Morgunblaðið - 03.08.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.08.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984 Skeljungur setur aukaefni í bensínið Esso íhugar málið OLÍUFÉLAGIÐ Skcljungur hefur í undirbúningi að sctja aukaefni í bensín og díselolíu, sem seld er á útsölustöðum félagsins og er gert ráð fyrir að búið verði að blanda aukaefnum í vörur félagsins eftir helgina. Þá hefur OHufélagið hf. þetta mál í athugun. í Morgunblaðinu í gær er birt frétt frá OLlS þess efnis að auka- efni verði hér eftir í bensíni fé- lagsins og segir ennfremur að eft- ir reglubundna notkun í 4—6 Morgunblaðift/Júlíus Frá upphafi samningafundar í dag. Taldir frá vinstri: Geir Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Þorsteinn Geirsson, settur ráðuneytisstjóri f sjávarútvegsráðuneytinu, Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari og Björn Arnþórsson, hagfraeðingur BSRB. Ríkisvaldið hafnar alfarið kröfum BSRB á fyrsta samningafundi deiluaðila: 80 % verðbólga myndi af hljótast næðu kröfur BSRB fram að ganga - segir Geir H. Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra „Við fengum þau svör hjá samn- inganefnd ríkisins, að þeir væru ekki tilbúnir til viðræðr.a um annað en samið var um í febrúii síðastliðn- um,“ sagði Haraldur Uteinþórsson, varaformaður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja í samtali við blm. Morgunblaðsins, en fyrsti fundur með samninganefndum BSRB og ríkisins hjá ríkissáttasemj- Veðrið í Reykjavík: Meira en tvöföld meðalúrkoma í júlí „VEÐRIÐ í júlí var ákaflega milt um allt land. Hér suð-vestanlands var þó ekki verulega hlýtt nema fyrstu níu dagana, en síðan var lengst af dumbungsveður eða rign- ing og þoka mjög tíð, þó áfram væri milt,“ sagði Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur, f samtali við Mbl. aðspurð um veðurfar f júlí. Hún sagði að meðalhiti í Reykjavík hefði verið 11,2 stig, sem væri jafnt meðal- tali fyrir árin 1931 til 1960. „Það sem var afbrigðilegt var hins vegar úrkoman, sem reyndist vera 113 millimetrar í Reykjavík. Það er meira en tvöföld meðalúr- koma og það mesta sem hefur mælst í júli frá 1926, en þá mæld- ust 118 millimetrar. Meðalhitinn á Akureyri var 12,7 stig í júlí, en þar komst hitinn yfir 20 stig í sex daga. Þetta er 1,8 stigum fyrir ofan meðaltalið fyrir 1931 til 1960 og 2,4 stigum fyrir ofan meðaltalið frá 1961 til 1980. Þetta var hlýjasti júlímánuður á Akureyri frá 1955, að sögn öddu Báru. ara var í gær. Fundinum lauk án þess að boðað væri til nýs fundar. „Þeir gáfu þá skýringu, að það væru engar forsendur fyrir hendi til launahækkana og þeir sæju ekki möguleika á breytingum á launakjörum ríkisstarfsmanna á næstunni," sagði Haraldur enn- fremur. „Fjármálaráðherra hafnaði kröfugerð BSRB alfarið og fram kom að hann væri ekki til við- ræðna um neitt umfram það sem samið var um í febrúar í vetur," sagði Geir H. Haarde, aðstoðar- maður fjármálaráðherra, sem sæti á í samninganefnd ríkisins. Geir sagði að 3% launahækkun- in, sem umsamin hefði verið 1. september, kæmi ekki til fram- kvæmda nema samið væri um hana á nýjan leik og kröfugerð BSRB væri vægast sagt óraunhæf. „Miðað við að það verði 30% al- menn launahækkun í landinu 1. september, er því spáð að verð- bólguhraðinn verði 80%, í stað þeirrar 10% verðbólgu, sem spáð var að óbreyttu ástandi. Svona kröfugerð er alveg út i bláinn og gerir engum gagn og stefnir efna- hagsárangrinum sem náðst hefur í verulega hættu,“ sagði Geir. „Þegar lengra er litið, til dæmis til næsta árs, og að meðtalinni þeirri 5% hækkun, 1. janúar 1985, sem BSRB gerir kröfu um þá, sýn- ist okkur, að um kaupmáttarrýrn- un verði að ræða, þegar á næsta ári vegna þessarar verðbólgu. Ég trúi því ekki að almenningur vilji kalla yfir sig slíka óðaverðbólgu eftir þær fórnir, sem búið er að færa, og enginn ábyrgur fjármála- ráðherra getur fallist á slíkt," sagði Geir Haarde að lokum. skipti, muni aukaefnið hindra út- fellingar og sótmyndun í vélinni. Af þeim sökum muni vélin ganga léttar, afköstin batna og oktan- þörf vélarinnar minnka og þar með eldsneytiseyðslan. Indriði Pálsson, forstjóri olíufé- lagsins Skeljungs, sagði að þeir hjá Skeljungi myndu nota auka- efni, sem hefði verið notað hjá Shell víða um heim með góðum árangri á undanförnum árum. „Fyrir einu ári var okkur boðið einkaumboð fyrir þetta efni, „orobis", sem OLÍS setur í bensín- ið hjá sér. Við leituðum okkur upplýsinga erlendis og okkur var ráðlagt að nota annað efni, sem framleitt er í Þýskalandi," sagði Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins hf., í samtali við blm. Morgunblaðsins. Vilhjálmur sagði að það væri í athugun hjá þeim að setja auka- efni í bensínið sem þeir seldu. Hins vegar væri mikið af aukaefn- um í olíum á markaðnun og mönnum bæri ekki saman um gagnsemina, sumir héldu því jafn- vel fram að í sumum tilfellum gætu aukaefni valdið skemmdum á vélunum. I því sambandi benti Vilhjálmur á að sumir vélafram- leiðendur felldu niður ábyrgð á vélum sínum, væri aukaefni notað í smurolíu þeirra véla, sem þeir framleiddu. „Þess vegna höfum við verið svolftið ragir við að fara út í þetta, en við höfum það til athugunar," sagði Vilhjálmur, og benti jafn- framt á, að þeir hefðu til sölu bætiefni á útsölustöðum sínum, ef menn kærðu sig um að setja það í bensínið. Trésmiðir óskast MIKIL VINNA Óskum aö ráöa 5—6 trósmiöi í mótauppslátt í 2—3 mánuöi í Garöabæ strax. Mikill vinna fyrir duglegan menn. Ákvæðisvinna og eöa bónus. Þeir sem hafa áhuga fyrir þessum störfum vinsamlega hafiö sam- band viö Trausta í síma 68-73-70 á daginn og á kvöldin í síma 72391. AFSAKIÐ^ SAGA FILM MIÐ FÖRUNVI TIUDAGkFRI FRk 3.-13. AGÚST L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.