Morgunblaðið - 06.03.1984, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIð’ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984
Jafntefli Mersey-liðanna en
United lék sér að Aston Villa
Morgunblaöiö/Símamynd AP
• Peter Fox, markvörður Stoke, kastar sér á knöttinn áöur en Mark Falco nær til hans í leiknum á
laugardag. Fox varö aö hiröa knöttinn einu sinni úr netinu hjá sér — eftir aö Falco haföi skoraö úr
vítaspyrnu.
Frá Bob Hennessy,
fréttamanni Morgunblaðsins
é Englandi, og AP.
LIVERPOOL hefur nú aðeins
tveggja stiga forskot á Manchest-
er United eftir leiki helgarinnar í
1. deildinni ensku. Liverpool
geröi jafntefli, 1:1, í Merseyside
„derby“-leiknum viö Everton á
Goodison Park en Manchester-
liöiö sigraði Aston Villa örugg-
lega 3:0 á útivelli. Nottingham
Forest er enn í þriöja sæti þrátt
fyrir tap fyri Wolves — neðsta lið-
inu.
Áhorfendur á Goodison Park
voru rúmlega 51.000 og uröu þeir
vitni að einum besta innbyröis-
leik Liverpool-liðanna i mörg ár.
Liverpool haföi tögl og hagldir í
fyrri hálfleiknum og náöi forystunni
sanngjarnt á 19. mín. Craig John-
ston, sem átti frábæran leik á
laugardag, lék á tvo varnarmenn
Everton úti viö hliöarlínu vinstra
megin — gaf síöan glæsilega fyrir
markiö þar sem lan Rush stökk
hærra en bakvörðurinn John Bai-
ley og skallaöi örugglega í horn
marksins. 33. mark Rush í vetur.
Sammy Lee varö fyrir meiöslum
í fyrri hálfleiknum — brákaöi rif, og
kom Steve Nicol inn á i hans staö.
Ekki var mikiö um marktækifæri í
fyrri hálfleiknum — Steve Nicol átti
gott skot sem Southall varöi mjög
vel og Adrian Heath skallaöi yfir
Liverpool-markiö eftir hornspyrnu.
Til seinni hálfleiks komu leik-
menn Everton mun ákveðnari en
þess fyrri. Liverpool bakkaöi tals-
vert — reyndi aö halda fengnum
hlut en þaö tókst ekki. Everton
fékk víti á 77. mín. Vafasamur
dómur; dómarinn taldi Alan
Kennedy hafa ýtt Andy Gray er
fyrirgjöf kom inn í teig. Hvaö um
þaö: Bruce Grobbelaar, sem lék
mjög vel, geröi sér lítið fyrir og
varöi spyrnu Graeme Sharp. Bruce
sveif eins og köttur niður í horniö
og hélt knettinum örugglega.
Stuttu síðar var Graeme Souness,
fyrirliöi Liverpool, kominn einn inn
fyrir vörn Everton, en John Bailey
greip í hann og fékk Liverpool
aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
Ekkert varö úr aukaspyrnunni —
en Everton var heppiö þarna.
Souness var að komast í dauöa-
færi er brotiö var á honum. Bailey
var bókaður fyrir brotiö.
Einn leikmanna Liverpool var
bókaöur — Mark Lawrenson fyrir
brot á Graeme Sharp sem braust
upp kantinn og var aö komast á
auðan sjó.
Jöfnunarmark Everton kom svo
á 85. min., þremur mín. eftir aö
Souness haföi veriö kominn inn
fyrir hinum megin. Eftir góöa sókn
Everton skallaði Graeme Sharp
boltann inn í teiginn til Alan Harper
sem skoraði með föstu skoti fram-
hjá Grobbelaar. Harper haföi kom-
iö inná sem varamaöur í fyrri hálf-
leiknum. Hann er fyrrum leikmaöur
meö Liverpool — en náöi ekki aö
tryggja sér sæti í aðalliði félagsins
og var seldur til Everton í fyrra.
Góður sigur Uníted
Manchester United lék sérlega
vel gegn Aston Villa í Birmingham
og 3:0 sigurinn heföi allt eins getaö
oröiö talsvert stærri. Remi Moses
skoraöi fyrsta markiö á 17. mín.
meö föstu skoti frá markteig og
Norman Whiteside geröi annaö
markiö af stuttu færi eftir horn-
spyrnu Ray Wilkins snemma í
seinni hálfleik. Paul McGrath, sem
kom inn á sem varamaöur fyrir
Kevin Moran, átti skalla í þverslá
Villa-marksins og Remi Moses
skot í stöng áöur en Bryarí Robson
geröi þriöja markið meö glæsilegu
þrumuskoti. Spink í markinu sá
ekki knöttinn fyrr en hann söng í
netinu fyrir aftan hann. Áhorfendur
voru 32.374. „Bryan Robson
stjórnaöi þessari sýningu — hann
er frábær f þessari stöðu," sagöi
Tony Barton, stjóri Aston Villa, eft-
ir leikinn. „Mér líkar mjög vel svo
framarlega," sagöi Robson sjálfur
— en undanfariö hefur hann leikiö
mun framar á vellinum en áöur;
nánast sem þriöji framherjinn. Ron
Atkinson taldi Ray Wilkins hafa
veriö besta mann vallarins í leikn-
um. Atkinson kom meö ráölegg-
ingu til Bobby Robson, landsliös-
þjálfara Englendinga, eftir leikinn:
„Ég er meö lausnina á vali miövall-
arleikmanna í landsliöiö. Veldu
tríóið mitt, Bryan Robson, Ray
Wiikins og Remi Moses, bættu
fjóröa manni viö — og þá hefuröu
ákjósanlega blöndu á miöjunni!"
McGarvey skoraði
Scott McGarvey, skoski fram-
herjinn sem Manchester United
lánaöi til Wolves í einn mánuö fyrir
helgina, byrjaöi vel hjá félaginu.
Hann skoraði sigurmarkið gegn
Nottingham Forest á síöustu mín-
útu leiksins. Skot hans fór af Paul
Hart, varnarmanni Forest, í netið.
„Hroöaleg byrjun okkar í vetur
gerir þaö aö verkum aö viö eigum
mikið verkefni framundan viö aö
reyna aö halda sæti okkar í deild-
inni," sagöi Graham Hawkins,
stjóri Ulfanna, eftir leikinn. Leik-
menn Forest geta aðeins sjálfum
sér um kennt aö hafa ekki sigraö
— þeir fengu fjölda tækifæra til aö
skora en þaö tókst ekki. Áhorfend-
ur: 10.476.
Þeir gömlu góðir
„Þessir gömlu strákar eru báöir
afburöa knattspyrnumenn," sagöi
John Lyall, framkvæmdastjóri
West Ham, himinlifandi, eftir sigur-
inn á Ipswich á Portman Road.
„Gömlu strákarnir" eru Billy Bonds
(37 ára) og Trevor Brooking (35
ára), en þeir komu báöir inn í liöiö
aö nýju á laugardag. Brooking hef-
ur ekki getaö leikiö síöastliönar
sex vikur vegna meiösla. Paul Hil-
ton, miövöröurinn sem West Ham
keypti frá Bury fyrir 85.000 pund á
dögunum, skoraöi sitt fyrsta mark
fyrir félagiö á 4. mínútu og Tony
Cottee bætti marki viö snemma í
seinni hálfleik. Á 57. mín. spyrnti
Phil Parkes, markvöröur West
Ham, fram völlinn — boltinn
skoppaði yfir vörn Ipswich — og
Tony Cottee náöi honum fyrstur.
Hann var fljótur að átta sig og not-
aöi tækifærið vel. Skoraöi sitt ann-
aö mark og þriöja mark West
Ham. Ahorfendur voru 17.297.
Ipswich var í 9. sæti deildarinnar
í nóvember en er nú komið í 4.
neösta sæti. „Sjálfstraust okkar er
fariö út í hafsauga,“ sagöi Bobby
Ferguson, framkvæmdastjóri liös-
ins, eftir leikinn.
Skoraði með fyrstu
snertingunni
David Puckett kom inn á sem
varamaður hjá Southampton gegn
Norwich er sjö mín. voru til leiks-
loka og skoraöi sigurmark ieiksins
meö sinni fyrstu snertingu! David
Armstrong náöi forystu fyrir
Southampton á 12. mín. en John
Deehan jafnaöi fyrir Norwich er 14
mín. voru liðnar af síöari hálfleik.
Áhorfendur voru 17.456.
Leicester vann sinn stærsta
heimasigur í vetur er Watford kom
í heimsókn. Andy Peake skoraöi
fyrir heimaliöiö en Wilf Rostron
jafnaöi. Watford lék aöeins meö tíu
menn mikinn hluta seinni hálfleiks-
ins. Nigel Callaghan haföi áöur
þurft aö fara út af og varamaöur
liösins því kominn inná er Steve
Sims haltraöi af velli.
Andy Peake, Gary Lineker og
Alan Smith geröu mörk Leicester í
seinni hálfleiknum. Áhorfendur:
13.295.
Falco skoraði —
meíddist seinna
Mark Falco tryggöi Tottenham
sigur á Stoke (1:0) á White Hart
Lane meö marki úr vítaspyrnu á
38. min. Glenn Hoddle lék ekki
meö Spurs vegna meiösla. Alan
Brazil fékk þrjú góö marktækifæri
í leiknum en tókst ekki aö skora —
Keith Burkinshaw sagöi aö Brazil
yröi í fremstu víglínu liösins á
morgun ásamt Steve Archibald í
Evrópuleiknum gegn Austria Vín.
Áhorfendur voru 18.271 og hafa
þeir ekki veriö færri á leik á White
Hart Lane í vetur. Mark Falco
meiddist og gæti oröiö frá keppni í
þrjár vikur.
Arsenal yfirspilaöi Sunderland á
Roker Park en fékk engu aö síöur
aðeins eitt stig úr viöureigninni.
Gary Rowell jafnaöi (2:2) á síðustu
mínútu meö marki úr vítaspyrnu.
Tommy Caton braut þá á Lee
Chapman, fyrrum leikmanni Ars-
enal. Sunderland haföi náö forystu
í leiknum á 7. mín. en eftir þaö átti
Arsenal leikinn. Charlie Nicholas
jafnaöi úr víti og Tony Woodcock
geröi annaö mark liösins á 15.
sekúndu seinni hálfleiksins meö
firnaföstu skoti af 35 metra færi.
Áhorfendur: 15.370.
Litlu munaöi aö Notts County
ynni Albion — Nicky Cross jafnaði
fyrir síðarnefnda liöiö í lokin. Trev-
or Christie skoraði fyrir County úr
víti á 65. mín. Áhorfendur: 7.373.
Howard Gayle skoraöi eina
mark leiksins, er Birmingham vann
Coventry, eftir mikinn einleik á 26.
mín. Birmingham hefur nú leikið 12
leiki í röö án taps. Gera varö hié á
leiknum í tvær mínútur vegna þess
aö áhorfendur ruddust inn á völl-
inn. Sigur Birmingham var mjög
sanngjarn. Áhorfendur: 13.705.
Gífurleg harka
í Luton
Leikur Luton og QPR var mjög
slakur og mikil harka í honum.
Jeremy Charles var borinn af
velli eftir haröa aöför Brian Horton,
fyrirliöa Luton, aö honum. Terry
Fenwick, fyrirliöi QPR, sá um aö
hefna fyrir Charles — hann „takl-
aöi“ Horton á grimmúölegan hátt:
„Brian er heppinn aö hægri fótur-
inn er enn á sínum staö,“ sagði
David Pleat, framkvæmdastjóri
Luton, á eftir. Pleat var ekki hrifinn
af leikaöferö Rangers — en liöiö
beitir óspart rangstööutaktík. „Ég
léti lið mitt aldrei leika svona —
þetta er óskaplega pirrandi fyrir
áhorfendur.“ Terry Venables, stjóri
QPR, sagöi einungis: „Þaö er ekki
hægt aö skemmta fólki i hverri
viku.“ Áhorfendur: 11.922.
Gordon Davies, markaskorarinn
mikli hjá Fulham, skoraði sitt 100.
deildarmark gegn Newcastle.
Markiö geröi hann meö stórglæsi-
legu skoti frá vítateig. Fulham fékk
aukaspyrnu — boltanum var rennt
til Davies sem sneri baki í markið.
Hann sneri sér eldsnöggt viö og lét
skotiö ríöa af. „Fallegasta mark
sem ég hef séö í vetur," sagöi
Malcolm „Super-Mac“ McDonald,
stjóri Fulham. Kevin Keegan geröi
annaö mark Newcastle — Terry
McDermott fór upp aö endamörk-
um og gaf fallega sendingu á fjær-
stöngina þar sem Keegan stökk
upp og skallaöi í netiö. 5.000 aö-
dáendur Newcastle fylgdu liðinu til
London.
Chelsea og Sheffield Wednes-
day gefa ekkert eftir í baráttunni
um 1. deildarsæti næsta vetur.
Kerry Dixon skoraöi sitt 24. mark
fyrir Chelsea í vetur gegn Oldham
— en áhangendur liösins eru samt
ekki ánægöir meö hann, hann fer
illa meö svo mörg marktækifæri.
„Faröu aftur til Reading," sungu
þeir hástöfum!
— SH
1. deild
Aston Villa — Man. Utd 0—3
Covantry — Birmingham 0—1
Everton — Liverpool 1—1
Ipswich — Woat Ham 0—3
Leiceater — Watford 4—1
Luton — QPR 0—0
Notta C. — WBA 1—1
Southampton — Norwich 2-1
Sundorland — Araanal 2—2
Tottenham — Stoko 1—0
Wohrea — Notta. For. 1—0
Staðan
Livarpool 30 17 9 4 48—21 60
Man. Utd. 30 16 10 4 57—31 58
Nott. For. 30 16 5 9 54—34 53
Weat Ham 30 16 5 9 49—31 53
Southampton 29 15 7 7 37—25 52
QPR 29 14 5 10 45—26 47
Tottenham 30 12 8 10 47—45 44
Norvrich 30 11 9 10 35—34 42
Watford 30 12 5 13 57-58 41
Luton 20 12 5 12 42—43 41
Aaton Villa 28 11 8 10 43—45 41
Araenai 30 11 6 13 48—42 39
Coventry 29 10 9 10 38—38 39
Birmingham 30 11 6 13 31—34 39
Everton 28 9 to 9 28—32 37
Leiceater 29 9 8 12 48-50 35
Sunderland 29 8 10 11 30—41 34
WBA 30 9 6 16 33—49 33
Ipawich 29 9 5 15 36—43 32
Stoke 30 7 8 15 27—50 29
Notta C. 29 5 7 17 37—59 22
Wotvea 29 5 7 17 23—58 22
2. deild
Barnatey — Sheff. Wed 0—1
Blackburn — Charlton FreataO
Cardíft — Middelabrough 2—1
Cartiale — Swansea 2—0
Cheleea — Oldham 3—0
C. Palace — Leede o—o
Oerby — Cambridge 1—0
Fufham — Newcaatle 2—2
Qrímaby — Portemouth 3—4
Hudderstield — Bríghton 0—1
Man. CHy — Shrewabury 1—0
Staðan
Chelaea 31 17 10 4 63—32 61
Sheff. Wed. 29 18 7 4 58—26 61
Newcastle 29 17 4 8 58—41 55
Man. City 30 16 7 7 48—31 55
Grimsby 30 15 10 5 45—32 55
Carlisle 30 14 11 5 35-19 53
Blackburn 28 12 12 5 36—31 48
Charlton 29 13 7 9 38—38 46
Brighton 30 11 7 12 47—43 40
Huddersfield 29 10 10 9 38—37 40
Leeda 29 11 7 11 39—39 40
Portamouth 30 11 5 14 52—45 38
Middlesbro. 30 9 9 12 31—32 36
Shrewabury 29 9 9 11 31-38 36
Cardiff 29 11 2 16 36—46 35
Fulham 30 8 10 12 40—40 34
Barnaley 29 9 6 14 40—41 33
Oldham 30 9 8 15 30—50 33
C. Palace 29 6 8 13 29—36 32
Derby 30 7 7 16 27—53 28
Swanaea 30 4 6 20 24—57 18
Cambrídge 30 2 8 20 21—57 14
3. deild
Bournemouth — Walsall 3—0
Bradford — Oxford 2—2
Bristol B. — Plymouth 2—0
Exeter — Gillingham 0-0
Hull — Botton 1—1
Lincoln — Newport 2—3
Millwall — Rotherham 2—0
Port Vate — Brentford 4—3
Sheff. Utd. — Orienl 6—3
Southend — Burntey 2—2
Wigan — Scunthorpe 2—0
Wimbledon — Preston 2—2
4. deild
Blackpool — Wrexham 4—0
Bury — Colcheater 1—1
Cheater — Hartlepool 4—1
Crewe — Halilax 6—1
Oarlington — Hereford 0—0
Doncaster — Chesterfield 2—1
Manafield — Reading 2-0
Paterborough — Rochdale 2—0
Swíndon — Tranmere 1—1
Torguay — Northampton 2—1
York — Bristot C 1—1