Morgunblaðið - 03.03.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
Virtur lögfræðingur í
Póllandi yfirheyrður
\ arsjá, 2. marz. AP.
LÍjGí'RÆÐINGlJR, sem getið hefur sér orð fyrir afskipti af mannréttinda-
málum, var yfirheyrður í dag til þess að hægt verði að úrskurða að hann hafi
rægt ríkið er hann sakaði herstjórnina um að hafa logið sökum á annan
lögfræðing til þess að hylma yfir meinta aðild lögreglunnar að láti tánings,
sem studdi Samstöðu, í maí i fyrra.
Lögfræðingurinn, Wladyslaw
Sila-Nowicki, sem er sjötugur, var
látinn laus eftir yfirheyrslurnar,
að sögn PAP-fréttastofunnar, en
AP-fréttastofunni tókst ekki að fá
það staðfest. Rannsókn af þessu
tagi fer jafnan fram áður en form-
leg ákæra er gefin út. Reynist
Sila-Nowicki sekur á hann yfir
höfði sér allt að 14 ára fangelsi.
Sila-Nowicki sat í fangelsi í ára-
tug snemma á valdatíma komm-
únista í Póllandi. Á hann var ráð-
ist i pólskum blöðum í gær. Sila-
Nowicki sendi 11. febrúar Jaruz-
elski herstjóra bréf þar sem hann
sakaði lögregluna um að hafa bor-
ið rangar sakir á lögfræðinginn
Maciej Bednarkiewicz, fulltrúa
móður Grzegorz Przemyk, ungs
stuðningsmanns Samstöðu, sem
lést í vörslu lögreglunnar í fyrra-
vor.
Bednarkiewicz var handtekinn
11. janúar sl. sakaður um að hafa
gefið liðhlaupa úr hernum pen-
inga. Þremur vikum eftir hand-
tökuna tilkynnti herstjórnin að
frestað hefði verið um óákveðinn
tíma réttarhöldum yfir tveimur
lögregluþjónum, tveimur læknum
og tveimur sjúkraflutninga-
mönnum, sem sagðir eru bera
ábyrgð á láti Przemyk, en þau áttu
að hefjast 3. febrúar sl.
Tony Benn fær oröið þegar úrslit í aukakosningunni í Chesterfield hafa veriö
kynnt.
Bouterse óttast
innrás í Surinam
Paramaribo, Surinam, 2. mars. Al*.
DESI Bouterse leiötogi herstjórn-
arinnar í Suöur-Ameríkurfkinu
Surinam staöhæfði í dag að innrás
frá nágrannaríkinu Frönsku Guy-
ana væri í bígerð og kvað fyrrum
herforingja og hermenn frá Surin-
am taka þátt í samsærinu.
Bouterse sagði að tveir menn,
sem hann nefndi ekki á nafn,
hefðu verið handteknir vegna
þessa máls. Hann kvaðst búast
við því að árásin yrði gerð jafn-
vel þegar á laugardag.
Bouterse rændi völdum í Sur-
inam árið 1980, en fram til 1975
var landið hollensk nýlenda.
Desi Bouterse
Gróðurhúsinu viö Sigtún, símar: 36770-86340
Kynning*
Palmar
1 pessahelgiefnumvi^—"
kVnningarapélmuraVWgott
úrval af þessum serstæou oy
pouaplörturn' vefður sérfræöingur
I dag millikl-1 .. faq»ega ráðgjof og
^"^-ameð,erðÞeirr3'
Tilboð i tilefni l'n'9arlknrn^.0o
Dvergpalmar. aðunt"kr 960o
Komið við i Blómavali um helgma
Aukakosningarnar í Chesterfíeld:
Oruggur sigur
Tony Benns
('hesterHeld, 2. mars. AP.
TONY Benn, frambjóðandi Verkamannaflokksins, vann mikinn sigur í auka-
kosningum sem fram fóru í bænum Chesterfield í Miö-Knglandi í gær. Hann
hlaut tæplega 25 þúsund atkvæöi eöa 46%, frambjóðandi Bandalags jafnaö-
armanna og frjálslyndra hlaut rösklega 18 þúsund atkvæði eða 35%, og
frambjóöandi íhaldsflokksins hlaut um 8.000 atkvæöi eöa 15%. Fjögur pró-
sent atkvæöa féllu í hlut 14 annarra frambjóöenda. Kjörsókn var 77 af
hundraði.
Benn, sem er leiðtogi róttæk-
ustu aflanna í Verkamanna-
flokknum og einn umdeildasti
stjórnmálamaður Breta, var þing-
maður fyrir Bristol í þrjá áratugi,
en tapaði sæti sínu í þingkosning-
unum í fyrra.
Talsmenn Verkamannaflokks-
ins hafa fagnað úrslitunum og eft-
ir Neil Kinnock, formanni flokks-
ins, er haft að þau sýni hvers
flokkurinn er megnugur þegar all-
ir flokksmenn standa saman.
Skoðanamunur og klofningur í
Verkamannaflokknum á undan-
förnum árum er talin ein ástæðan
fyrir ósigri hans í síðustu þing-
kosningum.
Chesterfield, sem er námabær,
hefur um árabil verið öruggt kjör-
dæmi Verkamannaflokksins og
um þessar mundir er þar mikið
atvinnuleysi, en engu að síður er
litið svo á að úrslitin séu áfall
fyrir stjórn Margrétar Thatchers,
og Leon Brittan innanríkisráð-
herra sagði í sjónvarpsviðtali er
niðurstöður voru kunnar, að þau
væru „augljóslega vonbrigði fyrir
íhaldsflokkinn".
Slökunarfundur
í Suður-Afríku
Jóhanncsarborg, 2. mars. AP.
HALDINN var í dag fundur hátt-
settra embættismanna Suöur-Afríku
og Mósambík, í þeim tilgangi aö
draga úr spennu í suöurhluta Afríku.
Daginn áöur slepptu Suður-Afríku-
menn þjóðernisleiðtoga úr fangelsi.
Pietr W. Botha forsætisráð-
herra tók þátt í fundunum í
Höfðaborg, og er það í fyrsta
skipti sem hann tekur beinan þátt
í viðræðunum, sem staðið hafa yf-
ir með hléum í 10 vikur. Leiðtogar
viðræðunefndanna eru Jacinto
Veloso efnahagsmálaráðherra af
hálfu Mósambík og R. F. Botha
utanríkisráðherra af hálfu S-Afr-
íku. Búist var við að fundunum
lyki á laugardag með samkomu-
lagi um friðsamlega sambúð ríkj-
anna.
Á fimmtudagskvöld var Her-
mann Toivo ja Toivo, stofnandi
frelsishreyfingar Suðvestur-
Afríku, SWAPO, látinn laus úr
fangelsi, en hann hafði þá setið
inni í 16 ár af 20. Toivo hét því að
ganga til liðs við samtökin, sem
berjast fyrir sjálfstæði Suðvest-
ur-Afríku, Namibíu, og kvaðst
álíta sig ófrjálsan þar til þjóð sín
nyti óskoraðs frelsis.
Litið er á náðun Toivo sem enn
eina tilraun S-Afríkumanna til að
bæta sambúðina við Angólu, þar
sem SWAPO hefur bækistöðvar
sínar, og ennfremur eykur náðun-
in vonir um að hafnar verði við-
ræður er síðar muni leiða til
sjálfstæðis Namibíu.
Til átaka hefur hins vegar kom-
ið í norðurhlutum Namibíu síð-
ustu daga og voru 23 skæruliðar
felldir um síðustu helgi. Talið er
að þeir hafi verið úr hópi 200
skæruliða, sem laumuðust inn í
Namibíu frá Angóla.
Videla
ákærður
BuenoN Aires, 1. mars. AP.
JORGE R. Videla, fyrrum forseti
Argentínu, hefur veriö sakaöur
um að hafa misnotað völd sín í
embættisrekstri viö yfirtöku flug-
félagsins Austral, sem var í
einkaeign, áriö 1980.
Lögð var fram ákæra á
hendur Videla í dag og einnig
fyrrum ráðherrum og stjórn-
endum þróunarbanka Argent-
ínu.
Videla varð leiðtogi þriggja
manna herforingjastjórnar í
kjölfar byltingar hersins í Arg-
entínu 1976. Videla sat að völd-
um þar til í marz 1981 er Rob-
erto Viola hershöfðingi tók við
af honum.