Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 17. APRÍL 1984
Hófstilltari leikur hefði verið við
hæfi.
Það reynir mikið á Guðrúnu S.
Gísladóttur í hlutverki Elínar.
Hún verður að hlusta, þegja. Því
meira skynjum við hjá Elínu.
Guðrún komst vel frá þessu öllu.
Henni tókst til dæmis að lýsa
hinni kynferðislegu spennu sem
er á milli hennar og Eðvarðs. Og
þegar þeirri spennu er lokið er
ekkert eftir, aðeins tómleiki.
Valgerður Dan höndlaði Jane,
þennan einstakling sem orðinn
er sjúkur vegna þess að honum
hefur verið misboðið, þráir að-
eins eðlilegt líf, hin einföldu
gildi. Jane finnur sjálfa sig í
ósigrinum. Það sýndi Valgerður
Dan.
Lars Norén, hið snjalla skáld,
hefur kosið að ná til fólks með
þeim vopnum sem leikhúsið fær
mönnum í hendur. Stærstur er
hann í ljóðum sínum. Mér virðist
Stefán Baldursson hafa náð góð-
um árangri í þýðingunni, hann
orðar á íslensku þetta sambland
raunsæis og ljóðrænnar fegurð-
ar sem einkennir Lars Norén.
Það er ekki lítill árangur.
Bros úr djúpinu er líkt og ferð
án fyrirheits. Skáldið er sent í
kaupstaðinn og man síðan ekki
hvað það átti að kaupa. Eftir
stendur: óvissa. En það er undir
okkur sjálfum komið hver
merkingin verður. Hvað segir
skáldið sjálft um þetta:
„Ég reyni að lýsa fólki sem
misnotar tilfinningar sínar —
það getur verið afskaplega mik-
ilvægt að nota tilfinningar eins
og ofurnæmi, athyglisgáfu og
það að líta hlutina hlutlausum
augum, þegar listin á í hlut, en i
samskiptum manna á milli geta
sömu tilfinningar verið lífs-
hættulegar.
Snæfellsnes:
Bændur svart-
sýnir á
útlit í
landbúnaði
Borg, Miklaholt.shreppi, II. apríl.
UNDANFARNA daga hefur verið
gott veður, þíðviðri en ekki mikil
úrkoma. Hitinn suma daga komist í
6—8 stig. Svellgaddur, sem legið
hefur hér um langan tíma á öllu
flatlendi, hefur nú að mestu leyti
horfið en þó eru enn á túnum, sem
liggja nálægt fjallinu, stórir skaflar
og sums staðar svellflákar og skurð-
ir allir fullir af klaka og snjó. Von-
andi er að túnin komi óskemmd
undan svellgaddi á þessu vori.
Nýlega var haldinn hér aðal-
fundur Búnaðarfélags Mikla-
holtshrepps. Bændum finnst útlit
í landbúnaði dökkt. Kannski það
dekksta, sem verið hefur um langt
árabil. Sífelldar hækkanir á öllum
rekstrarvörum en sölutregða á
framleiðsluvörum bændanna.
Ráðunautar okkar Snæfellinga,
þeir Leifur H. Jóhannesson, sem
hefur verið ráðunautur okkar í 25
ár, og Þorvaldur H. Þórðarson,
sem er búinn að vera 3 ár, hafa nú
sagt stöðum sínum lausum og
flytja burtu héðan úr sýslunni.
Þeim voru þökkuð farsæl og
- árangursrík störf liðinna ára og
óskað farsældar og heilla í nýjum
störfum.
í gær kólnaði og hvessti veru-
lega með norðlægri átt. Frost
komst í 5 stig en snjó festi ekki
sökum veðurofsa. Kannski er
þetta hrafna- og sumarmálahret,
því krummi er sennilega búinn að
verpa í Borgarborg eins og hann
hefur gert um langt árabil. Á þeim
stað hefur hann ekki verið hrekkj-
aður, venjulega komið þar upp
ungum sínum í friði. Sagt er að
Guð launi fyrir hrafninn.
- Páll
„Söluhlutfall FIAT hérlendis
það næsthæsta í heiminum“
„Salan á FIAT hérlendis hefur
gengið mjög vel á undanfórnum
mánuóum, vonum framar ef tekið er
mið af fólksfjöldanum. Einnig skilst
mér að efnahagsástandið sé aö
batna, þannig að árið ætti að geta
orðið gott í bflasölu á ísiandi," sagði
Luigi Carrera, markaðsstjóri FIAT í
Skandinavíu, í samtali við Morgun-
blaöið á bflasýningunni.
„Salan á FIAT hérlendis er nú
komin í svipað horf og hún var á
árum áður, hefur sem sagt aukist
töluvert. Miðað við fólksfjölda er
söluhlutfallið hérlendis það
næsthæsta sem FIAT hefur náð í
nokkru landi. Aðeins seljast fleiri
bílar á Ítalíu, heimalándi bílsins.
Þar er líka mesta hagnaðinn að fá,
ekki með útflutningi, eins og
margir gætu talið. En við höfum
þó lagt áherslu á Evrópumarkað-
inn og erum með nærri 15% af
heildarsölunni.
Við höfum ekki verið mikið í þvi
að hanna framúrstefnubíla, einsog
flestir aðrir bílaframleiðendur.
Við eltumst ekki við tískufyrir-
brigði, heldur reynum að halda
okkur við það sem við teljum
skynsamlegt. Við notum oft hluti
úr eldri bílum, sem hafa reynst
vel, t.d. Regata-bíllinn nýi hefur
nokkra hluti úr Ritmo-bílnum
gamla. Með þessu móti v'erða bíl-
arnir líka ódýrari til almennings.
Með þessum hugsunarhætti höf-
um við líka staðið okkur vel í sí-
37
Morgunbladið/Gunnlau^ur
Luigi Carrera undir stýri í nýjasta afkvæmi FIAT, fjórhjóladrifnum Panda.
harðnandi samkeppni og gott sala á FIAT Uno,“ sagði Luigi
dæmi um það er 400.000 eintaka Carrera.
Sipur siálfvirkninnar
Einkarádqfafi ritarans
Með Silver Reed EX 55 hefur sjálfvirknin verið kórónuð á skrif-
stofunni. Hraðari prentun, villulaus og áferðarfalleg verður leikur einn
með
• sjálfvirku línuminni
• sjálfvirkri leiðréttingu á tveimur línum í fullri lengd
• sjálfvirkri endurprentun á leiðréttum línum___________
• sjálfvirkri línufœrslu __________________________
• sjálfvirkri undirstrikun og síritun___________________
• sjálfvirkum miðjuleitara og
• sjálfvjrkum dálkastilli
Yfirburðimir em síðan undirstrikaðir með hljóðlátri prentun, mörgum
tegundum leturhjóla og hönnun sem hæfir nútímalegustu skrifstofum.
'7$r
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Pósthólf 377