Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 11 Egilsstaðir: Fundur um launamál kvenna Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, alþingismaður, frá framkvæmdanefnd um launamál kvenna, og hluti fundarmanna. KffiLsstödum, 18. febrúar Á KIJNDI um launamál kvenna sem haldinn var í Valaskjálf í dag kom m.a. fram að 30% mismunur er á launum karla og kvenna á Kgilsstöðum samkvæmt niðurstöð- um jafnréttiskönnunar er Jafnrétt- isnefnd Egilsstaðahrepps lét gera í desember síðastiiðnum. Er þetta heldur minni munur á launum kynjanna en komið hefur í Ijós annars staðar í svipuðum könnun- um. Könnunin náði til 246 kvenna á aldrinum 25—60 ára. Svör bár- ust frá 168 konum eða 68,3%. Það kom fram í könnuninni að atvinnuþátttaka kvenna á Eg- ilsstöðum hefur stóraukist hin síðari ár — var árið 1976 68,6% en er nú 85,7%. Það var Elísabet Svavarsdótt- ir, félagsráðgjafi, sem kynnti niðurstöður könnunarinnar á fundinum, en hún vann könnun þessa fyrir jafnréttisnefndina. Framkvæmdanefnd um launa- mál kvenna boðaði til fundarins í dag í samvinnu við Jafnréttis- nefnd Egilsstaðahrepps og verkalýðsfélög á staðnum. Af hálfu framkvæmdanefnd- arinnar töluðu þær Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, alþing- ismaður, og Sigrún Sturludóttir, fulltrúi. Röktu þær aðdraganda að stofnun framkvæmdanefnd- arinnar og hvöttu konur til virk- ari þátttöku í kjarabaráttu svo að réttlátari tekjuskipting næð- ist í þjóðfélaginu. Þá fluttu ávörp Gyða Vigfús- dóttir, Verkalýðsfélagi Fljóts- dalshéraðs, og Sigrid Toft, Verslunarmannafélagi Austur- lands. { lok fundarins var eftirfar- andi ályktun samþykkt: „Fundur um launamál kvenna haldinn á Egilsstöðum 18. febrúar 1984 vekur athygli á því gífurlega launamisrétti sem allar kannan- ir sýna að nú ríkir á milli kvenna og karla á vinnumarkaðnum. Við svo búið má ekki standa. Fund- urinn skorar á aðila vinnumark- aðarins að gera sérstakt átak í komandi kjarasamningum til að rétta hlut þeirra sem verst eru settir, en þar eru konur í meiri- hluta. Jafnframt skorar fundur- inn á konur hvar í stétt sem þær standa að taka höndum saman um að leiðrétta kjör sín og ná mannsæmandi launum." Fundurinn var fjölsóttur. — Ólafur. "TEKI6 E(? FRflM flO l' 5Pfl ÞJÓ0HB&S: STOFNUNflR SÉU ÓUISSUÞÆTTlR EINSOír VER0 A LOONUMJOLI.STYRKLEIKI SÍLDRR- STOFNSINS OCr UILLUR RftfiHERRR'1 Höföar til .fólksí öllum starfsgreinum! BILASÝNING Mazda 1984 Sýndar veröa 1984 árgeröirnar af MAZDA 323, MAZDA 626 og MAZDA 929, sem nú kemur á markaöinn í nýju og breyttu útliti og með fjölmörgum tæknilegum nýjungum. Ennfremur sýnum viö úrval af notuðum MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð. KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA. 5 8 ? JK Mazaa BILABORG HF. Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.