Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 48
HLEKKUR í HÐMSKEÐJU
LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
GÓÖ Og jÖftl
loðnuveiði
— um 80% hærra verð fyrir loðnuna í Færeyjum
LOÐNUVEIÐIN var nokkuð góð í
ga-r og fyrradag og hafa bátarnir ver-
ið á Eaxaflóa og við Yestmannaeyjar.
I'róarrými er víða um land, en stærri
hátarnir sigla einnig til Fœreyja, en
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins er verðið þar allt að 80% hærra en
hér.
Eftirtalin skip hafa undanfarna
daga tilkynnt Loðnunefnd um afla.
Þriðjudagur: Pétur Jónsson RE,
750, Júpiter RE, 1.150, Jón Finns-
Helgi vann
McCambridge
ÞRIÐJA umferð alþjóðlega
skákmótsins í Grindavík var
tefld í gaerkvöldi. Helztu úrslit
voru þau, að Helgi Ólafsson
vann McCambridge, Elvar Guð-
mundsson vann Gutman,
Christiansen vann Ingvar og
Lombardy og Knezevic gerðu
jafntefli og skákir þeirra Jó-
hanns Hjartarsonar og Björg-
vins Jónssonar annars vegar og
Jóns L. Árnasonar og Hauks
Angantýssonar hins vegar fóru í
bið, en átti að tefla til. úrslita
seint í gærkvöldi.
son RE, 580, Sæbjörg VE, 600, örn
KE, 580, Helga II RE, 520, Ljósfari
RE, 550, Hilmir II SU, 530, Keflvík-
ingur KE, 300 og Rauðsey AK, 540
lestir. Á miðvikudag: Súlan EA,
500, Beitir NK, 1.100, Heimaey VE,
220, Svanur RE, 670, Hilmir SU,
1.100, Skírnir AK, 430, Eldborg HF,
1.200, Dagfari ÞH, 250 og Kap II
VE, 280 lestir. Á fimmtudag:
Húnaröst ÁR, 630, Jöfur KE, 200,
Guðrún Þorkelsdóttir SU, 700,
Þórður Jónasson EA, 470, Sighvat-
ur Bjarnason VE, 650, Gullberg
VE, 300, Magnús NK, 500, Bjarni
Ólafsson AK, 1.100, Víkurberg GK,
550, Huginn VE, 560, Sæbjörg VE,
590, ísleifur VE, 620, Hákon ÞH,
770, Keflvíkingur KE, 400, Börkur
NK, 1.100, Hilmir II SU, 500 og
Óskar Halldórsson RE, 400. Til
klukkan 17 í gær höfðu eftirtalin
skip tilkynnt Loðnunefnd um afla:
Guðmundur Ólafur ÓF, 560, Sjáv-
arborg GK, 650, Erling KE, 400,
Hrafn GK, 630, Bergur VE, 500,
Kap II VE, 650, Sigurður RE, 700,
Örn GK, 570, Þórshamar GK, 500,
Gígja RE, 670, Svanur RE, 680,
Skírnir AK, 430, Jón Kjartansson
SU, 1.100, Heimaey VE, 500, Sæ-
berg SU, 600 og Júpíter RE, 900
lestir.
Loðnubátar bíða löndunar í Reykjavík.
Ljósmynd/ Snorri Snorrason.
Morgunblaðift/KEE
Hátíð við græna borðið
BRIDGEHÁTIÐ hófst á Hótel Loftleiöum í
gærkvöldi. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð
Oddsson, setti mótið og sagði síðan fyrstu
sagnir fyrir heimsmeistarann, Alan Sontag,
sem er við hlið borgarstjóra á myndinni.
Setning mótsins dróst um klukkustund þar
sem sænsku keppendurnir á mótinu lentu í
ófærð á milli Kéflavíkur og Reykjavíkur, auk
þess sem flugvél þeirra seinkaði. 44 pör taka
þátt í tvímenningskeppninni á hátíðinni,
meðal þeirra margir erlendir gestir.
Tvímenningskeppninni lýkur í dag, en á
morgun hefst sveitakeppni með þátttöku 32
sveita.
Albert Guðmundsson á fundi með stuðningsmönnum sínum:
tvo milljarða
í fjárlögin
Hátt í
vantar
HÁTT í tvo milljarða króna
vantar í fjárlögin aö því er
fram kom í máli Alherts Guö-
mundssonar fjármálaráö-
herra á fundi hans meö
stuðningsmönnum í fyrra-
dag. Ráðherra sagði aö
geigvænlegt ástand blasti nú
við í efnahagsmálum þjóðar-
innar.
í samtali við Mbl. fyrir viku
gaf ráðherrann út yfirlýsingu
um að við mikinn vanda væri
að glíma, meiri en hann hefði
órað fyrir. Hann sagðist þá
myndu leggja mál þetta fyrir
Alþingi fljótlega.
Á fundinum með stuðnings-
mönnum sínum á fimmtudag
leiddi ráðherrann engum get-
um að því hvað ylli vandkvæð-
unum, sagði aðeins að ríkis-
sjóður yrði að herða sultaról-
ina en hafnaði aukinni skatt-
lagningu til að mæta þessu
„gati“ í fjárlögum uppá 1,7 til
1,8 milljarða króna.
Sjá frásögn af fundi
Alberts á bls. 5.
Móna selur 65 þúsund
páskaegg til Svíþjódar
SÆLGÆTISGERÐIN Móna í Hafnarfirði hefur gert
samning við sænska aðila um sölu á 64.560 páskaeggjum,
sem eiga að afhendast á næstu vikum, en fyrsti farmurinn
er þegar farinn, að sögn Sigurðar E. Marinóssonar, fram-
kvæmdastjóra Mónu.
„Fyrirtæki í Málmey hafði
samband við okkur sl. vor og
óskað eftir því, að við fram-
leiddum ákveðið magn af páska-
eggjum fyrir þá. Fyrirvarinn
var þá of skammur og var
ákveðið að undirbúa málið bet-
ur og nú er þetta orðið að veru-
leika," sagði Sigurður.
„Við munum framleiða fyrir
Svíana 6 mismunandi tegundir
af eggjum, sem verða afhent
samkvæmt ákveðinni áætlun
fram til páska, en fyrsti gámur-
inn fór út fyrir skömmu," sagði
Sigurður.
Það kom fram í samtalinu við
Sigurð, að fyrirtækið hefur gert
nokkrar tilraunir með útflutn-
ing á sælgæti, sem hafa gefið
góða raun. „Þetta er mjög
skemmtilegt verkefni og við
gerum ráð fyrir að halda áfram
á þessari braut.
Þessi samningur gerir það að
verkum, að framleiðsla okkar á
páskaeggjum eykst um liðlega
50%, en við munum vinna með
fullum afköstum fram til
páska,“ sagði Sigurður. Það
kom fram hjá Sigurði, að verðið
fyrir páskaeggin væri mjög við-
unandi og hann gerði ráð fyrir
að áframhald yrði á þessum út-
flutningi.
Aðspurður um gengi íslenzka
sælgætisiðnaðarins sagði Sig-
urður að menn hefðu verið að
sækja í sig veðrið og útkoman á
síðasta ári hefði verið þokkaleg.
„Það eru þó ýmis ljón i vegin-
um. Það má nefna dæmi, sem er
kannski ekki svo ýkja stórt, en
eigi að síður táknrænt. Fríhöfn-
in á Keflavíkurflugvelli hafnar
því að selja íslenzkt sælgæti,
sem er alveg furðuleg afstaða."
Að endingu kom það fram í
samtalinu við Sigurð Marinós-
son, framkvæmdastjóra Sæl-
gætisgerðarinnar Mónu, að
starfsmenn fyrirtækisins væru
rúmlega 30 um þessar mundir.
Horfur á
samkomu-
lagi í „bóka-
stríðinu“?
SVÖR hafa nú borist stjórn Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda
við tillögum sem lagðar höfðu
verið fram til lausnar deilu milli
aðildarforlaga bókaklúbbsins
Veraldar og Félags bókaversl-
ana.
Bæði svörin voru jákvæð en
bundin skilyrðum. Veraldar-
menn settu að skilyrði fyrir
samþykki sínu jákvætt svar
bóksala. Bóksalar samþykktu
einnig tillögurnar eftir langan
fund í dag. Þeir slá þó ákveðna
varnagla sem miða að því að ef
samkomulag takist verði það
traust og haldgott. Skilyrði
bóksalanna eru nú til umfjöll-
unar hjá aðildarforlögum
Bókaklúbbsins Veraldar.