Morgunblaðið - 22.03.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1984
27
Frumvarp að sjómannalögum
— Mælt fyrir hækkun tryggingabóta
FRAM HEFUR verið lagt viðamikið stjórnarfrumvarp að sjómannalögum.
Fyrsti kafli frumvarpsins fjallar um almenn ákvæði (1.—5. gr.). Annar kafli
um ráðningarsamninga (6.-48 gr.), þ.e. um samningsgerð, ráðningartíma,
rétt skipverja til lausnar úr skiprúmi, rétt skipstjóra til að víkja skipverja úr
skiprúmi, um kaup skipverja, umönnun og kaup sjúkra skipverja, ráðningar-
samning skipstjóra o.fl. Þriðji kafli fjallar um skipsstörf (49.—71. gr.), þ.e.
um yfirmenn og stjórnun, starfstilhögun og varúðarreglur, almennar
starfsskyldur, um upphaf vistar og fjarveru, um bótaskyldu skipverja, viður-
væri og aðbúð, haffærisskoðun, hvíldar- og matartíma, langdgönguleyfi,
farangur skipverja og eigur og agavald skipstjóra. Fjórði kafli (72. gr.) fjallar
um ágreining út af starfsskyldum, þ.e. um réttarstöðu sjómanna. Fimmti
kafli (76.-78. gr.) fjallar um brot á lögunum og refsingar.
• Fundir vóru í báðum þingdeild-
um í gær. Efri deild felldi frum-
varp til staðfestingar á bráða-
birgðalögum Hjörleifs Guttorms-
sonar, sem gefin vóru út í apríl
1983 og fjölluðu um að gjaldskrár-
breytingar orkufyrirtækja skyldu
háðar samþykki ráðuneytis.
• Matthías Bjarnason, trygginga-
ráðherra, mælti fyrir frumvarpi
til breytinga á lögum um al-
mannatryggingar, sem felur í sér
hækkun á öllum bótum trygg-
ingakerfisins. Ellilífeyrir með
tekjutryggingu hækkar um 13,5%
frá 1. marz sl. Efnisatriði frum-
varpsins hafa fengið fréttalega
umfjöllun í Mbl.
• Harðar umræður urðu í neðri
deild um stjórnarfrumvarp um
tekjuskatt. Efri deild hefur af-
greitt frumvarpið, sem m.a. fjallar
um skattprósentu, og það fengið
fréttalega umfjöllun í Mbl. — Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði m.a. í um-
ræðunni: „Frumvarpið, eins og
það hefur verið samþykkt frá efri
deild, felur ekki f sér neina breyt-
ingu á skattheimtu frá því sem þá
lá fyrir. Það er með öðrum orðum
verið að tryggja að greiðslubyrði
skatta verði að meðatali sú sama á
þessu ári og hinu síðasta."
• Svavar Gestsson (Abl.) og fleiri
þingmenn stjórnarandstöðu flytja
frumvarp til laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla. f
greinargerð með frumvarpinu seg-
ir að það sé samið af stjórnskip-
aðri nefnd, sem skipuð var í apríl
1981. Félagsmálaráðherra hafði
áður lagt fram frumvarp um sama
efni.
• Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp til breytinga á lyfjalög-
um. Veigamesta breytingin í
frumvarpinu er í 8. grein þess, en
Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, ræðir við Matthías Bjarna-
son, heilbrigðisráðherra.
þar er fjallað um undanþágu frá
ákvæðum gildandi laga um hver
skuli veita lyfjagerðum forstöðu.
• Stefán Guðmundsson (F) o.fl.
þingmenn Norðurlandskjördæmis
vestra hafa flutt frumvarp um
heimild til þess að selja Lýtings-
staðahreppi í Skagafirði eyðijörð-
ina írafell. írafell (Ýrarfell) í
Svartárdal var landnámsjörð og
getið í Landnámu.
Stjórnarfrumvarp:
Jöfn staða og jafn
réttur kvenna og karla
— Fjögurra ára framkvæmdaáætlun
aðgerða til jöfnunar á stöðu kynjanna
FRAM HEFUR verið lagt stjórnarfrumvarp um jafna stöðu og jafnan rétt t
kvenna og karla. Frumvarpið kveður svo á að konum og körlum skuli með
stjornvaldsaðgerðum tryggðir jafnir
Tilgangur frumvarpsins er að koma
karla á öllum sviðum.
Helzta nýmæli frumvarpsins
felst í orðlagsbreytingu í fyrstu
grein. Þar segir að tilgangur lag-
anna sé að „koma á jafnrétti og
jafnri stöðu ...“ o.s.frv. en í gild-
andi lögum er kveðið á um að
„stuðla að“ jafnrétti. Þá er gert
ráð fyrir að félagasamtök, sem
hafi jafnréttisbaráttu á stefnu-
skrá, tilnefni fulltrúa í jafnrétt-
isráð. Jafnréttisráð skal, sam-
jguleikar til atvinnu og menntunar.
jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og
kvæmt frumvarpinu, vinna fram-
kvæmdaáætlun til fjögurra ára í
senn, þar sem kveðið skal á um
aðgerðir til að koma á jafnrétti
kynjanna. Þessa áætlun skal
leggja fyrir félagsmálaráðherra,
sem síðan skal undirbúa stefnu
ríkisstjórnar í þessum málaflokki.
Loks eru viðurlög vegna brota á
ákvæðum jafnréttislaga gerð
ákveðnari en áður.
Lánsfjárlög samþykkt:
Átta atkvæði
— sex sátu hjá, sex fjarverandi
LÁNSFJÁRLÖG vóru samþykkt frá efri deild Alþingis undir miðnætti
sl. mánudagskvöld. Frumvarp að lánsfjárlögum hafði áður hlotið með-
ferð og afgreiðslu i þingdeildinni, en kom þangað aftur til umfjöllunar,
vegna breytinga sem gerðar vóru á því í neðri deild. Frumvarpið var
samþykkt með átta samhljóða atkvæðum, að viðhöfðu nafnakalli.
ráðstafað í samræmi við ákvæði
fjárlaga og fjárfestingar- og
lánsfjáráætlunar 1984.
Landsvirkjun hefur heimild til
að taka kr. 900.000.000.— lán er-
lendis. Þar af ganga 200 m.kr. til
Blönduvirkjunar, 350 m.kr. til
Kvíslaveitna og Þórisvatns, 180
m.kr. til Suðurlínu og 170 m.kr. í
aðrar framkvæmdir á vegum
fyrirtækisins. Þá eru lánsfjár-
heimildir vegna Orkubús Vest-
fjarða, ýmissa hitaveitna o.fl.
Síðustu breytingarnar sam
samþykktar vóru var ákvæði um,
að framlag ríkissjóðs til Afla-
tryggingasjóðs skuli ekki fara
fram úr kr. 18,5 m.kr., þrátt fyrir
2. tölulið 9. gr. laga nr. 51/1983;
og heimild til fjármálaráðherra
að ábyrgjast með sjálfskuldar-
ábyrgð lán að fjárhæð 30 m.kr.,
sem Bjargráðastjóður taki og'
endurláni bændum vegna ótíðar
1983.
Það er fátítt að lög hljóti sam-
þykki með aðeins 8 atkvæðum í
20 manna þingdeild. Sex þing-
menn sátu hjá og sex vóru fjar-
verandi. Skýringin mun að hluta
til sú að nokkrir þingmenn
Sjálfstæðisflokks höfðu með
löngum fyrirvara bundið sig á
fundi á Akranesi þetta kvöld, en
kvöldfundir eru ekki daglegt
brauð á Alþingi nema á síðasta
snúningi þingstarfa fyrir jólahlé
(afgreiðsla fjárlaga) og fyrir
þinglausnir að vori.
Meginefni fyrstu greinar láns-
fjárlaga er heimild til fjármála-
ráðherra til að taka erlend lán
1984 að fjárhæð kr.
1.641.121.000.— og á innlendum
lánsfjármarkaði kr.
600.000.000.—, þar af kr.
322.000.000.— vegna Bygging-
arsjóðs ríkisins, þ.e. húsnæðis-
lánakerfisins. Lán þessi spanna
bæði skuldbreytingar og fram-
kvæmdalán ýmiskonar og skal
Það er ekki nóg með að Citroen BX sé búinn sófasetti eins
og besta stofa. Hann er með 92 hestafla, 1580 cm3,
vatnskældri, 4ra strokka vél; 5 gira kassa, framdrifi,
diskabremsum á öllum hjólum og vökvafjöðrun.
Eyðslan er aðeins 7,2 I á hundraðið.
Citroén BX er 5 manna og 5 dyra og með því að fella niður
aftursætið fæst 1500 I flutningsrými. Meðal „standard"
fylgihluta eru speglar á báðum framhurðum, rafdrifnar rúður
og læsingar, snúningshraða- og smurolíumælir, quartsklukka,
hátalarar og loftnet.
Citroén BX 16 TRS kostar aðeins 424.650 krónur.
Citroén BX Diesel kostar um 370.000 krónur til
leigubílstjóra.
Bílasalan er opin á laugardögum frá kl. 2-5.
G/obust SÍMI81555