Morgunblaðið - 03.03.1984, Side 19

Morgunblaðið - 03.03.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984 19 Kvennalistinn: Lýsir áhyggjum sín- um vegna launamála Markús aðspurður, „en það hafa komið fram óskir víða um að þar verði haldin Reykjavíkurkvöld. Þessar óskir hafa ekki einskorð- ast við byggðarlög hér á landi, það hafa meira að segja komið fram fyrirspurnir frá hópum Is- lendinga erlendis. Hins vegar er hér um tilraun að ræða hjá okkur — þetta er í fyrsta skipti sem kynningarstarf af þessu tagi er unnið og það er vissum takmörkunum háð að fara með dagskrána víðar. Ég reikna með því að þetta verði hins vegar unnið áfram á lengri tíma.“ Talsverö útgáfustarfsemi í tengslum við kynningarnar Hjá þeim Markúsi Erni og Ómari fengust ennfremur þær upplýsingar að talsverð útgáfu- starfsemi hefur verið í tengslum við Reykjavíkurkynningarnar. Gefnir hafa verið út bæklingar, bæði ætlaðir íslendingum og út- lendingum og hafa þeir að geyma almennar og hagnýtar upplýsingar fyrir ferðamenn. Verður þeim dreift til þeirra sem annast þjónustu fyrir ferðamenn í Reykjavík. Þá er að koma út bæklingur til dreifingar erlend- is, en hér er um vandaðan lit- prentaðan kynningarbækling að ræða. Loks má þess geta að nú er unnið að því að útbúa myndbönd til sýninga erlendis, en þau eru einkum ætluð til sýningar á ferðakaupstefnum þar. Aðspurður um störf ferða- málanefndarinnar að öðru leyti, sagði Markús Örn að hún ynni almennt að upplýsingamálum hjá Reykjavíkurborg, en mikið skorti á í undirbyggingu þessara mála hjá borginni. Á þessu sviði væri unnið að gerð myndefnis og prentaðra upplýsinga. Gerir tillögur til borgar- ráðs og hagsmunaaðila Hlutverk nefndarinnar, „Sam- starfsnefndar um ferðamál í Reykjavík", er að gera tillögur til borgarráðs og hagsmunaaðila í ferðamálastarfsemi um sam- eiginlegar aðgerðir á sviði ferða- mála, einkanlega að því er varð- ar þjónustu og kynningarstörf, en nefndin var kosin í borgar- ráði í árslok 1982. I nefndinni eiga sæti þrír fulltrúar borgar- ráðs og átta fulltrúar sem til- nefndir eru af nokkrum samtök- um og hagsmunaaðilum um ferðamál. Fulltrúar Reykjavík- urborgar í nefndinni eru, auk Markúsar Arnar Antonssonar, sem er formaður hennar, þeir Kolbeinn Pálsson og Sigurjón Pétursson. _ a; frábærum samleik söngkonunn- ar og Bernard Wilkinson flautu- leikara. Edgard var sunginn af Yordy Ramiro, sem er frábær söngvari og var söngur hans í lokaþætti óperunnar stórkostleg- ur. Kristinn Sigmundsson söng Henry, bróður Luciu, og fór á kostum. Sama má segja um aðra einsöngvara er tóku þátt í þess- ari uppfærslu. Már Magnússon „opnar" í tveimur þáttum og í veislu-senunni söng hann betur en nokkru sinni áður. í sömu senu söng Sigurður Björnsson hlutverk Bucklaw lávarðs með miklum ágætum og Jón Sigur- björnsson í hlutverki prestsins, en hann átti góð sóló í þriðja þætti með Luciu. Elísabet F. Ei- ríksdóttir fór vel með hlutverk Alisu, sem er lítið söngverk en nokkuð stærra sem leikverk. Al- isa er lagskona Luciu og huggari í raunum hennar. Söngsveitin Fílharmónía söng með en söngur kórsins var ágætur, einkum í brúðkaups-senunni, þar sem Donizetti finnur upp á því snjallræði að láta kórinn syngja einraddað og Verdi síðar notaði með glæsibrag. Æfingastjórn- endur voru Guðmundur Emils- son og Carol Lucas er Jean- Pierre Jacquillat stjórnaði þess- um glæsilegu tónleikum. KVENNALISTINN í Reykjavík hef ur sent frá sér svofellda ályktun um launamál; „Á miðöldum þegar konur unnu við framleiðslu á aðalútflutn- ingsvöru landsmanna, vaðmálinu, voru laun þeirra um helmingur af launum karla. Undir lok 19. aldar þegar lífið var saltfiskur voru laun kvenna í fiskvinnu sem öðru helm- ingi lægri en laun karla. Þegar niðurstöður Kjararannsókna- nefndar voru kynntar fyrir skömmu kom það í ljós sem konur hafa löngum vitað, að kjör þeirra eru enn helmingi lakari að meðal- tali en kjör karla. f þeim niður- stöðum um láglaunahópa sem nú liggja fyrir vekur sérstaka athygli hve mikið misræmi er milli launa fólks og raunverulegra þarfa. Samkvæmt útreikningum þarf vísitölufjölskyldan um 50.000 kr. á mánuði sér til framfærslu, en greinilegt er að verulegur hluti launafólks er langt undir þeim mörkum. Það virðist vera gengið út frá því að tvær fyrirvinnur þurfi til að sjá fjölskyldu far- borða, meðan staðreyndin er sú að fjölskyldum fer fjölgandi þar sem fyrirvinnan er aðeins ein. Jafn- framt því að þjóðfélagið reiknar með því að báðir foreldrar vinni utan heimilis og verði að gera það, neita stjórnvöld að taka afleiðing- unum og búa börnum öruggt um- hverfi með byggingu dagvistar- stofnana og skóladagheimila. Kvennalistinn lýsir þungum áhyggjum sínum vegna þess ástands sem nú ríkir i launamál- um. Sérstaklega bendum við á þau bágu kjör sem einstæðir foreldrar búa við. Það er nöturlegt til þess að vita að launa- og stéttamunur fer vaxandi, að þeim fjölgar sem þurfa að leita aðstoðar félags- málastofnana, að kjör aldraðra og öryrkja eru til skammar, meðan ísland er í röð þeirra þjóða sem hafa hvað hæstar meðaltekjur á 'nn í heiminum. Við lýsum ábyrgð á hendur ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar vegna þessa ástands. Aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnarinnar, svo og mat hennar á því til hvers skuli verja þeim fjármunum sem til eru, hafa skapað það neyðarástand sem ríkir á mörgum heimilum. Við svo búið má ekki standa. Nú reynir á samstöðu kvenna innan sem utan stéttafélaga. Konur verða sjálfar að taka höndum saman til að leiðrétta kjör sín. Það verður að breyta því mati sem liggur til grundvallar þegar laun kvenna eru ákveðin og í komandi kjarasamningum verður að leggja áherslu á að bæta kjör kvenna og annarra þeirra sem verst eru sett- ir, þannig að fólk geti lifað af launum sínum og framfleytt sér og sínum með sóma.“ o o Stærsti bókamarkaður ársins 1984 M Fjöldi bóka í síðasta skipti á hagstæðu verði 29. febr.—11. marz MAGN AFSLÁTTUR Auka 5% ef verslað er fyrir meira en kr. 1.000.— Auka10% ef verslað er fyrir meira en 3.000.— Nú er hægt að gera góð kaup og finna marga fáséða bókina á lágu verði! Öll helstu bókaforlög landsins Bóka_ pakkar á hagstæðu verði Notið tækifærið Opið frá kl. 9—18 VISAogO% .... EUROCARD 1 kV0ld Markaðshús Bókhlöðunnar Laugavegi 39

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.