Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 17 VMIC#, PóSthólf 377 ■* U-BÍX90 Smávaxna eftirherman Þó U-BIX 90 sé minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hún alls enga minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma. Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa og pantanir streyma inn. w SKRI FST< 3FUVÉLAR H.F. . : x ’ Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Uplands School Poole England Canford School Wimborne Tolroy Cornwall mmm 15 S Skotland Feröaskrifstofa KJARTANS HELCASONAR Gnoöarvogur 44 Simi 86255. „Enskukennsla fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-—14 ára“ Junior International er enskuskóli sem sérhæfir sig í að kenna börnum og ungling- um, þar sem tvinnað er samam nám og leikur, feröalög og íþróttir. Skólarnir eru tveir, annars vegar heimavistarskóli, „Canford School“ í Wimborne skammt vestur af Bournemouth og „Uplands School" í Poole, nágrannabæ Bournemouth, sem byggir eingöngu á gistingum í heimahúsum. Báðir skólar hafa á að skipa mjög góðum kennurum og öðru þjónustuliði. Á heimavist eru nemendur í umsjá þess allan sólarhringinn, en á heimilum eru það kennarar og heimilin sem sjá um nemendur. f hverri viku eru 20 tímar ( kennslu, þar sem kennd er dagleg enska, lestur og framburður, talkennsla, samræður og viðtöl, málfræði og uppbygging málsins. f hverri viku eru heilsdags skoðunarferöir og hálfsdags skoðunarferðir um nærliggj- andi héruö. í hverri viku eru íþróttir og leikir, diskótek, varðeldar, sund, körfubolti og blak, tennis og „squash“, knattspyrna, videó o.fl. sem innifalið er í verði, en einnig er hægt að taka þátt ( siglingum, „windsurfing“ (á flekum), golfi, útreiðum og er aukagreiðsla fyrir það. Canford-skóli byrjar 18. júlí og er hægt að dveljast í 2, 3 eða 4 vikur. Uplands-skóli byrjar 22. júli og er hægt að dveljast 3 og 4 vikur. Hægt er að fara viku siðar eða hálfum mánuði síðar. Áöur en fyrrgreindir skólar hefjast bjóðum við dvöl í orlofsbúðum: Tolroy á Cornwall-skaga vestan til. Hægt er aö fara 11. eða 15. júlí og dveljast 7—11 daga. Eftir að fyrrgreindum skóium lýkur er hægt að fara í 8 eða 11 daga ferð til Aviemore í Skotlandi. I báðum tilfellum verður búið ( svokölluðum sumarhúsum og stundaðir alls kyns leikir, ferðalög, íþróttir og farið m.a. í lokin til Edinborgar á „Tattoo“. Allir nemendur fá frí aðgangskort og járnbrautarfarmiða fría. Fullt fæði er allan námstimann. Náð er í alla nemendur á flugvöll við komu og þeim komið á flugvöll við brottför. Verð: Canford 3 vikur: 29.900,-hver aukavika kr. 7.080,- Uplands 3 vikur: 26.100.-hver aukavika kr. 5.800.- Tolroy Cornwall auka 7 dagar: 9.060.-auka 11 dagar 12.100.- Aviemore Skotland auka 8 dagar: 9.060.-auka 11 dagar 12.100.- Flogið með Flugleiðum til London og til baka en heim um Glasgow ef farið er til Aviemore í lokin. Sendið börnin ykkar í hagnýtt nám sem alltaf kemur að notum. Við minnum á plúslánin sem auövelda ykkur að glima við vandann. Nú liður að fermingum: Er þetta ekki tilvalin fermingargjöf fjölskyldunnar til fer- mingarbarnsins?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.