Morgunblaðið - 03.03.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
47
• Ingunn Bernódusdóttir gerði 11 mörk í síðari landsleiknum
gegn bandarísku stúlkunum og lék mjög vel. Ingunn tryggði
öðrum fremur sigurinn.
Sigur og tap í
Bandaríkjunum
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleík sem nú er á
keppnisferö í Bandaríkjunum
hefur spilað tvo landsleiki. Fyrri
leiknum tapaði liðið 21—26 eftir
að staöan í hólfleik hafði verið
11—12 fyrir bandarísku stúlkurn-
ar. Leikurinn var lengst af mjög
jafn og þegar 40 mínútur voru
líönar af leiknum þá var staöan
jöfn 15—15. Þá komu fram greini-
leg þreytumerki hjá íslensku
stúlkunum en þær fóru svo til
beint úr flugvélinni í landsleikinn.
Á lokakaflanum gáfu þær eftir og
töpuðu. Flest mörk f leiknum
skoruöu þær Guðríöur Guöjóns-
dóttir 6 og Ingunn Bernódusdóttir
5. Margrót var meö 4 mörk.
Síöari landsleikurinn fór svo
fram i fyrrakvöld í Pennsylvaniu og
þá sigruöu íslensku stúlkurnar
meö einu marki 19—18 eftir
hörkuspennandi leik og jafnan. f
hálfleik var staöan jöfn, 11 — 11.
Ingunn átti sérlega góöan leik meö
liöinu og skoraði 11 mörk þar af
aöeins 1 úr vítakasti. Þá átti Kol-
brún stórleik í markinu, varöi allan
leikinn mjög vel. Þær Guðríöur,
Kristjana og Margrét spiluöu líka
vel og skoruöu 2 mörk hver. Sig-
rún og Erla voru meö 1 mark.
I dag leika liöin svo í herskólan-
um í West Point og á morgun
sunnudag veröur síöasti landsleik-
urinn. Sá leikur fer fram í Lake
Placid. — ÞR.
Janus meiddur
Janus Guölaugsson varö fyrir
því óhappi að slíta liðbönd í leik á
Senda sveit
til New York
Stjórn FRÍ hefur ákveöiö aö
senda sveit karla til þátttöku í
heimsmeistaramóti í víöavangs-
hlaupi, sem fram fer í New York 25.
mars nk. Keppendur íslands
veröa: Ágúst Þorsteinsson, Gunn-
ar Páll Jóakimsson, Jón Diöriks-
son, Siguröur Pétur Sigmundsson,
Sigfús Jónsson, Hafstelnn Ósk-
arsson og Sighvatur Dýri Guö-
mundsson. Þ.R.
• Sigfús og Sigurður keppa í
New York.
móti Freiburg fyrr í vikunni. Jan-
us liggur núna á sjúkrahúsi en
hann var skorinn þar upp í fyrra-
dag. Janus var settur í gifs og
verður í því í sex vikur. Ljóst er að
Janus verður síöan aörar fjorar
vikur að ná sór alveg góðum eftir
að hann losnar viö gifsið. Hann
leikur því ekki knattspyrnu aftur
n^eð liði Kölnar fyrr en um miðjan
maímánuð. Köln á nú allgóða
möguleika á aö komat upp í 1.
deild. Liðið er með 30 stig ásamt
Achen og Duisburg. En þessi liö
berjast um þriöa sætiö í 2. deild
sem gefur rótt til að spila við
neðsta liöið í 1. deild um sæti þar.
— ÞR.
Sækja um að
halda heims-
meistarakeppni
STJÓRN Frjálsíþróttasambands
íslands ákvað á síðasta stjórnar-
fundi sínum að sækja um fram-
kvæmd á heimsbikarkeppninni (
maraþonhlaupi áriö 1987. Keppni
þessi er tiltölulega ný af nálinni,
en áhugi á maraþonhlaupi er nú
gífurlega mikill og fer vaxandi. Ef
af þessari keppni yrði hór má bú-
ast við miklum fjölda keppenda
og aöstoðarmönnum þeirra.
— ÞR.
10 ára KM-húsgögn 10 ára
Vegna 10 ára afmælis okkar bjóöum viö
10% afslátt
af öllum vörum
KM-húsgögn
10 ára
Langholtsvegi 111 — Reykjavík
símar 37010 — 37144.
10 ára
SUMIR VERSLA DÝRT-
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Opið í dag
u\ kl. -
á báðum
stöðum
I
Mandarínur J pr.kg. |
Egg 8C] 1.00
AÐEINS f pr Jtg.
2stk. edet " 20.80
Eldhúsrúllur • -^AÐEINS
Don Pedró *
Danska Lúxuskaffið A
| AÐEINS pakkinn |
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2