Morgunblaðið - 03.03.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
27
Nýr föstuhökull í
Hallgrímskirkju
VIÐ MESSU í Hallgrímskirkju nk.
sunnudag kl. 11 verður tekinn í
notkun nýr og forkunnarfagur fostu-
hökull, sem Kvenfélag Hallgríms-
kirkju hefur gefið kirkjunni. Hökul-
inn gerði frú Unnur Ólafsdóttir,
listakona, og eftir fráfall hennar á
síðastliðnu sumri lauk aðstoðarmað-
ur hcnnar, Ásdís Jakobsdóttir, verk-
inu. Hökullinn er gjörður úr fjólu-
bláu flaucli, með silfurkrossi og
ígreyptum íslenskum steini.
Á kirkjan nú skrúða í öllum lit-
um kirkjuársins. Auk hins nýja á
hún tvo aðra, sem frú Unnur hefur
gert, rauðan og svartan. Grænn
hökull og samstætt altarisklæði er
unnið af frú Sigrúnu Jónsdóttur,
og hvítur hátíðarhökull er dansk-
ur. Allur þessi skrúði er gjöf
Kvenfélags kirkjunnar, að undan-
skildum svarta höklinum, sem frú
Unnur og maður hennar, Óli fs-
aksson, gáfu kirkjunni. Sá hökull
er aðeins notaður einu sinni á ári,
á föstudaginn langa, og er einstök
gersemi. Frá upphafi hefur það
verið efst á stefnuskrá Kvenfélags
Hallgrímskirkju að fegra og prýða
kirkju sína, auk þess, sem félags-
konur hafa stutt kirkjubygging-
una dyggilega, með ráðum og dáð.
Nú í vetur afhentu þær kirkjunni
minningargjöf um látnar féiags-
systur: moldunarsá til notkunar
við útfarir, mikinn kjörgrip, sem
Björgvin Svavarsson, silf-
ursmiður, smíðaði. Er hann sam-
stæður moldunarspaða, sem
Björgvin gerði einnig og góðir vin-
ir kirkjunnar færðu henni fyrir
nokkrum árum.
Prestar og forráðamenn Hall-
grímskirkju færa Kvenfélagi
kirkjunnar heilshugar þakkir
fyrir þessar góðu gjafir, og stuðn-
ing allan fyrr og síðar. Helgur
skrúði og fögur list ljóðs og lita og
tóna er ómetanlegur þáttur í til-
beiðslunni, ómissandi hluti þeirra
hátíðar er maðurinn gengur til
samfunda við Guð sinn og föður á
himnum. Við prýðum heimili
okkar er við fögnum góðum gest-
um, prýði helgidómsins er tjáning
mannssálarinnar er býður Drottin
velkominn og fagnar honum.
Þetta var frú Unni Ólafsdóttur vel
ljóst. Með list sinni markaði hún
tímamót í sögu kirkjulistar á
landi hér, handbragð hennar og
listsköpun mun um ókomin ár lofa
Guð á sinn hljóðláta hátt og lyfta
lofgjörð safnaðanna í hæðir.
Blessuð sé minning hennar.
Karl Sigurbjörnsson
Athugasemd
Þess skal getið, vegna afmæl-
iskveðju til Björgvins Jóhannes-
sonar hér í blaðinu í gær, að heim-
ilisfang hans er nú hér í Reykjavík
á Ægisíðu 125.
FERÐAMIÐSTÖÐIN við Aðalstræti hefur kynnt ferðamannastað sinn Beni-
dorm í Þórscafé á sunnudagskvöldum. Boðið er upp á skemmtiatriði hússins
auk þess sem sýnd er kvikmynd frá Benidorm og spilað ferðabingó þar sem
vinningar eru ferðir til Benidorm. Þá er farið í samkvæmisleiki sem Guð-
laugur Tryggvi Karlsson stjórnar og sést hann á meðfylgjandi mynd ásamt
glöðum gestum. Næsta ferðakynningarkvöld Ferðamiðstöðvarinnar verður
nk. sunnudag, 9. mars nk.
Imbrudagar í Fjöl-
brautum Garðaskóla
INBRUDAGAR Fjölbrauta Garða-
skóla verða settir mánudaginn 5.
mars. Mun skólinn verða opinn fjög-
ur kvöld vikunnar. Á mánudags-
kvöld leikur „Jazzbandið“, ásamt
ýmsum öðrum.
Árshátíð nemenda verður í
húsakynnum Óðins og Þórs
þriðjudagskvöldið 6. mars.
Valgeir Guðjónsson stuðmaður
verður á staðnum á fimmtu-
dagskvöld, og þar verður einnig
létt jazzkynning í höndum Gérard
Chinotti.
Föstudagskvöldið 9. mars munu
„Gómar á vegum Tannlæknafé-
lagsins" og Hvítasunnupopp-
hljómsveitin þeyta Ijúfum tónum
um salarkynni skólans.
Hápunktur vikunnar er svo
frumsýning óperettunnar „Lags-
þvælu", eftir Þór Jónsson, sem
verður í félagsmiðstöðinni Garða-
lundi, Garðaskóla v/Vífilsstaða-
veg, laugardaginn 10. mars kl.
20.00. Önnur sýning Lagsþvælu
verður sunnudagskvöldið 11. mars
kl. 20.00.
Einnig má geta þess að þriðju-
daginn 6. mars munu nemendur
reyna við heimsmet, sem felst í
því að koma sem flestum persón-
um inn í eina Wartburg-bifreið.
| 'W
*
LADA bílar hafa sannað kosti sína hér á landi
sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti
(könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð.
Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd,
stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og
endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Verð viö birtingu auglysingar kr.
213.600.-
Lán 6 mán. 107.000.-
Þér greiðið
Bifreiðar &
Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
106.600.-
Verðlisti
Lada 1300 . 163.500
Lada 1300 safír 183.000
Lada 1200 station 175.500
Lada 1500 station 196.500
Lada 1600 198.500
LadaSport . 299.000
IJ 27 15 sendibíll . 109.500
UAZ 452 frambyggður 298.000
UAZ 452 m/S-kvöð 234.100