Morgunblaðið - 22.03.1984, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.03.1984, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1984 iHf&fur MARLÍN-TÓG LÍNUEFNI BLÝ-TEINATÓG FLOTTEINN NÆLON-TÓG LANDFESTAR STÁLVÍR • BAUJUSTENGUR ÁL, BAMBUS, PLAST BAUJULUKTIR ENDURSKINSHÓLKAR ENDURSKINSBORÐAR LÍNUBELGIR NETABELGIR BAUJUBELGIR ÖNGLAR — TAUMAR MÖRE- NETAHRINGIR NETAKEÐJA NETALÁSAR NETAKÓSSAR LÓÐADREKAR BAUJUFLÖGG NETAFLÖGG FISKKÖRFUR FISKGOGGAR FISKSTINGIR FLATNINGSHNlFAR FLÖKUNARHNÍFAR BEITUHNÍFAR KÚLUHNÍFAR SVEÐJUR STÁLBRÝNI HVERFISTEINAR SALTSKÓLFUR ÍSSKÓFLUR KLAKASKÖFUR FÓTREIPISKEÐJUR %“, V4“, v«- TROLLÁSAR DURCO PANTETLÁSAR V4“, V«“, %“ 6 STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA SOKKAR MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI KULDAFATNAÐUR SJÓFATNAÐUR REGNFATNAÐUR VINNUFATNAOUR VINNUHANSKAR KLOSSAR SVARTIR OG BRÚNIR MED OG ÁN HÆLKAPPA GÚMMÍSTÍGVÉL ÖRYGGISSKÓR b^lUKpi Ánanaustum * Sími 28855 OPIÐ LAUGARDAGA 9—12. Lögreglumadur handleikur poka med kókaíni, sem hald var lagt á í Kólumbíu, þegar lögreglan þar gerði árás á leynilega kókaínverksmiðju inni í frumskógum landsins fyrr í þessum mánuði. Verksmiðja þessi var starfrækt undir vernd kommúnistahreyfingarinnar FARC. Kolombía: Hald lagt á mesta kókaínmagn sögunnar Washington, 21. marz. AP. LÖGREGLAN í Cólombíu gerði í dag árás á kókaínverksmiðju inni í frumskógi landsins, sem starf- rækt var undir vernd kommúnista. Lagði lögreglan hald á 12,5 tonn af kókaíni, en söluverðmæti þess í Jarðskjálftar í Sovétríkjunum: Hundrað slasaðir í Gazli Moskvu, 21. mars. AP. RÖSKLEGA eitt hundrað manns slösuðust og ótilgreindur fjöldi manna er heimilislaus í borginni Gazli í Uzbekistan eftir hina hörðu jarðskjálfta sem urðu í tveimur Sovétlýðveldum í Mið-Asíu árdegis á þriðjudag. TASS-fréttastofan segir að miklar skemmdir hafi orðið á hýbýlum manna í borginni, barnaheimilum og skólabygg- ingum, en hefur hins vegar ekki greint nákvæmlega frá því hvers eðlis skemmdirnar eru. Rafmagnslaust var í Gazli þegar síðast fréttist og einnig var vitað um truflanir á vatns- kerfi borgarinnar. Þá hefur símasamband þangað annað hvort rofnað eða verið rofið af yfirvöldum. Bandaríkjunum, þangað sem því var ætlað að fara, nemur 1.200 millj. dollara. „Þetta er mesta magn af kókaíni, sem nokkru sinni hefur verið lagt hald á í öllum heimin- um,“ sagði Lewis Tambs, sendi- herra Bandaríkjanna í Cól- ombíu í dag. „Þetta er nær fjórðungur þess magns, sem neytt er á heilu ári í öllum Bandaríkj unum.“ Tambs skýrði svo frá, að lög- reglan í Cólombíu hefði lagt til atlögu í flugvélum 10. marz sl. Eftir að tekizt hafði að hrinda gagnárás skæruliða, handtók lögreglan 40 manns, þeirra á meðal bandarískan flugmann, en síðan hefði verksmiðjan verið eyðilögð. Þessi leynilega kókaínverk- smiðja var falin í frumskóginum í Caqueta-héraði á bökkum Yari-fljótsins. Var hún starf- rækt undir vernd kommúnista- hreyfingarinnar FARC. Harmaði hundinn meira en barnið Dallati, 21. mars. AP. Á síðastliðnu hausti gerðist það í Dallas í Texas, að hundur varð barni að bana. Móðir barns- ins, norsk kona, hefur nú verið dæmd í árs fangelsi fyrir glæp- samlegt hirðuleysi en hún átti einnig hundinn og harmaði meira örlög hans en barnsins síns. Britt Rognaldsen, 36 ára gömul hárgreiðslustúlka, brast í grát þegar dómurinn var kveðinn upp og kvaðst enga ábyrgð bera á dauða barnsins síns. Hún er norskur ríkisborg- ari og mun því verða vísað úr landi þegar dómnum hefur ver- ið fullnægt. Samkvæmt lögregluskýrsl- um dró hundurinn, sem er af tegundinni Rottweiler og nærri 40 kg þungur, litla barnið úr vöggunni og drap það, en á meðan svaf Britt í öðru her- bergi. Hundinum, sem hét Byr- on, var að sjálfsögðu lógað en vitni bera, að Britt hafi þá sagt: „Ég get alltaf átt annað barn, en annan Byron mun ég aldrei fá.“ „Foreldrar eru almennt um- hyggjusamir og gæta barna sinna vel,“ sagði dómarinn, sem kvað upp dóminn. „Þeir eru þó til, sem eru kærulausir um afkvæmi sín og þessi dóm- ur á að verða þeim víti til varn- aðar.“ Nicaragua: Sovézkt olíuskip rakst á tundurdufl Managua, 21. marz. AP. SOVÉZKT olíuflutningaskip með farm á leið til Nicaragua rakst á tundurdufl í höfninni í Puerto Sandino og laskaðist talsvert. Margir af áhöfn skipsins slösuð- Shamir fellst á kosningar Jerúsalem, 21. marz. AP. YITZHAK SHAMIR, forsætisráð- herra ísraels, hefur fallizt á, að þing- kosningar fari fram í landinu síðar á þessu ári. Átti nefnd skipuð full- trúum frá öllum stjórnarflokkunum fimm að koma saman í dag til þess að ákveða kjördag. Enn hefur ekk- ert komið fram um, hvenær kosn- ingarnar verði, en talið er, að það geti orðið einhvern tímann á tímabil- inu frá því seint f maí þar til snemma í september. Shamir er sagður vilja fresta kosningunum sem lengst. Er talið, að hann hafi vonazt til að vera við völd út þetta kjörtímabil til þess að koma efnahag ísraels f betra horf og koma á friði í Líbanon. Núverandi kjörtímabili ísraels- þings lýkur haustið 1985. ust í sprengingunni. Það tókst þó að sigla skipinu að bryggju og ekkert tjón hlauzt á olíufarmi þass. Uppreisnarmenn, sem berj- ast gegn stjórn sandinista í Nicar- agua, höfðu komið tundurduflinu fyrir. Puerto Sandino er 60 km fyrir vestan Managua, höfuðborg Nic- aragua. Hafa uppreisnarmenn gefið út tilkynningu þess efnis, að þeir hafi ekki aðeins komið fyrir tundurduflum í Puerto Sandino heldur einnig í öðrum höfnum landsins. Var tilkynning þessi greinileg aðvörun til er- lendra skipa um að halda sig í fjarlægð. Hinn 1. marz sl. varð mikil sprenging í hollenzku skipi í höfninni í Puerto Corinto, sem er 190 km fyrir norðaustan Man- agua. Er talið, að sú sprenging hafi einnig orðið vegna tundur- dufls frá uppreisnarmönnum. „Átti ekki barn með Treholt" segir ástkona hans í Prag Osló, 21. marM. Krá fréttariUra Mor(>unblaósin.s, Jan Krik Lauré. ASTKONA sú, sem norski njósn- arinn Arne Treholt hefur fullyrt, að hann ætti barn með í Tékkó- slóvakíu, er nú fundin. í viðtali við norska blaðið Verdens Gang, sem fram fór í Prag, segir Zuzana, en svo nefnist konan: „Ég eignaðist ekki barn með Arne Treholt. Ef hann á barn í Tékkóslóvakíu, þá er það ekki með mér. Ég held, að þetta bam sé aðeins hugarfóstur hans." Arne Treholt hefur haldið því fram í yfirheyrslum, að hann ætti 20 ára gamla dóttur í Tékkóslóvakíu og að sovézka leyniþjónustan KGB hafi notað dótturina til þess að þvinga hann til þess að njósna fyrir sig. Zuzana, sem er 38 ára að aldri, viðurkennir í viðtalinu við Verd- ens Gang, að hún hafi hitt Arne Treholt fyrir 20 árum. Hafi þau kynnst fyrir atbeina tékknesks túlks og hittust þau þá fjórum eða fimm sinnum á einni viku. Hafi þau farið saman í kvik- myndahús og veitingahús. „Þegar Arne fór burt, sendi hann mér blóm og þakkarkort. Stuttu síðar sendi hann mér einnig póstkort frá Noregi. Síðan hef ég ekkert samband haft við hann,“ segir Zuzana. Hún er nú gift og á lítið barn. Hún vill ekki láta bera á sér opinberlega og segist óttast, að slíkt geti haft vandamál í för með sér. Þá harmar hún, að hafa verið dreg- in inn í njósnamálið. „Ég skil ekki, hvers vegna Treholt full- yrðir, að hann hafi átt barn með mér, því að það er ekki rétt,“ ítrekaði hún hvað eftir annað í viðtalinu við fréttamann Verd- ens Gang.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.