Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 31 Stuttar biniifréttir Óvcnjumargir varaþingmenn h fa setið á Alþingi undanfarið. Þeirra á meðal vóru Sverrir Sveinsson, veitusl óri í Siglufirði, og Sturla Böðvarsson, sveitar- stjóri í Stykkishólmi, sem hér . >ást fylgjast með umræðum í þinginu. Kynjamisrétti hjá ríkisstarfsmönnum (?): Meir en 90% fastr- ar yfirvinnu og bíla- styrkja hjá körlum Þjóöaratkvædi um áfengt öl Þjóðaratkvæði um öl Friðrik Sophusson (S) mælti í sl. viku fyrir tillögu til þingsályktun- ar um þjóðaratkvæðagreiðslu um það, hvort leyfa skuli sölu áfengs öls hér á landi eftir sömu reglum og sala áfengis með meira álkóhól- innihaldi fylgir. Þjóðaratkvæða- greiðslan fari fram samtímis næstu almennum kosningum, til Alþingis eða sveitarstjórna, hvor- ar sem á undan verða. Fyrsti flutningsmaður er Magnús Magn- ússon (A) og meðflutningsmenn: Friðrik Sóphusson (S), Guðrún Helgadóttir (Abl) og Stefán Bene- diktsson (BJ). Gegn tillögunni mæltu Ólafur Þ. Þórðarson (F) og Garðar Sigurðsson (Abl). Umræð- unni lauk ekki. Misrétti eftir kynjum hjá opinberum starfsmönnum Jóhanna Sigurðardóttir (A) vakti athygli á því i utandagskrárum- ræðu á Alþingi sl. mánudag, að 93—95% fastrar yfirvinnu og bíla- styrkja hjá ríki og ríkisstofnunum féllu i hlut karla, en aðeins 5—8% til kvenna, sem þó væru fleiri en karlar í opinberum störfum. Spurði hún fjármálaráðherra, hvort hann vildi vinna að jafnrétti að þessu leyti í ríkisbúskapnum. Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra sagði launadeild fjár- málaráðuneytis vinna að úttekt, sem náð gæti til þessa atriðis, hvort misrétti væri eftir kynjum, þegar samskonar menntun og samskonar störf kæmu við sögu. Niðurstöður yrðu kynntar þing- mönnum. Ef þær leiddu misrétti í ljós þyrfti leiðréttingar við. Ríkið ætti að ganga á undan með góðu eftirdæmi um að jafnréttislög væru haldin. Ráðstefna um afvopnun á Norður-Atlantshafi Guðmundur Bjarnason og fleiri þingmenn Framsóknarflokks flytja tillögu til þingsályktunar þess efnis, að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að haldin verði al- þjóðleg ráðstefna hér á landi um afvopnun á Norður-Atlantshafi. Tilgangur ráðstefnunnar verði að kynna viðhorf íslendinga til hins geigvænlega kjarnorkuvígbúnaðar sem nú fer fram á hafinu kringum landið. Steingrímur J. Sigfússon (Abl), Guðmundur Einarsson (BJ) og Kristín Halldórsdóttir (Kvl) flytja tillögu til þingsályktunar þess efnis, að fela ríkisstjórninni að „vinna í samráði við ríkisstjórnir annarra Norðurlanda um yfirlýs- ingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd". Fyrirspurnir Hjörleifur Guttormsson (Abl) spyr félagsmálaráðherra, hvaða ástæður hafi legið til þess að nefnd, sem forystu átti að hafa um varnir gegn snjóðflóðum, var lögð niður. Ennfremur, hvað gert hafi verið á vegum félagsmálaráðu- neytis varðandi snjóflóðavarnir á tímabilinu frá 4. júli 1983 til 22. febrúar 1984, þegar snjóflóð féllu á Ólafsvík. Jón Sveinsson (F) spyr sam- gönguráðherra hvað líði fram- kvæmd þingsálykunar frá í apríl 1982 um skipun og störf nefndar til að kanna öryggisbúnað fiski- og farskipahafna. Sveinn Jónsson (Abl) spyr iðnað- arráðherra, hve miklu fé sé fyrir- hugað að verja 1984 til áframhald- andi undirbúnings Fljótsdals- virkjunar; hvenær talið sé að framkvæmdir þurfi að hefjast; hvenær ráðgert sé að virkjunin taki til starfa og við hvaða mark- aðsþróun sé miðað. BEINT FUUG í SÓLINA .FERDA AÆTLUN 1984 V FERÐAMIÐSTÖÐIN kynnir feröa- áætlun 1984 til BENIDORM, Costa Blanca strandarinnar á Suðausturströnd Spánar. Eins og áöur er aðeins flogiö leiguflug í góöa veðrið. I &GÓD GISTING í ÍBÚÐUM EÐA HÓTELUMj Gististaöir eru allir fyrsta flokks: íbúöir með 1-2 svefnherbergjum, Studíó-íbúöir eöa hótel meö fæöi. BENIDORM feröirnar eru 2ja-3ja vikna og brottfarardagar eru: 18. apríl (2ja vikna páskaferð), 2. maí, 23. maí, 20. júní, 11. júlí, 1. ágúst, 22. ágúst, 12. sept. og 3. október. Dæmi: Hjón meö 2 börn, 2ja til 11 ára í páskaferð, samtals kr. 61.100,1 - eöa kr. 15.400,- pr. farþega. ] Verö fyrir hjón í stúdíógistingu kr. 20.300,- pr. mann. FM-FERÐALÁNIN Staöfestingargjald viöpöntun kr. 2.500. Síðan mánaöarlegargreiöslur allt frá kr. 1.000 í 3-6 mánuöi fyrir brottför og lánar þá Ferðamiðstöðin allt aö sömu upphæö í jafn langan tíma, sem greiðist meö mánaöar legum afborgunum eftir heimkomu. Veröhækkanir sem veröa á sparnaðartímanum af völdum gegnisbreytinga ná ekki til þess hluta heildarverðsins sem greitt hefir veriö. Dæmi: 4 mánaöarlegar greiöslur fyrir brottför kr. 2.000, — samtals kr. 8.000, -, lánar þá Ferðamiðstöðin þér allt aö sömu fjárhæð kr. 8.000, -, er greiðast til baka með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, eftirheim- komu á jafnlöngum tíma. FM greiðslukjör Staöfestingargjald kr. 2.500, - við pöntun u.þ.b. helmingur af heildarverði greiöist 30 dögum fyrir brottför og eftirstöðvar meö jöfnum afborgunum á 3 mánuðum eftir heimkomu. 50% afsl. á innanlandsflugi. Staögr. afsl. 5%. Þeir, sem hafa dvaliö á BENIDORM ströndinni hrósa veörinu, verðlaginu, matnum, skemmtistööunum, skoöunarferöunum og traustri þjónustu FERÐAMIÐSTÖÐVARINNAR. Verölisti fyrirliggjandi | BEINT FUJG í SÖLINA OG SJÓINN lljjjFEROA.. H MIÐSTODIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.