Morgunblaðið - 30.05.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
71
+ Larry Hagman, sá leiðinlegi J.R. í Dallas, brá sér
nú nýlega til Lundúna og þá vildi svo til, að í sömu
vél var Dallas-konan hans, Linda Gray. Það vakti
þess vegna athygli, að þau fylgdust ekki að þegar
þau gengu frá borði. _Eftir að Linda skildi reynum
við að komast hjá því að vera saman á mynd ann-
ars staðar en við upptökurnar. Fólk virðist nefni-
lega eiga erfitt með að greina á milli sjónvarpssög-
unnar og raunveruleikans," sagði Hagman.
fclk f
fréttum
Tony Curtis
Elizabeth Taylor
Robert Mitchum er heldur framlág-
ur á þessari mynd en hún var tekin í
veislu í Hollywood nú nýlega.
Stjörnurnar berjast við Bakkus
með því að skúra gólf og vaska upp
+ Elizabeth Taylor liggur á fjór-
um fótum með skuplu á höfðinu,
gúmmíhanska og skúringabursta
í hendinni; Tony Curtis er að
safna saman diskum og setja þá í
uppþvottavélina; Johnny Cash er
að raka saman dauðum laufblöð-
um úti í risastórum garði.
Ætla mætti að verið væri að
tala um nýja kvikmynd en svo er
ekki. Þetta er bara daglega lífið á
Betty Ford-stofnuninni í Kali-
fomíu. Þangað leitar ríka og
fræga fólkið í Bandaríkjunum til
að vinna bug á áfengissýkinni og
lyfjaátinu og heitir stofnunin í
höfuðið á Betty Ford, fyrrum for-
setafrú, sem kom fram fyrir al-
þjóð og sagði frá því, að hún væri
alkóhólisti.
ólikt því, sem er með flestar
svona stofnanir í Bandaríkjunum,
þá er meðhöndlunin ekki fólgin í
hóplækningum eða einkaviðtölum
við sjúklinginn.
„Fólkið, sem biður okkur um
hjálp, á rétt á að fá hana en við
höfum reynslu af þvf, að við verð-
um líka að gera kröfur til þess.
Við köllum það ekki gesti okkar
eða eitthvað þess háttar heldur
bara sjúklinga, sem fólkið er,“
segir Louise Farron, ein af lækn-
unum.
Vistin á stofnuninni er dýr en
þrátt fyrir það fá vistmenn ekki
að baða sig upp úr neinum lúxus.
Allir verða þeir að vinna í átta
tíma á dag og geta valið um
eitthvert þessara starfa: Eldhús-
verk, hreingerningar eðh garð-
vinnu.
„Hérna er farið með fólk eins og
manneskjur, alveg sama hve langt
það er leitt. Ekki þó þannig, að
verið sé að vorkenna fólki, að
klappa því á kollinn, heldur er þvf
sýnd full virðing og það er einmitt
það, sem fólk, sem er djúpt sokkið,
þarf á að halda,“ segir Betty Ford,
sem komið hefur sumum kunn-
ingjum sinum á stofnunina þegar
farið var að halla undan fæti fyrir
þeim. Af þeim má t.d. nefna Tony
Curtis og Peter Lawford, sem var
kvæntur systur þeirra Kennedy-
bræðra.
Af öðru frægu fólki má nefna
Elizabeth Taylor, sem einnig vann
það afrek að léttast um 25 kíló
meðan hún var á stofnuninni,
Johnny Cash, sem hefur verið þar
í tvígang og segist vonast til að
þurfa ekki að koma þar aftur, og
nú sfðast Robert Mitchum, sem
var búinn að missa alla stjórn á
drykkjunni.
COSPER
— Hvað sagði píparinn, þegar þú fórst að gefa hon-
um góð ráð?
Blombe
s
KAUP
sem borga sig gerirðu í þessum
stóra kæliskáp frá Blomberg.
sem falla þór í geð færðu hjá
okkur. Verð kr. 12.920.- stgr.
EINAR FARESTVEIT &. CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A
SlMI 16995