Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 t Móöir okkar og tengdamóöir, HALLFRÍDUR ÓLAFSDÓTTIR, Vesturbrún 14, lést í Landspítalanum 3. mars. Börn og tengdabörn. t Eiginkona mín, GUDBJÓRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Melabraut 8, Seltjarnarnesi, lést í Landspítalanum 3. mars. Ingímundur Pétursson. t Móöir okkar, SE3SELJA EIRÍKSDÓTTIR, Bjarkargötu 12, andaöist í Landakotsspítala aöfaranótt sunnudagsins 4. mars. María Hafliöadóttir, Áslaug Hafliöadóttir. t Hjartkær eiginmaöur minn, RAGNAR TÓMAS ÁRNASON, fyrrum útvarpsþulur, andaðist 3. mars. Fyrir hönd barna og tengdabarna, Jónína Vigdís Schram. t Faöir minn og tengdafaöir, WILLY BLACK NIELSEN, hárskerameistari, andaöist fimmtudaginn 1. mars í Kaupmannahöfn. Susan M. Black, Hafsteinn Linnet. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, BALDUR KRISTJÁNSSON, píanóleikari, Laugarásvegi 71, Reykjavík, andaöist í Borgarspítalanum í Reykjavík sunnudaginn 4. mars. Kristján S. Baldursson, Soffía U. Björnsdóttir, Elsa Baldursson, Kristján Guömundsson, Guöjón Baldursson, Kristján Blöndal, Birgir Bragi Baldursson og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ELÍN GUDMUNDSDÓTTIR, Sogavegi 178, Reykjavík, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju fimmtudaginn 8. mars kl. 13.30. Guðrún Haraldsdóltir, Ágúst Sæmundsson, Þórir Haraldsson, Bodil Haraldsson, Haraldur Haraldsson, Elín Haraldsdóttir, Ásdís Guómundsdóttir, Jósef Hólmjárn, Reynir Kristinsson, Helmut Groiss, barnabörn og barnabarnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir og dóttir. SOFFÍA HARALDS HARALDSDÓTTIR, Vitastíg 7, Hafnarfiröi, verður jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 7. mars kl. 13.30. Ingibjörg Benediktsdóttir, Sigmundur Sigfússon, Haraldur Þór Benediktsson, Elín Jakobsdóttir, Benedikt Benediktsson, Viöar Benediktsson, Elín K. Björnsdóttir, Birna Benediktsdóttir, Þórunn Úlfarsdóttir. Örn Orri Ingvarsson, Minning: Sigurbjörg Anna Einarsdóttir Fædd 2. júní 1905 Dáin 27. febrúar 1984 í dag verður jarðsett frá Foss- vogskirkju Sigurbjörg Anna Ein- arsdóttir til heimilis að Laugavegi 86, Reykjavík. Sigurbjörg Einarsdóttir fæddist 2. júní árið 1905 á Grímslæk í Ölf- usi. Foreldrar hennar voru þau Einar Eyjólfsson bóndi þar og Guðrún Jónsdóttir. Þau hjón eign- uðust tólf börn og var Sigurbjörg yngst systkinanna. Af þessum hópi komust níu til fullorðinsára og tvö þeirra lifa systur sína; þau Lára Einarsdóttir og Kristinn, kaupmaður í Reykjavík. Um tvítugsaldur hleypti Sigur- björg heimdraganum og flutti til Reykjavíkur eins og nokkur systk- ina hennar höfðu þá þegar gert. Bærinn var þá í örum vexti og tækifæri þar fyrir unga heima- sætu að verða sjálfrar sín. Á þeim árum bjó hún á heimilum bræðra sinna Kristins og Marteins Ein- arssona kaupmanna og létti undir við heimilisstörfin. Hún fóstraði Sóleyju, elsta barn þeirra hjóna Kristins og Ellu, fyrstu árin eftir fæðingu hennar. Þegar Kristinn opnaði vefnað- arvöruverslunina Dyngju við Laugaveg 25 tók Sigurbjörg að sauma fatnað fyrir verslunina. Við aukin umsvif fyrirtækisins gerðist Sigurbjörg afgreiðslu- stúlka við verslunina. Og í um fimmtíu ár vann Sigurbjörg við verslunarstörf, eða allt til ársins 1979, þá lét hún af störfum. Lengst af við Dyngju, sem Krist- inn rak til ársins 1968, síðar í „nýju“ Dyngju, eign Sóleyjar Kristinsdóttur allt þar til sú versl- un hætti árið 1979. Starfsaldri sínum varði Sigurbjörg þannig í samstarfi við þau skyldmenni sín, bróður og bróðurdóttur. Einnig ég, dóttir Sóleyjar, naut góðs af Sigurbjörgu. Við unnum oft saman í Dyngju og það var ánægjulegt samstarf. Sigurbjörgu féll aidrei verk úr hendi við. Um leið og viðskiptavinurinn var bú- inn að ljúka sínu erindi var hún tekin til við að raða í hillurnar og snyrta til. Sigurbjörg hafði nokk- uð sérstæðan stíl við afgreiðsluna. Hún var alls ekki tilbúin til þess að viðurkenna að „kúnninn hefði ávallt rétt fyrir sér“. Á sama hátt mælti hún ekki með vöru þvert um hug sér, þó hún bæri hag verslun- arinnar fyrir brjósti. Ásamt skyldurækninni var þetta hisp- urslausa viðmót einkenni Sigur- bjargar. Ég minnist þess þegar ég vann í Dyngju, að oftsinnis komu konur til að versla og spurðu þá sérstak- lega eftir „fullorðnu konunni". t Ástkær móöir okkar, GUÐRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR, Vesturbrún 8, andaöist í Borgarspitalanum 3. mars. Hólmfríður Kristjánsdóttir, Erla Kristjánsdóttir. Móöir okkar, STEINÞÓRA EINARSDÓTTIR frá Siglufiröi, er látin. Börnin. t Eiginkona mín, SIGRÍÐUR MARGRÉT STEINDÓRSDÓTTIR, lést í Borgarspftalanum aöfaranótt mánudagsins 5. mars. Gunnar Sigtryggsson. t Systir mín og móöir okkar, MAGRÉT INGIRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, lést í Landspítalanum 4. mars sl. Guólin Ingirióur Jónsdóttir, Jón Þ. Hallgrímsson, ísak G. Hallgrímsson, Kristín Ingiríóur Hallgrímsson. t Hjartans þakkir sendum viö öllum þeim sem hafa veitt okkur svo ómetanlega hjálp og sýnt vinarhug viö hiö sviplega fráfall okkar elskulegu móöur, eiginkonu, dóttur og tengdadóttur, KRISTRÚNAR Á. ÓSK ARSDÓTTUR, Sundabakka14, Stykkishólmi. Guö blessi ykkur öll. Ingveldur Eyþórsdóttir, Óskar Eyþórsson, Eyþór Ágústsson, Óskar Ólafsson, Kristín Þóröardóttir, Ingveldur Stefánsdóttir. Væri Sigurbjörg ekki við varð þeim ekki frekar úr erindi, heldur kvöddu með orðunum: „Hún veit nefnilega alveg hvað er best fyrir mig.“ Sigurbjörg fyrirleit fals og hræsni. Hún vænti þess jafnan að fólk kæmi til dyranna eins og það var klætt. Vinum sínum var hún trölltrygg þó ekki bæri hún til- finningar sínar á torg. Hún lét fremur verkin tala. Að vonum kunnu þeir sem þekktu hana lítið ekki alltaf að meta hreinskiptni hennar. Sigurbjörg var ekki allra. Sigurbjörg var alla tíð ógift og barnlaus. Hún átti sér unnusta en eftir samvistir um nokkurt skeið fóru þau hvort í sína áttina. ( stað þeirrar fjölskyldu, sem e.t.v. hefði getað orðið hennar, lagði hún sér- staka rækt við systkinabörn sín, Sóleyju og óskar og afkomendur þeirra. Eftirlæti Sigurbjargar var Eyþór sonur minn. Oft kom sér vel umhyggjusemi hennar við dreng- inn, ekkert var Sigurbjörgu kær- ara en að fá að hafa hann hjá sér um helgar. Hún upplýsti hann um kveðskap og lífið í sveitinni í bernskutíð hennar. Spilaði við hann og lagði honum lífsreglurn- ar. Kynnin hafa reynst honum gott veganesti. Sigurbjörg hafði mikið yndi af ferðalögum og útivist. Hún tók ung að ferðast í frístundum sín- um. Á fyrstu árum rútubílaferða, meðan stórfljótin voru enn óbrúuð, fór hún marga svaðilför- ina með kunnum fjallagörpum um óbyggðir landsins. Og allt þar til heilsan fór að bila hélt hún hætti sínum að fara í útilegur þegar tækifæri gafst. Fullfrísk var hún og létt á fæti fram yfir sjötugt. Á síðari árum varð garðrækt tómstundagaman hennar. Sigur- björg gerði óræktarlegt svæði við heimili sitt á Laugavegi að hinum prýðilegasta gróðurreit. Lagði túnþökur, gangstéttarhellur og smíðaði grindverk. Vilji og seigla voru önnur aðaleinkenni hennar. Okkur, sem lifum Sigurbjörgu, er hún eftirminnileg, þjóðleg pers- óna. Slíku fólki sem ræktar sinn reit fer nú fækkandi. Fram á síð- ustu ár fylgdist Sigurbjörg með því sem gerðist í þjóðmálum. Tók afdráttarlausa afstöðu með því sem horfði til framfara. Jafnvel dirfskufullum hugmyndum kvennaframboðs og siðbótar- manna í stjórnmálum. Ódeiglynd- ið og hispursleysið voru hennar skýrustu einkenni á einkar þjóð- lega vísu. Við aðstandendur þökkum starfsfólki í Hátúni 10B mjög góða umönnun það tæpa ár sem Sigur- björg dvaldi þar. Auk þess vil ég sérstaklega þakka Sóleyju og Jak- obínu Úlfsdóttur þá umhyggju sem þær sýndu Sigurbjörgu í veik- indum hennar. Sigurbjörg hélt alla tíð mikið uppá Bólu-Hjálmar. Mér þykir því við hæfi að ljúka þessum kveðjuorðum með kvæð- isbroti eftir hann. Fyrir handan hel og bleika gröf fyrirheit um friðland stöðugt greiðist, fortjald milli þcss og vor þó breiðist, er þar lífið aðalheillagjöf. Ó, þar vcrður vinafundur sá, heimsins engin hér við jafnast gleði, heyrn og sjón það aldrei grípa réði, hvað til búið hefir guð oss þá. María Anna Þor.steinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.