Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
57
Verðlaunahafarnir ásamt dómnefnd, skólastjóra Barnaskólans og úti-
bússtjóra Iðnaðarbankans á Selfossi.
Myndlistarkeppni
barna á Selfossi
IÐNAÐARBANKINN á Selfossi gekkst nýlega fyrir myndlistarsam-
keppni í tilefni af 50 ára afmæli Barnaskólans á Selfossi. Þátt tóku
nemendur skólans og myndefnið var Selfoss og nágrenni, skólinn og
atvinnulífið.
Úrslit voru kynnt og verðlaun
afhent 15. maí síðastliðinn í Iðn-
aðarbankanum á Selfossi.
Fyrstu verðlaun, 4 þús. kr., hlaut
Guðfinna Tryggvadóttir. Önnur |
verðlaun, 3 þús. kr., fékk Ólöf
Þóra Ólafsdóttir og þriðju verð-
laun, 2 þús. kr., María Hall-
grímsdóttir.
Veitt voru sjö aukaverðlaun.
Þau hlutu: Ásdís Kolbrún, Guð-
mundur Sigurðsson, Hafdís
Grétarsdóttir, Hreinn Óskars-
son, Smári Pálsson og Svava
Steingrímsdóttir. Ennfremur
keypti bankinn myndir af þrem-
ur nemendum: Sesselju Österby,
Sigurði Fannari Guðmundssyni
og Ingibjörgu Erlendsdóttur.
í dómnefnd voru: Bragi Hann-
esson, bankastjóri Iðnaðar-
bankans, Ólafur Th. Ólafsson,
kennari við Fjölbrautaskólann á
Selfossi, og Ingunn Þóra Magn-
úsdóttir, kennari við barnaskól-
ann.
Við afhendinguna sagði Bragi
Hannesson, bankastjóri, að Ár-
nessýsla hefði lagt mikið af
mörkum til íslenskrar myndlist-
ar. Ágætir listamenn væru
starfandi á Selfossi, svo og
myndlistarfélag. Ef til vill ætti
eitthvert þeirra barna sem Iðn-
aðarbankinn veitti nú viður-
kenningu eftir að halda eigin
sýningar og verða þekkt nafn í
anda brautryðjendanna úr Ár-
nessýslu.
Uppstigningardagur:
Dagur aldraðra
í kirkjum landsins
Á uppstigningadag veröur aldraðs
fólks sérstaklega minnst í kirkjum
landsins, bæði viö guösþjónustur og
á sérstökum samkomum. Á ári aldr-
aöra 1982 var uppstigningardagur
kjörinn öldrunardagur kirkjunnar í
— Svo að þetta hefur verið
skemmtileg ferð?
— Já, mjög. Fyrirlestrahald
Óslóarháskóla í Frederikstad var
vígsluhátíð; tekin voru í fyrsta
sinn í notkun viss húsakynni fyrir
fornleifasetrið. Var ákveðið, að
þaðan í frá skyldu fornleifafræð-
ingar og menningarfræðingar
halda föstu sambandi sín á milli
og ekki framar standa sundraðir
gagnvart verkefnunum. Var með
eindæmum gaman að fá að upplifa
þá sögulegu stund.
— Og árangurinn?
— Meginatriðið er að sjálf-
sögðu, að nú er það staðfest, að á
Norðurlöndum leyfist mönnum að
stunda rannsóknir á nýjum svið-
um og að finna nýjar vinnuaðferð-
ir án þess þeir séu rægðir eða verk
þeirra afflutt. Þótt þeir í Bergen
hafi til dæmis vart skilið að fullu
allegóríu Njáls sögu, var hitt á
hreinu: þeir létu ekki bjóða sér að
traðka á mannlegri hugsun og
tjáningarfrelsi. Þarna skilur á
milli annarra vestrænna þjóða og
háskólans í Reykjavík.
samráöi við nefnd sem sérstaklega
vinnur aö þeim málum á vegum
kirkjunnar. Formaöur hennar er sr.
Tómas Guðmundsson í Hveragerði.
Víða hafa „öldungar safnaðar-
ins“ tekið mikinn þátt i flutningi
messunnar á þeim degi undanfar-
in ár og góð samvinna hefur verið
við þá aðila innan prestakallanna
sem láta sig öldrunarmál skipta.
Hefur verið efnt til margskonar
samfunda og skemmtana, þar sem
aldraðir hafa verið heiðursgestir.
Starf meðal aldraðra fer mjög
vaxandi í söfnuðum landsins og
hefur ekki síst verið lögð áhersla á
heimsóknarþjónustu til þeirra
sem ekki eiga heimangengt heilsu
sinnar vegna og hættir því til að
einangrast. Ennfremur er reglu-
bundið starf, opið hús, námskeið
og fleira, eftir aðstæðum og þörf á
hverjum stað.
Nýlega er lokið námskeiði á veg-
um Ellimálaráðs Reykjavíkur-
prófastsdæmis fyrir sjálfboðaliða
sem vinna vilja þjónustustörf í
safnaðarstarfi, ekki síst á meðal
aldraðra. Á annað hundrað manns
sóttu námskeiðið.
Biskup hefur sérstaklega skrif-
að til presta og safnaða og hvatt
til þess að nk. uppstigningardag-
ur, sem er núna á fimmtudaginn,
verði helgaður málefnum aldraðra
með sama hætti og undanfarin ár.
(Fréttatilkynnint;)
Mfee/i
oö2c
rnat. ÍIlQ,9un-
Askriftarsíminn er 83033
85 40