Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
61
Óperuflutningur
Nýja tónlistarskólans
- eftir Gunnar
Reyni Sveinsson
Á íslandi eru starfandi u.þ.b. 60
tónlistarskólar. í þeim stunda
nám hátt á níunda þúsund manns,
mest ungmenni — að sjálfsögðu.
Alls voru nemendur 8384 skóla-
árið 1982—’83. Tónlistarkennarar
við þessa skóla eru 450. Við músík-
uppfræðsiu í grunnskólum starfa
140 tónmenntakennarar. Af 33
þúsund nemendum sem eiga rétt á
að fá tilsögn i tónmennt í
grunnskólum njóta um 15 þúsund
engrar kennslu í þessari náms-
grein — þó lögum samkvæmt eigi
svo að vera.
Af þeim 18 þúsund grunnskóla-
nemum sem sækja tónmennta-
tíma eru allt að fimm þúsund í
enn frekara tónlistarnámi. Með
fjölgun tónlistarskólanna og hóf-
legum skólagjöldum hefur þeim
fækkað sem eru í einkaspilatím-
um. Samt má gera ráð fyrir að
a.m.k. 1.000—1.500 manns á öllum
aldri stundi tónlistarnám eftir
þeim leiðum. Það eru því a.m.k. 23
þúsund nemendur hér á landi sem
fá einhvers konar skipulagða til-
sögn í tónlist.
Við þessa tölu má svo bæta
þeim fjölmörgu sem starfa í kór-
um. En á marga kóra má einmitt
líta sem nokkurs konar uppeld-
isstöðvar í tónlist. Heimildir um
tölu kóranna og hve margar
syngjandi sálir eru í þeim starf-
andi liggja ekki á lausu, en þær
skifta sjálfsagt þúsundum.
Ef gert er ráð fyrir að það séu
alls eitt hundrað kórar og hver
þeirra haldi einn samsöng á ári
gerir það vitaskuld hundrað
söngskemmtanir. En þetta er nú
ekki alveg svona einfalt. Þó ein-
hverjir kóranna séu af tækni-
legum ástæðum mest í felum, gera
nú flestir þeirra mun betur en að
troða upp einu sinni á ári. Það má
e.t.v. gera sér einhverja grein fyrir
hve margir opinberir tónleikar eru
haldnir árlega hér á landi án þess
að þetta sé rannsakað sérstaklega.
(í menningarlöndum eins og t.d.
Hollandi liggur allt slíkt ljóst
fyrir á bók.). Sé tekið mið af Akur-
eyri (sem einnig er mikill menn-
ingarbær) þá eru þar haldnir
u.þ.b. fimmtíu konsertar árlega. Á
Stór-Reykjavíkursvæðinu má
áætla að þeir séu hátt í tvö hundr-
uð og annars staðar á landinu um
eða yfir hundrað.
Hér verður lítillega getið einna
tónleika sem voru mikið og gott
framtak. Tveir af primus motor-
um Nýja tónlistarskólans, þeir
Ragnar Björnsson skólastjóri og
söngkennarinn Sigurður Dementz
Franzson, ásamt kennaraliði og
nemendum komu á fjalirnar í sal
Hvassaleitisskóla alvöruóperu —
meira að segja Mozart-óperu með
sminki, búningum, ljósum, leik-
tjöldum, hreyfingum, leik,
leikskrá og áheyrendum. Tvær
uppfærslur nú í maí fyrir fullu
húsi. Auk söngsins nutu áheyr-
endur velsamstilltrar sveitar úr.
Sinfóníunni undir öruggri stjórn
Ragnars Björnssonar.
„Die Entfiihrung aus dem Sera-
il“ eða Brottnámið úr Kvennabúr-
inu er ópera í þrem þáttum eftir
meistara Wolfgang Amadeus
Mozart (1756-1791).
Hún var hér flutt á frummálinu.
Talaður texti var hins vegar á ís-
lensku. Hann greinir frá fram-
vindu (ásta)mála og alls konar
ergelsi í dyntóttu kvenfólki sem
ekki kann að meta heimilisfriðinn.
Með þetta talhlutverk (Selim) fór
Reynir Bjarnason. Þau sem fóru
með einsöngshlutverk í Brottnám-
inu voru: Guðbjörn Guðbjörnsson
tenor (Belmonte), Helga Bald-
ursdóttir sópran (Blonde), Jó-
hanna Guðríður Linnet sópran
(Konstanze), Magnús Gíslason
tenor (Pedrillo) og Oddur Sigurðs-
son bassi (Osmin). Efnisþráðurinn
er í sem allra stystu máli eitthvað
á þessa leið:
Tenorarnir tveir sækja það stíft
að komast inn á gafl í kvennabúr
það sem Selim heldur fyrir sig og
eiginkvennaskarann. Jafnvel hafa
þeir á prjónunum áform um að
nema þær Blonde og Konstanze á
brott. Sópranarnir þrá aftur á
móti ekkert heitar en að öll þessi
áform heppnist fullkomlega. Sel-
im er sár yfir þeirri heimilis-
ólukku sem þetta karlafar í
kvennabúrinu er. Bassinn Osmin
kvennabússtjóri er sterkur á svell-
inu og reynir fyrir hvern mun að
koma í veg fyrir þennan samdrátt
— finnst réttilega að hér sé verið
að komast uppá milli hjóna. — En
mikið var músíkin falleg. Þá er
ekkert annað eftir en að óska Nýja
tónlistarskólanum til hamingju
með Brottnámið úr kvennabúrinu
og þakka áræðið.
Cunnar Reynir Sreinsson er tón-
listarkennari og tónskáld.
Vélflugfélagið
gefur út
sumardagskrá
NÝLEGA kom út dagskrá sumar-
starfs Vélflugfélags Islands og er
það í fyrsta skipti sem félagið gef-
ur út slíka stundarskrá. Dagskráin
verður send öllum vélflugmönnum
og flugvélaeigendum og mun liggja
frammi á stærstu flugvöllunum.
Hún er samin í samráði við
alla flugklúbba í landinu og
vélflugnefnd Flugmálafélagsins.
Við gerð hennar segjast for-
svarsmenn VFFÍ hafa haft
þrennt í huga: fjölbreytni, risjótt
veðurfar og síðast en ekki síst að
bjóða upp á skemmtun fyrir alla
fjölskylduna. Dagskrárliðunum
eða „flugkomunum" er raðað
niður á aðra hvora helgi frá maí-
byrjun til ágústloka. Stærstu
viðburðirnir í sumar verða helg-
arferðir til Egilsstaða (Flugdag-
urinn 1984), á Kaldármela og í
Múlakot. Einnig verða dagsferð-
ir t.d. á Rif á Snæfellsnesi, í
Húsafell/Kaldármela o.s.frv. Þá
eru ýmsir árlegir viðburðir eins
og flugdagur Flugklúbbs Mos-
fellssveitar sem er ávallt hald-
inn á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Flugleiðir, Flugfélag Norður-
lands og Flugfélag Austurlands
veita félagsmönnum VFFl og
fjölskyldum þeirra sérstakan af-
slátt af fargjöldum í tengslum
við flugdaginn á Egilsstöðum og
helgarferðina á Melgerðismela í
Eyjafirði, þannig að öll fjöl-
skyldan ætti að geta tekið þátt í
flugdögunum úti á landi í sumar.
Að sögn Sigurjóns Ásbjörns-
sonar, formanns VFFl, er útgáfa
sumardagskrárinnar tilraun til
að efla samstöðu og persónuleg
kynni með vélflugmönnum og
auka fjölbréytni í starfsemi
vélflugs á íslandi.
Sænska póstþjónustan
Frá Magnúsi BrynjólfNHyni fréttariUra Mbl. í Uppsölum
Fyrsta stofnunin, sem Islend-
ingar reka sig á er þeir koma til
Svíþjóðar, er pósturinn. Það er
ekki aðeins að landinn fái póst i
gegnum þessa stofnun heldur
kemur til fjölmörg önnur þjón-
usta. Póstþjónustan í Svíþjóð er
vel rekin stofnun og skilar veru-
legum hagnaði ár hvert.
Vinsældir
Fyrir nokkrum vikum var birt
könnun yfir vinsældir ríkis-
stofnana hér í landi. t ljós kom
að pósturinn var vinsælastur af
þessum ríkisstofnunum. Hjá
þeim, sem voru spurðir í könn-
uninni, fékk pósturinn um 60
prósent atkvæða. í öðru sæti
kom sjúkrasamlagið, en atvinnu-
miðlunin var óvinsælust ásamt
skattstofunni.
sparnaður. Otibúin hafa yfirleitt
verið byggð samtímis íbúðarhús-
unum og eru alltaf staðsett ná-
lægt verslunarkjarnanum í
hverju hverfi.
Póstgíróþjónustan hefur
miklu meiri þýðingu, þegar
svona stutt er á póstinn. Hægt er
að sinna langflestum erindum
við banka og opinberar stofnanir
í gegnum hvert póstútibú. Flest-
ar afborganir fara í gegnum
póstgíró til hvaða prívat eða
opinbers aðila sem er.
Menn sækja um nafnskírteini,
endurnýja öskuskírteini, mann-
talsskrifa sig, sækja óútfyllt
skattaeyðublöð um hver áramót,
greiða atkvæði i kosningum
o.s.frv., allt á einu og sama
pósthúsinu.
Fyrir utan öll útibúin er til
ótölulegur fjöldi póstkassa, sem
tæmdir eru þrisvar á sólarhring.
Opnunartími
Opnunartími póstsins er frá
kl. 9—18 og hentar sú tilhögun
mjög vel vinnandi fólki, sem
flest starfar til kl. 16 virka daga.
Á laugardögum er opið milli
9.30—12. Sá opnunartími er mik-
ið notaður, þar sem allar versl-
anir hafa opið á sama tíma.
Bankar eru hins vegar ekki opnir
á laugardögum, þannig að póst-
urinn er einn um þá almennu
bankaþjónustu, sem sinna þarf á
laugardögum.
Útibú
Það, sem einkum gerir póst-
þjónustuna vinsæla, er hversu
mörg útibúin eru og hvað stutt
er fyrir hvert heimili út á við-
komandi hverfispósthús. í þessu
felst mikill tíma- og bensín-
Skrá yfír viöskipta-
menn póstsins
Þegar fyrirtæki og einstakl-
ingar flytja í ný hverfi eða milli
landshluta, þá verða þeir sam-
tímis að tilkynna ný og breytt
heimilisföng á næsta póstútibúi.
Ef þetta er ekki gert, á enginn
póstútburður sér stað, jafnvel þó
nafnspjald sé komið á póstkassa
í hinum nýja bústað. Reynslan
hefur sýnt að þetta kerfi tryggir
öruggari póstdreifingu, sbr. t.d.
er merkingar á dyraumbúnaði og
póstboxum eru illa gerðar og
ólæsilegar. { þessu felst ekki síð-
ur öryggi fyrir sendandann en
móttakandann, þegar hægt er að
rekja allar adressur eftir tölvu-
spjaldskrá.
Geymsla á pósti
Mér vitanlega þekkist sú al-
menna þjónusta tæplega á ís-
landi, en hún er mikið notuð hér
á sumrin, er fjölskyldur fara í
sumarbústaði og löng ferðalög.
Ætíð er sú hætta fyrir hendi
að óboðnir fingralangir gestir
tæmi íbúðir og hús með heilum
búslóðum. Það sem oftast hefur
gefið þjófunum grænt ljós, er
haugur af pósti, sem staðið hefur
fyrir neðan bréfalúguna.
Geymsla á pósti er og algeng er
fólk skiptir um húsnæði.
Geymslutíminn er venjulega
einn mánuður. Einnig er til að
menn láti senda sér allan póst í
sumarbústaðinn, þegar um
lengri tímabundna dvöl er að
ræða. Þessi þjónusta er veitt
gegn vægu gjaldi, 25,- skr.
Póstkassetta
Sú nýjung var tekin upp fyrir
tveimur árum að pósturinn lét
hanna eigin segulbandskassettu,
2x10 mín. Þessi nýjung var lík-
lega hugsuð fyrir þá, sem voru
pennalatir eða að öðru leyti fatl-
aðir. Kassettan kostar um 10,-
skr. og er þá innifalið þykkt um-
slag og póstburðargjald. Þessi
nýjung hefur verið vinsæl meðal
íslendinga, þegar verið er að fá
börnin til að segja nokkur orð til
afa og ömmu á Fróni.
Póstbankinn
PK-bankinn (post-kredit) er
einn stærsti bankinn í Svíþjóð.
Hann er eign ríkisins að stærst-
um hluta. I PK-bankanum tíðk-
ast sömu viðskiptahættir og í
öðrum bönkum. Póstbankinn
sker sig þó úr að einu leyti. Þar
sem pósturinn á og rekur eigin
banka hefur það m.a. orðið til
þess að unnt hefur verið að
stunda inn- og útlán á almenn-
um pósthúsum. Þessi þjónusta
hefur verið vel metin, því að í
fyrsta lagi er t.d. hægt að færa
inn- og útfærslur í aðrar banka-
bækur, þ.e. frá öðrum bönkum
en póstbankanum upp að vissu
marki eða 1.500,- skr. Hins vegar
er slíkt ekki hægt í öðrum bönk-
um. I öðru lagi stendur þessi
þjónusta hjá póstinum til boða,
þegar hinir bankarnir eru lokað-
ir, þ.e. eftir kl. 16—18 dag hvern,
sem og laugardaga eins og áður
er getið. Það er skrýtið þegar
hugsað er til þess að aldrei hefur
verið rætt opinberlega um þenn-
an möguleika hjá íslensku póst-
þjónustunni. Þetta fyrirkomulag
myndi spara mörg óþarfa sporin
og verða til þess að auka þjón-
ustuhlutverk póstsins enn meir.
Tölvuvæðing
Tölvuvæðing hefur verið tekin
upp í ríkum mæli hjá sænska
póstinum. Tölvur eru m.a. notað-
ar við úrvinnslu á póstinum á
stóru dreifingarmiðstöðvunum
og ekki síst gegna þær mikil-
vægu hlutverki í daglegum
færslum á afgreiðslum pósthús-
anna. Þegar rekin er svo um-
fangsmikil starfsemi svo sem
alls kyns bankaþjónusta auk
annarrar hefðbundinnar póst-
þjónustu, hefur tölvuvæðing
ekki aðeins verið nauðsynleg
heldur algjört skilyrði fyrir
bættri og hraðari þjónustu.
Sérstök kvittun er afhent fyrir
hverja einstaka færslu
(greiðslu), sem síðan er hægt að
líma á t.d. fylgirit gíróseðils eða
varðveita á annan hátt. Slíkt
hljómar e.t.v. ofur einfalt í eyr-
um margra, en það gefur visst
öryggi að fá alltaf sérstaka
kvittun auk þess, sem þetta er
mikið hagræði fyrir þá starfs-
menn, er vinna við hvern af-
greiðslukassa.
Engar biðraðir
Biðraðir eru að verða hlutur,
sem heyrir fortíðinni til. Nú eru
eingöngu notaðir númeraðir
miðar, sem viðskiptavinurinn
framvísar, er röðin kemur að
honum. í augum margra er þetta
ekki stórt atriði, en þegar álagið
er mikið og langar biðraðir hafa
myndast, er þetta liður í því að
róa óþolinmóða kúnna og gera
ónustuna liprari.
Samanburður við
íslenska póstinn
Hér hefur verið drepið á nokk-
ur atriði, sem gætu verið til eft-
irbreytni fyrir íslensku póst-
þjónustuna.
Sænski pósturinn er að vísu
aðskilinn símanum og vinnur
sem sjálfstæð stofnun. Hann er
því ekki háður fjárveitingum,
niðurskurði eða stendur í beinni
samkeppni við símann um fjár-
magn.
Það sem eflaust myndi gera ís-
lensku póstþjónustuna sam-
keppnishæfari við hin fjölmörgu
bankaútibú í Reykjavík og ann-
ars staðar, væri að stofna póst-
banka. Þar með væri komin
sterk stoð undir það að póstþjón-
ustan gæti staðið á eigin fótum
og orðið gróðafyrirtæki. Um leið
og bankastarfsemi kæmi til, yrði
samkeppnisaðstaða islenska
póstsins margfalt sterkari. Má í
því samhengi benda á lengri
opnunartíma póstsins í saman-
burði við bankana og þann
möguieika að hægt væri að nota
sparisjóðsbækur annarra banka
við innlegg og úttekt eins og áð-
ur hefur verið drepið á. Er ekki
tími til kominn að láta þessa rík-
isstofnun bera sig og gegna bet-
ur þjónustuhlutverki sínu en áð-
ur?