Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 17 Lífinu tekið med ró á Sæludög- um... nemenda í framhaldsskólum. Um 50 manna hópur hefur unn- ið sleitulaust að undirbúningi þessara daga síðastliðinn mánuð. Við höfum reynt að hafa þetta sem fjölbreyttast og bjóða upp á að minnsta kosti þrjá til fjóra valkosti í hádeginu. Þá geta nem- endur valið um að spila á spil, tefla, horfa á kvikmynd, hlusta á tónleika, ljóðaupplestur og fleira í þeim dúr.“ Fyrir skömmu var kosinn „herra Fjölbrautaskóli í Breiðholti** og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Á myndinni má sjá Sigurð Levy, „herra Fjölbrautaskóla í Breiðholti“ 1983, krýna Stefán Þór Stefánsson, afhenda honum titilinn og fylgihluti hans (kórónu, borða o.s.frv.) mennska og fegrun skólans. Síð- astnefndi hópurinn hefur unnið að því að gera skólann og umhverfi hans hlýlegra. Leiklistarhópurinn hefur meðal annars æft leikþætti sem sýndir voru á árshátíð skólans í Gamla bíói. Við höfðum barnagæslu í gangi hérna fyrir börn kennara og nemenda og var barnanna gætt á meðan foreldrarnir unnu með sín- um hópum. Kennararnir tóku virkan þátt í þessu með okkur og ég er sannfærður um að vinnuvika Hluti árdaganefndar, talið frá vinstri: Edda B. Sigurðardóttir, Már Guðbergsson, Hulda Ruth Ársæls- dóttir, Kamr Sigurð og Sigríður Karlsdóttir. sem þessi eflir jákvæð samskipti, annnars vegar innbyrðis á milli nemenda og hinsvegar á milli kennara og nemenda," sagði Heimir Már að lokum. Þess má geta að árdögunum lauk með árshátíð skólans í Gamla bíói síðastliðinn fimmtudag. Hún hófst með skemmtidagskrá kl. 13 og um kvöldið var dansleikur í veitingahúsinu Þórscafé þar sem „árdagarnir voru dansaðir út“, eins og einn nemandi fjölbrauta- skólans við Ármúla komst að orði. Unnið í tágavinnu. Mikill bridgeáhugi í Hveragerði HveragerAi, 19. februar. BRIDGEFÉLAGIÐ í Hveragerði starfar með miklum blóma um þessar mundir og stendur nú yfir aðalkeppni félagsins á þessu ári, svokölluð Esso-keppni, en Olíufé- lagið hf. gaf farandbikar, sem keppt er um. Tíu sveitir taka þátt í keppninni. Eg leit inn hjá bridgespilurun- um í Félagsheimili Ölfusinga, síðastliðið fimmtudagskvöld, en þar sátu 40 félagar í þungum þönkum yfir spilunum og var auðfundið að þarna var mikil al- vara á ferðum. Ég náði tali af einum félaganna, Lars Nilsen, og bað hann segja örlítið frá félags- starfinu og hafði hann þetta að segja: „Bridgefélag Hveragerðis var stofnað árið 1962 og fyrsti for- maður þess var einn af okkar eldri og reyndari spilurum, Þórður Snæbjörnsson. Mikil gróska var í spilamennskunni fyrsta árið og spiluðu 10 sveitir í fyrstu sveitakeppninni. Félags- menn í dag eru 52 taísins, þar af 8 konur, sem við erum mjög stoltir af. Mikill áhugi virðist vera hjá ungu fólki að læra að spila bridge og fyrir áramótin spiluðu með okkur fjórir ungir strákar úr gagnfræðaskólanum og stóðu sig með mikilli prýði, en urðu að hætta vegna samræmdu prófanna. Vetrarstarfsemin byrjaði ekki vel, því þegar til átti að taka reyndist ekkert húsnæði tiltæki- legt. Fyrir velvilja eins félagans fengum við inni í húsnæði sem hann á og færum við honum bestu þakkir fyrir. Eftir áramót fengum við svo inni í Félags- heimili Ölfusinga og þar spilum við á fimmtudagskvöldum. Starfandi félagasamtök í þorpinu eiga í miklum vandræð- um með húsnæði til funda og samkomuhalds og mættu hreppsnefndarmenn fara að gera eitthvað í þeim málum fyrir Hvergerðina í stað þess að yppta öxlum ár eftir ár. Núna stendur yfir „Esso“- sveitakeppnin, sem 10 sveitir taka þátt í. Olíufélagið hf. gaf mjög veglegan farandbikar fyrir þessa keppni og erum við þakk- látir fyrir þann höfðingskap og hlýhug í garð félagsins," sagði Lars að lokum. Hluti bridgefélaganna í þungum þönkum. Morgunbl.Aki/Signir.. Hljóðláti dieselbíllinn Mazda 626 BlLASÝNING í dag, laugardag frá kl. 10 — 4. Ennfremur sýnum við aðrar gerðir af MAZDA 626 og MAZDA 323, ásamt úrvali afnotuðum MAZDA bílum. mazoa BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 Mazda 626 DIESEL Verðlaunabíllinn MAZDA 626 er nú kominn með nýrri afar fullkominni DIESELVÉL. Ein sú sem völ er á. gengasta, Tölulegar upplýsingar: Sprengirými 2.01ítrar Torque 12.2 kg/m v/2750 snúninga Eyðsla 4.7 Lpr. 100kmá90km hraða Hámarkshraði 150km áklst. Viðbragð 0-100 km 15sek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.