Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 Fallið frá hugmyndum um sjúkrahússgjald Atómstöðin firumsýnd ATÓMSTÖÐIN, nýja íslenska kvikmvndin sem byggð er á sam- nefndri skáldsögu Halldórs Lax- ness, var frumsýnd í Austurbæjar- bíói síðastliðinn laugardag. Framleiðandi myndarinnar er Örnólfur Árnason, en leikstjóri er Þorsteinn Jónsson. Þessi mynd var tekin við frumsýningu „Atómstöðvarinn- ar“ og á henni má sjá hluta boðsgesta, þeirra á meðal Tinnu Gunnlaugsdóttur, sem leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni, Örn- ólf Árnason, Svanhildi Hall- dórsdóttir, Vigdísi Finnboga- dóttur, forseta íslands, Halldór Laxness og Auði Laxness. Albert um samþykkt þingflokks Sjálfstæöisflokks: Mjög edlileg vid- brögð þingmanna MATTHÍAS Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra sagði í viðtali við Mbl. í gær að fallið hefði verið frá hugmyndum um að innheimta hluta af kostnaði við sjúkrahúsvist af þeim sem legðust inn til skamms tíma og nytu fullra launa á meðan á vistinni stæði. Hann sagði að viö nánari athugun hugmynda í þessa veru hefði komiö í Ijós að fram- kvæmd gjaldtökunnar hefði hlut- fallslega orðið það viðamikil miðað við heildarumfang, að ákveðið hefði — ef ég finn þetta fólk Fjármálaráðherra hefur haft bréf Alþýðusambands íslands, þar sem það fer fram á sömu vilyrði fyrir félagsmenn sína og ráðherra hefur gefið Dagsbrún fyrirheit um, til at- hugunar. Sagði ráðherrann í viðtali við Mbl. í gær, að hann væri að reyna að finna út, hvort einhverjir innan ASÍ væru beittir sama misrétti og Dagsbrúnarmenn hjá því opin- bera. „Ég vil ekkert fullyrða um þetta, en ég verð þá að finna þetta fólk og ASI að hjálpa mér til þess,“ sagði hann. Albert sagði varðandi bréf ASÍ að í Dagsbrúnarsamningum væri um að ræða verkamenn sem ynnu hjá ríkinu og hefðu ekki beina samninga við ríkið. Hann kvaðst halda að verkalýðsfélögin innan verið innan stjórnarliðsins að hætta við hana. Matthías sagði að hugmyndin hefði verið sú, að láta fólk sem legðist inn á sjúkrastofnanir greiða hluta kostnaðar, en ein- göngu fólk sem væri á fulluni launum. Ekki hefði verið ætlunin að leggja gjaldið á ellilífeyrisþega, örorkulífeyrisþega, tekjulaust fólk, tekjulítið eða börn. Þá sagði ráðherrann í þessu sambandi að fjárlög gerðu ráð ASÍ og Verkamannasambandsins semdu beint við viðkomandi ríkis- aðila, en ef ASÍ gæti bent sér á sambærilegt misræmi annars staðar þá myndi hann að sjálf- sögðu ieiðrétta það einnig. Hann kvað málið í athugun í ljósi þessa. Ráðherrann var þá spurður, hvort Dagsbrúnarmenn hefðu haldið því fram að þeirra félagar væru þeir einu sem þessu misrétti væru beittir. Hann svaraði: „Ég leitaði upplýsinga hjá mínu fólki og þeir gátu ekki séð sambæri- legan mismun annars staðar, þar sem flest önnur verkalýðsfélög semja beint við ríkið, sem Dags- brún gerir ekki. Ég vil þó ekki full- yrða neitt um þetta. Ég verð þá að finna þetta fólk og ASÍ að hjálpa mér til þess.“ fyrir töluverðum sparnaði í heil- brigðis- og tryggingakerfinu, eða sem næmi 3,25% að meðaltali frá niðurstöðutölum ársins 1983, eða 2,5% lægri heildarlaunum og 5% lægri rekstrarkostnaði. Aðspurður sagði hann að áfram yrði unnið að aukinni hagræðingu, sem náðst hefði að hluta, en hann kvaðst vonast til að þessu markmiði yrði náð, þrátt fyrir að fyrrnefnd ákvörðun hefði verið tekin. Matthías Bjarnason sagði að lokum: „Það er mín skoðun að við eigum að halda uppi fullkominni heilbrigðisþjónustu og að við eig- um að eiga möguleika á því að fara í nýjar og betri lækningar þar sem við getum komið því við með skynsamlegum hætti hvað snertir fjárhagshliðina og þá verð- ur auðvitað að leita annarra leiða. Ég tel það til dæmis ósanngjarnt að mörgu leyti að þeir sem leita læknishjálpar utan sjúkrahúsa eigi alltaf að greiða meira heldur en þeir sem leggjast inn í skamm- an tíma. Þetta er auðvitað allt annað varðandi þá sem þurfa að liggja á sjúkrastofnunum til lang- frama og missa heilsu. Þar hefur engin stefnubreyting orðið frá því sem hefur verið ríkjandi í þjóðfé- laginu." Ráðherrann var í lokin spurður, hvar borið yrði niður í sparnaði í stað þessa gjalds sem hætt væri við. Hann kvaðst ekki vita það á þessu stigi. Þetta væri ekki einka- mál hans og hann hefði ekki fyrir- fram mótaðar tillögur. „Ég er fyrst og fremst reiðubúinn að ganga inn á það sem verður ofan á hjá þeim sem að ríkisstjórninni standa. Við verðum að reka þjóð- félagið og taka mark á því sem er að gerast í kringum okkur," sagði hann. JÖN L. Árnason og Helgi Ólafsson eru nú efstir á alþjóðlega skákmót- inu í Bláa lóninu og Festi, Grinda- vík. Að 6 umferðum loknum er Jón L. með 4,5 vinninga og Helgi með 4. Annars var staðan óljós í gærkvöldi vegna ótefldra biðskáka. Úrslit fjórðu umferðar urðu sem hér segir: Jón L. vann Ingvar, Haukur vann Björgvin og jafntefli gerðu Jóhann og Helgi, Christi- ansen og Gutman, McCambridge og Knezivic og Elvar og Lom- ALBERT Guðmundsson fjármála- ráðherra sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann teldi samþykkt þing- flokks Sjálfstæðisflokksins frá því fyrir helgi vegna samnings hans við Dagsbrún mjög eðlilega og að hann hefði setið hjá við afgreiöslu hennar bardy. 1 fimmtu umferð vann McCambridge Elvar, Helgi vann Hauk, Björgvin vann Ingvar og Gutman vann Lombardy. Jafntefli gerðu Jón L. og Christiansen, Knezivic og Jóhann. í sjöttu um- ferð, sem tefld var í gær vann Jón L. Björgvin og Helgi vann Ingvar. Jafntefli gerðu Elvar og Jóhann og Haukur og Knezivic. Aðrar skákir fóru í bið og var ekki lokið er Morgunblaðið fór í prentun í gær. þar sem þingmenn hefðu verið að lýsa óánægju með vinnubrögð hans sjálfs. Þá lýsti Albert því einnig yfir, að hann væri ekki lengur að hugsa um að hætta ráðherradómi. Aðspurður um hvort hann væri hættur við að hætta sem ráðherra sagði Albert: „Það má orða það þannig að ég kem ekki til með að hlaupa frá þeim vanda sem er svo margfalt meiri en ég gerði mér vonir um að hann væri. Ég hleyp ekki frá vandanum. Það eru hrein- ar línur,“ sagði fjármálaráðherra. Varðandi samþykkt þingflokks Sjálfstæðisflokksins sem harmaði afgreiðslu hans á svonefndu Dagsbrúnarmáli sagði fjármála- ráðherra: „Ég tel hana mjög eðli- lega miðað við að ég lagði þetta hvorki fyrir þingflokkinn né ríkis- stjórnina. Því tel ég hana eðlileg viðbrögð þingmanna. Ég hafði hugsað mér að ræða þetta á fundi sl. mánudag, en það .varð ekkert af honum svo tækifærið gafst ekki.“ Albert sagði ennfremur að hann hefði setið hjá við afgreiðslu til- lögunnar þar sem hún hefði geng- ið út á óánægju þingmannanna með vinnubrögð sín, sem hann skyldi mæta vel. Jón Kjartansson SU 111 strandar viÖ Færeyjar Fjármálaráðherra um bréf ASI: Að sjálfsögðu leiðrétti ég Alþjóðlega skákmótið í Grindavík: Jón L. efstur, Helgi annar Tæplega 200 hafa gert at- hugasemdir við aflamarkið Býst ekki við stórvægilegum breytingum, segir Stefán Þórarinsson LOÐNUSKIPIÐ Jón Kjartansson SU 111 steytti á skeri í Fuglafirði í Færeyjum aðfaranótt mánudags- ins og urðu á því nokkrar 16 krónur fyrir kg af loðnuhrognum SAMKOMULAG varð á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins í gær, náðist samkomulag um lág- marksverð á loðnuhrognum og loðnu til annarrar vinnslu en til bræðslu. Verð á loðnuhrognum til frystingar verður 16 krónur fyrir hvert kíló og miðast verð- ið við að hrognin séu tekin úr skilju við löndun og það magn, sem fryst verður. Verð á ferskri loðnu til beitu, beitu- frystingar og skepnufóðurs verður ein króna og 60 aurar. Verðið miðast við loðnuna komna á flutningstæki við hlið veiðiskips. skemmdir. Skipið náðist af sker- inu með eigin vélarorku og var því siglt til Þórshafnar í Færeyjum, þar sem gert verður við skipið. Aðalsteinn Jónsson, útgerðar- maður á Eskifirði og eigandi skipsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þetta væri vissulega stór skellur. Fyrir utan skemmdir á skipinu væri það fyrirsjáanlegt, að það missti af því, sem eftir væri af loðnu- veiðunum, hugsanlega fjórum túrum. Það munaði vissulega um minna því skipið hefði fiskað mjög vel og væri með aflahæstu skipunum. Þá missti fiskimjöls- verksmiðja fyrirtækisins það hráefni, sem búizt hefði verið við að skipið landaði þar. Aðalsteinn sagði ennfremur, að sér væri ekki ljóst hvað gerzt hefði, en skipið hefði verið að fara frá Fuglafirði eftir að hafa landað loðnu þar. Skemmdir væru einnig óljósar, en reiknað væri með að viðgerð tæki tvær til þrjár vikur. FRESTUR til að gera athugasemdir við úthlutað aflamark einstakra skipa og báta á þessu ári rann út í gær. Höfðu þá tæplega 200 aðilar gert athugasemdir til sjávarútvegs- ráðuneytisins, en reiknað er með að fleiri hérist í pósti á næstu dögum. Alls var úthlutaö aflamarki til 676 skipa og báta. Að sögn Stefáns Þórarinssonar, fulltrúa í ráðuneytinu, verður tek- ið tillit til þeirra athugasemda, sem póstlagðar hafa verið áður en fresturinn rann út. Sagðist hann reikna með nokkurri viðbót en taldi ekki að athugasemdir yrðu fleiri en 250. Það virtist því að mikill meirihluti útgerðarmanna samþykkti aflamark sitt athuga- semdalaust. Stefán sagði, að mikið væri óskað eftir endurskoðun á reikn- uðum frátöfum skipa frá veiðum á viðmiðunartímabilinu og einnig virtist afli smærri báta vera van- talinn í einhverjum tilfellum, hvernig sem á því stæði. í þeim tilfellum væri farið eftir löggiltum vigtarnótum, afritum af afla- skýrslum, útgerðarskýrslum og skýrslum Aflatryggingasjóðs. Hvað frátafirnar varðaði væri miðað við verulegar frátafir, 14 dagar eða meira, sem stöfuðu meðal annars af bilunum eða breytingum. Ekki væri tekið tillit til frátafa vegna venjubundins viðhalds. Þá væru sumir, sem bæðu um millifærslu milli flokka og eins virtust menn ekki gera sér fyllilega grein fyrir þeim reglum, sem giltu fyrir skip, sem eigenda- eða skipstjóraskipti hefðu orðið á á síðasta ári. Þá sagði Stefán, að sér vitan- lega hefðu ekki borizt neinar at- hugasemdir eða mótmæli frá sjó- mönnum, en athugasemd hefði borizt frá einni atvinnumála- nefnd. Hann teldi að hér væri ekki um verulegt vandamál að ræða og litlar líkur væru á stórvægilegum breytingum á aflamarkinu vegna þessa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.