Morgunblaðið - 17.04.1984, Síða 1
Þriðjudagur 17. apríl
Strandir — rækjuveiðar og -vinnsla — innfjarðarkvótinn búinn
Hólmavík og Drangsnes:
Um 100 manns í
rækjuvinnslu auk
áhafna skipanna
Kaupfélag Steingrímsfjarðar er stærsti og nánast eini
atvinnurekandinn á Hólmavík. Þaö rekur auk verzlunar og
þjónustu frystihús og sláturhús og er með viðskipti við marga
báta og togarann Hólmadrang og á einnig hlut í frystihúsinu
á Drangsnesi. í kaupfélaginu ræður ríkjum Jón Alfreösson,
kaupfélagsstjóri, og ræddu Morgunblaðsmenn við hann fyrir
skömmu.
Jón sagði, að nánast öll at-
vinna, nema sú, sem tengd væri
þjónustu, bæði á Hólmavík og
Drangsnesi byggðist á rækju-
veiðunum. Á báðum stöðunum
ynnu um 100 manns beint við
veiðar og vinnslu. Hins vegar
væri það fyrirsjáanlegt að
kvótinn á innfjarðarrækjunni
yrði uppurinn um miðjan mán-
uðinn og yrði þá hætt við að
uppihald kæmi í útgerð og
vinnslu. Hins vegar myndu
djúprækjuveiðar Hóimadrangs
brúa bilið eitthvað, þar sem
hluti afla hans væri unninn í
landi. Þá gætu stærri bátarnir
einnig farið að tygja sig á
djúprækjuna um miðjan mán-
uðinn.
Nú ynnu um 40 manns við
rækjuna á Hólmavík og 30 á
Drangsnesi en 7 bátar auk
Hólmadrangs legðu upp á
Hólmavík og 5 á Drangsnesi..
Veiðum á innfjarðarrækju væri
skipt nokkurn veginn jafnt
milli austur- og vesturhluta
Húnaflóans, austurhlutinn
fengi nú 1.188 letstir og vestur-
hlutinn 1.175. Hólmavík og
Drangsnes teldust til vestur
hlutans en Skagaströnd,
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Texti HG. Ljósmyndir Friðþjófur.
Jón Alfreósson, framkvKmdastjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar.