Morgunblaðið - 16.03.1984, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984
35
átti þaö ekki lítinn þátt i aö skapa jafn
rafmagnaða stemmningu og raun þar
vitni.
Ég hélt aö ég heföi upplifað flesta
töfra Drýsils á Borginni fyrir hálfum
mánuöi, en þaö var hinn mesti mis-
skilningur. Frammistaöan í Safari var
frábær og þar undirstrikaði Siguröur
Reynisson enn betur hæfileika sína á
trommusettið. Hreint magnaöur
„sláttumaður“. Þaö er ekki hægt ann-
aö en bíöa spenntur næstu tónleika
Drýsils.
— SSv.
„Hefur aldrei liðið
jafn vel á svióinu“
- sagöi Eiríkur Hauksson eftir rafmagnada
frammistöðu Drýsils í Safari sl. fimmtudag
„Maður vissi að þessi kjarni var til
en hjartað tók aukaslag af gleðí við
það að sjá að hann var svona stór.
Við höfðum líka áhyggjur af því að
íslenskir áhorfendur kynnu kannski
ekki að taka á móti þessari tónlist,
en sá ótti reyndist ástæðulaus. Mér
hefur aldrei liðið jafn vel á sviði,“
sagði Eiríkur Hauksson, söngvari
Drýsils í stuttu spjalli við Járnsíðuna
eftir frábærlega vel heppnaða tón-
leika Drýsils og Centaur í Safari sl.
fimmtudag.
sem ég man eftir frá þeim og hlutirnir
eru greinilega á réttri leið. Nýi bassa-
leikarinn þarf þó aö yfirvinna feimn-
ina. Meira „trukk" er í tónlistinni en
áöur og hljóöfæraleikurinn „þéttari".
Þrátt fyrir góð tilþrif Centaur er
enginn vafi á því að Drýsill stal alveg
frá þeim senunni og þvílík frammi-
staöal íslenskt rokk hefur ekki í annan
tíma veriö kröftugra. Þaö sem geröi
útslagiö að þessu sinni var afburöa-
gott „sánd" hjá Bjarna Friðriks. Hver
tónn komst til skila á réttan hátt og
Tónleikarnir á fimmtudag voru
sannkallaöur sigur fyrir bárujárnsunn-
endur, sem fjölmenntu. Þegar dæmiö
var gert upp í tónleikalok höföu 230
áhorfendur greitt sig inn, þannig að
gera má ráö fyrir að um 250 manns
hafi verið í Safari aö öllum meðtöld-
um. Er þetta einhver besta aösókn á
tónleika þar í langan tima og taldi Jó-
hannes Lárusson, eigandi staöarins,
aö þetta væri mesta aðsókn frá því
Stuömenn voru á feröinni í Safari í
haust.
Eins og Járnsíöan hafði lofaö
mönnum ætti enginn aö hafa orðiö
fyrir vonbrigöum meö tónleikana á
fimmtudag. Centaur reiö á vaöiö og
sýndi allt önnur og betri tilþrif en á
Borginni viku fyrr. Þó er þaö eins og
rauöur þráöur í gegnum tónlistina hjá
Centaur, aö meölimir sveitarinnar
virðast ekki hafa næga trú á sjálfum
sér. Það er eins og þeir veröi undr-
andi ef menn fagna þeim. Til þess aö
verulegt framfaraskref veröi merkt
þarf aö veröa hugarfarsbreyting.
Ekki svo aö skilja, frammistaða
Centaur þetta kvöld var sú besta,
„Fílingurinn“ hjá Sígurði Reyníssyni leynir sér ekki. (Járnsiöan/Friöþjófur.)
poppfréttir
Umsjon.
Sigurður
Sverrisson
L
Rocky
Horror-
kvöld haldin
í Klúbbnum
Klúbburinn efnir um helgina
til sérstakra Rocky Horror-
kvólda. Þar mun 20 manna hóp-
ur, sem kallar sig Rocky Horror-
hópinn og er aðallega úr Versl-
unarskólanum, koma (ram og
flytja sérstaklega samið atriði,
sem byggt er á kvikmyndinni um
söngleikinn.
Mikil vinna hefur veriö lögð í
æfingar á þessu verki, en það var
frumflutt á Nemendahátíð Versl-
unarskólans í febrúar við mikla
hrifningu. Atriðið verður flutt í
Klúbbnum á fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld.
„Thriller" talin óæski-
leg mynd vegna barnanna
Michael Jackson í hópi nokkurra góðra „kunningja“ í „Thriller“-víd-
eóinu.
Járnsíðan varpaði þeirri
spurningu fram sl. miövikudag
hvenær íslenska sjónvarpið
tæki myndbandsupptökuna við
lag Michael Jackson „Thriller"
til sýninga. Eintak af þessu ein-
staka „vídeói“ hefur verið til hér
á landinu um nokkurt skeiö, en
ekki veriö sýnt í sjónvarpinu.
Að sögn Eddu Andrésdóttur,
umsjónarmanns Skonrokks, fékk
hún umrædda filmu inn á borö til
sín í fullri lengd, 14 mínútur alls.
„Myndin er geysilega góð," segir
Edda, „en miklar umræður urðu
um hana þegar hún var skoðuö
með tilliti til þess að stór hluti
þeirra, sem horfa á Skonrokk, er
börn.“
í „Thriller" breytist Michael
Jackson nefnilega i varúlf með
miklum tilþrifum og dauöir menn,
sminkaöir á hinn listilega hátt,
rísa úr gröfum sínum — óneitan-
lega dálítið skelfilegt. Undir þaö
getur umsjónarmaður Járnsíö-
unnar tekiö.
Edda segir ennfremur: „Flestir
þeirra sem horföu á voru á þvi aö
þetta væri ekki við hæfi barna.
Ég ákvaö því að kalla á yfirmann
lista- og skemmtideildar til þess
aö gera hann að dómara í málinu
og dómur hans var á sömu lund
og fyrrnefndra. Það þótti líka dá-
lítiö kjánalegt aö fara að vara
börn viö Skonrokki."
Þá sagði Edda í lokin, aö hún
vildi vekja á því athygli vegna
gagnrýni á val laga i þáttinn um
daginn, að Skonrokk væri „al-
gerlega háð plötuútgefendum“
hvað það varöaöi. Bætti hún því
viö, aö frá áramótum heföi ekki
verið um auðugan garö aö gresja.
Þar hafa menn þaö. j sjálfu sér
getur umsjónarmaöur Járnsíð-
cnnar tekiö undir þau rök, sem
sjónvarpið leggur til grundvallar í
þessu dæmi en sé tekiö miö af
þvi, sem boðið er upp á í kvik-
myndum sjónvarpsins meö reglu-
legu millibili, eru atriöin í „Thrill-
er“ síst skelfilegri. Skonrokk er
heldur ekki meiri barnaþáttur en
laugardagskvikmyndin. Þaö hefur
margsinnis sýnt sig, að krakkarn-
ir horfa á þaö sem þau ætla sér
að horfa á. Ef ekki heima í stofu
hjá foreldrum sínum þá bara i
„vídeóinu“ í næsta húsi þegar
enginn er heima. — SSV
Fyrstu SATT-tón-
leikarnir
Fjórir flokkar koma fram í Sigtúni
Eins og skýrt var frá á Járn-
síöunni sl. sunnudag verða
fyrstu tónleikar SATT undir
heitinu „1984“ haldnir í Sigtúni
á föstudag kl. 22.
Fjórar hljómsveitir koma
þarna fram: Kikk, Grafík, Frakk-
arnir og Vonbrigöi. Frakkarnir
tefla fram nýjum manni, arftaka
Finns Jóhannssonar. Sá heitir
Þorsteinn Magnússon og er
löngu landsfrægur fyrir tilþrif sin,
síðast í Þey.
Forsala aögöngumiöa er í
Karnabæ, Austurstræti 22, og
Fálkanum, Laugavegi 24. Verð
miða er kr. 250,-
Næstu tónleikar á vegum
SATT i þessari tónleikaröð veröa
annan fimmtudag í Safari. Verð-
ur þar um að ræða sérstakt
kvöld, þar sem konum í rokkinu
veröur ótæpilega hampað.