Morgunblaðið - 16.03.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984
23
Nýr veitingastaður
- þar sem reiknað er með sölu áfengs öls
„VIÐ STKFNUM að því að opna í
síðustu viku aprílmánaðar. Nú vinna
tíu iðnaðarmenn að því að það verði
hægt, en við hofum verið að vinna
þarna frá því í janúar," sagði Danícl
l>órisson er Mbl. ræddi við hann í
gær, en Daníel er einn eigenda nýs
veitingastaðar sem væntanlega verð-
ur opnaður í lok apríl að Tryggva-
götu 26, Rcykjavík.
Daníel sagði heildarstærð stað-
arins vera rúmlega 200 fermetra,
þar af yrði veitingasalurinn sjálf-
ur um 120 fermetrar, sem tæki
100—120 manns í sæti. Hann gat
þess að í hádegi yrði boðið upp á
léttan hádegisverð, síðdegis gætu
menn litið inn og fengið sér kaffi
og meðlæti, en á kvöldin yrði boðið
upp á kvöldverð. Sagðist Daníel
reikna með að á hinum nýja stað,
sem enn sem komið er hefur ekki
hlotið nafn, yrði til sölu áfengt öl
og að einhverskonar skemmtiat-
riði yrðu af og til á kvöldin.
Vatnar Viðarsson arkitekt ha-
nnaði staðinn og er hann ennfrem-
ur einn eigenda, aðrir eigendur
eru: Matstofa Miðfells, Jónas
Þórðarson, Gunnar Stefánsson og
Vignir Jón Jónasson.
Á þessari mynd, sem Ólafur K. Magnússon tók á Tryggvagötu 26 í gær, má
sjá fjóra eigendur hins nýja veitingastaóar ásamt einum iðnaðarmanni, en
þeir vinna nú að því að hægt verði að opna staðinn á tilsettum tíma. Á
myndinni cru talið frá vinstri: Jónas Þórðarson, Daníel Þórðarson, Vignir J.
Jónasson, Gunnar Stefánsson og Örn Felixson.
Oánægja með kvótaskipt-
inguna á Vestfjörðum
VERKALÝÐS- og sjómannafélag
Bolungarvíkur hélt fjölmennan fund
hinn 4. mars sl. Á fundinum var lýst
yfir áhyggjum af þeirri kvótaskipt-
ingu sem ákveðin hefur verið í fisk-
veiðum. Afleiðingar af því hlytu að
hafa í for með sér aukin byggða-
vandamál, ekki síst á svæði eins og
Vestfjörðum sem byggir afkomu
sína á fiskveiðum og fiskvinnslu.
Fundurinn telur, að hraða beri
uppbyggingu smærri iðngreina á
svæðinu og skjóta stoðum undir
fjölbreyttara atvinnulíf í fjórð-
ungnum. Einnig var þeim orku-
kostnaði sem lagður er á fólk á
Tveir kórar
syngja saman
á Isafirði
ísafirði, 15. marz.
KARLAKÓR ísafjarðar og
Karlakórinn Ægir í Bolung-
arvík hafa æft saman undan-
farin misseri. Kórarnir
hyggjast vera með uppákomu
á föstudag kl. 18 í húsgagna-
versluninni Seríu á Skeiði á
Isafirði.
Uppákoman tengist fjár-
öflun vegna fyrirhugaðrar
söngferðar til Akureyrar, en
þar á að syngja fyrstu helg-
ina í maí.
f kórunum eru um 60 karl-
ar og kórstjórar eru Kjartan
Sigurjónsson, skólastjóri á
ísafirði, og Ólafur Krist-
jánsson, skólastjóri í Bolung-
arvík.
fllfar.
Forsetaheimsóknin:
Vestfjörðum mótmælt og bent á,
að ekki verði við unað að helming-
ur mánaðartekna verkamanns fari
til greiðslu þessa þáttar heimilis-
haldsins. Bent var á að raunhæf-
asta kjarabótin til handa launa-
fólki væri lækkun þessa kostnað-
ar.
Landssamtök
ekkna og ekkla
EKKJUR og ekklar hafa stofnað
með sér landssamtök og er tilgangur
stofnunarinnar félagsleg tengsl
þeirra sem orðið hafa fyrir því að
missa maka sinn.
Landssamtök ekkna og ekkla á
íslandi voru stofnuð í Sóknarsaln-
um að Freyjugötu 27 í Reykjavík
hinn 9. mars síðastliðinn og verð-
ur opið hús þar í dag, föstudag, og
næstkomandi föstudag, 23. mars,
skv. því sem segir í frétt frá hin-
um nýstofnuðu samtökum.
Aukasýning
Herranætur
IIERKANOTT Menntaskólans í
Reykjavík hcfur að undanfórnu sýnt
söng- og gleðileikinn Oklahoma. IIpp-
sclt hefur verið á allar sýningar til
þessa og því hefur verið ákveðið að
hafa tvær aukasýningar.
Sú fyrri verður laugardaginn 17.
mars kl. 14.30 og sú síðari mánudag-
inn 19. mars kl. 21.30. Sýningar eru í
Tónabæ og hefst miðasala einum og
hálfum tíma fyrir sýningar.
Aukasýning í Austurbæjarbíói
Gamanleikurinn Forsetaheims-
óknin verður sýndur á auka-miðnæt-
ursýningu í Austurbæjarbíói laugar-
dagskvöldið 24. mars.
I frétt frá Leikfélagi Reykjavík-
ur segir að mikil aðsókn hafi verið
að leikritinu í allan vetur og þetta
sé fertugasta sýning á gaman-
leiknum.
Þar segir ennfremur að sala á
aðgöngumiðum sé í Austurbæjar-
bíói.
Flóamarkaður FEF um helgina
FÉLAG einstæðra foreldra heldur vor-
flóamarkað sinn í Skeljahelli, Skelja-
nesi 6, nú um helgina. Verður markað-
urinn frá kl. 14—18 laugardag og
sunnudag. Eins og fyrri daginn er á
boðstólum ótrúlega mikið úrval af
glæsifatnaði á konur, karla og börn
frá ýmsum tímum. Þá má nefna leik-
(ong, bækur, skrautmuni hvers konar,
útivistargræjur, skó, myndir og hvað-
eina sem nöfnum tjáir að nefna. í einu
horninu verður „kaupmaðurinn á
horninu'* með smánýlenduvöruverzl-
un.
Öllum ágóða verður varið til að
standa straum af breytingum, sem
húsnefnd FEF er að vinna að i risi
hússins, en þar er verið að breyta
innanhúss, svo að eftir þær umbæt-
ur verða ibúðir hssins einni fleiri en
áður og ný setustofa verður tekin í
gagnið.
I byrjun apríl eru þrjú ár siðan
Félag einstæðra foreldra tók Skelja-
neshúsið í notkun sem neyðar- og
bráðabirgðahúsnæði fyrir einstæða
foreldra og börn og hafa síðan búið
þar 72 foreldrar með 84 börh.
Það er fjáröflunarnefnd sem hef-
ur haft veg og vanda af undirbún-
ingi og formaður hennar er Kristín
Möller og með henni eru í nefndinni
Júlía Ómarsdóttir, Gústaf Hannes-
son, Elva Steinsdóttir, Guðbjörg
Magnúsdóttir og Kolbrún Bjarna-
dóttir, sem er fulltrúi stjórnar FEF
í nefndinni.
(Kréttatilkynning.)
„Guðjón"
fundinn
KÖTTURINN Guðjón, sem tek
ur þált í uppfærslu 3. árs nema
leiklistarskólans á unglinga-
leikritinu „Bara ljón“ er nú
kominn í leitirnar, en hann týnd-
ist eins og greint var frá í Mbl. í
gær.
Guðjón birtist á tröppunum hjá
eiganda sínum um miðjan dag i
gær, þannig að honum var komið
niður í Leiklistarskóla í tæka tíð
áður en sýning hófst kl. 17.00.
Verður Guðjóns væntanlega gætt
rækilega í framtíðinni, þannig að
hann bregði ekki undir sig betri
fætinum og leiki meðleikara sína
grátt, eins og nú gerðist.
Leiðrétting
í framhaldi fréttar Morgun-
blaðsins í gær um samninga
málmiðnaðarmanna skal það tekið
fram, að Félag blikksmiða er ekki
aðili að samkomulaginu. Hefur
það fyrir nokkru fellt kjarasamn-
inga við blikksmiðjueigendur, sem
voru samhljóða samningum ASÍ
og VSÍ svo og samningum málm-
iðnaðarmanna.
:0
3
*0
(0
E
3
:0
O
(0
E
3
:0
>
C
c
■ mm
3
O
(0
E
Odyrt
Siá<
og gott!
jáðu bara...
Pillsburýs^/7 í%0 Best 5 lbs ** jwVy 1A Strásykur l'lyOv/ kr/kg
Appelsínur 25kr/kg
Blandað nauta- og svínahakk,
tilvalið í pottrétti
130
kr/kg
góða
Nýgrillaöii kjúklingar,
allan daginn til aö taka meö heim
Helgarrétturinn
Gómsœtt
Lambaossobuco
99
kr/kg
Opiö i dag til kl. 2LOO
og á morgun, laugardag
kl. 10:00 — 16:00
©
Úr hitaboróinu, bjóóum vió:
Steikta hryggl og íramhryggl <
Tilvalió til að taka meó heim.
Vörumarkaöurinnhl.
J Meiia íyrii minna
ARMULA 1a EOSTORG111
E
O:
C
3
3-
Q)
o:
C
3
o>
3-
o>
c
o:
c
3
0)
0)1
o*
Cl
> uuunQB>j jeiun JQA uuunQe>|JBiun^