Morgunblaðið - 17.04.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 17.04.1984, Síða 18
► oor r'tcta i. rr 01 ?n a rrrfTiTTart ara * icttxttr\rr/~»*» MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984 Athugasemdir um friðarviku á páskum 1984 Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi athugasemd frá Samstarfs- hópi friðarhreyfinga (eins og hann samanstóð til 4. aprfl): „í tilefni af yfirlýsingu Varð- bergs frá 30. mars 1984 um frið- armót í Norræna húsinu á páskum 1984, vill Samstarfshópur frið- arhreyfinga koma á framfæri eft- irfarandi athugasemdum: Við hörmum þann misskilning sem fram kemur í yfirlýsingu Varðbergs. Þar segir: „Ákvörðun hins óskilgreinda „friðarhóps" .. var sú að Varðberg og stefna þess skuli sett utangarðs. Friðarhópur kirkjunnar, fulltrúar 93% þjóðar- innar, varð undir og lét þar við sitja. Þó var samþykkt að Varð- berg gæti fengið svonefnda „auka- aðild“ að friðarmóti en í þeirri að- ild er ekkert fólgið. Félagið mátti ekki hafa nokkur áhrif á verkefni friðarmótsins, ekki hafa áhrif á hvaða fræðilegu fyrirlestrar yrðu fluttir, né nokkuð annað í undir- búningi. Aukaaðild er fólgin í því að gleypa þá mola sem hrökkva af borðum hinna formlegu friðar- sinna." Þarna gætir ferns konar mis- skilnings: f fyrsta lagi var ekki gerð nein samþykkt um Varðberg sérstak- lega, heldur var það einungis áréttað að þær 11 hreyfingar sem starfað hafa að undirbúningi friðarmótsins undangengna mán- uði mundu standa að því hver und- ir sínu nafni. (Þess má geta að nær sömu aðilar stóðu að friðar- blysför á Þorláksmessu 1983.) í öðru lagi var samþykkt sam- hljóða, að öðrum hópum eða félög- um, sem sýnt höfðu áhuga á þessu samstarfi, eða áhugi var á að fá inn í það, skyldi gert það kleift ef þau teldu sig geta skrifað undir ávarp friðarmótsins. Þarna var ekki verið að hugsa um einn aðila heldur fjölda félaga og hópa s.s. Samhygð, MFÍK, ýmis trúfélög, pólitísk félög, Varðberg, MÍR, ís- lensku friðarnefndina, Heimsfrið- arráðið o.s.frv. o.s.frv. í þriðja lagi var lögð á það áhersla, að hugsanlegir stuðnings- aðilar gætu orðið virkir þátttak- endur í mótinu, bæði í kynningu sinna málefna og mótun dagskrár- innar (t.d. hvað varðar „fræðilega fyrirlestra" og „verkefni"), þó inn- an þess ramma að þriggja mánaða undirbúningsvinna raskaðist ekki úr hófi. í fjórða lagi er það á misskiln- ingi byggt, að einhverjir hafi orðið undir og aðrir ofan á í mótun þess- arar tillögu. Hún var samþykkt samhljóða, enda ríkir sá andi inn- an Samstarfshóps friðarhreyfinga að mynda einingu um það sem sameinar en víkja því brott sem sundrar." Frá setningarathöfninni í Gerðubergi. Fremst til hægri á myndinni er menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, en við borðsendann er María Pétursdóttir, formaður Kvenfélagasambandsins. „Konur í nýju landnámi“ á vorvöku 1984: 1753 Halli á viöskiptum þjóðarbúsins við útlönd í millj. kr Alls 1979-1983: 14.276 millj. kr. (Fast verðlag 1984) áætl. Áætlaður viðskiptahalli 1984: 670 m.kr. - 1% af þjóðarframleiðslu Halli á viðskiptum þjóðarbúsins við útlönd jókst óðfluga 1979—1983, eins og súluritið hér að ofan sýnir, eða um 14.276 m.kr. mælt á fostu verðlagi 1984. Viðskiptahallinn á þessum tímabili var meginorsök erlendrar skulda- söfnunar á sama árabili, sem nú tekur fjórðung útflutningstekna þjóðarinnar í greiðslubyrði, og skerðir lífskjör þjóðarinnar samsvarandi. Strax á árinu 1983 leiddi breytt stjórnarstefna til minni viðskiptahalla, eins og súluritið sýnir, og þrátt fyrir samdrátt í þjóðarframleiðslu í ár, einkum sjávarútvegi, standa vonir til enn minnkandi viðskiptahalla 1984. Aætlanir standa til þess að viðskiptahalli verði nálægt 670 m.kr. 1984 sem nemur um 1% af þjóðarframleiðslu. Húsnæðislánum seinkar um tvær til fjórar vikur NÚ ER fyrirsjáanlegt að útborgun húsnæðislána seinkar um tvær til fjórar vikur. Stafar seinkunin af fjárhagsörðugleikum Byggingarsjóðs ríkisins. Á fundi stjórnar llúsnæð- isstofnunar á miðvikudag voru sam- þykktar útborganir fjögurra lána- flokka í þessum mánuði að upphæð 60,4 milljónir króna samtals. Sigurður sagði, að orsakir þessa væru margar. Stofnunin væri í mikilli yfirdráttarskuld við Seðla- bankann, sem enn hefði ekki verið ráðið til lykta og ylli því, að litla aðstoð þaðan væri að fá um þessar mundir. Þá væri skyldusparnaður- inn sannarlega ekki sá tekjustofn, sem áður hefði verið, þvert á móti. í þriðja lagi skiluðu vissir aðrir tekjustofnar sér ekki í þeim mæli, sem og á þeim tímum, sem þyrfti að vera. Mætti þar nefna skulda- bréfakaup Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, en þau skiptu miklu máli. Um þrjú hundruð kon- ur tóku þátt i vökunni UM ÞRJÚ hundruð konur úr flest- um byggðarlögum landsins sóttu Vorvöku 1984, sem Kvenfélagasam- band íslands stóð fyrir helgina 7.—8. aprfl sl. Vorvakan er nýmæli í starfsemi KÍ og var viðfangsefni hennar að þessu sinni „konur í nýju landnámi“. Á milli sextíu og sjötíu konur fjölluðu með einhverjum hætti um það efni. Á laugardeginum var erinda- flutningur. Tuttugu konur sem haslað hafa sér völl á ýmsum starfssviðum lýstu „landnámi" sínu í stjórnsýslu, vísindum og menntum, atvinnuvegunum og í listum. Þátttakendur fóru síðdegis báða dagana í tveimur hópum, annar á leiksýningu hjá vorkonum Alþýðuleikhússins en hinn að, Bessastöðum í boði forseta ís- lands. Þá var farið í heimsókn á Kjarvalsstaði þar sem Hulda Val- týsdóttir, varaformaður stjórnar Kjarvalsstaða, tók á móti gestum og lýsti starfsemi hússins. Þá ræddu konur úr æskulýðs- og safnaðarstarfi við gestina og skoð- aðar voru sýningar sem nú eru á Kjarvalsstöðum og rætt var við listamenn. Ungar stúlkur fluttu frumsaminn ballett tengdan skúlptúrsýningu í húsinu. Auk ofangreindra dagskrárliða var um tveggja tíma listadagskrá kvenna í Gerðubergi þar sem vorvakan var haldin. Við setningu vorvökunnar á laugardeginum var fjöldi gesta, meðal annars flestar þær konur er eiga sæti á Alþingi og í borgarstjórn. María Péturs- dóttir, formaður KÍ, flutti setn- ingarávarp. Skipulag og fram- kvæmd vorvökunnar annaðist sér- stök nefnd undir stjórn Bjargar Einarsdóttur. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar ríkisins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að það hlyti að ráðast af fjárhagsstöðu Bygg- ingarsjóðs ríkisins, hvort þær yrðu framkvæmanlegar á þeim dagsetningum, sem ákveðnar hefðu verið. Eftir 15. apríl væri fyrirhugað að greiða út lán til þeirra, sem væru að byggja í fyrsta sinn og hefðu gert fokhelt á tilskildum tíma. Næmi sú útborg- un um 9 milljónum króna. Við sama tíma væri miðuð útborgun þriðja hluta lána þeirra, sem fengu frumlán 20. marz 1983, sam- tals 12,4 milljónir. Eftir 15. apríl væri fyrirhugað að greiða út þriðja hluta byggingarlána þeirra, sem fengu frumlán 5. apríl 1983, samtals 28,5 milljónir, og á sama tíma væri fyrirhugað að greiða út annan hluta lána þeirra, sem fengu frumlán 5. október 1983, samtals 20,5 milljónir króna. Þá ætti eftir að ákveða útborg- un G-lána til þeirra, sem sótt hefðu um þau í júlí, ágúst og sept- ember í fyrra, en af henni yrði ekki fyrr en síðari hluta maímán- aðar. Kartöflurnar skepnufóður „Já, enda er þetta skepnufóð- ur,“ sagói Ólafur Björnsson, kaup- maður í Holtakjöri, aðspurður um hvort kvartað hefði verið yfir finnsku kartöflunum, en eins og Mbl. sagði frá í miðvikudagsblaði hefur bakteríusjúkdómurinn hringrot fundist í kartöflum sem Grænmetisverslun landbúnaðarins hefur flutt inn frá Finnlandi frá áramótum. „Ég hef fengið geysimiklar kvartanir yfir þessu, og trúi ekki að þeir séu búnir að sortera frá það sem sýkt er. Því þessar kart- öflur eru svo óskaplega skemmd- ar, eitt af því allra versta sem maður hefur séð. Ég er mest hissa á að þetta skuli vera flutt inn og sett hér á markað," sagði ólafur. „Við fengum lítið af kvörtun- um meðan við buðum hollenskar kartöflur en þegar þær voru ekki lengur fáanlegar og við fórum að bjóða þessar finnsku brá strax til verri vegar," sagði Gísli Blön- dahl í Hagkaup. „Okkur fannst samt furðu sæta hversu lítið var kvartað eftir að við komumst að því hversu léleg varan var. En það sýnir að fólk er farið að taka lélegum kartöflum eins og hverju öðru hundsbiti og kvartar ekki einu sinni." Sömu sögu hafði Gunnar Snorrason í Hólagarði að segja: „Fólk hefur kvartað óvenju mik- ið og segist hafa þurft að fleygja hálfu og heilu pokunum. Svo eitthvað óstand er á þessu. Ég held að nauðsynlegt sé að koma á samkeppni um þennan inn- flutning."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.