Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 Búnaðarþingi lokið: 57 mál afgreidd með ályktunum frá þinginu Kostnaður við þinghaldið er áætlaður 1 milljón og greiðist af ríkinu Fengu hákarl í vörpuna Skipverjar á Hólmatindi frá Eskifirði fengu í síðustu veiðiferð alimynd- arlegan hákarl í vörpuna. Hákarlinn verður settur í verkun og að ári má gera ráð fyrir að hann verði á borðum manna er þorri verður blótaður. Myndina tók Ævar Auðbjörnsson, fréttaritari Morgunblaðsins á Eski- firði. BÚNAÐARÞINGI var slitið á sunnudag. Þingið stóð yftr í 14 daga og sagði Ásgeir Bjarnason forseti Búnaðarþings við þingslitin að þetta þing væri annað af þeim tveimur þingum sem staðið hefði yfir í styst- an tíma. 64 mál voru lögð fram á þinginu og voru 57 þeirra afgreidd með ályktun frá Búnaðarþingi. 6 mál komu ekki fram úr nefndum þingsins og níu mál hlutu ekki af- greiðslu. 18 þingfundir voru haldnir auk fjölmargra nefnda- funda. Að þessu sinni var lítið um veruleg ágreiningsmál þó umræð- ur hafi orðið talsverðar um sum mál. Eina málið sem ekki hlaut afgreiðslu í gegnum báðar umræð- ur var tillaga fjárhagsnefndar um greiðslu á kostnaði við Búnaðar- þing. Lagði fjárhagsnefnd til að | E RA kæliskápar^ Sértilboð ARF 843 — Rúmgóður 310 lítra ísskápur. 2ja dyra meö 65 lítra frystihólfi. Auöveldur að þrífa. Sjálfvirk afþýöing. H.139 cm. B. 55 cm. D. 58,5 cm. Kr. 16.520.- A Dp QAO — Rúmgóöur 340lítra ísskápur. /AI\r Oc*& mea 05 |((ra frystihólfi. Auöveldur aö þrífa. Sjálfvirk afþýöing. H. 144 ,5 cm. B. 60 cm. D. 64 cm. Kr. 14.460.- 4.000i'g*°nuLm'. R A frysti skápar tilhnA r ------- I App CJO'? Frystiskápur, 140 lítra r L xJLdO meö sérstökum hraöfrysti. H. 85 cm. B. 55 cm. D. 60 cm. Kr. 14.980.- AFE 567 Frystiskápur, 300 lítra meö sérstökum hraöfrysti. H. 144 cm. B. 60 cm. D. 64 cm. Kr. 21.890.- HLJOMBÆRl HUOM’HEIMILIS'SKRIFSTOFUT/tKI gi^^fgg0™ 103 stefnt skyldi að því að bændastétt- in beri kostnaðinn við þinghaldið og var í því sambandi nefnt að til greina gæti komið að búnaðar- samböndin tækju þátt í kostnaðin- um og einnig að Bændahöllin legði fram fé til þátttöku í kostnaðin- um. Mikill ágreiningur varð um þessa tillögu sem varð til þess að hún varð ekki útrædd. Kostnaður við Búnaðarþing er áætlaður 1 milljón að þessu sinni og er hann greiddur af ríkinu svo sem kostn- aður við Fiskiþing og fleiri sam- bærileg þing. Ásgeir Bjarnason þingforseti sagði við slit Búnaðarþings að þingið hefði í fyrsta lagi mótast af því kalda og erfiða tíðarfari sem verið hefur undanfarin ár, i öðru lagi af dökkurn markaðshorfum og í þriðja lagi af slæmu efnahags- ástandi þjóðarinnar. Kosin nefnd til aö athuga umbætur í kjötsölumálunum BÚNAÐAKÞING kaus þriggja manna milliþinganefnd til þess að athuga sölumál kindakjöts og hvaða úrbætur á því sviði væru líklegastar til þess að skila auknum árangri. f ályktun þingsins um þessi mál segir að miklu varði fyrir íslenskan land- búnað og búsetu í sveitum, að það takist að afla viðunandi markaða fyrir dilkakjöt og örva sölu á því innanlands og erlendis. Fól þingið nefndinni að athuga: núverandi verslunarhætti með kindakjöt; á hvern hátt megi frekast örva sölu á kindakjöti; stöðu kjötiðnaðarins og úrbætur á því sviði, svo og sölutækni og auglýsingastarfsemi á sviði versl- unar með kindakjöt og hugsanlcgar breytingar þar á. í greinargerð með ályktuninni segir að á síðari árum hafi erlend- ir markaðir fyrir dilkjakjöt þrengst verulega og skilað hlut- fallslega lágu verði. Enn meiri samdráttur en orðinn er í fram- leiðslu sauðfjárafurða geti leitt til verulegrar fækkunar þess fólks, sem getur haft framfæri sitt af þessari búgrein, og úrvinnslu þeirra afurða, sem henni tengjast. Sú þróun leiði aftur til meiri breytinga á búsetu en æskilegt getur talist, a.m.k. þar sem búset- an er veikust fyrir. Því verður að leggja mikla áherslu á að gera allt, sem unnt er til þess að koma sauðfjárafurðum í verð og tilreiða þær á þann hátt sem mestar líkur eru fyrir að örvi sölu á þeim, segir ennfremur í greinargerðinni. Útgáfa vísindarits um þróun íslenskra búnaðarhátta BÚNAÐARÞING samþykkti að beina „þeirri eindregnu áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar að gera hið allra fyrsta ráðstafanir til þess, að unnt verði að hefjast handa við vís- indalegar rannsóknir og ritun á sögu og þróun íslenskra búnaðarhátta á líkan hátt og gert var fyrir tuttugu árum, þegar Alþingi skóp fræði- manni aðstöðu til að semja vísinda- rit um íslenska sjávarhætti.** f greinargerð með ályktuninni segir: „Þjóðinni hlýtur að vera bæði nauðsyn og metnaðarmál að kunna sem best skil á sögu og Íróun helstu atvinnugreina sinna. henni er ekki síst að finna skýr- ingar á því, hvernig þjóðinni tókst að lifa af, þegar harðast svarf að. Brýnt er að hraða vísindalegum rannsóknum á þessu sviði, meðan enn eru á lífi menn, sem þekktu af eigin raun þær vinnuaðferðir, sem tíökuðust fyrir hina snöggu tækni- byltingu á þessari öld.“ Vitnað er til þess er Alþingi hóf að veita sérstakan fræðimannastyrk til rannsókna á íslenskum sjávar- háttum og afrakstur þeirrar ráðstöfunar, þ.e. ritverk Lúðvíks Kristjánssonar: íslenskir sjávar- hættir. Þá segir að löngu sé orðið tímabært að gera íslenskum bún- aðarháttum sömu skil, en nú sé svo komið að það megi ekki öllu seinna vera. Uppákoma RKÍ á öskudag Öskudagurinn er merkjasölu- dagur Rauða kross íslands, svo sem kunnugt er. Nú hefur RKÍ ákveðið að efna til uppákomu meðal barna í Reykjavík og Kópa- vogi og hefur fengið félagsmið- stöðvar í báðum sveitarfélögunum til þess að taka þátt í henni. Fyrirhugað er að skemmtunin hefjist um klukkan 10.30 og standi til klukkan 13. Á dagskrá verður svokölluð karnivalganga, köttur verður sleginn úr tunn- unni og farið verður í leiki. RKÍ ætlar sér og að nota daginn til þess að kynna starfsemi sína fyrir æsku landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.