Morgunblaðið - 06.03.1984, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 06.03.1984, Qupperneq 40
EUROCARD .- - J SIAÐFEST lÁNSTRAUST ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Sullaveikitilfelli greint í sjúkrahúsinu á Akureyri Landlæknir lætur í ljós ótta um fleiri slíkar sýkingar Sullirnir, sem fjarlægðir voru úr manninum á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir um þremur vikum, eru nú geymdir í formalíni að Keld- um og þar tók Kristján Ein- arsson, Ijósmyndari Morgun- blaðsins, þessa mynd í gær. Stærð þeirra má ráða af eldspýtustokknum, sem sett- ur var á milli formalíns- krukkanna til samanburðar. SDLLAVEIKI greindist í fullorönum manni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri nýlega. I samtali við Mbl. sagði maðurinn, sem er 63 ára sjó- maður, að hann hefði ekki vitað að hann gengi með sull fyrr en hann hafi komið á sjúkrahúsið vegna ann- arrar aðgerðar, sem hann þurfti að gangast undir. I'egar farið var að athuga manninn nánar, m.a. með myndatökum, kom í Ijós að hann gekk með sull sem síðan var fjar- lægður með skurðaðgerð fyrir þrem- ur vikum. Manninum heilsast vel eftir aðgerðina. Hann kvaðst ekki hafa kennt sér neins þess meins sem hægt væri að rekja til sullaveikinnar nema ef vera skyldi að hann var oft með verki í bakinu ofantil. Maðurinn er fæddur og uppalinn á Snæfellsnesi og hefur verið á sjó síðan um fermingu. Hann kvaðst ekki vita hvar hann gæti hafa smit- ast. Þrifalega hafi verið farið með hunda, þar sem hann ólst upp, þeir aldrei hafðir inni í bæ og þaðan af síður inni í eldhúsi. Eftir fermingu kvaðst hann hafa haft sáralítið saman við hunda að sælda. Hundur hafi ekki verið á heimili hans, né heldur á þeim bátum sem hann hafi verið skipverji á. Hann kvaðst hafa farið fjórum sinnum á fiskibátum til erlendra hafna og þá staðið við í rúman sólarhring í hvert skipti og tæpast komist í land, svo varla væri hægt að rekja smit til þeirra ferða. Er Mbl. leitaði álits Ólafs Ólafs- sonar, landlæknis, vegna sjúkdóms- greiningarinnar á Akureyri kvaðst hann ekki vilja fjalla um einstök sjúkdómstilfelli. Almennt væri það um sullaveiki að segja að hægt væri að koma í veg fyrir hana með hundahreinsun. Nú væri trúlega af sem áður var þegar hundahreinsun hafi trúlega verið framkvæmd í samræmi við gildandi lög. í því efni væri víða pottur brot- inn núna. Hann kvað heilbrigðisyf- irvöld hafa varað við þeim afjeiðing- um sem það gæti haft í för með sér og taldi hættu á sýkingum í fram- tíðinni. Landlæknir kvaðst telja mjög brýnt að lögum um hundahald og hundahreinsun yrði breytt á þann veg að þau sköpuðu sem mest öryggi fyrir heilbrigði manna ef ekki væri hægt að framfylgja þeim eins og þau væru. Sjá í miðopnu: Síðast dó maður úr sullaveiki á íslandi 1961. Skæruverkfall Dagsbrúnar við Reykjavíkurhöfti í dag VERKAMENN við Sundahöfn í Reykjavík munu í dag leggja niður vinnu til að leggja áherslu á kröfur verkamannafélagsins Dagsbrúnar um viðræður við Vinnuveitendasam- bandið um nýjan kjarasamning, skv. upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. Munu aðgerðirnar, sem eiga að hefjast um eða eftir hádegið, vera hugsaðar sem svar við „varnarað- gerðum", er vinnuveitendur ræða nú í sínum hópi; þ.e. afstöðu VSÍ til þeirra félaga, sem hafa fellt nýgerðan heildarkjarasamning VSÍ og Alþýðusambands fslands. Það mál verður m.a. rætt á sam- bandsstjórnarfundi VSf, sem hefst kl. 14 í dag. Af hálfu VSI mun ekki verða leitað eftir öðrum viðræðufundi við stjórn og samninganefnd Dagsbrúnar, skv. upplýsingum Mbl. Fundur aðila í síðustu viku var haldinn að beiðni Dagsbrúnar. Þar lagði félagið fram nýjar kröf- ur sínar, sem var hafnað af hálfu Stefnir í 1.845 millj. kr. rekstrarhalla fjárlaga 1984: Þar af skrifast 650 milij. kr. á heilbrigðis- og tryggingamál A AUKAFUNDI ríkisstjórnarinnar í gærmorgun, þingflokksfundum stjórn- arliða síðdegis og fundi fjármálaráðherra með fulltrúum stjórnarandstöðu- flokkanna í gær var kynnt nýútreiknuð staða fjárlaga ársins 1984. Fjárlögin stefna að óbreyttu í 1.845 milljón króna greiðsluhalla samkvæmt heimildum Mbl., auk þess sem færa þarf til 325 millj. kr. innan fjárlagarammans vegna loforða ríkisstjórnarinnar um bætur til hinna verst settu í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Samkvæmt heimildum Mbl. eru stærstu liðirnir í þeim umfram- greiðsluhalla sem nú stefnir í 650 milljónir króna til heilbrigðis- og tryggingamála. Vanáætlaðar sjúkratryggingar samkvæmt nýj- um útreikningum Tryggingastofn- unar ríkisins nema 350 millj. kr., þar af vantar á annað hundrað millj. kr. til greiðslu lyfja, þrátt fyrir að upphæðin hafi verið tvö- földuð á fjárlögunum frá fyrra ári. 300 millj. kr. liggja aftur á móti í þvi, að ekki hafa komið fram nein- ar hugmyndir um sparnað í heil- brigðis- og tryggingakerfinu sem reiknað var með að þeirri upphæð við frágang fjárlaga. Þá kom mönnum á óvart sam- kvæmt heimildum Mbl., að 150 millj. kr. vantar upp á frá fjár- lagaafgreiðslunni til að mæta kostnaði við rekstur embætta sýslumanna og bæjarfógeta. Af öðrum liðum má nefna að 200 millj. kr. eru taldar vanáætlaðar til ýmissra útgjaldaliða. Útflutn- ingsbætur eru taldar 120 millj. kr. of lágar á fjárlögunum, 80 millj. kr. þarf aukalega til niðurgreiðslu rafhitunarkostnaðar, en heimild er fyrir þeirri upphæð frá fyrra ári. Sú upphæð var þá notuð til jöfnunar hallarekstri og kemur hún því til viðbótar þeim greiðslu- halla sem í stefnir. Þá hafa til viðbótar komið á daginn gamlar skuldir ríkissjóðs, sem ekki lágu fyrir við afgreiðslu fjárlaganna. Til að mynda fellur í gjalddaga 130 millj. kr. lán í ár, sem ríkisábyrgð var fyrir vegna loðnudeildar verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, og ríkissjóður verður að greiða. Af öðrum slíkum lánum má nefna að Slippstöðin á Akureyri var látin taka lán til smíði skips fyrir Grænhöfðaeyja, sem ríkissjóður þarf nú einnig að borga. VSÍ, enda mun vera fullur ásetn- ingur framkvæmda- og sambands- stjórna Vinnuveitendasambands- ins, að fara ekki út fyrir samning- inn, sem gerður var við ASÍ 21. febrúar sl. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var vinnustöðvun Dagsbrúnarmanna hjá Mjólkur- samsölunni i Reykjavík aðeins fyrsta „skæruverkfallið", sem Dagsbrún hyggst beita til að knýja á um samninga. Vinnu- stöðvunin í Sundahöfn í dag er hugsuð sem samskonar þrýstiað- gerð. Fjórða stéttarfélagið hefur nú fellt samningana. Það var verka- lýðsfélagið Brynja á Þingeyri, sem felldi samninginn á fundi sínum á sunnudag með 9 atkvæðum gegn 8. Þrír sátu hjá. Þrjú önnur félög samþykktu samningana um helgina, Verslun- armannafélag Hafnarfjarðar, Landssamband vörubifreiðar- stjóra og Árvakur á Eskifirði — en samþykkt Árvakurs fylgdi munnleg viðbót þess efnis, að fé- lagið viðurkenndi ekki að nokkur félagsmaður skyldi hafa lægri laun en 12.660 krónur. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar með verkalýðsfélögunum í Vestmannaeyjum, sem felldu samninginn einnig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.