Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAf 1984
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stálgæöi: Remanit 4301 IIIC
Stálgæði: Remanit 4016
Plötuþykktir: 0.8 - 3.0 mm
Plötustærðir: 1250 x 2500 mm
SINDRAi rJm .STÁLHF
Ðorgartúni 31 sími 27222
Hafarnarpör-
um hefur fjölgað
HAFARNARPÖRUM sem verpa hér á landi hefur fjölgað um 10 á síðustu
3—4 árum að sögn Árna G. Péturssonar, hlunnindaráðunauts hjá Búnað-
arfélaginu, og fer hann þar eftir upplýsingum sem hann hefur fengið hjá
Ævari Péturssyni, fuglafreðingi hjá Náttúruverndarstofnun íslands.
Varppörin eru samkvæmt þessu nálægt 45 eða á bilinu 40—50 og ernir f
landinu alls 150—200 á mðti 70—100 hér áður fyrr.
„Það er uppgangur í stofninum
og því ekki ástæða til að amast
við eitrunum fyrir svartbak vegna
hafarnarins, eins og Fuglavernd-
unarfélag lslands hefur gert,“
sagði Árni í samtali við blm.
Morgunblaðsins. Árni sagði að til
marks um það mætti nefna að
örninn hefði á undanförnum ár-
um sést á svæðum sem hann hefði
ekki sést á lengi. Hann hefði á
undanförnum árum sést allt aust-
ur í Þingeyjarsýslur og jafnvel á
Suðurlandi.
í fréttatilkynningu sem Árni
hefur látið frá sér fara vegna
þessa máls segir hann það ósann-
að úr hverju þeir ernir hefðu
drepist sem fundist hafa sjórekn-
ir, auk þess sem hann vissi ekki til
þess að ernir hefðu fundist sjó-
reknir á þeim svæðum, þar sem
veiðistjóra væri heimilt að setja
eiturefnið fenemal 1 ýmiss konar
æti til fækkunar flugvargi, um
sunnan-, austan- og norðar.vert
landið. Segir f tilkynningunni að
fækkunaraðgerðir hafi borið
greinilegan árangur og séu
heimamenn vfða um land til vitn-
is um það, til dæmis á Húsavík,
þar sem heimaenn geti nú hengt
upp skreið án erfiðleika. Að lok-
um segir: „Hins vegar segja arn-
fróðir menn mér að örn sé ekki
sundfugl, og fatist honum flug og
falli f sjó, t.d. við að hremma bráð,
veltur á ýmsu hver endalok verða.
Búast má við að ungerni, sem
skortir færni að hremma bráð, sé
hættar við á slíkum stundum.
Veit ekki hvort stjórn Fugla-
verndunarfélags Islands tekst að
venja erni af slíkum kúnstum."
Til að byrja með bjóða Flugleiðir SAGA
CLASS þjónustu eingöngu 1 ferðum til
Bretlands og Norðurlanaanna.
um sig í „business class“ setustofum á flestum
flugvóllum.
SAGA CLASS farj)egar mega hafa með sér
30 kg af farangri an aukagjalds.
FLUGLEIDIR
SAGA CLASS farþegar geta látið fara vel Gott fóikhjá traustu féiagi
SAGA CLASS farþegar hafa frátekin sæti
fremst í flugvélum Hugleiða.
SAGA CLASS farþegar fá forgangsþj ónustu
um borð.
SAGA CLASS farþegar þurfa ekki að greiða
fyrir drykki.