Morgunblaðið - 07.03.1984, Síða 2

Morgunblaðið - 07.03.1984, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 Umræður um lausnir á fjárlagadæminu: Skattar og skyldusparnaður í stað kostnaðarhlutdeildar? Öskubuska frumsýnd íslenzki dansflokkurinn frumsýnir í Þjóðleikhúsinu í kvöld ballett- inn „Öskubusku" við tónlist eftir Prokofíev. Aðalhlutverkin dansa Ásdís Magnúsdóttir og franski ballettdansarinn Jeanyves Lori- miou. Myndin er tekin af þeim á æfingu í gær. Morgunblaðið/ Friðþjófur. Patreksfirðingar um kvótakerfið: „Einhver mestu mistök í sögu útgerðar á íslandia — flotinn bundinn í sex mánuði eða lengur á þessu ári Fjármálaráðherra, Albert Guð- mundsson, gerir Alþingi grein fyrir nýjum útreikningum á stöðu fjárlaga á Alþingi á morgun, fimmtudag. Eins og Mbl. hefur skýrt frá, stefna fjárlögin í 1.845 millj. kr. greiðsluhalla að óbreyttu. í umræðum í þingflokk- um stjórnarliða og í ríkisstjóm hafa leiðir til að mæta þessum vanda mjög verið til umræðu, en sitt sýnst hverjum. Samkvæmt ísadrði, 6. mars. TOGARINN Páll Pálsson frá Hnífsdal landar í dag á ísafirði 190 tonnum af þorski eftir sex daga veiðiferð. Þar af fékk togarinn 70 tonn síðasta sólarhringinn. Skip- stjóri á Páli Pálssyni er Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Hann sagði í viðtali við fréttaritara Morg- unblaðsins á ísafirði í dag, að þeir hefðu fylgt mjög stórri fiski- og loðnugöngu af 270 faðma dýpi norð- ur af Halanum og vestur á Kópa- grunnið. „Það er gífurlegt magn af fiski þarna," sagði Guðjón. „Eg giska á, að um það bil 400.000 lestir af loðnu séu nú þarna á svæðinu og að álíka magn af þorski fylgi henni eftir. Núna eru um 20 togar- ar á þessum slóðum en líklegt er að þeim fari mjög fjölgandi." Læknar semja við ríki og borg LÆKNAR á sjúkrahúsum undirrit- uðu í gær nýjan kjarasamning við ríki og borg. Samningurinn er sam- hljóða nýgerðum samningi við BSRB, þ.e. um 5% launahækkun strax, 2% 1. júní, 3% 1. september og 3% I. jánúar á næsta ári, skv. upplýs- ingum Þorsteins Geirssonar, for- manns samninganefndar fjármála- ráðuneytisins. Samningurinn var undirritaður með fyrirvara Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Is- lands um samþykki félagsfunda og fyrirvara samninganefndar Reykjavíkurborgar um samþykki borgarráðs. Samningurinn er gerður til tveggja ára skv. lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. heimildum Mbl. virðast menn þó mjög vera að heykjast á því, að neytendur opinberrar þjónustu taki á sig aukna kostnaðar- hlutdeild, og virðast auknar skattaálögur eða skyldusparnaður helst vera nefnd til mótvægis. f umræðunni hefur mest borið á hugmyndum um niðurskurð, sparnað í ríkiskerfinu, aukna kostnaðarhlutdeild og skatt- lagningu. Varðandi aukna Aðspurður um aflakvótann sgði Guðjón, að þessi fiskur þarna sýndi að endurskoða þyrfti kvót- ann, því hann væri allt of lágur. „Við erum búnir að fá um 600 tonn af þorski frá áramótum af þeim 1750 tonnum, sem við megum veiða. Við þurfum aðeins sex svona túra í viðbót til að fylla þorskkvóta ársins," sagði Guðjón að lokum. - Úlfar Guðjón A. Kristjánsson forseti FFSÍ og Bernharð Överby, sem einnig er skipstjóri á Páli Pálssyni. MorgunblaðiA/ (lf»r kostnaðarhlutdeild hefur ekki einvörðungu verið rætt um kostnaðarhlutdeild í sjúkra- húsvistun, sem þegar hefur ver- ið tilkynnt að ekkert verði af, heldur af allri opinberri þjón- ustu. Þeir sem afskrifað hafa aukna kostnaðarhlutdeild og telja meiri niðurskurð vart framkvæmanlegan hafa helst leitt hugann að aukinni skatt- lagningu. Þar ræða menn ann- ars vegar hækkun tekjuskatts- stigans en hins vegar skyldu- sparnað. Þá telja menn ekki óraunhæft, ef ekki tekst að ná fram áætluðum sparnaði í heil- brigðis- og tryggingakerfinu, að til einhvers konar álagningar tryggingargjalds verði að koma. Þar gæti orðið um beinar greiðslur, nefskatt, að ræða, skatt bundinn tekjum eða breyt- ingar á sjúkratryggingargjaldi. í umræðunni virðast menn þó vera sammála um að vandinn verði ekki leystur með auknum erlendum lántökum. Nýjar er- lendar lántökur eru nú áætlaðar um 58% af þjóðarframleiðslu, en ríkisstjórnin hefur marglýst yfir því markmiði sínu að ekki verði farið yfir 60%. Hvert 1% í nýjum erlendum lántökum með viðmiðun við þjóðarframleiðslu er talið nema 640 millj. kr., þannig að 1.845 millj. kr. vand- inn mun nema um 3%. Patreksfirdi, 5. mars. Á NÆSTUNNI er fyrirsjáanleg stöðv- un vertíðarbáta hér á staðnum er þeir hafa fiskað upp í kvóta sinn. Ef svo fer sem horfir mun það hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir byggðarlagið, er liggur vel við einum bestu fiskimiðum landsins. Þetta kom m.a. fram á fjölmenn- um borgarafundi um reglugerð um stjórnun botnfiskveiða 1984, kvóta- skiptingu og afleiðingar hennar, sem haldinn var í Hraðfrystihúsi Pat- reksfjarðar sl. sunnudag, 4. mars. Þar kom fram mikil óánægja með þá kvótaskiptingu fiskveiða, er ákveðin hefur verið. Margir tóku til máls á fundinum. Kom m.a. fram í máli manna, að með núgildandi kvóta- sl. féllst ríkisstjórnin á að með samningum ASÍ og VSÍ sé nokkurn veginn leiddur til lykta mjög mikil- vægur þáttur í efnahagsmálum. Þess vegna er mjög viðkvæmt að gera sér- samning við það stéttarfélag sem hefur forustu um andstöðu við þessa samninga og þar með við stefnu rík- isstjórnarinnar. Ég hlaut því að lýsa mig ósammála þessum samningi og sérstaklega að hann skuli gerður án samráðs við ríkisstjórnina. Þá legg ég áherslu á það í lokaorðum bókun- arinnar að útfærsla og framkvæmd málsins verði rædd í ríkisstjórninni, áður en nokkuð verði ákveðið, svo skiptingu hafi verið gerð einhver mestu mistök í sögu íslenskrar út- gerðar; með fljótfærnislegum að- gerðum sé kippt stoðunum undan aðalatvinnuvegi byggðarlaga, er byggja afkomu sína á botnfiskveið- um. Ekki hafi verið tekið tillit til hins mannlega þáttar, kvótaskipt- ingin sé í raun mikið áfall fyrir hinn sjálfstæða og framsækna íslenska sjómann. Á fundinum var mikil samstaða um að við svo búið mætti ekki sitja. Voru fjórir menn kjörnir á fundin- um til að kynna alþingismönnum byggðarlagsins, öðrum ráðamönnum og fjölmiðlum einhuga ályktun fund- arins. Skal sú kynning fara fram næstu daga og síðan verður í fram- unnt verði að ganga úr skugga um að þarna verði ekki um að ræða hluti sem áhrif hafa á almennan launa- markað." Steingrímur bætti því við að hann hefði átt ítarlegar viðræður við fjármálaráðherra, sem fullvissað hefði sig um að þetta væri einnig hans skilningur og að hann hygðist framkvæma samninginn nákvæm- lega á fyrrgreindan hátt. Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra sagði í tilefni bókunarinn- ar, að hún væri í sama anda og bók- un þingflokks Sjálfstæðisflokksins og að hann hefði ekkert við hana að athuga. haldi af því boðað til nýs fundar, þar sem undirtektir ráðamanna verða ræddar. Ályktun fundarins fer hér á eftir: „1. Fundurinn telur að ekki verði komist hjá skerðingu afla og minnk- andi sókn í fiskistofnana við Island. Þessa mestu auðlind þjóðarinnar verður að nýta með varúð og fullu tilliti til aðstæðna hverju sinni. 2. Með reglugerð um stjórnun botnfiskveiða 1984 er stigið örlaga- ríkt spor í þá átt að taka allt frum- kvæði af sjómönnum og útgerðar- mönnum og afhenda örfáum mönnum alla stjórn á íslenskum fiskveiðum. Hvað verður næst? 3. Á það skal bent, að aflaskerð- ingin kemur sérstaklega harkalega niður á Vestfirðingum, þar sem mik- ið stærri hluti vinnuaflsins vinnur beint við fiskveiðar og fiskvinnslu en í öðrum landshlutum. Sem dæmi um áhrif þessa fyrirkomulags á aflatak- mörkunum blasir við Patreksfirð- ingum eftirfarandi staðreynd: Nú þegar er fyrirsjáanlegt að einn vertíðarbáturinn fyllir kvóta sinn í þessum mánuði og aðrir skömmu síðar. Fullyrða má, að togarinn ljúki sínum kvóta um mitt ár þannig að flotinn verður bundinn í á að giska 6 mánuði og lengur. Sjá menn þá að hverju stefnir í atvinnu á staðnum. 4. Fundurinn skorar á íslensk stjórnvöld að kasta nú þegar frá sér kvótakerfinu og taka upp kerfi, sem byggist á takmörkunum á úthalds- tíma, sóknarþunga og svæðislokun- um. Það er ákveðin krafa fundarins, að tillit verði tekið til atvinnumögu- leika á hverjum stað og bent er á, að mörg byggðarlög hafa enga atvinnu- möguleika aðra en fiskvinnslu, sem byggist á botnfiski," segir að lokum í ályktun fundarins. — Fréttaritari. Bókun forsætisráðherra í ríkisstjórn: Framkvæmd Dagsbrúnarsamn- ings verði rædd í ríkisstjórninni FORSÆTISRÁÐHERRA, Steingrímur Hermannsson, lét bóka álit sitt á „Dagsbrúnarsamningi fjármálaráðherra, Alberts Guðmundssonar, á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun. Lýsti hann sig andvígan samningnum sem hann sagðist telja í andstöðu við stefnu ríkisstjórnarinnar. í lokaorðum sagðist hann fara fram á að útfærsla og framkvæmd samningsins verði rædd í ríkisstjórn, þannig að ekki verði um að ræða gjörð sem áhrif komi til með að hafa á almennan launamarkað. Forsætisráðherra sagði í gær, að í viðtali sínu við fjármálaráðherra hefði hann fullvissað sig um að hann hygðist fram- kvæma málið á þann hátt sem forsætisráðherra færi fram á í bókun sinni. Fjármálaráðherra sagði í viðtali við Mbl. í gær að hann hefði ekkert við bókun þessa að athuga. Forsætisráðherra lýsti bókuninni legt þegar um viðkvæm mál sé að svo í viðtali við Mbl.: „I upphafi segi ræða, að þau séu rædd í ríkisstjórn ég að virða beri forræði einstakra áður en ákvörðun er tekin. Með sam- ráðherra en hins vegar sé nauðsyr.- þykkt ríkisstjórnarinnar 21. febrúar Formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins: 190 tonn af þorski eftir 6 daga túr — giskar á 400 þúsund lestir af loðnu á svæðinu og álíka magn af þorski

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.