Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1984 Um samgöngumál höf- uðborgarsvæðisins - eftir Óskar Þór Karlsson Mitt í allri umræðu um umferð- armál og umferðaröryggi í tilefni norræns umferðarárs var þess getið í fréttum sl. haust að sam- göngukostnaður hverrar fjöl- skyldu sem býr á Reykjavíkur- svæðinu væri að meðaltali um 10 þús. krónur á mánuði. Þrátt fyrir að allar almennar launafjölskyldur finni hve þungur baggi rekstur bifreiðar er, hlýtur þetta að hafa komið mörgum á óvart og vakið til umhugsunar. Sú spurning hlýtur að vakna hvort tækniframfarir á síðari tím- um hafi ekki leitt okkur á ranga braut og hvort ekki sé fyllilega tímabært að endurmeta þessi mál. Hefur gengið yfir okkur þróun sem við höfum misst tök á og hvað er þá til ráða? Miklu fórnað Fyrrgreindur kostnaður þýðir það, að umferðin á höfuðborgar- svæðinu kostar íbúana þar sam- tals um fimm þúsund milljónir króna árlega í beinum útgjöldum. Reksturskostnaður bifreiða er því orðinn einn stærsti kostnaðarlið- urinn í útgjöldum heimila, álíka stór og fæðiskostnaður. En ekki er allt upptalið. Á hverju ári verða fjöldamörg alvarleg umferðarslys með tilheyrandi meiðslum, lim- lestingum og dauðsföllum. Þau verðmæti verða ekki metin til fjár. Þá má einnig geta þess mikla tíma sem margt fólk ver daglega í það eitt að komast leiðar sinnar m.a. til og frá vinnu. Algengt er að þessi tími sé um ein klst. á dag, jafnvel meira. Miðað við eina klst. á dag og aðeins reiknaðir virkir dagar, jafngildir þessi tími 6—7 vinnuvikum á ári! Það hlýtur því_. að vera öllum ljóst að til mikils er að vinna að draga úr hinni miklu bifreiðanotkun. Það verður hins vegar ekki gert nema þess í stað komi hraðvirk og afkastamikil samgöngutæki fyrir almenning og þá sérstaklega á langleiðum. Byggðaþróun á stærstan þátt í þessum vanda Á síðari árum hefur orðið stór- felld breyting á byggð á svoköll- uðu Stór-Reykjavíkursvæði. Fyrir 25 árum voru um 6.600 íbúar í Hafnarfirði, í Garðabæ voru inn- an við 1.000 íbúar og íbúar í Kópa- vogi voru rúml. 5.000. Nánast eng- in byggð var þá hafin þar sem nú er Árbæjar- og Breiðholtshverfi. Nú er hins vegar svo komið að á fyrrnefndum stöðum ásamt Mos- fellssveit og Seltjarnarnesi býr meirihluti allra íbúa á Stór- Reykjavíkursvæðinu eða rúmlega 70 þús. manns. Ibúarnir í þessum byggðum eiga það m.a. sameiginlegt að þurfa daglega að ferðast langar leiðir, og verja til þess miklum fjármunum og tíma. Við þessum breytingum hefur ekki verið brugðist á full- nægjandi hátt. Þróun samgöngu- kerfis og þá sérstaklega hvað varðar almenningssamgöngur, hefur alis ekki fylgt þessum stór- felldu breytingum eftir. Það á ugglaust stóran þátt í því að notk- un einkabíla er nú mikil og al- menn og að samgöngukostnaður á Reykjavíkursvæðinu hefur í seinni tíð margfaldast langt umfram íbúafjölgun. Sofið á verðinum — og vaknað við vondan draum Lengst af hefur lítil umræða farið fram um þessi mál á opin- berum vettvangi. Þessi byggða- þróun hefur gengið yfir án þess að ráðamenn virtust sjá fyrir þau vandamál sem henni fylgdu. Reyndar hafa á teikniborðinu ver- ið hannaðar samgönguæðar sem ætlað er að taka við umferðar- þunga um svæðið. Má þar nefna tengibraut í framhaldi af Breið- „Það er sjálfsagt fram- andi í hugum flestra að hér færu að ganga lestar um Reykjavíkursvæðið. Það er þó ekki óraun- hæft þegar betur er að gáð. Rafmagnslestir eru öruggustu, afkasta- mestu og þegar til lengdar lætur ódýrustu almenningsfarartæki í borgarumferð nútím- ans.“ holtsbraut suður um Garðabæ inn á veginn til Suðurnesja (Reykja- nesbraut), og umferðaræð niður Fossvogsdal sem m.a. er ætlað að þjóna hinum fjölmennu Breið- holtshverfum, sem hraðleið inn á miðbæjarsvæði Reykjavíkur. Allir vita hins vegar að þessar úrbætur hafa ekki verið framkvæmdar. Óskiljanlegur seinagangur ríkir um lagningu Reykjanesbrautar. Um þá seinkun má stílfæra fræg ummæli Churchills og segja að aldrei hafi verið beðið jafn lengi með að gera jafn lítið en mikil- vægt fyrir jafn marga. Eins og fram kom í ágætri grein í Morgunblaðinu á dögunum eftir Elínu Pálmadóttur blaðamann virðist ekki heldur ljóst hvernig á að taka við þeim aukna umferðar- þunga sem þá yrði á Breiðholts- brautinni. I nefndri grein er minnst á möguleika á tveggja hæða gatnamótum í þessu sam- bandi annars vegar þar sem Breiðholtsbraut kemur inn á Reykjanesbraut og hins vegar fyrir umferð úr Breiðholt.i niður Stekkjarbakka. Fyrrnefndi kost- urinn er varla nauðsynlegur enda mjög dýr framkvæmd, en brú í framhaldi af Stekkjarbakka yfir Breiðholtsbrautina er nauðsynleg úrbót sem hlýtur að koma. Sú framkvæmd ásamt breikkun Breiðholtsbrautar vegna aukins umferðarþunga þegar Reykjanes- braut kemur í notkun og lagning hraðbrautar niður Fossvogsdal, myndu hafa í för með sér varan- legar úrbætur fyrir umferð á þess- um miklu umferðarleiðum. Nú virðist hins vegar álitamál hvort Fossvogsbraut verði nokkru sinni lögð. Állar þessar framkvæmdir eru þó bráðnauðsynlegar og þarf ekki að rökstyðja það nánar fyrir öllum sem til þekkja. Þær myndu spara stórfé árlega, auka öryggi í umferð og greiða fyrir henni. Það virðist sem það hafi ekki orðið fyrr en með stofnun sam- taka sveitarfélaga á Stór- Reykjavíkusvæðinu að einhver umræða um þessi mál komst í gang. Það hefur að undanförnu margsinnis komið fram hjá for- ráðamönnum þessara samtaka að þeir telja brýn verkefni framund- an í skipulags- og samgöngumál- um höfuðborgarsvæðisins, enda eru þau væntanlega meginverk- efni þeirra. Sem kunnugt er hafa þau sett á stofn sérstaka skipu- lagsstofu til þess að vinna að þess- um verkefnum. Þar sem margnefnd byggð er öll, samgöngu-, atvinnu-, félags- og menningarlega ein heild hefði verið rík ástæða til þess að stofna til þessara samtaka fyrir fjölda ára. í sameiginlegri umfjöllun hefði mönnum snemma orðið vandinn ljós og þróun þá líklegast í ýmsu orðið á betri veg. Vandi og ábyrgð skipulagsaðila Það er gífurlegur vandi og ábyrgð sem skipulagsaðilum eru falin. í víðasta skilningi hafa þeir mótun vissra þátta mannlífsins í hendi sér. Við skipulagsgerð verður að beita margvíslegu verðmætamati sem síðar hefur að meira eða minna leyti áhrif á líf hvers ein- staks borgara. í slíkum störfum er ekki nóg að taka mið af ríkjandi aðstæðum og hugsunarhætti held- ur verður einnig að taka tillit til líklegrar framtíðarþróunar á mörgum sviðum mannlegs lífs. Þetta er gert ýmist með þeim hætti að hafá bein áhrif á þróun- ina og stýra henni og einnig með því að geta sér til um líklega þróun og taká tillit til hennar við skipulagsgerð. Ný tækni ag nýtt gildismat kunna að kresfjast breytinga sem geta verið óframkvæmanlegar hafi ekki fyrri verið gert ráð fyrir þeim. Það getur verið of seint að iðr- ast, þegar búið er að móta um- hverfið með steypu og stáli. Á þetta sérstakjega við um gerð og skipulag umferðarmannvirkja. Ekki seinna vænna Ekki verðui annað séð en ýmis afdrifarík mistök hafi þegar átt sér stað. Skilyrði til greiðra og fullnægjandi samgangna almenn- ingsvagna uni höfuðborgarsvæðið eru bág og gatnakerfi fyrir al- menna bílauniferð í mörgu ábóta- vant. En sérstaklega virðast gerð skipulagsmistök hafa rýrt mögu- leikana til þess að byggja síðar upp afkastamiklar samgöngur fyrir almenningsvagna. í ný- byggðum hverfum er t.d. ekki skil- inn eftir möguleiki fyrir lagningu járnbrauta í gegnum hverfin (undir yfirborði) sem þó líklega eiga eftir að kpma hér eins og víða annars staðar. Sem betur fer er borgarsvæðið j fremur strjálbyggt þannig að miklu má bjarga í þess- um efnum en af fyrrnefndum ástæðum verður það miklu kostn- aðarmeira en þurft hefði að vera. Það er því ejkki seinna vænna að staldra við ög endurmeta þessi mál öll vandlega. Gera þarf lang- tímaspár um líklega þróun sam- gangna í frámtíðinni og meta hvernig við skipulagsgerð á okkar tímum best ýerði tekið tillit til hennar. Hugmyndir um úrbætur Það fellur e.t.v. í misjafnan jarðveg að reifa opinberlega hugmyndir um róttækar úrbætur í þessum málum og ekki hefur greinarhöf. á þeim neina sérfræði- þekkingu. Því má þó svara til að umræða um skipulags- og sam- göngumál er ekki bara fyrir sér- fræðinga. Þvert á móti er nauð- synlegt að menn hugleiði þessi mál og viðri hugmyndir sínar um þau. Það á jafnt við um grundvall- arhugmyndir sem um einstök at- riði. Slíkar hugmyndir og umræða um þær verða oft gagnlegar þeim sem að skipulagsmálum vinna. Á að ganga að Fiskvinnsluskól- anum dauðum? - eftir Lárus Björnsson Nú um þessar mundir eru 10 ár síðao Fiskvinnsluskólinn útskrif- aði sína fyrstu fiskiðnaðarmenn og 11. maí sl. útskrifuðust 14 nýir til viðbótar. Fiskvinnsluskólinn er því að ljúka 13. skólaárinu. Hafa 185 fiskiðnaðarmenn lokið prófi frá skólanum á þessum árum og þar af hafa 47 þeirra stundað framhaldsnám við skólann og lok- ið prófi sem fisktæknar. Af þess- um 47 hafa 7 fisktæknar farið í Háskóla íslands, 6 í viðskiptadeild og 1 í matvælafræði. Af þeim 6 sem fóru í viðskiptadeild eru 2 enn í námi en 4 hafa lokið kandi- datsprófi og starfa þeir allir hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi. Auk þess má geta um 2 fisktækna, sem stunda nám í iðnaðarverkfræði í Bandaríkjunum og 4—5 sem hafa farið til Noreg og menntað sig frekar í sjávarútvegsfræðum og fiskeldi. Þrettán ár í sögu heillar þjóðar er ekki langur tími, en í sögu eins skóla er það ekki svo lítið. Samt sem áður er skammarlega búið að þessari menntastofnun okkar svo að ekki sé fastara að orði kveðið. Þessi skóli starfar nú á fjórum stöðum í Hafnarfirði og allstaðar í leiguhúsnæði. Allt er þetta hús- næði ótryggt og eru leigusamn- ingar raunar útrunnir. Á þessum 13 árum hefur skólinn þurft að vera með kennslu í saltfiskmati á 13 mismunandi stöðum og skreið- armati á 9 mismunandi stöðum, sumum ekki mönnum bjóðandi. Er það samboðið okkur íslend- ingum að bjóða þessum nemend- um skólans upp á annað eins fyrir- komulag? Þessum fáu, vegna þess að húsnæðið takmarkar að hægt sé að taka fleiri en 20 nýja nem- endur á hverju ári. Er það ekki virðingarleysi íslendinga við sjálfa okkur að bjóða upp á slíka hörmung. Það munu vera 4—5 km á milli þeirra skólahúsa sem yst eru og hin tvö eru þar á milli. Þeg- ar ég tala um þessi svokölluðu skólahús vil ég helst ekki lýsa ágæti þeirra, en ástand þeirra er misjafnt. Nú er komið á fjórða ár síðan ákveðið var að byggja nýtt skóla- húsnæði svo starfsemin yrði f hentugu húsnæði og öll á sama stað. Skemmst er frá að segja að málinu hefur heldur lítið þokað áfram og er staðan nú sú að búið er að teikna skólann og Alþingi hefur tvisvar veitt fé í þetta og nú eru til um 17 milljónir til að byrja með, en enn hefur ekki verið gefið grænt Ijós á að byrja. Hér verður að koma til breyting, við höfum ekki efni á að bíða lengur. Er þetta kannske ekki þjóðhagslega hag- kvæmur skóli? Nú á síðustu misserum hefur mikið verið fjallað um gæðamálin í sjávarútveginum og er það gott. Sú umfjöllun má ekki og þarf ekki að vera mjög neikvæð, og maður fær á tilfinninguna að oftar og meira sé fjallað um það sem miður fer en minna um það sem vel er gert, enda eru það eflaust meiri fréttir þegar einhver skandall verður. Líklegt er að neikvæðar fréttir, sem of oft heyrast um út- gerð og fiskvinnslu, hafi fælt frá ungt fólk að leita eftir atvinnu og mennta sig fyrir þessar starfs- greinar. Það getur varla verið eft- irsóknarvert fyrir þetta fólk að velja þessar starfsgreinar að lífsstarfi þegar sífellt er talað um minnkandi afla og verðminni fisk. Auk þess hefur útgerð i þessu landi verið rekin meira og minna með tapi svo lengi sem menn muna. Frystihús unnu skemmdan fisk. Send var mygluð og möðkuð skreið úr landi og heilu skipsfarm- arnir af saltfiski voru stórgallaðir. Þetta er liðin tíð og má ekki gerast aftur, en ekki sýndist þetta nú glæsilegt fyrir það unga fólk sem ætlaði að velja sér lífsstarf. Það er nú eitthvað annað upp á teningn- um hjá sumum öðrum atvinnu- greinum t.d. bönkunum, þar er haldinn hver aðalfundurinn af öðrum þar sem lýst er yfir sífellt betri afkomu og meiri umsetn- ingu. Er ekki von að unga fólkið velji fremur að starfa í bankanum, hjá öruggu fyrirtæki, og vinna á meira „aðlaðandi vinnustað" en að vinna í ótryggri fiskvinnslunni. Þrátt fyrir oft á tíðum dökkt út- lit í fiskvinnslunni er ekki þar með sagt að útlitið sé ekki bjart fram- undan. Sem betur fer er margt fólk sem vill vinna í fiski og líkar „Það er því örugglega kolvitlaus stefna að ganga af Fiskvinnslu- skólanum dauðum, eins og nú er stefnt að. Ég skora því á mennta- málaráðherra að bæta úr aðstöðuleysi skólans með því að framfylgja vilja Alþingis og hefja nýbyggingu skólahús- næðis strax!“ það vel. Eins er margt fólk sem vill leita sér aukinnar fræðslu í fiskiðnaði í formi námskeiða og lengri menntunar. Að minnsta kosti hafa á seinni árum fleiri sótt um inngöngu í Fiskvinnsluskólann en hægt hefur verið að hýsa. Fisk- vinnslan býður tiltölulega lág laun miðað við aðra atvinnuvegi, þessi laun eru svo hækkuð með ákvæð- isvinnukerfi sem raunar er komið út í hálfgerðar öfgar. Fiskvinnslan getur ekki, við núverandi aðstæð- ur, greitt öllu hærra kaup þar sem hún getur ekki, eins og svo margir atvinnuvegir, velt kostnaðarhækk- unum út í verðlagið. Sú uppbygg- ing sem þurft hefði að vera í fisk- vinnslufyrirtækjum hefur ekki orðið nálægt því eins mikil og æskilegt væri, þar sem allir pæn- ingar fara í „reddingar“ frá viku til viku í þrautpínda útgerð hjá þeim fyrirtækjum sem eru með bæði útgerð og vinnslu. Þetta verður að betrumbæta þegar til lengri tíma er litið, og það á ekki að bíða með það þar til að allt er í óefni er komið. Til að verði hægt að gera fiskiðnað samkeppnisfær- an um vinnuafl við aðra atvinnu- vegi þarf að tæknivæða þennan stóriðnað eins og mögulegt er og þar með fækka erfiðum störfum. Þetta er hægt að gera nú þegar og á heldur ekki að bíða með það þar til það er orðið of seint. Þegar tím- ar líða skilar þetta góðum arði og þá er hægt að hækka launin og verður þá ef til vill eftirsóknar- vert að vinna í fiski. Það er því örugglega kolvitlaus stefna að ganga af Fiskfinnslu- skólanum dauðum, eins og nú er stefnt að. Ég skora því á mennta- málaráðherra að bæta úr aðstöðu- leysi skólans með því að fram- fylgja vilja Alþingis og hefja ný- byggingu skólahúsnæðis strax. Lárus Björnsson er fískíæknir og kennari yið Fiskrinnsluskólann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.