Morgunblaðið - 17.04.1984, Page 12

Morgunblaðið - 17.04.1984, Page 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 Ein60g mer synist ....______________________________________ C,ísli J. Ást|)órsson Hver vill koma í dátaleik? I»á var víst gaman aó lifa ... Landi okkar einn (sem eflaust kemur ekki nema gott eitt til) var að panta íslenskan her í grein hér í biaðinu í febrúar síðast- liðnum. Hann gefur þá skýringu á þessari draumsýn sinni að ef ver- öldin hlypi nú allt í einu í bál og bálið breiddist hingað út til íslands, þá væri það ekki vansalaust ef „bandamenn okkar í NATO“ yrðu að standa ein- ir í skítverkunum hér uppá íslensku heiðunum, „á meðan íslenskir karlmenn, afkomendur víkinganna ... skríða í kjallara með konum og börnum", einsog greinarhöfundur orðar það svo átakanlega. Hann er búinn að þrauthugsa málið. Hann vill að við sýnum mann- dóm, rekum af okkur slyðruorðið, skrúfum frá gamla góða víkingablóðinu sem svall okkur í æðum í þá gömlu góðu daga þegar forfeður okkar þveittust landshornanna á milli nag- andi skjaldarrendur, til þess eins að banka uppá hver hjá öðrum og kljúfa hver annan í herðar niður án þess að bjóða einu sinni góðan daginn. En þá var víst gaman að lifa, ef ég skil þetta rétt, það er að segja ef menn lifðu það af. Þessi landi okkar segir í grein sinni: „íslendingar gætu og ættu að mínum dómi að afla sér nýtísku vopnabúnaðar," og bætir við og þónokkuð drýginda- lega að manni finnst: „Við þurfum ekki að borga krónu fyrir hann sjálfir." Og um framkvæmdina hefur hann þetta að segja: „Hvert hérað ætti að hafa varnarmiðstöðvar skipu- lagðar fyrirfram og æski- legast að sem flestir kynnu með að fara.“ Hér ætla ég samt að til- lögumaður hljóti að hafa mismælt sig í ákafa sínum. Æskilegast að sem flestir kunni með að fara varnar- miðstöðvarnar eða hvað? Er það ekki dálítið stór pöntun ef annarhver mað- ur í hinum nýbakaða ís- lenska her á að vera hálf- gildings generáll? Afturá- móti er ég greinarhöfundi hjartanlega sammála um að brýnt sé að fyrrgreind- ar varnarmiðstöðvar séu „skipulagðar fyrirfram" einsog hann orðar það. Þar kemst ekki hnífurinn á milli okkar, nema byssu- stingur eigi betur við í þessu tilviki. Að skipu- leggja varnarmiðstöðvar fyrirfram fremur en eftirá hefði ég satt að segja hald- ið að væri nánast eins mik- ilvægt og að fýra til dæmis niðrum sig fyrirfram fremur en eftirá þegar maður á erindi á klósettið. Eða einsog við hernaðar- fræðingarnir orðum það gjarna þegar við erum að rabba saman í bróðerni um þessi mál á hernaðarráð- stefnum: Það er of seint að byrgja brunninn eftir að fjandmannaliðið er byrjað að freta oní hann. Annars er ég hræddur um að mér finnist allar bollaleggingar um íslensk- an her fremur svona fár- ánlegar. Okkur vantar hefðina þóað aldrei væri annað. Það var engin til- viljun hvernig Bretinn burstaði Argentínumann- inn í Falklandseyjastríð- inu í hitteðfyrra og mátti þó stíma langleiðina til Suðurpólsins til þess að ná í skottið á kauða. Sá fyrr- nefndi hafði reynsluna, sá síðarnefndi einkanlega drambið og heitingarnar. Breskur stríðsfréttaritari sá enda strax hvar skórinn kreppti. Argentínsku hers- höfðingjarnir, skrifaði hann, höfðu álpast útí al- vörustríð, þegar það litla sem þeir kunnu fyrir sér í hetjudáðum var að kvelja og deyða sína eigin lands- menn og siga síðan soldát- um sínum á mæður og aðra ættingja fórnarlambanna, til þess að ekkert færi á milli mála um manndóm- inn. Raunar hentar Danskur- inn okkur betur þegar talið berst að breska ljóninu þótt fótafúið sé orðið og fyrrnefndri hefð sem reyndist því svo afbragðs- vel á Falklandseyjum. Hinir dönsku frændur okkar eru víst „afkomend- ur víkinganna" rétteins og okkur finnst líka stundum svo gaman að láta það heita um okkur, og þaraf- leiðandi eru Danirnir væntanlega alveg sneisa- fullir af þessu gamla góða víkingablóði sem sumir menn eru sífellt að guma af. En þóað þeir dönsku hafi verið að basla við að spila hermenn gegnum ár- in, þá er vígamóðurinn löngu gufaður uppúr þeim. Hugur fylgir einfaldlega ekki máli og höndin sem mundar brandinn er alltof treg, enda fór sem fór þeg- ar grannar þeirra Þjóð- verjarnir birtust óboðnir heima hjá þeim hernáms- vorið ’40. Á hinn bóginn sýndi danska þjóðin hvern mann hún hafði að geyma og skákaði um leið flestum ef ekki öllum þjóðum Evrópu, þegar henni tókst með hugrekki sínu og harðfylgi að forða nær hverjum ein- asta gyðinga sinna yfir sundið til Svíþjóðar. Dön- um er semsagt lagnara að bjarga mannslífum en tor- tíma þeim; og það er von- andi fordæmi sem jafnvel hinir herskáustu á meðal okkar treysta sér ekki til þess að skopast að — ekki upphátt að minnstakosti. Einsog ég sagði áðan hygg ég að líkt sé á komið með okkur. Við hættum að mestu fyrir einum sjö hundruð árum að hausa náungann og erum fyrir bragðið fyrir langalöngu búin að glata þeirri hefð eða hernaðaranda sem er forsenda rösklegra hand- bragða í þeirri atvinnu- grein sem hér er til um- ræðu. Raunar eru manneskj- urnar sem „skriða í kjall- ara“ nú á dögum ekki parið öfundsverðar. Við þurfum ekki lengra en að sjón- varpstækinu okkar til þess að sannprófa þetta (hvað finnst mönnum um Beirút til dæmis?), enda veit ég ekki betur en að allar hérnaðaráætlanir miðist einmitt núna einkum við það að murka lífið úr sem flestum óbreyttum borgur- um. Menn fleygja á milli sín milljónum í þessu sam- bandi eða jafnvel tugum milljóna einsog þeir væru að spjalla um afdrif loðnu- seiða í slæmu árferði. Halda menn kannski að eldflaugunum með kjarna- oddunum sé aðallega beint að gyllingunni á axlaborð- um hershöfðingjanna? Og hafa menn kannski þungar áhyggjur af því að við þessir óbreyttu og gjör- samlega gyllingarsnauðu verðum útundan þegar og ef sú úthlutun hefst á þess- um vopnum sem margir spá að yrði kannski sú hinsta í sögu mannkyns- ins? En fyrir nú utan þann barnaskap að finnast við íslendingar alls ekki þurfa að bera kinnroða fyrir það að eiga ekki sérhannað fallbyssufóður, þá óttast ég þaraðauki (þvíað alltaf er grunnt á spéhræðsluna hjá okkur mannfólkinu) að við yrðum að dúndrandi athlægi um víða veröld, svo fá og smá sem við er- um, ef við þættumst nú líka ætla að fara að vera með tilburði í hernaðar- listinni ofaná allt annað. Við yrðum óperettudátar af því tagi sem túristar keppast við að Ijósmynda; að vísu ekki eins skrautleg- ir dátar og lífverðirnir í Páfagarði með atgeirana sína, en saga til næsta bæjar allt um það þarsem við skröngluðumst hér um holtin á tveimur þremur afdönkuðum skriðdrekum og þættumst vera að bjóða heiminum birginn. Alvöru- hermenn tækju ekki meira mark á okkur en kuskinu á stígvélunum sínum. Það væri þá helst að þeir köfn- uðu úr hlátri. Landi okkar (sem einsog fyrr er sagt kemur auðvit- að ekki nema gott eitt til) boðar í herkvaðningu sinni að sprellið yrði okkur út- gjaidalaust, eða svoað ég vitni aftur í hans eigin orð um vopnabúnaðinn: „Við þurfum ekki að borga krónu fyrir hann sjálfir." Þetta með kostnaðar- hliðina er vitanlega bölvuð vitleysa ef dæmið er hugs- að til enda: naumast send- um við velgjörðarmönnum okkar reikninginn fyrir út- gerðinni á kraminu þeirra, og svo kostar það líka sitt að starfrækja hermála- ráðuneyti, þvíað varla get- um við látið það spyrjast um okkur svona nýkomin til manns að hinum vaska íslandsher sé stjórnað úr landbúnaðarráðuneytinu. En látum þetta með krónurnar og aurana liggja á milli hluta. Landi okkar mun líta svo á að hann sé að færa okkur gleðifréttir. Ég verð samt að hryggja hann með því að býsna margir hér um' slóðir sjá þetta í öðru ljósi. Þeir munu bara hugsa sem svo: Þokkaleg framtíð það: með byssuhólk í annarri hendi og betliskál f hinni. Ludvig Storr, aðalræðismadur. Menningar- og framfara- sjódur Ludvigs Storr: Umsóknar- frestur um styrki renn- ur út 10. maí UMSÓKNARFRESTUR um styrki til framhaldsnáms og rannsókna úr Menningar- og framfarasjóði Lud- vigs Storr fyrir árið 1984 rennur út 10. maí. Styrkir verða veittir í sam- ræmi við skipulagsskrá sjóðsins. Þar segir: „Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnaðar og skipasmíða með því að styrkja vísindamenn á sviði jarðefna- fræða, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga og iðnaðarmenn til framhaldsnáms, svo og að veita styrki til rannsókna á hag- nýtum úrlausnarefnum í þessum greinum. Stjórn sjóðsins er ennfremur heimilt að veita lán í sama til- gangi. Við mat á því, hvort umsækj- andi skuli hljóta styrk, skal lagt til grundvallar, hvort framhalds- nám umsækjanda eða rannsóknir geti stuðlað að raunhæfum fram- förum í þeirri grein, sem um ræð- ir.“ Sjóðurinn var formlega stofn- aður árið 1979 og er í vörslu Há- skóla íslands. Ludvig Storr fæddist í Kaup- mannahöfn 21. október 1897. Að loknu verslunarprófi sneri hann sér að gleriðnaði, sem forfeður hans höfðu lagt stund á um alda- raðir. Árið 1922 fluttist hann til Reykjavíkur og stofnaði þar byggingarvöruverslun með gler- sölu og glerslípun sem sérgrein. Hann var mikill félagsmála- maður og lét einkum til sín taka í ýmsum félagsskap Dana hérlend- is og var aðalræðismaður Dana frá 1956 til dauðadags, 19. júlí 1978. Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu Háskóla íslands og skal senda umsóknir þangað fyrir 10. maí næstkomandi. Fljótsdalsreið Eið- faxa frá Egilsstöðum (ieiUgerði, 9. apríl. MIKIL veðurblíAa hefur verið hér að undanfnrnu, 8—10 stiga hiti og yfir- leitt þurrt veður en kulað hefur á nótt- inni vegna heiðríkjunnar. í heild hef- ur veturinn verið afar mildur, aldrei komið stórviðri eða frostharka. Hestamannafélagið Freyfaxi stóð fyrir myndarlegri hópferð hingað upp í Fljótsdal um síðustu helgi. Ferðin hófst á Egilsstöðum og var farið sem leið liggur inn Velli og Skóga (þ.e. um Hallormsstað). Munu um 60 manns hafa tekið þátt í henni er flest var, sumir með tvo og þrjá hesta til reiðar. Ekki höfðu allir tök á að fara á leiðarenda, var áætlaö að 45 manns, karlar og kon- ur, með um 90 hesta, hefðu gist Fljótsdalinn. G.V.Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.