Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
27
Nicholas til
Stuttfréttir ...
Liverpool?
• Craig Johnston skorar hór eitt af mörkum sínum fyrir Liverpool
— gegn Luton á Anfield Road.
Johnston semur
til þriggja ára
Fré Bob Hennessy fréttamanni Morgunblaðaina é Englandi.
CRAIG Johnston mun skrifa
undir nýjan þriggja ára samning
viö Liverpool nú í vikunni. John-
ston er 23 ára gamall og var
keyptur frá Middlesbrough fyrir
575.000 sterlingspund I apríl
1981. Hann er fæddur í Suöur-
Afríku en er enskur ríkisborgari
og hefur leikiö með enska
U-21-landsliöinu.
Á síðustu átján mánuöum hef-
ur Johnston tvívegis fariö fram á
aö veröa seldur frá Liverpool en
ekki varö úr því. „Ég vona aö ég
veröi svo lengi á Anfield aö ég fál
ágóöalelk — en finnist mér ég
vera settur úr liöinu án þess aö
eiga þaö skiliö mun ég ekki
hræöast þaö aö biöja um aö
veröa settur á sölulista,“ sagöi
Johnston um helgina. Leikmenn
fá yfirleitt ágóöaleiki hjá enskum
félögum eftir tíu ára dvöl.
— SH.
Fré Bob Hennesiy, tréttam.nni Morgunblaösins é Englandi.
LIVERPOOL hefur enn áhuga á aö
kaupa Charlie Nicholas. Nicholas
ákvaö sem kunnugt er aö ganga
til liðs viö Arsenal í haust, frekar
en Liverpool, en sýnt þykir að þar
hafi tekið ranga ákvöröun. Hon-
um hefur gengiö illa hjá Arsenal
— aöeins skoraö örfá mörk og
leikstíll liösins hentar honum
óneitanlega ekki. Arsenal borg-
aöi Celtic 700.000 pund fyrir
hann.
Viö sögöum frá því á laugardag
aö sú saga gengi fjöllunum hærra í
Glasgow aö Celtic heföi mikinn
áhuga á því aö kaupa Nicholas aft-
ur frá Arsenal. Líkurnar á því aö
svo veröi eru þó ekki taldar miklar
þar sem Nicholas er sagöur hafa
lítinn áhuga á því.
Forráöamenn Liverpool hafa
fengiö þau svör hjá Arsenal und-
anfariö aö Nicholas sé ekki til sölu
— en meistararnir hafa ekki gefið
upp von um aö ná í piltinn. Hann er
talinn hafa mikinn áhuga á því aö
fara til Liverpool snúist forráöa-
mönnum Arsenal hugur — og þaö
er jafnvel taliö líklegt þar sem þeir
hafa áhuga á aö fá Gordon Strach-
an og Liam Brady til félagsins.
Þaö var hugmynd Joe Fagan,
framkvæmdastjóra Liverpool, er
hann vildi kaupa Nicholas í haust,
aö tefla honum fram ásamt lan
Rush í fremstu víglínu og láta
Kenny Dalglish leika fyrir aftan þá.
Sá draumur er sem sagt enn fyrir
hendi hjá Fagan og víst má telja aö
lið Liverpool yröi ekki árennilegur
mótherji meö slíkt sóknartríó inn-
anborðs. Michael Robinson var
keyptur til Liverpool í haust er
Nicholas fékkst ekki en hefur ekki
staöiö sig nema þokkalega. Færi
svo aö Liverpool nældi í Nicholas
yröi þess ekki langt aö bíöa aö
Robinson hyrfi á braut og talið er
að Manchester United heföi þá
áhuga á honum. Ron Atkinson hef-
ur lengi leitaö að framherja viö
hliðina á Frank Stapleton, en þeir
Robinson leika einmitt saman í
írska landsliöinu og þekkjast því
vel.
—SH.
Umboðsmenn
handboltar/fótboltar/tennisspaðar o.fl.
KIMPEX boltar og tennisspaöar eru seldir beint frá innflytjanda til íþróttafélaga. Vegna þessa er
verðiö um þriöjungi lægra en verö á varningi í sama gæöaflokki. Handboltarnir eru viöurkenndir af
Heimsmeistarakeppninni '84 og fótboltarnir af FIFA.
Viö leitum aö 3 til 4 dugmiklum íþróttamönnum, sem vilja selja varning okkar
beint til íþróttafélaga. Góö umboöslaun í boöi. Hiö lága verö á þessum
gæöavörum hefur leitt af sér mikla sölu og^er stefnt aö aukningu á þessu ári.
Skrifiö okkur og viö sendum bækling og verölista.
KIMPEX
Import - Export
Sankt Nikolajvej 15
1953 Kobenhavn V
Jackett fer
KENNY Jackett, leikmaöur Wat-
ford, segist munu fara frá félag-
inu í vor er samningur hans renn-
ur út. Jackett, sem er 22 ára, er
velskur landsliösmaöur.
Fréttir úr
ensku
knatt-
spyrnunni
frá Bob Hennessy
OReilley á sölulista
GEORGE O’Reilley, varnarmaöur
hjá Tottenham, hefur veriö settur
á sölulista aö eigin ósk. Hann hef-
ur leikiö 40 leiki í 1. deildinni meö
Tottenham og einnig hefur hann
tekið þátt í Evrópuleikjum.
... Tony Currie, sem er nú
oröinn 34 ára, er byrjaður í at-
vinnuknattspyrnunni á ný.
Hann lék sinn fyrsta leik meö
Torquay á laugardag gegn
Northampton. Currie hefur í
vetur leikið meö áhuga-
mannaliöinu Chesham.
... Malcolm Waldron, fyrrum
miðvörður Southampton, sem
leikiö hefur meö Burnley síö-
ustu fimm mánuöi, fer aö öll-
um líkindum aftur til suöur-
strandarinnar áöur en langt
um líöur. Portsmouth hefur
áhuga á aö kaupa hann fyrir
60.000 pund. Burnley keypti
hann á 85.000 pund frá South-
ampton fyrir fimm mánuðum.
... Ron Harris, fyrrum leik-
maöur Chelsea, keypti á dög-
unum ásamt tveimur kaup-
sýslumönnum 3.000 hluti í
fjóröudeildarliöi Aldershot. Til
að eignast meirihluta í félag-
inu þurfa þeir aö eignast
12.000 hluti og er það á stefn-
uskránni hjá þeim. Aldershot
hefur gengið vel í vetur og er í
toppbaráttu deildarinnar.
... Júgóslavinn Ivan Golac
sem lék með Southampton í
nokkur ár er nú kominn aftur
á The Dell. Hann hefur æft
meö liðinu undanfarnar vikur.
... Aston Villa keypti Steve
Foster frá Brighton á föstudag
eins og við höfum sagt frá.
Liðið hefur vantaö tilfinnan-
lega miðvörö síöan Ken
McNaught var seldur til WBA
— og fyrir skemmstu munaöi
minnstu aö Russel Osman
færi frá Ipswich til Villa. Ips-
wich var búiö að ákveöa aö
taka 150.000 punda tilboði
Villa í Osman en Bobby Fergu-
son, stjóri Ipswich hætti vió á
síöustu stundu. Hann vill
halda í Osman vegna lélegrar
frammistöóu liösins undanfar-
iö — finnst ekki veita af hon-
um. Samningur Osman viö
Ipswich rennur út í vor.
... Búist er við því að uppselt
veröi á úrslitaleik Liverpool og
Everton ( mjólkurbikarkeppn-
inni á Wembley 25. marz — aó
100.000 manns mæti á völlinn.
Sala miða hefur gengið vel aö
undanförnu — en þess má
geta aö ódýrasti miöi í stæöi
kostar fjögur og hálft pund:
um 190 krónur íslenskar.
Hibbit frá Wolves
KENNY Hibbit, gamla kempan
hjá Wolves, mun sennilega
fara frá félaginu innan tíöar.
Shrewsbury hefur áhuga á aö
fá hann til sín. Hibbit er 33 ára.
Þá mun bakvöróurinn Geoff
Palmer sennilega fara frá
Wolves á næstunni.
Newcastle
vill fá Brady
LIAM Brady er ákveöinn í því aö
snúa aftur til Englands í vor er
samningur hans viö ítalska félag-
iö Sampdoria rennur út. Brady
var í London í síóustu viku og átti
leynilegar vióræöur viö forráða-
menn nokkurra félaga.
Brady geröi garöinn frægan hjá
Arsenal í nokkur ár áöur en hann
hélf til italíu þar sem hann lék fyrst
meö Juventus og nú Sampdoria.
Hann æföi meö Arsenal í síöustu
viku, en ekki er þar meö sagt aö
hann muni snúa aftur til síns gamla
félags. Forráðamenn þess hafa
vissulega áhuga á aö fá hann aftur
— en þeir eru ekki einir um þaö.
Erkifjendurnir Tottenham eru ólmir
í aö fá Brady á White Hart Lane í
staö Glenn Hoddle sem fer frá fé-
laginu er þessu keppnistímabili
lýkur.
Þá hefur Manchester United
lengi haft áhuga á Brady og er vit-
aö aö Ron Atkinson vill næla i
hann. Atkinson vantar leikmann á
miöjuna vinstra megin í staö Arn-
old Múhren — Múhren er oröinn
33 ára. Eitt félag enn hefur nú
bæst í hóp þeirra sem slást munu
um Brady: Newcastle United. Fé-
lagiö er stöndugt mjög og gæti
boðið Brady góöan samning. Kev-
in Keegan er nú lang tekjuhæsti
knattspyrnumaöur Englands en
hyggst leggja skóna á hiiluna í vor.
Newcastle vantar því „stórt nafn“
til aö fylla þaö skarö sem Keegan
skilur eftir.
— SH.
• Liam Brady (t.v.) fagnar þriöja
marki íra á Laugardaiavellinum í
hauat ásamt Gary Waddock og
Mick Walsh.
• Charlie Nicholas á fullri ferð (landsleik fyrir Skotland. Þessi snjalli
knattspyrnumaöur hefur ekki náö sér á strik meö Arsenal.
LEN Ashurst hefur tekiö viö fram-
kvæmdastjórastööunni hjó Sund-
erland en Alan Durban var rekinn
frá félaginu á föstudag eins og
viö sögöum frá á laugardaginn.
Ashurst hefur verið viö stjórnvöl-
inn hjá Cardiff undanfariö.
Ashurst er 44 ára. Honum hefur
tvívegis veriö boöin framkvæmda-
stjórastaöa Sunderland áöur en
hann afþakkaði í bæöi skiptin.
Hann kom Newport upp úr fjóröu
deild fyrir nokkrum árum og kom
liöinu í Evrópukeppni. Newport er
frá Wales og varö velskur bikar-
meistari 1980; áriö eftir stóö liöiö
sig frábærlega vel í Evrópukeppni
bikarhafa — komst í undanúrslit
— en var slegið út af Carl Zeiss
Jena frá Austur-Þýskalandi.
„Forráöamenn Cardiff ætluöu
að bjóöa mér þriggja ára samning
sem var 70.000 punda virði, en ég
hef mikinn áhuga á aö taka boöi
Sunderland — ég lék meö liðinu í
14 ár og kann mjög vel viö félagiö
og fólkiö sem þar starfar," sagöi
Ashurst um helgina. Miklar líkur
eru á því aö Alan Durban taki við
af Ashurst hjá Cardiff.
—SH.
Ashurst til