Morgunblaðið - 03.03.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
ERGO-DATA
stóllinn frá
DRABERTheldur
þérígóðu skapi
allandaginn
I Drabert
siturðu rétt
ERGO-STYLE
stóllinn frá
DRABERT heldur
þérígóóu skapi
allandaginn
I Drabert
siturðu rétt
HALLARMÚLA 2 HALLARMÚLA 2
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Óðinsgata
Þórsgata
r
'&uáMic
L
1UICK
L
V PONTIAC
J L
■0- □PEL
n r,
Bílasala
CHEVROLET
Tegund Árg.
Ch Chevette 1976
Km. 71.000. Verð 10 þús. Ch Monte Carlo 1979
Km. 58.000. Verð 315 þús. Ch Citation 4 cyl. sjálfsk. 1981
Km. 10.000. Verö 350 þús. Ch Malibu Classic 4 d. 1981
Km. 37.000. Verö 430 þús. Ch Malibu Classic Station 1981
Km 34.000. Verð 600 þús. Ch Malibu Classic Station 1979
Km. 83.000. Verð 295 þús. Ch Malibu 2 d. Landau 1979
Km. 66.000. Verð 310 þús. Ch Malibu Classic 4 d. 1979
Km. 50.000. Verð 265 þús. Oldsm. Cutlass diesel 1979
Km. 40.000. Verð 270 þús. Oldsm. Delta 88 diesel Ný vél. Verð 390 þús. 1980
0L0SM0BILE
irrsi w ■'U-'' tt: ■: 1
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PÉTUR PÉTURSSON
Vörður er dag og nótt við allar brýr. Sérhæfðar sveitir eru þess albúnar að mæta áhöfnum neðansjávarfarkosta
af hvaða tagi sem er, ef þær freisti þess að ganga í land.
Dularfullir kafbátar í
sænska skerjagarðinum
Nú rétt fyrir miðjan febrúarmánuð hófst áköf leit að meintum óvina-
kafbáti eða kafbátum í skerjagarðinum rétt fyrir utan Karlskrona, þar
sem ein af flotastöðvum sænska sjóhersins hefur aðsetur sitt. Undanfarin
tvö ár hafa menn orðið varir við kafbáta á ýmsum stöðum við strendur
Svíþjóðar og einkum við hernaðarlega mikilvæg svæði eins og Karls-
krona og í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm þar sem aðalflotastöð
Svía er við Hársfjörðinn. Hér er um að ræða svæði sem af hernaðarlegum
ástæðum er algerlega bannaður aðgangur að, einkum útlendingum og
jafnvel ferðamönnum.
Ekki hafa aðrir atburðir
vakið jafnmikla athygli og
ugg hér í Svíþjóð eftir
stríð nema ef vera skyldi þegar
Stig Wennerström, háttsettur yf-
irmaður í flughernum, var af-
hjúpaður árið 1963 sem njósnari
Sovétríkjanna. Athyglin beindist
að þessu sinni einnig að grannan-
um í austri, einkum vegna þess að
kafbáturinn sem strandaði á
skeri fyrir framan flotastöðina í
Karlskrona 27. október 1981 var
einmitt sovéskur. Sá atburður
vakti heimsathygli á sínum tíma
og einnig hinar umfangsmiklu
tilraunir Svía ári seinna til að ná
upp á yfirborð meintum kafbát-
um langt inni í landhelgi.
Flestir ganga að því sem vísu
að þá og síðar hafi einnig verið
um sovéska kafbáta að ræða. Nú
hefur harka færst í leikinn og
Olof Palme, forsætisráðherra
Svía, hefur tekið það skýrt fram,
að herinn hafi fengið skipun um
að sökkva meintum kafbátum eða
öðrum neðansjávarfarartækjum
hiklaust. Ekki verði látið við það
sitja að skjóta viðvörunarskotum
einum saman. Þessum hótunum
hefur bæði beint og óbeint verið
beint til sovéskra yfirvalda.
Kafbátar í sambandi við
njósnastarfsemi í landi
Fyrstu merkin að þessu sinni
um óþekktan aðskotahlut innan
við skerjagarðinn við Karlskrona
komu fram 10. febrúar. Það var
meðal annars að fiskinet fannst
sundurtætt á allt öðrum stað en
því hafði verið lagt kvöldinu áður.
Við nánari athugun komu í ljós
för á botninum sem bentu til þess
að þar hefði kafbátur farið um,
en svipuð för hafa áður fundist og
verið sett í samband við ferðir
kafbáta. Síðan hafa hernaðaryf-
irvöld látið á sér skiija að fleiri
vísbendingar hafi fengist um til-
veru kafbáts eða annars óviðkom-
andi farkosts. Hinn mikli viðbún-
aður sem að þessu sinni er fyrir
utan Karlskrona bendir til þess
að herinn sé viss í sinni sök, þó
aðeins sé talað um líkur í þessu
sambandi eins og svo oft áður á
máli hersins. Nú er meiri leynd
yfir þessum aðgerðum en áður af
hálfu stjórnvalda og hersins, en
ekki er vafi á því að eindrægur
vilji er fyrir hendi af hálfu þess-
ara aðila að sýna einhvern árang-
ur af þessum víðtæku aðgerðum.
Hingað til hefur ekki tekist að
ná neinum kafbát upp á yfirborð-
ið eða beinum sönnunargögnum
um að um óvinakafbát sé að
ræða. Hér eru aðeins um að ræða
meira eða minna líklegar vís-
bendingar, a.m.k. hefur fjölmiðl-
um ekki verið sýnt annað. Eina
óyggjandi sönnunin er í raun og
veru sovéski kafbáturinn áður-
nefndi, sem sjálfur sigldi í
strand.
Að þessu sinni ná varnaðarráð-
stafanir hersins og flotans til
landsvæðisins kringum Karls-
krona. Sá möguleiki að hinn
óþekkti óvinafarkostur sé í sam-
bandi við og jafnvel stjórnað frá
landi, er ekki útilokaður. Hér get-
ur sem sagt verið um að ræða
víðtækari njósnaaðgerðir en áður
hefur verið gert ráð fyrir. Sænska
öryggislögreglan er sögð leita að
óvina-„agentum“ á svæðinu sem
er mjög vel vaktað þessa dagana.
Hugsanlegt er að áhafnir kaf-
báta komi sér undan landveginn
með skipulagðri aðstoð úr landi.
Sögur sem herinn hefur tekið al-
varlega eru á sveimi um að óvið-
komandi kafarar og froskmenn
hafi sést nálægt hernaðarlega
mikilvægum stöðum. Fylgst er
með öllum mannaferðum og kraf-
ist skilríkja. Aðeins heimamenn
fá að fara ferða sinna og svæðið
er lokað sjónvarpsmönnum og
fréttamönnum.
I skerjagarðinum er mikill við-
búnaður. Net hafa verið strengd
milli smærri eyjanna og vopnað-
ur vörður er við brýrnar. Skip
með hlustunartæki eru við öllu
búin og þyrlur svífa látlaust yfir
yfirborðinu.
Sjóherinn betur búinn
til kafbátahernaðar
Sjóherinn hefur fengið aukið
fjármagn að undanförnu og lögð
hefur verið áhersla á að búa hann
betur til varnar gegn kafbátum.
Yfirmaður sjóhersins segir: „Við
höfum lært af mistökunum."
Hann ræður nú yfir sérbúnum
skipum til kafbátaleitar og sér-
hæfðum sveitum og tækniútbún-
aði. Jafnframt virðist herinn
reiðubúinn til að taka meiri
áhættu við valdbeitingu. Djúp-
sprengjum er markvisst beitt í
því skyni að þvinga kafbáta upp á
yfirborðið eða sökkva þeim ef í
það fer. Talið er að hér geti verið
um mjög litla og sérhæfða kaf-
báta að ræða, jafnvel fjarstýrða
og búna flóknum tækjum til að
villa á sér heimildir. Talið er að
slíkur kafbátur geti verið allt að
tveimur vikum undir yfirborði
sjávar í einu. Gert er ráð fyrir að
minni kafbátarnir hafi annan
stærri móðurkafbát sem miðstöð.
Tuttugu djúpsprengjum var
varpað einn og sama daginn nú í
vikunni og í gær (föstudag, 24.
febrúar), sprakk tundurdufl sem
lagt hafði verið milli tveggja eyja
í skerjagarðinum. Talsmaður sjó-
hersins játaði að hér væri vís-
bending um það að „eitthvað væri
fyrir innan sem reyndi að komast
út“. En sem komið er (laugardag,
25. febrúar), hafa talsmenn hers-
ins þó ekki sagt sig hafa orðið
vara við að neitt sem líktist kaf-
báti hefði orðið fyrir þessum
sprengjum.
Hér er ekki um gamanmál að
ræða, en mér datt það svona í hug
eftir endalausar vangaveltur
talsmanna hersins og fjölmiðla
um dularfulla kafbáta eða önnur
óþekkt neðansjávarfyrirbæri, að
nú vantaði Svíum konunglegan
skrímslafræðing.
HÖFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÓRU