Morgunblaðið - 29.01.1984, Síða 48
E
EUROCARO
T1L DAGLEGRA NOTA
24. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
íslenskur verslanahringur í Handaríkjunum:
Ullarfatnaður
fyrir 15 millj.
í 8 verslanir
Á UNDANFÖRNUM tveimur árum
hafa verið opnaðar í Bandaríkjunum
Haglið
lenti í
fingrinum
MAÐUR á sextugsaldri var hand-
tekinn í fyrrinótt eftir að hagl úr
haglabvs.su í hans eigu lenti í pilti
fyrir utan heimili mannsins í Sól-
heimum. Pilturinn, sem þar var
ásamt tveimur félögum sínum,
hlaut ekki alvarleg meiðsl. Hagl
lenti í fingri hans og hugsanlega í
leðurjakka, en þau stöðvast í
þykku leðrinu. Rannsókn RLR var
í gær á frumstigi og hafði þetta
atriði ekki verið kannað til hlítar.
Lögreglan í Reykjavík var þeg-
ar kölluð á staðinn, en tildrög
málsins eru nokkuð óljós. Maður-
inn kveðst hafa séð piltana fyrir
utan og talið þá bílaþjófa. Hann
hafi því farið út með haglabyssu
og ætlað að hræða piltana, en
ekki gert sér grein fyrir því að
byssan var hlaðin. Hann hafi
dottið í hálkunni og skot þá
hlaupið úr byssunni. Um óvilja-
verk sé að ræða.
átta verzlanir sem bjóða íslenzkan
ullarfatnað og fleira frá Islandi, en
verzlanirnar heita allar The Iceland-
er og er eigandi þeirra Dorette Eg-
ilsson. í samtali við Morgunblaðið
kvaðst hún ætla að opna tvær nýjar
verzlanir á þessu ári, en fyrir verzl-
anirnar átta áætlar hún að flytja út
ullarfatnað fyrir um 15 milljónir ísl.
kr. eða um 500 þús. dollara.
Verzlanirnar eru allt frá Alaska
til Californíu og vinna 24 starfs-
menn í þeim, en Dorette stýrir
rekstrinum ásamt eiginmanni sín-
um, Árna Egilsson hljóðfæraleik-
Árekstur í hálkunni
MorgunblaÖiÖ/Þór ólafsson.
HARÐUR AREKSTUR varð á Hafnarfjarðarvegi, skammt fyrir sunnan borgarmörk Reykjavíkur, laust fyrir
klukkan átta í gærmorgun. Ökumaður saltdreifingarbifreiðar frá Vegagerðinni stöðvaði bifreið sína um stund
og skipti engum togum, að Mercedes Benz hafnaði aftan á bifreið hans. Ökumaður náði ekki að stöðva í
hálkunni sem þarna var.
Benz-inn fór mjög illa, lenti aftan á og undir saltdreifingarbifreiðinni. Tvennt var í bílnum og voru
bæði flutt á slysadeild. Ökumaður slapp ómeiddur en kona slasaðist á baki.
Framtfðarmöguleikar lífefnatækni á íslandi:
Möguleikar á verðmætum
fyrir milljarða kr. árlega?
Lambalifur og
-nýru til
Arabalanda
f VETUR átti sér stað fyrsta sala ís-
lenskra landbúnaðarafurða til Araba-
landa. Hafa 40 tonn af lambalifur og
nýrum verið seld til kaupanda sem aft-
ur hefur selt þessar afurðir til Saudi-
Arabíu og Egyptalands.
Jóhann Steinsson deildarstjóri í
Búvörudeild SÍS sagði að þetta væri
fyrsta sala á íslenskum landbúnað-
arafurðum inn á þennan markað, en
söluverðið hefði verið fremur lágt.
Sagði Jóhann að varan hefði líkað
vel og væri þegar komin fyrirspurn
um meira magn.
Framtíðarmöguleikar lífefnatækni
á íslandi eru óteljandi og gætu skilað
íslendingum verðmætaaukningu upp
á nokkra milljarða króna ár hvert.
Þetta kemur m.a. fram í viðtali við dr.
Jón Braga Bjarnason, dósent í iíf-
efnafræði við HÍ, í Morgunblaðinu í
dag.
Lífefnatækni felst í notkun líf-
hvata, ensíma, og annarra efna úr
lífheiminum til lausnar vanda í
framleiðslu- og þjónustugreinum.
Rannsóknir á þessu sviði kveður dr.
Jón Bragi hafa að takmörkuðu leyti
farið fram á Raunvísindastofnun
Háskólans og miðað að því að at-
huga það hráefni, sem fellur til hér
á landi, sérstaklega í sjávarútvegi
og landbúnaði og kanna vinnsluað-
ferðir, sem falla best að þessu hrá-
efni og aðstæðum innanlands.
Rannsóknirnar segir dr. Jón
Bragi hafa frá upphafi verið í fjár-
svelti og stjórnvöld nánast ekki
sýnt þeim neinn áhuga eða skiln-
ing. Hann kveður hinn auðfengna
afla undanfarinna ára og áratuga
hafa haft slævandi áhrif á viðleitni
til nýjunga. Nú sé hins vegar svo
komið, að mikla nauðsyn beri til að
nýta betur hráefnið, sem á land
berst og fyrir er í landinu.
„Lífefnatæknin er háþróaður
iðnaður, sem er ekki mannfrekur,
en skilar miklu í aðra hönd og það
er sú tegund atvinnustarfsemi, sem
mannfá en neyslufrek þjóð þarf á
að halda," segir dr. Jón Bragi m.a. í
viðtalinu.
Dr. Jón Bragi kveður síðustu
viðbrögð stjórnvalda vera synjun
sjávarútvegsráðuneytisins við bón
Raunvísindastofnunar um fjár-
framlag til lífefnatæknirannsókna,
en ráðuneytið hefur með bréfi
dagsettu 20. janúar sl. sagt enga
peninga vera fyrir hendi til slíks.
Sjá greinina „Gæti skilað
milljarða verðmætaaukn-
ingu“ á bls. 56—58.
íslenzk landkynningar-
skrifstofa í Evrópu
UNDANFARNA mánuði hefur verið i
undirbúningi að setja á stofn íslenska
landkynningarskrifstofu í Evrópu. Er
þetta fyrsta landkynningarskrifstofa
á erlendri grund sem yrði rekin sam-
eiginlega af opinberum aðilum og
einkaaðilum, en engin slík skrifstofa
er nú í Evrópu.
Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri
hjá Ferðamálaráði, staðfesti
ofangreint í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Undanfarna mánuði
Enn úr skýrslu þremenninganna frá 1971:
„Vísvitandi tilraun til
pólitískra skemmdarverka?“
í íslenska utanríkisráðuneytinu
„MAT embættismanna utanríkis-
ráðuneytisins á velflestum málum,
sem þeir hafa skipt sér af, á þessu
allsherjarþingi, hefur mótast ein-
göngu af stefnu fyrrverandi ríkis-
stjórnar í utanríkismálum ... Við telj-
um nauösynlegt að rannsakað verði
tafarlaust, hvernig á þeim mistökum
stendur, sem orðið hafa, svo að í Ijós
megi koraa, hvort þarna veldur árátta
til klaufaskapar, þekkingarskortur
eða vísvitandi tilraun til pólitískra
skemmdarverka,“ segir í niðurlags-
orðum meginefnis skýrslunnar sem
þeir Stefán Jónsson, Bragi Jósepsson
og Hannes Pálsson sendu Einari Ág-
ústssyni, þáverandi utanríkisráð-
herra, 22. desember 1971 eftir þátt-
töku í allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna þá um haustið. Hin tilvitn-
uðu orð gefa glögga mynd af efni
skýrslunnar sem fjallar í stuttu máli
um það að embættismenn utanríkis-
ráðuneytisins hafi reynt að hindra
framkvæmd „sjálfstæðrar utanríkis-
stefnu“ nýmyndaðrar vinstri stjórnar
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Skýrsla þessi hefur komist í há-
mæli nú 12 árum síðar eftir að
Morgunblaðið birti kafla úr henni
þar sem lýst er hádegisverðarfundi
þremenninganna með þremur
Norðmönnum, en í þeirra hópi var
Arne Treholt, sem nú hefur verið
afhjúpaður sem útsendari KGB.
Með „fyrrverandi ríkisstjórn" vísa
þremenningarnir, fulltrúar Al-
þýðubandalags, Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna og Fram-
sóknarflokksins á allherjarþinginu
til viðreisnarstjórnarinnar sem sat
frá 1959 fram í júlí 1971 þegar
vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar
var mynduð með þátttöku þessara1
þriggja flokka.
Morgunblaðið hefur þessa 20
síðna skýrslu undir höndum, en af
þeim fjalla 17 um „stríð" þremenn-
inganna við embættismenn utan-
ríkisráðuneytisins bæði í New York
og Reykjavík. I Morgunblaðinu í
gær segist Einar Ágústsson, sem
nú er sendiherra I Kaupmanna-
höfn, minnast þess „að hafa fengið
fjöldann allan af svona skýrslum"
og í leiðara Tímans í gær telur Þór-
arinn Þórarinsson, sem 1971 var
formaður þingflokks framsóknar-
manna og utanríkismálanefndar
alþingis, að í skýrslunni sé lagt til
að Ivar Guðmundsson, fyrrum
blaðamaður Morgunblaðsins, verði
skipaður aðalræðismaður íslands í
New York. Engin slík tillaga er í
skýrslunni.
hafa staðið yfir viðræður milli
Ferðamálaráðs, Flugleiða, Arnar-
flugs, Ferðaskrifstofu ríkisins, Fé-
lags íslenskra ferðaskrifstofa og
Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda um að standa sameiginlega
að íslenskri landkynningarskrif-
stofu í Evrópu og verður endanleg
ákvörðun í málinu tekin um miðjan
febrúar, en byrjað var að huga að
þessu máli í september á síðasta
ári,“ sagði Birgir.
„Gert er ráð fyrir, að Ferðamála-
ráð greiði helming rekstrarkostn-
aðar væntanlegrar skrifstofu, sem
til að byrja með er búist við að
verði 3 milljónir króna á árs-
grundvelli, og hinir aðilanir þau
50% sem upp á vantar sameigin-
lega, en ekki hefur verið gengið frá
skiptingu kostnaðarins milli þeirra
aðila. í fyrstunni er gert ráð fyrir
2-3 starfsmönnum, og hvað stað-
setningu varðar hafa ýmsir staðir
komið til álita. Helst höfum við
augastað á Þýskalandi, og borgir
eins og Hamborg og Köln hafa ver-
ið nefndar sem ákjósanlegir stað-
ir,“ sagði Birgir.
Það kom fram hjá Birgi að þetta
væri fyrsta kynningar- og sölu-
skrifstofan sem sameiginlega yrði
á vegum einka- og opinberra aðila
á erlendri grund. Fyrir hvað þetta
snerti væri einungis þátttaka
Ferðamálaráðs í sameiginlegri
skrifstofu Norðurlandana í New
York.