Morgunblaðið - 03.03.1984, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
Kirkjuvörður/
meðhjáipari
óskast aö Hallgrímskirkju í Reykjavík.
Umsóknir sendist fyrir 15. mars nk. til
Sóknarnefndar
Hallgrímssafnaöar
Pósthólf 1016, R.
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
Er þar tekið viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum
og er öllum borgarbúum boðiö aö notfæra sér viötals-
tíma þessa.
Laugardaginn 3. mart
verða til viðtals Mark-
ús örn Antonsson og
Gunnar S. Björnsson.
Sæludagar í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti:
í fyrsta sinn þrír
dagar til ráðstöfunar
Ljóam. Mbl. KSe
Hluti þeirra sem starfað hafa að undirbúningi Sæludaganna. í efri röð eru
talið frá vinstri: Viðar Ágústsson kennari, Elín Eiríksdóttir, Rafn Rafn,
Jóhann Hiíðar Harðarson formaður nemendafélagsins, Sigurgeir Kristjáns-
son og Kristín Ólöf Jansen. Sitjandi eru frá vinstri: Sif Sigurðardóttir, Bára
Jónasdóttir, Hilraar Sigurðsson og Árni Þorsteinsson.
SÆLUDAGAR hafa staðið yfir í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti frá
því á miðvikudag. Er hér um að
ræða þrjá daga þar sem hefðbundin
kennsla fellur niður og í staðinn
vinna nemendur saman í hópum að
verkefnum sem þeir hafa valið sér
og óskað eftir að vinna að þessa þrjá
daga. Auk þess er boðið upp á ým-
iskonar skemmtidagskrá alla dag-
ana, svo sem tónleika, kvikmynda-
sýningar, gjörninga og fleira.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
höfum þrjá daga til ráðstöfunar,"
sagði Rafn, nemandi í fjölbrauta-
skólanum og meðlimur sæludaga-
nefndar. „Áður hafa verið einn eða
tveir dagar sem ráðstafað hefur
verið á þennan hátt. Við stefnum
að því að hafa sæludaga í heila
viku næsta ár, en það var ekki tal-
ið ráðlegt að hafa þá fleiri en þrjá
að þessu sinni.
Nemendur völdu fulltrúa í hinar
ýmsu nefndir sem nú hafa starfað
af fullum krafti að undirbúningi
og framkvæmd sæludaganna.
Kjörið var í sæludaganefnd, upp-
ákomunefnd sem sér um að skipu-
leggja skemmtidagskrá, umhverf-
isnefnd sem hefur unnið að því að
gera skólann aðeins huggulegri og
hlýlegri og að lokum voru nem-
endur kjörnir í nefnd sem sér um
allt sem viðkemur almennings-
tengslum. Sú nefnd hefur meðal
annars gefið út fréttabréf með
upplýsingum um Sæludagana,
drögum að dagskrá og hugmynd-
um um framkvæmd þeirra.
Kennnarar taka virkan þátt í
þessu með okkur og allir fastráðn-
ir kennarar hafa skráð sig þátt-
takendur í einhvern hinna 28 hópa
sem í boði eru. Meðal þeirra verk-
efna sem hóparnir vinna að eru
verkefni sem tengjast matargerð,
líkamsrækt, kennslu í grunnskól-
um, blaðamennsku, eiturlyfjum,
námi að loknu námi hér í fjöl-
brautaskólanum og fleiru. Þátt-
taka í síðastnefnda hópnum var
geysilega mikil, þetta er fjölmenn-
asti hópurinn, um 200 nemendur
eða nærri 20% allra nemenda
skólans. Þetta teljum við sýna vel
hversu upplýsingaskortur um
svokallað æðra nám er mikill til
Borö fyrir
skermtölvur
Borö fyrir
tölvuvinnu
Vinna viö skermtölvur og innsláttarborð krefst
sérstakrar vinnuaðstööu. Komiö í húsgagnadeild
okkar, Hallarmúla 2, og skoöið B8 tölvuboröin.
Skrifborö á sérstöku afsláttarveröi í nokkra daga.
Tölvuhópurinn að störfum. Myndir: Kristján Einarsson.
Árdagar í Fjölbrautaskólanum við Ármúla:
„Spor í lýðræðisátt“
efnin eru þannig valin af nemend-
um sjálfum og eiga fæst þeirra
nokkuð skilt við hinar hefðbundnu
kennslugreinar innan skólans,
— segir einn nemandi skólans
„Ég tel að árdagarnir séu spor í
lýðræðisátt, hvað varðar kennslu-
skipulag í skólanum. Þá á ég við að
nemendur hafi meiri áhrif á skipu-
lagið en verið hefur, til dæmis
kennslugreinar og kennsluaðferðir,"
sagði Heimir Már Pétursson blaða-
fulltrúi árdaga sem nú standa yfir í
fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Árdagar hófust föstudaginn 24.
febrúar og þeim lauk fimmtudag-
inn 1. mars. Hér er um að ræða
vinnuviku, þar sem nemendur
starfa saman í hópum að einhverj-
um þeirra 28 verkefna sem í boði
eru. Auk þess var á hverjum degi
og hverju kvöldi boðið upp á ým-
iskonar skemmtiatriði, leiksýn-
ingu, tónleika og fleira.
„í haust var kjörin sjö manna
árdaganefnd, sem vann að undir-
búningi þessara daga af fullum
krafti frá ársbyrjun. Nemendur
komu með uppástungur um verk-
efni sem þeir höfðu áhuga á að
vinna að og síðan var gerð könnun
meðal allra nemenda þar sem
þátttaka þeirra var könnuð. Verk-
sem falla niður á meðan á árdög-
um stendur. Langflestir hóparnir
hafa orðið sér úti um leið-
beinendur og fyrirlesara um þau
verkefni sem hver hópur vinnur
að, en meðal þeirra eru leiklist,
leðurvinna, fatahönnun, ræðu-
Leiklistarhópurinn á leiklistarnámskeiði. Hann vinnur einnig að leikþáttum
sem sýndir verða á árshátíð skólans í dag.