Morgunblaðið - 03.08.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGOST 1984
15
Samkomulag um
framtíð Hong Kong
Samkvæmt því verður frjálst hagskipulag þar áfram við lýði
Loodon, 2. kfÚBL AP.
SIR Geoffrey Howe, utanríkis-
rádherra Bretlands, kom í morg-
un heim úr fór sinni til Kína og
Hong Kong, þar sem hann
kunngerði, að samkomulag
hefði verið gert varðandi af-
hendingu nýlendunnar til Kína,
sem myndi tryggja hið frjálsa
hagskipulag hennar.
Howe átti fjögurra daga við-
ræður við kínverska leiðtoga í
Dollarinn
lækkar aðeins
London, 2. ágúst AP.
DOLLARINN féll örlítið í verði f
dag eftir metgengi síðustu daga.
Pundið féll mjög gagnvart dollaran-
um í gaer en rétti nokkuð úr kútnum
ídag.
Þegar kauphallarviðskiptum
lauk í gær fengust ekki nema
1,3035 dollarar fyrir pundið en nú
á miðjum degi var sú tala komin í
1,3065. Staðan gagnvart öðrum
gjaldmiðlum var þessi ef miðað er
við einn dollara: 2,9070 v-þýsk
mörk; 2,4630 svissneskir frankar;
8,9255 franskir frankar; 3,2770
hollensk gyllini; 1.782,25 ítalskar
lírur og 1,3059 kanadískir dollar-
ar. í dag fengust um 245 japönsk
yen fyrir dollarann.
Gullverð hækkaði örlítið í dag
þegar gengi dollarans minnkaði
frá því, sem það var í gær.
Peking og skýrði síðan frá niður-
stöðum þeirra er hann var kom-
inn þaðan til Hong Kong. Sagði
hann, að fulltrúar Breta og Kín-
verja myndu undirrita bráða-
birgðasamkomulag um þetta í
september.
Blaðið Financial Times skýrir
hins vegar svo frá í morgun, að
þetta samkomulag geti „ekki dul-
ið þá staðreynd, að sérhvert sam-
komulag, sem gert er við Kín-
verja, eigi allt undir góðum vilja
valdhafanna í Peking hvað
árangur snertir og þeim yfirlýsta
vilja þeirra að varðveita Hong
Kong, sem velmegandi eyju hins
frjálsa framtaks á mörkum þess
stóra landsvæðis, sem kommún-
istar ráða.“
Utanríkisráðherrarnir Sir Geoffrey Howe og Wu Xueqian eftir viðræður sínar
í Peking.
Hleranir í
Bretlandi
Strassbourg, Frakklandi, 2. ágúst AP.
Mannréttindadómstóll Evrópu í
Strassbourg hefur kveðið upp þann
úrskurð, að brezka rikisstjórnin hafi
gerzt sek um mannréttindabrot með
því að leyfa að símar grunaðra af-
brotamanna séu hleraðir.
Úrskurðurinn var samhljóða.
Þar sagði að aðgerðir af þessu tagi
sem væru samkvæmt brezkum
lögum og væri framfylgt að
minnsta kosti i Wales og Eng-
landi, væru ekki réttlætanlegar og
væri brot á persónufrelsi fólks.
í lögunum er kveðið svo á um að
liggi maður undir grun um að hafa
framið alvarlegt afbrot og sím-
hleranir gætu leitt til að málið
upplýstist, séu hleranir heimilað-
ar. _______, t t_____
Fjöldamorð-
ingi dæmdur
Aichorage, Alaxka. 28. júlf. AP.
Tölvufræðingur, sem myrti einn
þriðja allra íbúa heimabæjar síns
var dæmdur í 634 ára fangelsi í dag.
Maðurinn myrti alls 6 manns og
særði tvo er hann gekk berserks-
gang í smábænum McCarthy.
Ætlaði hann að myrða alla íbúa
bæjarins og freista þess að eyði-
leggja olíuleiðsluna um Alaska.
Noregur:
Jákvæður við-
skiptajöfnuöur
Frá Jan-Erik Lauré I Osló. 2. ágúst.
Viðskiptajöfnuður Norðmanna
við útlönd varð jákvæður um 19,6
milljarða norskra króna á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs. Er þetta
49,1% aukning frá þvf á síðasta
ári, eða sem samsvarar 13,1 millj-
arði norskra króna.
Panasonic
Endurtekur ævintýrið.
5 þriggja tíma
VHS myndsegulbandsspólur
í pakka á aóeins
kr. 399.-
spólan.
Ekki kasta krónunni og spara aurinn.
veljiö þaö besta frá Panasonic,
stærsta VHS framleiöanda heims.
Ath. fást nú líka í
HAGKAUP
Skeifunni Akureyri Niaróvik
180
180
180
180
180
VUHK>
cassstts
NVE180
VIDfiO
CJtSSfiTTE
itssiao
VIDBO
CASSBTT*
NVB180
VIDRO
CASSKTTB
NVBiao
VIDSO
CASS8TT®
NVEtSO
VIIS
7Í1BS