Morgunblaðið - 07.03.1984, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.03.1984, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema Ætlunin að halda keppn- ina árlega framvegis Ulrsit í eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema voru kunngerð sl. sunnudag og fór þá jafnframt fram verð- launaafhending. Að keppninni stóðu Eðlisfræðifélag ís- lands og Félag raungreinakennara með tilstyrk Morg- unblaðsins en eftirfarandi fyrirtæki styrktu einnig keppnina: Flugleiðir hf, Hótel Saga, Bókaverslun Snæ- bjarnar, Bókaklúbburinn Veröld og Rafmagnsveita Reykjavíkur. I»að var Finnur Lárusson, nemandi við Menntaskól- ann við Hamrahlíð, sem varð hlutskarpastur og hiaut hann fyrstu verðlaun, 8.000 kr. Vilhjálmur Þorsteins- son, nemandi við Menntaskólann í Hamrahlíð, var i öðru sæti og hlaut önnur verðlaun, 4.000 kr. í þriðja sæti varð Ragnar Guðmundsson, nemandi við Mennta- skólann í Reykjavík og hlaut þriðju verðlaun, 2.000 kr. I>eir Hallgrímur Einarsson, nemandi við Menntaskól- ann á Akureyri, og Haraldur Ólafsson, nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð, voru í 4. og 5. sæti með svipaða frammistöðu og hlutu þeir í verðlaun 1.000 kr. hver. Allir þessir fimm keppendur hlutu bókagjafir frá Bókaklúbbnum Veröld og Bókaverslun Snæbjarnar. Síðari hluti eðlisfræðikeppninnar fór fram um síðustu helgi, en þá kepptu þeir fimm nemendur sem stóðu sig best í forkeppninni. Byrjuðu þeir að svara skriflegu verkefni, sem birtist hér fyrir neðan, og fór prófið fram frá kl. 9 til 12 sl. laugardag. Eftir hádegið skoðuðu þeir Raunvísindastofnun Háskólans og kynntu sér starfsemi hennar. Á sunnudagsmorgun framkvæmdi hver kepp- andi þrjár tilraunir á tilraunastofum háskólans og skil- aði skýrslu þar um. Árangur í verklega prófinu og því skriflega var reiknaður saman og réði endanlegri röð keppenda. Eftir hádegið skoðuðu fimmmenningarnir Rafmagnsveitu Reykjavíkur og þáðu hádegisverð. Verð- launaafhending fór fram í lokahófi, sem haldið var keppendunum til heiðurs kl. 16 á sunnudag. I»ar hélt Dr. Hans Kr. Guðmundsson, formaður Eðlisfræðifélags Islands, ræðu og kom þar meðal annars fram að Félag raungreinakennara og eðlisfræðifélagið hefðu fullan hug á að halda keppni sem þessa árlega upp frá þessu. Blm. Mbl. ræddi við hina fimm keppendur er þeir höfðu nýlokið skriflega verkefninu á laugardag og fara viðtölin hér á eftir. Finnur Lárusson: Frekar stærðfræðin en eðlisfræðin sem er mitt fag „Uetta voru nokkuð viðráðan- leg verkefni að mínu mati — jafn- vel yfrið léttari en í forkeppninni. Nú reyndi meira á það sem flokk- ast undir nútímacðlisfræði, en það hefur verið farið töluvert út í hana í Hamrahlíðarskólanum, þannig að maður stóð vel að vígi. Tíminn passaði nokkurn veginn til að leysa þetta,“ sagði Finnur Lárusson, nemandi í Menntaskól- anum við Hamrahlíð. Hefur þú áhuga á eðlisfræöi frem- ur en öðrum námsgreinum? „Það er nú frekar stærðfræðin en eðlisfræðin sem er mitt uppá- halds fag, en auðvitað tengist eðl- • isfræðin stærðfræðinni mikið og byggir á henni.“ Hvaða atvinnumöguleika gefur stærðfræöinám — tengist það ekki mikið námi í tölvunarfræðum? „Tölvur eru mikilvæg hjálpar- tæki í stærðfræðinámi en það er misskiiningur að þær hafi breytt faginu að ráði. Það er stór hluti stærðfræðinnar sem ekki snýr að tölvum og mun trúlega aldrei gera. Hvað varðar atvinnumögu- leika er það einkum kennsla og rannsóknir. Stærðfræðirannsókn- ir eru afar áhugavert svið — þar hefur maður tækifæri til að skapa sína eigin stærðfræði og vinna að margs konar verkefnum." Hvað finnst þér um eðlisfræði- keppnina sem slíka — að keppa í námsgrein? „Það hefur eflaust bæði góðar og slæmar hliðar. Skólastarfið má að sjálfsögðu ekki ganga út á und- irbúning fyrir svona keppnir en þessi keppni hefur gefið manni Finnur Lárusson tækifæri til að rifja upp og er til þess fallin að vekja áhuga fólks á faginu. Þetta er eins og með keppnisíþróttir — sumir fordæma þær en aðrir telja þær hvata fyrir almenningsíþróttir." Haraldur Ólafsson: Reyndi fremur á grundvallarþekkingu í eðlisfræði en stærðfræðikunnáttu „Þetta voru ekki þung verkefni — þau reyndu fremur á grundvall- arþekkingu í eðlisfræði en mikla stærðfræðikunnáttu,“ sagði Har- aldur Olafsson nemandi í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Hefur þú áhuga á eðlisfræði frem- ur en öðrum námsgreinum? „Eðlisfræðin er ekkert sérstakt áhugasvið hjá mér frekar en aðrar raungreinar. Ég er ákveðinn í að halda áfram í einhverri grein eðl- isfræðinnar í háskóla en það er ekki enn afráðið hjá mér hvað verður fyrir valinu — og reyndar ekki heldur hvort ég fer í háskóla hér eða erlendis." Eru nemendur á síðasta ári al- mennt farnir að huga að fram- haldsnámi? „Já, það eru margir í mínum skóla sem eru búnir að sækja um erlendis og farnir að kanna ýmsa Haraldur Olafsson möguleika. Ég var eitthvað farinn að líta á þetta, t.d. hvað það kost- aði að stunda nám í Bandaríkjun- um. Það veltur á tugum þúsunda sem maður yrði að leggja með sér ef maður lærði þar, og ljóst að fæstir hafa efni á því. Énda 3táta Bandaríkjamenn sig af flestu öðru en jafnrétti til náms og varla við því að búast að þeir fari að borga fyrir útlendinga." Hvað finnst þér um þessa keppni í eðlisfræði? „Svona keppni hlýtur alltaf að stuðla að keppnisanda og hann er alltaf vafasamur. Það hefur hins vegar ekki myndast neinn keppn- isandi milli okkar sem erum í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Kennarar okkar hvöttu okkur til að taka þátt í þessu til að öðlast reynslu og kynnast alþjóðlegum staðli í eðlisfræði — og að því leyti getur svona keppni verið mjög gagnleg. Keppnin sjálf og um- stangið í kringum hana vekur at- hygli og áhuga á eðlisfræðinni, sem er mjög jákvætt, enda er það væntanlega megintilgangur henn- ar. Mér hefði þótt skemmtilegra ef Eðlisfræðifélagið og Félag raungreinakennara hefðu getað staðið fyrir þessari keppni án þess að leita til utanaðkomandi aðila, því ég er þeirrar skoðunar að vís- indi og þekking ættu að vera al- menningseign og sem mest óháð fjársterkum aðilum." Vilhjálmur Þorsteinsson: Framkvæmd keppninnar til fyrirmyndar „Mér fannst þetta verkefni að- eins þyngra heldur en það fyrra en samt ekki mjög þungt — t.d. ekki mikið af flókinni stærðfræði en reyndi samt tölvert á grundvallar- þekkingu í eðlisfræði,“ sagði Vil- hjálmur Þorsteinsson, nemandi við, Menntaskólann í Hamrahlíð. Hefur þú áhuga á eðlisfræði? „Ég hef það tvímælalaust, t.d. hef ég sérstaklega gaman af svonefndri nútímaeðlisfræði: Af- stæðiskenningunni, skammta- kenningunni, bylgjufræði og þeim heimspekilegu spurningum sem af þessum kenningum leiða, s.s. sam- bandi milli orsakar og afleið- ingar.“ Hvað um framhaldsnám? „Ég stefni í það að fara utan í tölvunarfræði að loknu mennta- skólanámi og þá hef ég í huga að komast í tölvunarfræðinám sem tengdist eðlisfræði að einhverju leyti.“ Hvaö finnst þér um eðlisfræði- keppnina sem slíka? „Eg hafði mjög gaman af þess- ari keppni. Mér finnst fram- kvæmd keppninnar hafa verið til fyrirmyndar, og ég er mjög ánægður með þann stuðning sem kom frá ýmsum aðilum, t.d. Raf- l magnsveitu Reykjavíkur og einnig Vilhjálmur Þorsteinsson stuðning Morgunblaðsins, því nauðsynlegt var að kynna keppn- ina fyrir landsmönnum. Eitt það skemmtilegasta við þetta var að kynnast þátttakendum og þeim sem að keppninni stóðu, því þetta eru allt saman úrvalsmenn sem þarna lögðu hönd á plóginn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.