Morgunblaðið - 07.03.1984, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
Danmörk:
Varsjárbandalagið vill „frysta“ herútgjöld:
Sísta tillagan
af þeim öllum
— segir bandarískur embættismaður
BrUssel, 6. mars. AP.
RÍKISSTJÓRNIR Atlantshafsbandalagsríkjanna hafa enn engu svarað
ítrekaðri tillögu Varsjárbandalagsins um að bannað verði að auka herútgjöld
í báðum bandalögunum. Haft er þó eftir bandarískum embættismanni, að
þessi tillaga sé „síst allra“, sem um afvopnunarmál hafa verið gerðar.
„Tillagan gerir ráð fyrir, að
miðað sé við uppgefin fjárframlög
til hermála en ekki við raunveru-
lega vopnaframleiðslu," sagði
Kostnaður við
rannsóknir á „stjörnu-
stríðs“-búnaðinum:
Tuttugu og
sex millj-
arðar dala
Washington, 6. mars. AP.
Bandaríkjastjórn hefur greint
öldungadeild þingsins frá þvi að
kostnaður við rannóknir á mögu-
legum varnarvopnabúnaði í geimn-
um muni nema a.m.k. 26 milljörð-
um dala fram til ársins 1989.
Engar ákvarðanir um gerð
slíks búnaðar, sem hugsaður er
til varnar gegn eldflaugaárásum,
hafa verið teknar og ekki er víst
að af framkvæmdum verði. Ef fé
verður veitt til rannsóknanna
ætti að vera hægt að taka af-
stöðu til búnaðarins innan eins
til tveggja ára, og ákvörðun um
hann snemma á næsta áratug.
Hugmyndin um varnarbúnað í
geimnum hefur sætt mikilli
gagnrýni í Bandarikjunum og
verið nefnd „stjörnustríðs"-
áætlunin í háðungarskyni.
Richard D. Delauer, aðstoðar-
varnarmálaráðherra, sagði á
nefndarfundi í fulltrúadeildinni
að sérfræðingar stjórnarinnar
hefðu að undanförnu kannað
ýmsar hliðar hugmyndarinnar og
skipulagt rannsóknaáætlun
Hann greindi nefndinni frá ýms-
um þáttum þeirrar athugunar og
er ræða hans hið ítarlegasta sem
Bandaríkjastjórn hefur látið frá
sér fara um málið frá því að
Reagan forseti flutti hina svo-
nefndu „stjörnustríðs“-ræðu sína
fyrir ári.
bandaríski embættismaðurinn,
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, og evrópskur starfsbróðir hans
sagði, að í þessari tillögu væri
ekkert nýtt að finna nema ef hún
gæfi til kynna, að Chernenko væri
fúsari en fyrirrennari hans til
nýrra viðræðna um afvopnunar-
mál.
Að sögn bandaríska embætt-
ismannsins eiga tölur í fjárlögum
í austri og vestri ekkert sameigin-
legt nema nafnið eitt. Á Vestur-
löndum væru fjárlögin tekin til
meðferðar á þingi og í fjölmiðlum
en engu slíku væri til að dreifa í
kommúnistaríkjunum. „Þar verð-
um við að reiða okkur á misjafn-
lega áreiðanlegar athuganir og
gervihnattamyndir," sagði hann.
Afganistan:
Trúður í forsetaframboð
Trúður þessi, sem heitir Larry Harmon og er frá Toledo í Ohio-ríki,
greinir hér frá því að hann hyggist bjóða sig fram til embættis
forseta Bandaríkjanna. Ekki eru sigurlíkur hans taldar miklar.
Barist
af hörku
í Mið-
Ameríku
Managua og San Salvador, 6. mars. AP.
HERSVEITIR sandinistastjórnar-
innar í Nicaragua börðust í gær við
uppreisnarmenn á afskekktu svæði
í norðausturhluta landsins og stað-
hæfir hvor aðili um sig að mikið
mannfall hafi orðið í liði hins.
Bardaginn er talinn hafa haf-
ist þegar um 500 uppreisnar-
menn, flestir indíánar af Mis-
kito-ættflokkinum, komu til Nic-
aragua úr bækistöðvum sínum í
Hondúras. Indíánarnir eru and-
snúnir stjórninni í Managua sem
þeir segja að ofsæki sig fyrir að
vilja ekki sætta sig við marxískt
stjórnarform.
Hernaðaryfirvöld í nágranna-
ríkinu E1 Salvador segja að 50
skæruliðar og þrír hermenn hafi
fallið í átökum í austur- og mið-
héruðum landsins síðastliðnar
þrjár helgar.
Drengir gripnir á götuhornum
og neyddir í stjórnarherinn
Nýju Delhí, 6. m»rs. AP.
SOVÉSKA INNRÁSARLIÐIÐ í Afganistan og frelsissveitamenn draga nú að
sér vopn og vistir og er búist við miklum átökum í Panjshir-dal þegar vorar.
Stjórnvöld í Kabúl grípa nú á götuhornum unga drengi og eldri menn og
neyða í herinn eftir að herkvaðningarherferð, sem þau stóðu fyrir, hafði farið
út um þúfur.
Frelsissveitamenn eru mjög
sterkir í Panjshir-dal og þótt Sov-
étmenn séu með 105.000 manna lið
í landinu hefur þeim hingað til
ekki tekist að ná dalnum á sitt
vald. Frést hefur af miklum Iiðs-
og vopnaflutningum Sovétmanna
til dalsins og talið víst, að þeir
hyggi á nýja stórsókn þegar vorar.
Frelsissveitamenn vita líka á
hverju þeir eiga von og hafa því
einnig verið að draga að sér vistir
og vopn til að geta mætt sovésku
innrásarmönnunum.
í Panjshir-dal eru frelsissveita-
menn undir forystu Mohammed
Shah Masoud allsráðandi og er
haft eftir heimildum að honum
hafi tekist að koma á víðtæku
samstarfi við aðrar hreyfingar
Afgana, sem berjast fyrir frelsi
þjóðarinnar. Á slíkt samstarf hef-
ur nokkuð þótt skorta til þessa.
Ríkisstjórn Babrak Karmals
gerði nýlega mikið átak í því að fá
menn sjálfviljuga í herinn en nú
hefur verið hætt við þær tilraunir.
Þess í stað sitja hermenn fyrir
mönnum á götuhornum í Kabúl og
öðrum borgum, sem eru á valdi
stjórnarhersins, og neyða þá með
valdi til að ganga í herinn. 15 til 16
ára drengir eru gripnir þar sem til
þeirra næst og þess vegna hafa
margar fjölskyldur gripið til þess
ráðs að fela synina. Mæður í Kab-
úl efndu nýlega til mótmæla
vegna þessa og var þá fjölda 14
ára drengja sleppt. Að réttu lagi á
herskyldualdurinn að vera 19 ár.
Frelsissveitamenn hafa látið
mikið til sín taka í norður- og suð-
urhluta landsins að undanförnu,
ráðist á bílalestir stjórnarhersins
og Sovétmanna og á opinberar
byggingar. Sovétmenn hafa hefnt
þessa með því að gera loftárásir á
lítil þorp þar sem fjöldi óbreyttra
borgara hefur fallið í valinn.
Segist saklaus af
eldflaugarskotinu
Kaupmannahöfn, 6. marz. AP.
DANSKUR sjóliðsforingi var í dag
leiddur fyrir rétt fyrir að hafa skotið
eldflaug á röð orlofshúsa árið 1982.
Hann neitaði sakargiftum og hélt
Ladislav
Lis látinn
laus
Vín, 6. mars, AP.
LADISLAV Lis, einn af leiðtogum
tékknesku mannréttindasamtak-
anna ('harta 77, hefur verið látinn
laus eftir að hafa setið 14 mánuði í
fangelsi.
Lis, sem er 58 ára gamall, var
handtekinn snemma í janúar 1983
og fundinn sekur um „starfsemi
fjandsamlega ríkinu“. Hann hafði
þá verið í forystu mannréttisam-
takanna um skeið.
því fram, at þetta atvik hefði gerzt
sökum tæknigalla í stjórntæki eld-
flaugarinnar, en væri ekki sér að
kenna. Til allrar hamingju slasaðist
enginn, er eldflaugin þaut frá frei-
gátunni Peder Skram og féll ofan á
röð af orlofshúsum rétt fyrir norðan
Kaupmannahöfn. Sex af húsunum
eyðilögðust í sprengingunni og raörg
önnur urðu fyrir miklum skemmd-
um.
Það var Henning Olsen, 56 ára
gamall eldflaugasérfræðingur,
sem skaut eldflauginni á loft, en
óvart samkvæmt því, sem honum
segist sjálfum frá. Hefur hann
neitað að greiða sekt að fjárhæð
2.000 d.kr., sem honum var gert að
greiða samkvæmt úrskurði dönsku
herstjórnarinnar. Þar sem Dan-
mörk hefur ekki herdómstóla, var
málið lagt fyrir almennan dóm-
stól. Hvílir mikil leynd yfir réttar-
höldunum, þar sem öll skjöl varð-
andi eldflaugina, svo sem teikn-
ingar, eiga að fara leynt. Eldflaug-
in var framleidd af McDonnel Búist er við miklum átökum milli sovéska innrásarliðsins og afgangskra
Douglas-verksmiðjunum í Banda- frelsissveitamanna með vorinu, en þessi mynd sýnir brunna, sovéska bryn-
ríkjunum. vagna. Sovétmenn hefna árásanna jafnan með loftárásum á lítil þorp.
Ósló:
Ræninginn reyndist
vera lögreglumaður
ÓhIó, 6. mars. Frá Jan Eirik Laure, fréttaritara Mbl.
í FYRRA voru framin nokkur
bíræfin bankarán í Ósló og var
ræninginn alltaf klæddur í trimm-
galla og þess vegna kallaður
„trimmræninginn“ í blöðunum. í
fjórum ránum hafði hann um
1.400.000 kr. ísl. upp úr krafsinu.
Það var því ekki lítið áfall
fyrir lögregluna í Ósló, þegar
einn úr hennar eigin röðum var
handtekinn fyrir ránin. Við leit
á heimili hans og í bílnum hans
fundust ýmis sönnunargögn og
upplýst hefur verið, að maðurinn
hafi áður verið áminntur vegna
ofbeldis gegn konu sinni og í
annað sinn voru þau bæði dæmd
fyrir hassneyslu.
Við rannsókn þessa máls hef-
ur einnig komið í Ijós, að maður-
inn hefur gerst sekur um trygg-
ingasvindl, en þar er þó um litlar
upphæðir að ræða. Enn sem
komið er hefur lögreglumaður-
inn ekki fengist til að játa neitt
á sig og segist alsaklaus.