Morgunblaðið - 15.07.1984, Síða 44
Ýlh
44
> T*'i
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLl 1984
+
Þökkum auösýnda samúö og vinsemd vegna andláts og jaröarfarar
ÁSU PÁLSDÓTTUR,
Bölstaöarhlíö 42.
Ragnhildur Pálsdóttir,
Katrín Gísladóttir, Guöný Rósa Gísladóttir,
Svanhvft Siguröardóttir.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall
móöur okkar,
ELÍNBORGAR EIRÍKSDÓTTUR,
húsfrayju,
Knarramasi.
Sérstakar þakkir færum viö björgunarsveit Varnarliösins á Kefla-
víkurflugvelli og Slysavarnarfélagi íslands, frændum og vinum fyrir
ómetanlega hjálp.
Systkinin í Knarrarnasi.
+
Jaröarför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
ÓLAFÍU GUÐRÚNAR SUMARLIÐADÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 17. júlí kl. 13.30.
Jón Ársæll Jónsson,
Ólafur G. Jónsson, Marfa Einarsdóttir,
Sumarliöi G. Jónsson, Hilma Marinósdóttír,
Estar Jónsdóttir, Ágúst Arason,
Markús Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför móöur okkar og fósturmóöur,
HELGU KRISTJÁNSDÓTTUR,
sem andaöist 11. júlí, fer fram frá Haukadalskirkju í Biskupstung-
um, miövikudaginn 18. júlí.
Steinunn Arnórsdóttir Berglund, Erlingur Arnórsson,
Sighvatur Arnórsson, Sólveig Arnórsdóttir,
Arnþrúöur Arnórsdóttir, Indriði Sigurösson,
Helga Jónsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin-
manns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
EYÞÓRS INGIBERGSSONAR,
múrarameistara,
Sólvallagötu 43.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki öldrunardeildar Borgar-
spítalans og öllum sem önnuöust hann í veikindum.
bórdfs Sveinbjörg Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og jaröar-
för eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
GUÐBJÖRNS EIRÍKSSONAR,
fyrrverandi bónda
aö Akrakoti, Skeiöum.
Halia Guöbjörnsdóttir,
Sigmundur Guóbjörnsson,
Jón Guöbjörnsson,
Þórlaug Guöbjörnsdóttir,
Áslaug Guóbjörnsdóttir,
Guórún Guöbjörnsdóttir,
Sigmar Guöbjörnsson,
Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir,
Jón Björnsson,
bórfrföur Haraldsdóttfr,
Kristfn Kristjánsdóttir,
Ólafur Jónsson,
ísólfur Sigurösson,
Einar Matthfasson,
Theódóra Sveinbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegt þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vináttu
viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa,
VIGFÚSAR SIGURGEIRSSONAR,
Ijósmyndara,
Miklubraut 64.
Gunnar G. Vigfússon, Erla M. Helgadóttir,
Bertha Vigfúsdóttir, Gunnar Á. Hinriksson
og barnabörn.
Sigríður Guðjóns-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 13. október 1947
Dáin 9. júlí 1984.
Það rökkvar í rauðum skógi.
Þau reika um hljóða lundi
í örendu aftangliti
og allt er kyrrt og rótt.
Týnt hefur sðng og sundi
hver sumarfugl og blómin
glatað ljóma og liti
og laufið fellur í nótt.
(ÓJ.S.)
Þessar ljóðlínur lýsa vel hvernig
okkur er innanbrjósts við að missa
Siggu, mágkonu okkar. Við vorum
öll orðin svo vongóð um að hægt
væri að yfirvinna sjúkdóm þann,
er hún hafði lifað með í sex ár.
Sigríður Guðjónsdóttir til heim-
ilis að Kambaseli 65 lést á sjúkra-
húsi í Harley Street i London 9.
júlí sl.
Oft er því varpað fram að
vandamál séu til að leysa þau og
erfiðleikar til að yfirstíga þá.
Greinilega eiga þessi orðtök ekki
við í öllum tilfellum, þar eð Siggu
tókst það ekki, þrátt fyrir gífur-
legan viljastyrk og lífsþrótt, að
sigra í sinni baráttu.
Hún tók því fegins heldi þegar
læknavisindin buðu upp á mögu-
lega lækningu á hvítblæðinu með
mergskiptum. Hún fór ásamt
manni sínum, Ásmundi, til Lond-
on 9. maí í meðferð, sem fólst í
mergskiptum að undangenginni
lyfjameðferð og geislum. Þessi
meðferð er mjög erfið, en Sigga
stóð sig eins og hetja. Hún hafði
mikinn stuðning af manni sínum,
sem var hjá henni allan tímann
ásamt eldri syni þeirra. Margir
studdu þau í þessum raunum bæði
hér á íslandi og í London og var
þeim það ómetanlegt.
Sigga var alltaf ákveðin í að
meðferðin myndi heppnast með
sömu bjartsýni og hún hafði sýnt í
gegnum alla sjúkdómsferil sinn.
Hún sagði á sunnudaginn var að
hún myndi skála í kampavíni við
lækna og alla lækna og vini í
London og á íslandi á þriðjudag-
inn 10. þ.m. því hún var fullviss
um að þá væri mergurinn farinn
að vinna. En sú von brást.
Sigríður Guðjónsdóttir fæddist
13. október 1947. Foreldrar hennar
voru Margrét Ágústsdóttir d. 1980
og Guðjón Kr. ólafsson d. 1961.
Börn Margrétar og Guðjóns voru
níu talsins: Jóna, Ágúst, Steinar,
Sigurður, Sigríður, Jófríður,
Reynir Guðjón, d. 1981, og Jó-
hanna.
Hún giftist Erni Ingólfssyni 18
ára gömul og eignaðist með hon-
+
Móöir min,
GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Mávahlíö 4, Raykjavík,
lést í Landakotsspítala 12. júlí sl.
Fyrir hönd aöstandenda,
Garöar Sigurösson.
+
Viö þökkum öllum er sýndu okkur vináttu og hlýhug í minningu
VILHJÁLMS b. BJARNAR,
bókavaröar,
er lést í íþöku i New York ríki 30. ágúst 1983.
Dóra Bjarnar,
Erik Thor, Jón Ingi og
Svava Kristín Bjarnar.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns
míns, fööur og tengdafööur,
JÓNS GUÐJÓNSSONAR,
loftskeytamanns
trá Heateyri.
Helga Siguröardóttir,
Geir Geirsson, Eybjörg Siguröardóttir,
Pálína Jónsdóttir,
Guójón Jónsson, Karla Jónsdóttir,
Kristjana Jónsdóttir, Stefán Kristjánsson,
Jóhanna og Erling Edwald.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMWÆGI 48 SiMI 76677
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
um tvö börn, Ingólf (19 ára) og
Lindu (16 ára), en þau slitu sam-
vistir eftir stutta sambúð.
Hún kynntist eftirlifandi eig-
inmanni sínum, Ásmundi Hall-
dórssyni, 1970, sem gekk börnum
hennar í föðurstað. Saman eignuð-
ust þau einn son, Halldór, sem
varð 10 ára sl. þriðjudag.
Við kynntumst Sigríði, sem allt-
af var kölluð Sigga, þegar hún
giftist bróður okkar Ásmundi og
reyndist hún okkur ávallt eins og
góð systir. Við eigum margar
minningar um ánægjulegar sam-
verustundir. Við viljum fyrir hönd
okkar og fjölskyldu okkar, for-
eldra og fjarverandi bróður þakka
fyrir þann tíma, sem við fengum
að njóta samvista við hana.
Hún var ákaflega sérstæð
manneskja og kom það sterkast i
ljós eftir að hún fékk vitneskju um
sjúkdóm sinn. Hún var Htillát, ljúf
og glaðvær. Hún bar tilfinningar
sínar sjaldan á borð og lét aldrei
bilbug á sér finna. Sjálfsagt hefur
hún slegið ryki í augu margra
varðandi sitt heilsufar með
hraustlegu útliti og lífsgleði. Síð-
ustu árin stundaði hún skíði af
mikilli elju og fór að starfa utan
heimilis, þrátt fyrir veikindi sín.
Hugðarefni Siggu lágu mest
innan heimilis og fjölskyldu. Hún
hafði yndi af að búa til muni og
gera fallegt í kringum sig. Hún
var mikil fjölskyldumanneskja og
var náin systkinum sínum. Okkar
fólki reyndist hún frábær og mun-
um við öll sakna hennar mikið og
verður stórt skarð í okkar fjöl-
skyldu nú þegar hún er farin.
Við vottum Ásmundi og börnun-
um innilegustu samúð og biðjum
þess að þau fái styrk á þessum
sorgartíma. Við getum kannski
reynt að hugga okkur við að betra
sé loflegt líf en langt. Einnig send-
um við systkinum hennar samúð-
arkveðjur, en þau hafa þurft að
horfa á eftir mörgum ástvinum á
skömmum tíma.
„Þú hvíslar að mér orðum
sem yngja varir þínar
og sefa dýpstu sorgir
af sömu ást og forðum.“
„í nótt mun bilið brúast
sem blöð og anda skilur
ég fylgi þér til fundar
við frið sem ekkert dylur.“
(ÓJ.S.)
Erna Bryndís Halldórsdóttir,
Helga G. Halldórsdóttir.
Það er fremur dapurlegt að setj-
ast niður og kveðja konu í blóma
lífsins, en vegir Guðs eru órann-
sakanlegir. Ekki óraði okkur fyrir
er við kvöddum Siggu að við ætt-
um ekki eftir að sjá hana aftur.
Sigríður Guðjónsdóttir verður
til moldar borin 16. júlí frá Dóm-
kirkjunni kl. 3 e.h. en hún lést í
sjúkrahúsi í London. Hún var gift
eftirlifandi manni sínum, Ás-
mundi Halldórssyni, vélstjóra, og
áttu þau þrjú börn. Það verður
dapurlegt í kunningjahópnum eft-
ir þetta því margar góðar stundir
áttum við saman.
Elsku Ási, Ingó, Linda og Hall-
dór. Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð í ykkar miklu sorg.
Megi Guð vera með ykkur. Blessuð
sé minning hennar.
Alda og Tommi