Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 t Maöurinn minn og faðir okkar, SÓRLI HJÁLMARSSON, Hörgshlíö 2, Reykjavík, andaöist í Landakotsspitala fimmtudaginn 1. mars sl. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Guöbjörg Pétursdóttir. t Konan min, JÓNÍNA SIGRÍÐUR GUOJÓNSDÓTTIR, Vesturbergi 78, andaðist í Landakotsspítala fimmtudaginn 1. mars. Guömundur Þóröarson. t MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR fré ísafiröi, andaöist aö Hrafnistu föstudaginn 2. mars. Emma Ólafsdóttir, Ólafía Siguröardóttir, Jón K. Jóhannsson og barnabörn hinnar látnu. t Eiginmaöur minn, faðir, fósturfaöir og tengdafaöir, SIGFÚS ÞORLEIFSSON, fyrrverandi útgerðarmaöur, Dvalarheimili aldraöra, Dalvík, andaöist 1. mars í Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ásgeröur Jónsdóttir, Hlín Sigfúsdóttir, Þóröur Pétursson, Hörður Sigfússon, Hermína Þorvaldsdóttir, Kéri Sigfússon, Guörún Guönadóttír, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Júlíus Kristjénsson. t Systir mín og mágkona, SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR PUDELSKI, lést laugardaginn 25. febrúar í Remscheid, Þýskalandi. Útförin hefur fariö fram. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigurlaug Þorsteinsdóttir og Eggert Kristinsson. t Útför fööur okkar, ÞÓRARINS ÞORSTEINSSONAR, Litla-Bæ, Vestmannaeyjum, veröur gerö frá Landakirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 16.00. Steina Kristín Þórarinsdóttir, Ágústa Þórarinsdóttir, Haraldur Þór Þórarinsson. t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, ÞORVALDURMARKÚSSON, Noröurbrún 1, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. mars kl. 15.00. Rósa Halldóra Hansdóttir, Markús Þorvaldsson, Inga Guðnadóttir, Hans Þorvaldsson, Guölaug Siguröardóttír, Már Þorvaldsson, Guðrún Ástréösdóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Sveinn Sigurbjörnsson, Jóhann Þorvaldsson, Hulda Snorradóttir og barnabörn. Minning: Sigurður Sigurðs- son Njarðvíkurbæ Fæddur 13. júní 1895. Dáinn 21. febrúar 1984. í dag, laugardaginn 3. mars, verður Sigurður Sigurðsson, vél- stjóri í Keflavík, jarðsettur frá Keflavíkurkirkju. Hann fæddist 13. janúar árið 1895 í Garðshorni í Keflavík og var því 88 ára er hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urður Gíslason, járnsmiður og vélamaður, ættaður frá Borgar- holti á Skeiðum, og kona hans, Guðrún Þórarinsdóttir, ættuð frá Hjáleigusöndum, Vestur-Eyja- fjallahreppi. Þau hjónin fluttu til Keflavíkur um 1892 og byggðu sér bæ við hlið bæjar Eyjólfs Þórarinssonar, bróður Guðrúnar, og voru báðir bæirnir kallaðir Garðshorn. Sigurður Gíslason var járn- smiður. { öðrum enda bæjarins hafði hann smiðju. Þar var tré- rennibekkur, eldsmiðja og fleiri áhöld til smíða. Ennfremur búnaður til að steypa með málma, því hann steypti ýmsa muni úr kopar. Þegar fyrsti vélbáturnn, mb. Júlíus, var keyptur til Kefla- víkur árið 1906, gerðist hann vél- stjóri á honum. Það fjölgaði fljótt vélbátunum og smiðjan í Garðs- horni hófst á nýtt stig, því margt og misjafnt þurfti að gera við. { þessu umhverfi ólust þau upp systkinin í Garðshorni, þau voru öll þátttakendur í smiðjuvinnunni, ekki meira en svo að þau réðu við fýsibelginn þegar þau voru látin blása undir eldinn. Það var því fylgst með og verkin lærðust t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, OTTÓ GUÐBRANDSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 5. mars kl. 10.30 f.h. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför UNNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Barónastíg 13, Reykjavík. Fjölskyldan Barónsstig 13. t Viö þökkum auðsýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eigin- konu minnar og móöur okkar, STEINUNNAR G. GUDNADÓTTUR. Guðmundur Jónasson og börn. t Þökkum af alhug öllum þeim sem veittu okkur samúö og styrk vegna fráfalls eiginmanns míns og bróöur okkar, ÞORBJÖRNS SIGURDSSONAR, akipstjóra. Eimskipafélagi Islands og séra Hreini Hjartarsyni þökkum við alveg sérstaklega. i Ásta Guölaugsdóttir, Sigríöur R. Siguröardóttir, Sigþór Sigurösson, Gunnar Sigurösson. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. snemma og auðvitað farið að basla við að smíða jafnvel áður en kraft- ar leyfðu. Þegar synirnir uxu upp fetuðu þeir í fótspor föðurins og urðu vél- stjórar og járnsmiðir. Árið 1920 voru feðgarnir allir, faðir og fjórir synir, samtímis véjstjórar á bát- um úr Keflavík. Ég tel að það hljóti að vera nokkuð sérstakt að nú eru þrír ættliðir frá Sigurði, þar sem næstum allur karlliður- inn er annaðhvort eða bæði járnsmiðir eða vélstjórar. Sigurður Sigurðsson gerðist vél- stjóri strax á unglingsárum. 15 ára gamall var hann á Skaga- strönd. Þá var það einhverju sinni að það vantaði mann sem gæti gangsett vélina í mótorbátnum Dúfu, sem var dekkað sex manna far. Sigurður var að fylgjast með hverju fram yndi og var þá spurð- ur hvort hann kynni að setja í gang. Hann taldi það vera og tókst það. Þar með var hann vélamaður á bátnum það sem eftir var sumarsins. Upp frá því var hann oftastnær vélstjóri, fyrstu árin á Skaga- strönd, ísafirði, Norðfirði, en þó mest í Vestmannaeyjum. Árið 1920 réðst hann sem vél- stjóri á vélbátinn Sæfara frá Keflavík, hjá Ólafi Bjarnasyni, og v^r næstum samfellt með honum fram til ársins 1935 eða 1936, að hann fluttist að Glóru í Hraun- gerðishreppi og hóf búskap þar. Sem stráklingur fram að fermingu var hann í sveit á sumrin. Frá þeim tíma dreymdi hann alltaf um að gerast bóndi. Hann var alla tíð sjóveikur og vildi því losna frá sjónum. Hann bjó á Glóru fram til ársins 1939 að hann fluttist aftur til Keflavíkur. Þá var búið að stofnsetja frystihúsið Jökul í Keflavík. Þangað réðst hann vél- stjóri og var það, þar til starf- rækslu þess var hætt árið 1975, í 36 ár. Starfið í Jökli féll honum vel, þar starfaði hann með góðu fólki og eignaðist mikinn fjölda góðra vina og kunningja. Starfið var mikið og oft langur vinnutími, oft unnið sólarhringum saman við frystingu og viðgerðir. Þetta var starf sem honum var að skapi og hann lagði sálina í það. Þegar Sigurður var 11 ára var hann smali í Syðri-Voðmúlastaða- hjáleigu í Landeyjum. Á næsta bæ var þá 8 til 9 ára gömul stúlka með móður sinni. Milli þeirra tókst mikill trúnaður. Næsta sumar voru þau á sama bæ, þá treystust böndin svo að úr varð vinátta. Eft- ir það hittust þau ekki fyrr en árið 1919 að þau voru samtímis í Vest- mannaeyjum. Þaðan í frá áttu þau sameiginlega leið gegnum lífið. 12. júní árið 1920 voru þau gefin saman í hjónaband að Ofanleiti í Vestmannaeyjum, Sigurður Sig- urðsson og Guðbjörg Brynjólfs- dóttir. Foreldrar hennar voru Ólöf Guðmundsdóttir frá Syðri-Vatna- hjáleigu í Landeyjum og Brynjólf- ur Jónsson, síðar bóndi þar. Guðbjörg var gáfuð kona, traust og hjálpsöm. Þau voru samrýnd og samhent og hjónabandið farsælt. Fyrst í stað bjuggu þau í Keflavík. Síðar voru þau í tvö ár í Vest- mannaeyjum, en fluttust þá aftur til Keflavíkur. Á árunum frá 1935 til 1939 bjuggu þau á jörðinni Glóru í Flóa, en fluttu þaðan aftur til Keflavíkur og áttu þar heima upp frá því. Þau eignuðust saman sex börn, þau eru: Ólöf Lilja, var gift Davíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.