar, og við höfunr náð veru-
legum árangri í þeim efnum. En
miklir erfiðleikar eru framundan,
ef við ætlum að gera þennan
árangur að varanlegum veruleika
í efnahagssögu okkar, veltur á
miklu að ná um það víðtækri sam-
stöðu. Þessvegna hefur verið rætt
um það og tekin ákvörðun um það
að leita eftir samvinnu við helztu
aðila vinnumarkaðarins um tillög-
ur í þessum efnum."
Slefán Fríðbjarnarson er þing-
fréttamaður Morgunblaðsins og
skrífar að staðaldri um stjórnmál í
blaðið.
'“sStSSgi
■MMMMMNMMNMMMMJP
Fródleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Læknastofa
Höfum opnaö læknastofu í læknamiöstööinni Álf-
heipium 74. Tímapantanir frá kl. 9—17 í síma 86311.
Þóra F. Fischer: Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæö-
ingarhjálp. Hallgrímur Þ. Magnússon: Sérgrein:
Svæfingar og deyfingar.
/lukinþjónusta
íaðalbanka
ogíöllumútibúum:
Gjaldeyris -
J afgieiðsla
Við önnumst nú alla algengustu gjaldeyrisþjónustu: Kaup og sölu á
ferðamannagjaldeyri, sölu námsmannagjaldeyris, stofnun innlendra
gjaldeyrisreikninga og útgáfu VISAgreiðslukorta.
Iðnaöaitankinn
Reykjavik: Aðalbanki, Lækjargötu 12
Breiðholtsútibú, Drafnarfelli 16-18
Laugarnesútibú, Dalbraut 1
Grensásútibú, Háaleitisbraut 58-60
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3
Garðabær: v/Bæjarbraut
Hafnarfjörður: Strandgötu 1
Selfoss: Austurvegi 38
Akureyri: Geislagötu 14