Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 UPPLVSIKJ6AR „ ég geri fáub Fynr poí ab j?ú hafir Meyrfc um þessa L/ósku se/n vann í bankanum " Ast er ... ... að njóta návistar hvors annars. TM Hn U S Pat OH -all rights reserved °19ð4 Los Angeles Tmes SyndKate Með morgunkaffinu Vera má að þétta sé stærsta kart- aflan í öllum heiminum, en eitt er víst, þú skra*lir hana sjálfur! HÖGNI HREKKVISI -/ x-d „3/\5ÖNAN /VÚN / " VACPAIUDI j?esSA KÝLFUGR-IUO.. " BIBLÍUTRÚ Athugasemdir við lesendabréfið „Þarna missir Hjörtur marks“ Til Velvakanda. Hjörtur skrifar: „Ég ákvað að skrifa þér nokkrar línur til stuðn- ings grein minni „Hafði Guð okkur á lager“. Gagnrýnandi held- ur því fram að ég líti á kristin- dóminn út í gegn sem miðaldatrú- arbrögð. Svo er þó ekki. Eins og ég tók fram í fyrri grein minni, sagði ég að það væri margt i Biblíunni sem væri gott og gilt enn þann dag í dag. Hins vegar vara ég fólk við því að trúa hverju einasta orði er þar stendur, því margt er þar al- veg út í hött. Gagnrýnandi heldur því einnig fram að hið svokallaða lögmál er finna má í Mósebókum sé „tönn fyrir tönn og auga fyrir auga“. Ég verð nú að segja eins og er gagn- rýnandi góður, að flestar refs- ingar lögmálsins eru síður en svo í samræmi við syndina — t.d. ef einhver hefur samræði við skepnu skal viðkomandi missa líf sitt, og ekki nóg með það heldur skal líka farga skepnunni. Hvers á skepnan að gjalda? — ég spyr. Einnig kemur fram í Mósebók- um að Guð er ekkert sérlega á móti þrælahaldi, því hann segir þar berum orðum að þræll skuli vera undirgefinn húsbónda sínum. Kannski þetta sé hluti af hinu óútreiknanlega lögmáli, því að sjálfsögðu eru vegir Guðs órann- sakanlegir. Einnig tekur Guð það skýrt fram að þau lönd sem hann hefur helgað Gyðingum, þeim hin- um sömu löndum skuli þeir ná á sitt vald með hervaldi. Og í hinum herteknu löndum á ekki að sýna neina miskunn heldur, því Guð skipar svo fyrir að drepnir skuli allir karlmenn og öll piltbörn. Það má vel vera að sumir líti á þetta sem miskunn Guðs. Hver veit? Gagnrýnandi heldur því fram að fyrirheitið um hinn nýja sátt- mála hafi verið gefið um leið og gamli sáttmálinn var gefinn. Mér er það óskiljanlegt hvers vegna Guð hafi þurft að hafa tvo sátt- mála. Felli ég mig best við að trúa því að Guð hafi ekki verið búinn að gera upp hug sinn. Gagnrýnandi heldur því fram að Guð hafi sent okkur hingað á jörðina til þess að við veldum Krist. Hvers vegna í ósköpunum var ekki hægt að ganga úr skugga um þetta án þess að senda okkur hingað á jörðu? Gagnrýnandi bendir á Dauða- hafshandritin er fundist hafa og eiga þau að vera frá um 140 f.Kr. til 68 e.Kr. Ég tel eindregið að það sé ekkert sem sannar að þetta séu endilega frumritin. Þessi handrit gætu þess vegna geymt einhver munnmæli sem borist hafa kyn- slóða á milli og hefðu þannig geta skolast mikið til áður en þau voru rituð. Ég vona að fólk taki í framtíð- inni svegjanlegri afstöðu til Biblí- unnar og láti ekki telja sér trú um hvað sem er. Því miður virðist enn vera til fólk sem virðist trúa hverju sem er. Hér á ég sérstak- lega við Bandaríkin en þar hafa siðapostular trúgjarnt fólk að fé- þúfu og hagnast vel. Eins og allir vita er þetta í algjörri andstöðu við það sem Jesús sagði. Það er vonandi að þessi trúargeðveiki berist ekki hingað til lands.“ Skonrokk á niðurleið — Edda þarf að taka sig á Kæri Velvakandi. 2153—7241 skrifar: „Við erum hér nokkur sem horfum alltaf á Skonrokk og við höfum óneitanlega orðið fyrir vonbrigðum að undanförnu vegna þess að lögin sem eru kynnt eru næstum alltaf orðin gömul og úrelt, og seinasti þátt- ur var alveg hrikalegur. Allt lög sem hafa margoft komið í þáttun'um, við viljum skora á Eddu að koma nú með eitthvað nýtt og skemmtilegt efni í þáttinn, því að þetta er jú þáttur sem allir bíða eftir að sjá.“ Þessir hringdu . . Fáið Michael Jackson eða Culture Club Táningur hringdi: „Það var hvatt til að Michael Jackson yrði fenginn á Listahátíð í dálkum Velvakanda um daginn og finnst mér það góð hugmynd. Annars mætti fá hljómsveitina Culture Club — hún er miklu vinsælli en Duran Duran og hvet ég þá sem eru mér sammála að láta til sín heyra. Einnig langar mig til að koma þeirri ósk á framfæir að þeir sem sjá um rás 2 kynni framvegis vinsældalistann eftir hádegi. Það eru flestir krakkar uppteknir í skóla fyrir hádegi og missa þannig alltaf af þættin- um.“ Sýnið oftar af brúðunum í brúðubílnum 6004—3760 hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Mig lang- ar til að þakka stjórnendum Stundarinnar okkar í sjónvarp- inu fyrir þáttinn um brúðubílinn sunnudaginn 26. þ.m. Sjálf er ég með ung börn og þau bíða óþol- inmóð eftir að sjá meira um brúðurnar í brúðubílnum. Finnst mér of lítið af íslensku efni fyrir yngstu börnin, en þau virðast skilja og lifa sig inní brúðuheim- inn. Þessir þættir sjást alltof sjaidan. Væri ekki hægt að sýna þessa brúðuþætti oftar og hafa þá kannski svolítið lengri — þá yrði mikil gleði á mínu heimili. Og ég held að hér mæli ég fyrir munn margra." „Miss World“- keppninni verði sjónvarpað Kristín hringdi og hafði eftir- farandi að segja: „Ég vil taka undir orð kvennanna í sauma- klúbbnum Hnykli I Velvakanda um daginn, en þær hvöttu til þess að „Miss World“-keppnin yrði sýnd í sjónvarpi. Það yrði mjög gaman að sjá frá þessari keppni og vona ég að þeir sem áhuga hafa á að sjá frá keppn- inni láti til sín heyra. Almenningur orð- inn leiður á bruðli fyrirmanna Verkakona hringdi: „Það var sláandi sem hann Albert sagði í sjónvarpinu núna fyrir helgina, að þessir samningar hans við Dagsbrún myndu ekki kosta meira en ferðalög alþing- ismanna á fund Norðurlanda- ráðs. Það sýnir sig alltaf betur og betur hversu erfitt ætlar að verða að fá ráðamenn til að láta af eyðslu sinni og kröfugerð á hendur almúganum. Fjöldinn allur af varaþingmönnum situr núna á Alþingi og þurfum við auðvitað að herða ólina og borga þeim kaup (og auðvitað líka þingmönnum sjálfum, sem auð- vitað ættú að vera kauplausir meðan þeir sitja veislur Norður- landaráðs.) Væri ekki nóg að utanríkisráðherra mætti og svo höfum við sendiráð á öllum Norðurlöndunum. Forsætisráðherra ætti að vera heima hjá sér meðan kjara- samningar eru í gangi — þá þyrfti hann ekki að óttast að gengið yrði framhjá honum í samningagerð, enda er alveg komið nóg af renniríi hans um allar jarðir. Almenningur er orðinn leiður á bruðlinu í fyrir- mönnum þjóðarinnar: bílum, einkabílstjórum, ferðalögum og veislum — meðan aðrir sitja með sárt ennið og neyðast til að velta hverri krónu. Og í þetta fara skattpeningar okkar. Hvernig verður þetta stöðvað?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.