Morgunblaðið - 07.03.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
Nýtt hjartarafstuðs-
tæki í neyðarbifreið
SUrfsfólk BorgarspíUlans og neyðarbifrciðarinnar hjá hinu nýja hjarta-
rafstuöstæki sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins afhenti í gær. Á
myndinni eru talið frá vinstri: Logi Einarsson, Guðmundur Vignir
Óskarsson, Finnbogi Jakobsson, Erla Sigtryggsdóttir, Lilja Harðardóttir
og Þórir Kolbeinsson. Ljósm. Mbi. kee.
Reykjavíkurdeild Rauða kross
Islands afhenti í gær hjarta-
rafstuðstæki til notkunar í neyð-
arbifreiðinni sem starfrækt er
frá Borgarspítalanum.
Að sögn Ólafs Ólafssonar,
starfsmanns Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins, leysir
þetta nýja hjartarafstuðstæki
annað eldra og ófullkomnara
tæki af hólmi. Hann gat þess
að með tilkomu neyðarbifreið-
arinnar, sem starfrækt hefur
verið frá september 1982, og
starfsliði hennar hefði tekist
að bæta árangur af endurlífg-
unartilraunum í hjartastoppi
og árangurinn væri svipaður
því sem gerðist erlendis þar
sem slíkar neiðarbifreiðir eru
starfræktar.
Hið nýja hjartarafstuðstæki
mun eingöngu verða notað í
neyðarbílnum af sérþjálfuðum
læknum sem fara með bílnum
í útköll og verður tækið í um-
sjá sérfræðinga lyflækinga-
deildar Borgarspítalans.
Framtíð túrismans glæsileg í Kenýa
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi skeyti frá Ingólfi Guð-
brandssyni, forstjóra ferðaskrifstofunnar Útsýnar, þar sem hann var
staddur í Kenýa. Skeytið er svohljóðandi:
„Fleiri en íslendingar flýja vetur-
inn í Evrópu og flykkjast eins og
farfuglarnir suður í hitabeltið á
þessum tíma árs. Hér á Kenýa-
ströndinni er eilíft sumar og fullt af
Evrópubúum að stytta sér veturinn.
Þúsundir Þjóðverja, Breta, Frakka,
Svisslendinga, Austurríkismanna og
Itala fylla hvert einasta hótelher-
bergi hér á ströndinni um þessar
mundir svo að hvergi er gistingu að
fá. Að náttúrufari er Kenýa eitt feg-
ursta og merkilegasta land jarðar og
framtíð túrismans er óvíða glæsi-
legri. Fjársterk og framsýn fyrir-
tæki sjá þetta og nú um daginn
ákvað t.d. brezkt fyrirtaeki að leggja
30 milljónir sterlingspunda til
ferðaiðnaðarins í Kenýa með það
markmið fyrir augum, að auka ár-
legan ferðamannastraum um milljón
innan fimm ára. Opnun landamær-
anna til Tanzaníu, sem nýlega átti
sér stað, en í reynd kemst í fram-
kvæmd sunnudaginn 4. marz með
því að flugsamgöngur milli landanna
verða teknar upp að nýju, hefur
vafalaust áhrif til aukningar ferða-
laga til þessa heimshluta því að nú
gefst aftur kostur á að skoða stærstu
villidýrasvæði heimsins með heim-
sókn til beggja landanna í einni og
sömu ferð. Þó eru það baðstrendurn-
ar sem hafa mest aðdráttaraflið hér
eins og annars staðar, og veðurfarið.
Ekki hefur komið dropi úr lofti í
margar vikur, lofthitinn við strönd-
ina er 30 gráður á Celcius en sjávar-
hitinn 31 gráða."
Morgunblaðið sneri sér til Kristín-
ar Aðalsteinsdóttur hjá ferðaskrif-
stofunni Utsýn og spurðist fyrir um
það hvort skrifstofan hygðist beita
sér fyrir auknum ferðum íslendinga
til Kenýa. Kristín sagði að Útsýn
hefði boðið upp á ferðir til Kenýa
alltaf annað slagið á veturna, síð-
astliðin 10 ár. „Við vorum með mjög
vel heppnaða heimsreisu til Kenýa
árið 1982 og í þá ferð fóru um 100
manns. Við höfum mjög mikinn
áhuga fyrir því að benda fólki á
Kenýa og hjálpa því til að komast
þangað, því þetta er eitt yndisleg-
asta land veraldar," sagði Kristín.
„Fólk virðist hins vegar tregt til að
fara af stað. Við buðum heimsreis-
una óbreytta í október í fyrra og gát-
um ekki farið hana vegna þátttöku-
leysis. Við sendum hins vegar alltaf
eitthvað af fólki til Kenýa, sem ekki
fer í raunverulegar hópferðir. Það
fer með erlendum ferðaskrifstofum
og þá höfum við aðallega skipt við
Globetrotter, ferðaskrifstofu SAS og
einnig höfum við sent fólk beint í
ferðir sem við höfum pantað og
skipulagt. Þá eru einnig fleiri ferða-
skrifstofur sem eru með þessar ferð-
ir og það hefur alltaf farið eitthvað
af fólki á veturna, en aldrei í veru-
legu magni,“ sagði Kristín.
Aðspurð um ásókn fólks í ferðir
Útsýnar í sumar, sagði Kristín:
„Hún er mjög góð. Áætlunin okkar
kom út 12. febrúar og síðan hefur
verið mjög mikið að gera og mikið
pantað. Ég geri ráð fyrir því að nú
hafi pantað talsvert á annað þúsund
manns í sólarlandaferðir í sumar og
eftirsóttustu brottfarartímarnir og
gististaðirnir eru að bókast upp. Ef
þessi aðsókn og áhugi heldur áfram
er ég bjartsýn á sumarið," sagði
Kristín Aðalsteinsdóttir.
"HRLLINN ER flÐ VÍ^U ÖRLÍTIÐ
MEIRl EN É6 GERDIM) FYRIR"
Háskólatónleikar í kvöld
Arthur Franckenpohl og Vaclav
Nelhybel. Flytjendur eru: Lárus
Sveinsson, trompet, Jón Sig-
urðsson, trompet, Þorkell
Jóelsson, horn, William Greg-
ory, básúna og Bjarni Guö-
mundsson túba.
SJOTTU Háskólatónleikar á
vormisseri 1984 verða haldnir í
Norræna húsinu í kvöld klukkan
12.30.
Á efnisskránni eru verk fyrir
málmblásarakvintett eftir
Komið og yljið ykkur við arineld minninganna í Broadway nk. föstudagskvöld.